Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 46

Morgunblaðið - 18.10.2007, Síða 46
46 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ - Kauptu bíómiðann á netinu - Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 14 ára Good Luck Chuck kl. 3:45 - 5:50 - 8 - 10:10 LÚXUS Halloween kl. 8 - 10:25 B.i. 16 ára Superbad kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i. 12 ára Shoot’em Up kl. 10:20 B.i. 16 ára Hákarlabeita m/ísl. tali kl. 3:50 - 6 Hairspray kl. 5:30 - 8 Brettin Upp m/ísl. tali kl. 4 The Simpsons m/ísl. tali kl. 3:45 (Síðustu sýn) 300 kr. Good Luck Chuck kl. 8 - 10 B.i. 14 ára The Kingdom kl. 8 - 10 B.i. 16 ára Halloween kl. 6 (Sýðustu sýn.) B.i. 16 ára SuperBad kl. 6 (Sýðustu sýn.) B.i. 12 ára Sími 564 0000Sími 462 3500 Miðasala í Smárabíó og Regnbogann Prentaðu sjálf(ur) út bíómiðann - Engar biðraðir Sími 551 9000 4 Months Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:15 B.i. 12 ára The Edge of Heaven Enskur texti kl. 5:40 - 8 - 10:20 B.i. 12 ára Alexandra Enskur texti kl. 6 - 10:15 B.i. 14 ára Halloween kl. 8 - 10:30 B.i. 16 ára Veðramót kl. 5:40 - 8 B.i. 14 ára eeee - R.V.E., FRÉTTABLAÐIÐ eeee - S.V., MORGUNBLAÐIÐ * Gildir á allar sýningar í Regn- boganum merktar með rauðu 450 KRÓNUR Í BÍÓ * SÍ ÐU ST U SÝ N. Verð aðeins300 kr. DÓMSDAGUR DJÖFULSINS! FRÁ MEISTARA ROB ZOMBIE KEMUR EIN SVAKALEGASTA MYND ÁRSINS! STRANGLEGA BÖNNUÐ INNAN 16 ÁRA eee Dóri DNA - DV SAGAN SEM MÁTTI EKKI SEGJA eeee - S.V., MBL eeee - R.H., FBL eee T.V. Kvikmyndir.is eee - J.I.S., Film.is eee - T.S.K., Blaðið Hasar og adrenalín flæði frá upphafi til enda Ver ð aðeins 600 kr. HVERNIG STÖÐVAR ÞÚ ÓVIN SEM ER ÓHRÆDDUR VIÐ AÐ DEYJA? Frá gaurnum sem færði okkur The 40 Year Old Virgin og Knocked Up Bölvun eða blessun ? Sofðu einu sinni hjá Chuck og næsti maður sem þú hittir er ást lífs þíns. Brjálæðislega fyndin mynd!! ATH: EKKERT HLÉ OG MIÐASÖLU LÝKUR ÞEGAR SÝNING MYNDAR HEFST 3 MEISTARAVERK FRUMSÝND eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið eeee - Anna Sveinbjarnardóttir, Morgunblaðiðð eeeee - Sæbjörn Valdimarsson, Morgunblaðið - Dóri DNA, DV - J.I.S., FILM.IS - T.S.K., Blaðið - H.J., MBL - LIB, Topp5.is KVIKMYND EFTIR ALEXANDR SOKUROV KVIKMYND EFTIR FATIH AKINToppmyndin á Íslandi í dag! Skiptir máli hvaðan hljómsveiter af landinu til að hún náialmennum vinsældum? Þessi spurning kom upp í huga minn í gær þegar ég hlustaði á nýjasta af- sprengi Sprengjuhallarinnar, Tím- arnir okkar. Létt laglínan og kauðslegir text- arnir fengu mig til að velta því fyr- ir mér hvort Sprengjuhöllin væri jafn vinsæl í dag ef hún væri ekki samsett af ungum sætum drengjum úr Menntaskólanum við Hamrahlíð í Reykjavík. Ef Sprengjuhöllin væri frá Sel- fossi, Akranesi eða Egilsstöðum væri hún líklega talin aum lands- byggðarhljómsveit, vonlausir tón- listarmenn og textasmiðir sem reyna að endurvekja gömlu sveita- ballastemninguna. Það yrði líklega viðurkennt að þetta væru nokkuð sniðugir strákar en annars bara taldir afsprengi Skítamóralsmenn- ingarinnar fornu. Miðbæjarrotta með trefil myndi aldrei viðurkenna að hún hlustaði á Sprengjuhöllina og sá hinn sami nyti þess að hrauna yfir hana á almannafæri. Nú eru þetta bara hugleiðingar mínar og ekkert víst að þetta væri svona. Samt þegar ég bar þessar hugleiðingar undir nokkra aðra höfuðborgarbúa voru þeir flestir vissir um það að ef meðlimir Sprengjuhallarinnar væru ekki af höfuðborgarsvæðinu þættu þeir mjög hallærislegir, líklega yrði samt í lagi ef þeir væru frá Ísafirði.    