Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 50
50 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Til leigu er skrifstofuhúsnæði við Austurveg 20 á Reyðarfirði. Um er að
ræða 65 fm sérrými fyrir skrifstofu og 16 fm sameiginlegt rými þar sem
snyrting og kaffistofa eru sameiginleg með annarri starfsemi í húsinu.
Aðgangur að góðum svölum með útsýni út á fjörðinn.
Til leigu á Kjalarnesi. Húsið er í byggingu og verður tilbúið í desember.
Húsið er stálgrindarhús með veggjahæð 7 metra og 9 metra í mæni og
með 6 metra háar innkeyrsludyr. Húsinu verður skipt upp í 3, jafnar
einingar. Um er að ræða eitt bil til útleigu, 400 - 600 fm. Milliloft og
salur skilast sem eitt rými.
Austurvegur 20 - Reyðarfjörður
Kistumelur - 116 Kjalarnes
Nýtt atvinnuhúsnæði rétt við Helguvík. Alls 10 rými sem hvert um sig er
245 fm, með 34 fm starfsmannarými. Full lofthæð milli bita er ca 5,9
fm en vegghæðin er 5 m. Hurðir eru 3 metrar á hæð og rafdrifnar. Nú
þegar eru 4 bil tilbúin. Lóð verður malbikuð að stórum hluta og í
kringum húsið.
Hólmbergsbraut -230 Reykjanes
Til leigu verslunarhúsnæði á horni Laugavegs og Snorrabrautar. Rýmið
er á 2 hæðum, alls 185 fm, þar af 10 fm geymslurými á jarðhæð. Góð-
ur stigi á milli hæða. Auk þess fylgir eitt bílastæði í bílageymslu. Þetta
húsnæði býður upp á marga möguleika.
Laugavegur 101 - Reykjavík
Til leigu glæsilegt, 1792,6 fm atvinnuhúsnæði miðsvæðis í Reykjavík.
Húsnæði á þremur hæðum sem skiptist í vörugeymslu 1.792,6 fm með
allt að 11 m lofthæð og innbyggðri kæli og frystigeymslu um 100 fm.
Skrifstofuhlutinn er á tveimur hæðum alls 624,3 fm. Samtals er húsið
2416,9 fm á 5.056 fm lóð.
Björgvin Víðir
Guðmundsson
Viðskiptastjóri
vidir@domus.is
s. 664 6024/440 6024
Köllunarklettsvegur - Reykjavík
Barbara Wdowiak
Löggiltur leigumiðlari
Sími 440 6020
GSM 664 6020
barbara@rentus.is
Þórey Jónsdóttir
Viðskiptastjóri
thorey@rentus.is
s. 664 6061/664 6061
Barbara Wdowiak
Löggiltur leigumiðlari
Sími 440 6020
GSM 664 6020
barbara@rentus.is
Halldór Jensson
Viðskiptastjóri
halldor@domus.is
s. 840 2100/440 6014
Bæjarhrauni 10 • Hafnarfirði • Sími 520 7500 • www.hraunhamar.is
Sérlega falleg íbúð á þessum vin-
sæla stað í smáíbúðahverfinu í
Reykjavík. Íbúðin er 83,7 fm og er á
þriðju hæð. Skipting eignarinnar:
hol, stofa, eldhús með borðkróki, 2
svefnherbergi og baðherbergi, auk
geymslu og reglubundinnar sam-
eignar. Eign sem vert er að skoða. V.
21,9 millj.
STÓRAGERÐI - RVK.
Frábær og vel staðsett íbúð í nýlegu
lyftuhúsi á einstökum stað við sjáv-
arsíðuna í vesturbæ Reykjavíkur,
steinsnar frá miðbænum. Íbúðin er
71,1 fm. Gott aðgengi. Fallegar inn-
réttingar, vönduð gólfefni. Falleg
eign sem vert er að skoða. V. 23,5
millj.
SÓLVALLAGATA - RVK.
