Morgunblaðið - 14.10.2007, Síða 64
64 SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur
Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar
Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is
Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför
Hermann Jónasson Geir Harðarson
! "# $!% & '
(!!%
! $)
(!!*% !! +! (
(!!*% , ( '$
(!!*% - $ .! $
(!!*% / 0
(!!*% 0 1 !
(!!*% ✝
Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
ERLU KRISTJÁNSDÓTTUR,
hjúkrunarheimilinu Skógarbæ,
áður til heimilis
í Einholti 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilis Skógarbæjar fyrir
auðsýnda umhyggjusemi og alúð.
Guðrún Gunnarsdóttir,
Eyvör Gunnarsdóttir, Björgvin R. Leifsson,
Hreinn Gunnarsson,
Benjamín Gunnarsson, Dagbjört Þórhallsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim sem sýndu
okkur samúð og hlýhug vegna andláts eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og
langömmu,
SVÖVU INGIMUNDARDÓTTUR.
Bestu þakkir fær starfsfólk í Skógarbæ, Vesturbæ,
fyrir góða umönnun.
Magnús Guðnason,
Jón Steinar Snorrason, Guðrún Grímólfsdóttir,
Jóhanna Bjarney Jónsdóttir, Sigurður Ormarsson,
Svava Jónsdóttir,
Jón Sindri Sigurðsson, Magnús Ólafur Sigurðsson,
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra er auðsýndu
okkur samúð og hlýju við andlát og útför elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
STEINUNNAR JÓNSDÓTTUR,
Framnesvegi 15,
Keflavík.
Sértstakar þakkir færum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík.
Guð blessi ykkur öll.
Eiríkur Eyfjörð,
börn, tengdabörn, barnabörn
og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát ástkærrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, ömmu og systur,
JÓHÖNNU BJARKAR JÓNSDÓTTUR
leikskólakennara,
Eyktarhæð 4.
Sérstakar þakkir til starfsfólks líknardeildar Land-
spítalans í Kópavogi og Hjúkrunarþjónustunnar
Karitasar.
Pétur Jónsson,
Þórir Kjartansson, Áslaug Pálsdóttir,
Kjartan Þórisson,
Bjarki Pétursson, Sara Guðmundsdóttir,
Ástrós Bjarkadóttir,
Ásthildur Bertha Bjarkadóttir,
Sunna Bjarkadóttir,
Brynjar Pétursson,
og systkini.
✝ Ólöf Benedikts-dóttir fæddist á
Þórkötlustöðum í
Grindavík 14. mars
1927. Hún lést á
Heilbrigðisstofnun
Suðurlands 24.
september síðast-
liðinn. Hún var
dóttir Benedikts
Benónýssonar frá
Þórkötlustöðum í
Grindavík, f. 21.
júlí 1894, d. 29. júní
1953 og Magnúsu
Aðalveigar Ólafs-
dóttur úr Grindavík, f. 23. sept-
ember 1902, d. 26. október 1987.
Systkini Ólafar eru: Fjóla, f. 17.
janúar 1921, Þórlaug, f. 25 apríl
1923, látin 19. september 2001,
Benóný, f. 28. maí 1928, Jóhann
Ragnar, f. 14. nóvember 1930,
Ólöf Sigurrós, f. 3. október 1934
og Elsa, f. 20 mars 1938.
Ólöf giftist 21. júní 1947
Snorra Þór Þorsteinssyni, frá
Götu á Árskógsströnd, f. 23.
ágúst 1923, d. 7. desember 1987.
Snorri var sonur Þorsteins
Ágústs Jóhannssonar, f. á Sel-
árbakka í Eyjafirði 17. janúar
dóttir, f. 17. janúar 1962, dóttir
þeirra er Sigríður Rósa, f. 1984.
Sonur Snorra og Karenar H.
Gunnarsdóttur, f. 25. janúar
1971, er Gunnar Þór, f. 1994.
Börn Sólveigar og fósturbörn
Snorra eru Vilborg Arna, f. 1980
og Sæmundur Kristinn, f. 1987. 4)
Hulda, f. 31. október 1959, í sam-
búð með Jóhanni Óskari Finns-
syni, f. 13. júlí 1944, sonur þeirra
Þorsteinn, f. 1988. Fyrri maður
Huldu var Jóhann Þorvaldsson, f.
