Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 31
BMW 3 línan
www.bmw.is
Sheer
Driving Pleasure
B&L - Grjóthálsi 1 - 110 Reykjavík - Sími 575 1200 - www.bl.is - www.bmw.is
Með bílinn handa þér
Velgengni í mismunandi myndum.
Þitt er valið.
BMW 318 Advantage kr. 3.810.000
BMW 320 Exclusive kr. 4.290.000
BMW 325xi xDrive Prestige Edition kr. 5.900.000
Advantage, Exclusive og Prestige edition eru aukahlutapakkar sem gerir glæsilega
BMW 3 línu enn glæsilegri. Nánari upplýsingar hjá sölumönnum í síma 575 1210.
Ertu að leita þér að sportlegum lúxusbíl fyrir þig og vinnuna? Viltu færast nær sólinni, veginum og frelsinu - með blæjuna niðri og vindinn einan að förunaut.
Vantar þig meira rými svo að áhugamálin komist fyrir í bílnum. Eða langar þig til að upplifa ósvikna akstursánægju eins og hún gerist best. BMW 3 línan stendur
undir væntingum í ótal myndum og rúmlega það. Komdu í reynsluakstur og upplifðu alla kosti BMW 3 línunnar af eigin raun.
dag]. Ég gerði það vegna þess að
mér fannst að við ættum ekki að
eiga of langa aðild að fyrirtæki
sem væri í áhættusömum sam-
keppnisrekstri og líka vitandi að
við gætum selt hlutinn og að kaup-
andi væri að honum.“
– En hvað ef Reykvíkingar verða
af miklum hagnaði?
„Fulltrúar Samfylkingar og
Framsóknar, Dagur B. Eggertsson
og Björn Ingi Hrafnsson, hafa tal-
að um að framundan sé ofsagróði.
En hvernig geta tveir borg-
arfulltrúar á Íslandi fullyrt að
framundan sé 40 til 50 milljarða
hagnaður af rekstri erlendis? Hvað
ætluðu menn ekki að græða á De-
code á sínum tíma?“
– Ef hagnaður er fastur í hendi
upp á marga tugi milljarða – er
fyrirtækið þá kannski of lágt verð-
lagt?
„Það má segja það,“ segir Vil-
hjálmur brosandi. „Þetta sýnir
hversu fáránleg umræða þetta er.“
Fjölmiðlar rýndu hvert skref
– Hefði ekki þurft að upplýsa
betur borgarfulltrúa Sjálfstæð-
isflokks um að sameining stæði til
áður en ferlið var komið svona
langt?
„Jú, tvímælalaust. Ég hefði unn-
ið með öðrum hætti núna þegar ég
hugsa til baka. Og viðurkenni það
fúslega að þetta mál hefði mátt
kynna fyrr eða jafnvel gefa sér
meiri tíma til að ræða það. En það
var mín hugsun að þarna væri ver-
ið að ná inn fjármunum til Orku-
veitunnar og losa um skuldbind-
ingar með sölu á þessum hlutum.“
– Bjóstu við jákvæðari við-
brögðum af hálfu borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins?
„Já, ég bjóst við því.“
– Þetta kom þér á óvart?
„Já, nokkuð á óvart. En síðan
fer málið í ákveðið umræðuferli.
Það er eins og ýmis dagblöð hafi
fylgst nákvæmlega með því hvað
fór fram og málið náttúrlega keyr-
ist upp í þessari umræðu.
Það hefur enginn borgarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks viðurkennt að
hafa stundað upplýsingastreymi
eins og gefið er til kynna í ýmsum
fjölmiðlum. Oft er fjallað um við-
kvæm mál á fundum sem rata
sundrung
» Alfreð hefur ekk-
ert rætt þessi mál
við mig, akkúrat ekki
neitt. Það er greini-
legt að hann telur sig
eiga einhverra harma
að hefna ...
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Eftir fallið Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hélt blaðamannafund fyrir utan heimili sitt ásamt öðrum borgarfulltrúum
sjálfstæðismanna í Reykjavík á fimmtudag eftir að ljóst var að meirihlutinn var fallinn.