Sjarmerandi íbúð á þessum vinsæla
stað í Kópavogi. Íbúðin er 75,9 fm
auk útiskúrs sem ekki er skráður hjá
FMR og er hann um 10 fm. Íbúðin er
á jarðhæð og er með sérinngangi.
Skipting eignarinnar: forstofa, hol, 2
svefnherbergi, eldhús með borðkrók,
stofa, baðherbergi, geymsluskúr og
sameignlegt þvottahús. Falleg eign
sem vert er að skoða. V. 23,9 millj.
SKÁLAHEIÐI - RVK.
3JA HERBERGJA
2JA HERBERGJA
TÍMI aðgerða er runninn upp.
Nýir vendir sópa best, segir
gamalt orðtæki. Samfylking fékk
umhverfisráðuneyti í núverandi
ríkisstjórn. Enn hefur
ekki mikið sópast
undan því ráðuneyti.
Sumir muna kannski
eftir Júlíusi Sólnes í
sambandi við upphaf-
ið og vandræðagang,
og svo Össur og ein-
hvern hávaða, en síð-
an hefur ráðuneytið
fengist við friðun
rjúpu og hálfeyðilegg-
ingu á vatnsmiðlun
við Þjórsárver. – En
nú hefur orðið pilsa-
sláttur. Í stað þess að
þrasa um mengun í lofti, flúor og
ryk, hafa orðið kaflaskil. Þórunn
Sveinbjarnardóttir ráðherra hefur
náð að beygja álrisana í duftið, og
til að koma í ráðuneytið til að fá
koltvíoxíðkvóta, bráðsnjöll hug-
mynd. Seinna má þrengja að þeim
og skrúfa fyrir kvótana, en hér er
reynsla af kvótakerfum. Svo má
láta þá borga losunartolla. Í stað
þess að berjast gegn orkuvinnslu,
þá er nú tekið um pústið og því
stýrt og skattlagt síðar. Þar sem
kolefni er nauðsynlegt við álfram-
leiðslu, er defaktó tekið um önd-
unarfærin. „Tími aðgerða í lofts-
lagsmálum er runninn upp,“ segir
ráðherrann. Hrollvekja risanna er
komin, málin verða afgreidd á
„samræðuvettvangi“ kvenna. – Þar
sem ráðherrann ætlar að láta
verkin tala, leyfir ritari sér að
benda á, að eyðing botnlífs í sjó
með fiskum, kóröllum
og viðkvæmum vist-
kerfum er nú meiri og
alvarlegri en losun
koltvísýrings og
hækkun á hita jarðar,
vill ritari benda ráðu-
neytinu á slóðina:
http://www.savethe-
highseas.org/
publicdocs/
WCMCseamounts.pdf
(UNEP)
Og þar sem Sam-
einuðu þjóðirnar (SÞ)
eru vettvangur sá,
sem ráðherrann vill miða aðgerðir
við, þá má benda á, að fjölmargar
ályktanir á vegum SÞ eru um
bann við botnvörpuveiðum á úthöf-
unum. Í framhaldi af ráðstefnu í
Kuala Lumpur 2004 rituðu 1.136
þekktir vísindamenn undir áskor-
un til SÞ um að botnvörpuveiðar á
úthöfunum verði bannaðar. Því er
augljóst, að íslenska kvótakerfið
verður innan skamms komið á
borð ráðherrans athafnasama.
Ástandið í sjónum, sem ráða má af
breytingum á lífmassa fiska í sjó á
síðustu öld, er langalvarlegasta
umhverfismálið að mati ritara.
Þess vegna er eðlilegt, að senn
verði LÍÚ að betla út kvóta fyrir
losun á koltvíoxíði og einnig fyrir
þorskveiðar. Formaður Samfylk-
ingar, Ingibjörg Sólrún Gísladótt-
ir, fór nýlega á fund LÍÚ og lét
svo hafa eftir sér, að stöðugleiki
ætti að ríkja í sjávarútvegi. Ekki
er ljóst hvaða stöðugleika hún á
við, þ.e. áframhaldandi þrælstak
LÍÚ á kvótunum eða stöðugleika
þorsksins eða byggðanna, en það
er allt annað. Eina stöðuleikann í
sjó er að finna í votri gröf. Og ráð-
herrann verður að tala hreint út
um botnvörpuna og skaðleg áhrif
hennar. Já, Friðriki J. Arngríms-
syni verður senn stefnt í umhverf-
isráðuneytið.