23. júlí 1953 og synir þeirra eru
Snorri Þór, f. 1977 og Jóhann
Þór, f. 1982, d. 1998.
Ólöf ólst upp á Þórkötlustöðum
í Grindavík ásamt systkinum sín-
um. Á unglingsárum var hún
kaupakona í Fögruhlíð í Fljóts-
hlíð og sá þar um barnapössun,
eldamennsku og fleiri störf. Síð-
an lá leiðin í Héraðsskólann í
Reykholti þaðan sem hún lauk
prófi 1944, þá 17 ára gömul.
Sama ár fluttist Ólöf á Selfoss og
hóf störf í mötuneyti og síðan á
skrifstofu Kaupfélags Árnesinga
þar til hún giftist Snorra Þór,
sem þá var mjólkurbílstjóri hjá
Mjólkurbúi Flóamanna og stofn-
aði síðar Sérleyfisbíla Selfoss og
sá um fólksflutninga á Suður-
landi í fjölda ára og bjuggu þau á
Selfossi alla sína búskapartíð.
Ólöf var jarðsungin í kyrrþey.
1893, d. 13. október
1980 og Helgu Soffíu
Einarsdóttur, f. í
Stóragerði í Hörgár-
dal 1. ágúst 1890, d.
24. júlí 1973. Börn
Ólafar og Snorra, öll
búsett á Selfossi,
eru: 1) Ólafur Ben
Snorrason, f. 6. sept-
ember 1948, kvænt-
ur Matthildi Einars-
dóttur, f. 7. septem-
ber 1946, þau eiga
fimm börn, a) Unni
Ben, f. 1966, dætur
hennar eru Hildur Ben, f. 1984 og
Sandra Ósk Ben, f. 1989, b) Ólöfu
Þóru, f. 1971, dætur hennar eru
eru Svanhildur, f. 1995 og Matt-
hildur, f. 2002, Maríu Ben, f.
1974, Einar, f. 1976 og Guðnýju,
f. 1979, sonur hennar er Ólafur
Ben, f. 2002. 2) Helga, f. 16. sept-
ember 1953, gift Guðmundi Bald-
urssyni, f. 26. júlí 1951, þau eiga
þrjú börn, Ólöfu, f. 1971, Stein-
grím, f. 1983 og Guðrúnu Þóru, f.
1985. 3) Snorri Þór, f. 3. desem-
ber 1958, kvæntur Sólveigu Ara-
dóttur, f. 30. apríl 1957. Fyrri
kona Snorra var Guðný Ólafs-
Elsku mamma.
Nú ert þú farin yfir móðuna
miklu eins og þú tókst stundum til
orða þegar vinir hurfu á braut úr
þessum heimi.
Þú varst ein af frumbyggjum
Selfoss þegar þú komst hingað árið
1944, aðeins 17 ára gömul og fórst
að vinna hjá Kaupfélagi Árnesinga,
fyrst í mötuneytinu og síðan á
skrifstofunni. Á Selfossi kynntist
þú pabba og þið fóruð að búa á
Eyravegi 14 en byggðu síðan hús á
Skólavöllum 11 og fluttuð þangað
árið 1953. Þá var ég 5 ára og
fyrstu minningarnar eru frá þess-
um árum.
Margs er að minnast frá upp-
vaxtarárum mínum hér á Selfossi.
Þú og pabbi voruð að sjálfsögðu
bestu manneskjurnar, allavega í
mínum augum. Pabbi alltaf vinn-
andi frá morgni og fram á nætur
lengst af, en þú gættir bús og
barna af mestu kostgæfni sem
hugsast getur. Hér á Selfossi var
gaman að alast upp. Mikið var um
að vera og alltaf nýir bílar að koma
til Mjólkurbús Flóamanna og KÁ
og pabbi oft undir stýri. Margir
minnisstæðir menn og konur
bjuggu hér á Selfossi. Margir af
þeim eru horfnir braut en nokkrir
eru enn í fullu fjöri. Allir þekktu
alla og þetta litla samfélag ein-
kenndist af mikilli vináttu íbúanna.
