Morgunblaðið - 14.10.2007, Side 75
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. OKTÓBER 2007 75
Á LOFTINU í StartArt við Lauga-
veg sýnir Steingrímur Eyfjörð nokk-
ur verk af sama toga og þau sem
sýnd eru á Feneyjatvíæringnum.
Feneyjasýninguna fáum við síðan að
sjá í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi, frá 18. janúar á næsta ári.
Steingrímur sýnir ljósmyndir af
stöðum sem tengjast álfasögum og
eftir því sem skrifað er í bæklingi,
þjóna morgunkornspakkar þeir sem
hann sýnir líka hlutverki camera
obscura, en slíka kassa með örsmáu
gati er hægt að nota til að taka
myndir. Tæknikunnátta mín leyfir
ekki raunhæft mat á því hvort mynd-
irnar gætu hugsanlega raunverulega
verið teknar með pökkunum, en
möguleikinn er gefinn til kynna.
Handskrifaðar álfasögur fylgja
verkunum og kallast á við álfa og
furðuverur morgunkornspakkanna;
enn lifir álfatrú í mörgum myndum í
neyslusamfélagi nútímans. Pakk-
arnir minna líka á innrás alþjóðlegra
markaðsafla í íslenskt samfélag en
samspil íslenskrar þjóðarvitundar
og erlendra áhrifa er rauður þráður í
list Steingríms. Annað álfa- og
tröllaminni er að finna í útskornum
skúlptúrum á stöpli, en Steingrímur
hefur gert allnokkra slíka. Form
grjóts og steina minna á tröll og eru
endursköpuð í fjölföldunarformi.
Steingrími tekst vel að velta upp
spurningum um íslenska þjóð-
arímynd sem einkennist af álfa-
klisjum og sjálfsmyndarkreppu,
samblandi af minnimáttarkennd og
mikilmennskubrjálæði. Mér sýnist
listamaðurinn leggja áherslu á mik-
ilvægi einhvers annars en hvers-
dagsleikans í lífinu og að trú á yf-
irnáttúrleg fyrirbæri geti verið
dýrmætur eiginleiki í samtíma sem
einkennist af trú á peninga.
Það er líka mikilvægt að velta fyr-
ir sér stöðu okkar sem Íslendinga
innan Evrópu, og viðhalda heil-
brigðu flæði hugmynda í báðar áttir.
Á sama tíma lifa listaverk Stein-
gríms sjálfstæðu lífi, þau eru ekki
aðeins málpípur hugmynda. Sýning
hans, þó ekki sé stór í sniðum, er for-
vitnilegur forsmekkur þess sem
koma skal í Hafnarhúsinu í janúar.
Þjóðarímyndin skoðuð
MYNDLIST
StartArt
Til 27. okt. Opið virka daga kl. 10-17 og
lau. kl. 11-16. Aðgangur ókeypis.
Steingrímur Eyfjörð
Ragna Sigurðardóttir
Morgunblaðið/RAX
Steingrímur „Handskrifaðar álfasögur fylgja verkunum og kallast á við álfa og furðuverur morgunkornspakkanna.“
Tryggðu þér sæti á spennandi sýningar. Sjáðu og heyrðu meira á leikhusid.is
Hamskiptin Kafka og sonur
Kafka í Þjóðleikhúsinu
Frábær uppfærsla Vesturports á
klassískri sögu Franz Kafka á
Stóra sviðinu.
Athugið síðasta sýning
1. desember.
„Leikhús eins og það gerist best.
Ekki missa af þessu!“ CBC Radio
„Ein af bestu sýningum ársins
2008“ Globe and Mail
Einstakt tækifæri
Gestaleikurinn Kafka og sonur frá Threshold og Theaturtle leikhúsunum í Kanada
Afhjúpandi, íhugul og grimmilega fyndinn einleikur um samskipti Kafka við föður sinn.
Sýningar á Smíðaverkstæðinu 18.-21. október.
Hvað er það við Kafka?
Málþing um höfundinn í Þjóðleikhúskjallaranum 17. október, kl. 20. Allir velkomnir.
GOTT ATVINNUTÆKIFÆRI
Hverfisbar í fullum rekstri til sölu
Gyða sölufulltrúi veitir upplýsingar í 695 1095
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111