Hvað veldur veit ég ekki.Ef þú ert úr þeim skólum höfuðborgarinnar þar sem allir nemendur ætla að verða listamenn er í lagi að ganga í gúmmítúttum og lopapeysum, bregða fyrir sig fornmáli og kvæðabrotum, að vera svona gervisveitó. En ef þú ert úr sveit og ert ekta sveitó ertu lummó. Ef þú ert úr Reykjavík og stofnar ekta íslenska hljómsveit sem er með nokkuð létta og popp- aða laglínu og syngur á íslensku um ástina og lífið ertu „kúl“ en annars ekki? Nei, ég spyr!    Oft þykir það nokkuð fréttnæmtef góðar hljómsveitir koma af landsbyggðinni, skemmst er að minnast sigurs The Foreign Mon- keys í Músíktilraununum í fyrra. Sveitin er frá Vestmannaeyjum og þótti það stórmerkilegt, nægir að skoða fréttir þar sem sagt er frá úrslitunum, þar er talað um Vest- mannaeyjahljómsveitina sem sigr- aði á meðan ekki er nefnt hvaðan Ultra Mega Technobandið Stefán og We Made God sem lentu í öðru og þriðja sæti er. Hljómsveitir af landsbyggðinni losna líka aldrei við að vera kenndar við staðinn sem þær eru frá og er staðurinn jafnvel kenndur við þær eins og Selfoss hefur mátt þola eftir frægð Skítamórals. Birgitta Haukdal er spurð um heimahagana, Húsavík, í hverju viðtali og Einar Ágúst og Magni verða alltaf Austfirðingar og Mugison Vestfirðingur þó að þeir hafi jafnvel búið lengur á suð- vesturhorninu en þar.    Tónlist Sprengjuhallarinnarhöfðar til breiðs hóps og er hún spiluð á öllum útvarpsstöðum landsins. Sprengjuhöllin fær að spila á Iceland Airwaves-tónlist- arhátíðinni þó að popphljómsveitir komi yfirleitt ekki þar fram, ætli þeirra verði minnst sem samein- ingartákns ólíkra tónlistar- stefnuhópa? Sprengjuhöllin má eiga það að hvaðan sem hún er hef- ur hún vakið upp gleðina í íslenskri tónlist. Gleði svipaða þeirri sem Ríó tríóið færði okkur á sínum tíma. Ég fagna því að það er loks- ins í lagi að hafa bara gaman af þessu, spila popp og semja skemmtilega slæma texta sem segja sögur úr íslenskum veru- leika, megi fleiri feta í þeirra spor. ingveldur@mbl.is Er Sprengjuhöllin sveitó? AF LISTUM Ingveldur Geirsdóttir » Það yrði líklega viðurkennt að þetta væru nokkuð sniðugir strákar en annars bara taldir afsprengi Skítamóralsmenn- ingarinnar fornu. Morgunblaðið/BFH Úr sveitinni „En ef þú ert úr sveit og ert ekta sveitó þá ertu lummó.“ ENDURNÝJUN í leikarastéttinni er óhjákvæmileg líkt og í öðrum starfsgreinum. Í draumaborginni Hollywood velta menn því oft fyrir sér hver gæti orðið næsti arftaki frægra leikara. Nú er svo komið að arftaki ofurskutlunnar Angelinu Jol- ie er fundinn að sögn slúðurvefsíð- unnar Perez Hilton. Það er leik- konan Megan Fox sem er á hraðri leið upp metorðastigann í Hollywood en hún þykir einstaklega „foxy“. Fox fæddist 16. maí 1986 í Ten- nessee í Bandaríkjunum en býr nú í Los Angeles ásamt unnusta sínum, Brian Austin Green, sem er líklega þekktastur fyrir að hafa leikið í Be- verly Hills 90210 og Melrose Place. Hún hóf leikkonu- og fyrirsætuferil sinn aðeins þrettán ára eftir að hafa sigrað í amerískri fyrirsætu- og hæfileikakeppni. Fox kom fyrst fram í kvikmynd- inni Holiday in the Sun (2001) ásamt tvíburunum Mary og Kate Olsen. Síðan þá hefur hún m.a. leikið í Con- fessions of a Teenage Drama Queen (2004) og Transformers (2007). Hún er samt líklega þekktust enn sem komið er fyrir hlutverk sitt í sjón- varpsþáttunum Hope & Faith á ár- unum 2004 til 2006. Fox hefur kom- ist á lista FHM-karlatímaritsins yfir 100 kynþokkafyllstu konur í heimi og líkt og Angelina Jolie hefur hún skreytt líkama sinn með húðflúrum. Þótt margt sé líkt með Fox og Jolie mun tíminn einn leiða í ljós hvort Fox nær að feta í fótspor þokkagyðj- unnar í frægðinni og ástamálunum. Hin nýja Jolie? Angelina Jolie Megan Fox

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.