Mamma mín, hér lifðir þú og
bjóst í 63 ár, þar af 40 ár með
pabba eða þar til hann dó árið
1987. Eftir það bjóst þú ein. Þú
varst albesta og geðbesta mann-
eskja sem ég hef þekkt á ævinni.
Skiptir aldrei skapi, sama á hverju
gekk og alltaf lýsti í kringum þig
hvar sem þú komst. Þegar þú viss-
ir að hverju stefndi nú fyrir stuttu,
þegar uppgötvaðist að krabbinn
væri kominn um þig alla tókstu því
með mesta æðruleysi. Þannig varst
þú, elsku mamma mín. Ég veit að
þú hefðir ekki viljað mikið skrifelsi
um æviskrá þína þó þú hafir verið
best af öllum. Þökk fyrir allt sem
þú gafst mér og systkinum mínum
og fjölskyldum okkar um ævina.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem)
Þinn sonur
Ólafur Ben Snorrason.
Þær eru margar minningarnar
sem koma upp í hugann nú þegar
okkar elskuleg amma/langamma
hefur kvatt þennan heim. Hann
var einstaklega fallegur og sólrík-
ur haustdagurinn sem hún amma
valdi til þess að fara í langferðina
miklu. Líklega hefur afi komið og
sótt hana þegar hún fór í morguns-
árið því hún kvaddi á þeim tíma
sem hann var vanur að leggja af
stað í vinnuferðirnar sínar á hverj-
um degi. Enda búin að bíða hennar
hinum megin í tæp tuttugu ár.
Lóa amma var gædd alveg ein-
staklega góðu lundarfari og góð-
vildin skein af henni hvert sem hún
fór og alltaf var stutt í hláturinn og
brosið. Það var voðalega notalegt
að koma til ömmu og alltaf var hún
tilbúin að passa barnabörnin sín
þegar þau voru lítil. Þegar hún var
sett í það að passa elstu lang-
ömmustelpuna sína eina helgi sá
hún til þess að á ofninum beið heit
og hlý úlpa á leiðinni í skólann.
Þetta litla atvik sýnir hve hug-
ulsöm hún var og alltaf að hugsa
um aðra. Hún var líka einkar gest-
risin og hafði gaman af því að elda
og baka og þá sérstaklega jólakök-
ur og pönnukökur.
Eitt sinn þegar við vorum að
koma frá útlöndum þegar við vor-
um lítil hafði hún sent afa með
jólaköku handa okkur í nesti svo
við fengjum eitthvað gott á leiðinni
heim frá Keflavík. Enda var hún
oft kölluð amma jólakaka.
Undanfarin ár hringdi hún líka
oft á sunnudögum og sagðist vera
búin að baka fullan disk af pönnu-
kökum því hún vissi hvað lang-
ömmubörnunum þættu þær góðar.
Hún hafði líka unun af því að
skreyta og fegra allt í kringum sig
og var bleiki liturinn í sérstöku
uppáhaldi.
Í mars síðastliðnum hélt hún
upp á áttræðisafmælið sitt og var
gaman að fá að taka þátt í að halda
upp á afmælið með henni á Foss-
veginum og gera daginn eftir-
minnilegan. Við vonum að ömmu
líði vel núna og mikið hafa afi og
Jói Þór verið ánægðir að fá hana
til sín. Litlu langömmubörnin eru
líka ánægð með að nú geti hún
passað Týru og Ottó fyrir þau.
Elsku Lóa amma, við erum
þakklát fyrir þann tíma sem við
fengum með þér og munum geyma
minningarnar um þig um ókomna
tíð.
Legg ég nú bæði líf og önd,
ljúfi Jesús, í þína hönd,
síðast þegar ég sofna fer
sitji Guðs englar yfir mér.
(Hallgrímur Pétursson.)
Unnur, Ólöf Þóra,
María, Einar, Guðný,
Hildur, Sandra Ósk,
Svanhildur, Ólafur Ben
og Matthildur.
Ólöf Benediktsdóttir