Miðstýrðar þorskveiðar hafa
brugðist
Það er deginum ljósara, að mið-
stýrðar þorskveiðar hafa brugðist.
Sýnt hefur verið fram á, að und-
irstofnar þorsks eru að lágmarki
þrír og vísast eru þeir margir í
viðbót, en sjómenn vita um einstök
hrygningarsvæði í fjörðum hring-
inn í kringum landið. Hvernig er
hægt að ætlast til þess, að unnt sé
að stjórna veiðum á þorski eins og
stofninn sé einn? Þekkingaröflun
um þorskinn er langt frá því að
vera nægileg og á sama tíma eru
sumir háskóla landsins í litlum
tengslum við sjóinn. Það liggur
beint við að virkja þá. Guðmundur
Halldórsson, skipstjóri í Bolung-
arvík, er reyndur sjósóknari og
hefur lengi barist fyrir hags-
munum síns byggðarlags. Hann
hefur séð þverstæðurnar í stjórn
fiskveiða og hann er þekktur fyrir
að hafa beitt sér fyrir línuívilnun
fyrir fáeinum árum. Hvers vegna
skyldi slæmt ástand þorsks á
landsvísu leiða til minnkunar á
krókaveiðum við Vestfirði þegar
sjómenn þar afla vel og þekkja
betur til þorsksins þar á grunn-
miðum en aðrir? En nú þessa dag-
ana samþykkti Elding, félag smá-
bátaeigenda í Ísafjarðarsýslum,
yfirgripsmikla tillögu. – Í henni
kemur m.a. fram, að tímabært sé
að rjúfa þá einokun, sem ríkt hef-
ur í hafrannsóknum á Íslandi og
beina þurfi rannsóknum að því
hvernig veiða megi með sem
minnstri mengun og eldsneyt-
isnotkun. Þá þurfi að skoða erfða-
fræði þorsksins betur. Einnig er
bent á Ísafjörð sem aðsetur fyrir
stofnun, sem kemur að verkefninu,
en þar sé mikill þekkingarforði á
sjávarútvegi til staðar. Slík stofn-
un væri nauðynleg tenging og
myndi hún styrkja fyrirhugað há-
skólanám í haf- og strandsvæð-
astjórnun við Háskólasetur Vest-
fjarða, en það hefst 2008 í
samvinnu við Háskólann á Ak-
ureyri. –
Já, það er synd að Háskóla Ís-
lands hafi ekki tekist að hafa
meira frumkvæði að náinni stýr-
ingu fiskveiða og rannsókna úti í
dreifðum byggðum landsins. Það
er eiginlega deginum ljósara, að
þorskveiðum verði að stjórna með
dreifðum hætti í nánum tengslum
við ástand í dreifðum byggðum og
að ákvarðanir verði að taka með
litlum fyrirvörum og í beinu sam-
bandi við sjómenn á miðunum. Það
er einnig slæmt, að fiskifræðingar
skuli ekki hafa döngun til þess að
viðurkenna, að krókaveiðar séu
betri en aðrar veiðar og að tog-
veiðar allar verði að takmarka sem
mest í ljósi mjög mikilla upplýs-
inga um skaðsemi þeirra. Það eru
tíðindi, þegar Vestfjarðavíking-
urinn Guðmundur Halldórsson
lætur að sér kveða.
Tími aðgerða
er runninn upp
Ástandið í sjónum er langalvar-
legasta umhverfismálið segir
Jónas Bjarnason
» Þórunn Sveinbjarn-ardóttir umhverf-
isráðherra ætlar að láta
verkin tala. Hún á að-
allega við loftslags-
málin, en eyðing fiska í
sjó er meira vandamál.
Jónas Bjarnason
Höfundur er efnaverkfræðingur.