Morgunblaðið - 18.10.2007, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 18.10.2007, Qupperneq 42
42 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn Ferdinand MIG LANGAÐI TIL AÐ FARA Í EINHVERJU SÉRSTÖKU ÚT AÐ BORÐA Í KVÖLD... ÞANNIG AÐ ÉG GRÓF UPP GÖMLU ÚTSKRIFTARJAKKFÖTIN HVERNIG FÓR ÞETTA AÐ ÞVÍ AÐ DETTA ÚR TÍSKU? SKYRTAN ÞÍN LÍTUR ÚT FYRIR AÐ ÆTLA AÐ ÉTA ÞIG ÉG ÞOLI EKKI ÆVISÖGUR! ALLAR ÆVISÖGUR ENDA EINS... AÐALPERSÓNAN DEYR ALLTAF Í LOKIN! AF HVERJU LESTU ÞÁ EKKI SJÁLFSÆVISÖGUR? ÉG TEKST EKKI Á LOFT! ÞYRLUHÚFAN FLÝGUR EKKI! HVER ER TILGANGURINN MEÐ ÞYRLUHÚFU MEÐ MÓTOR EF HÚN FLÝGUR EKKI? ÞAÐ ER EKKI ÚTLITIÐ ÉG TRÚI EKKI AÐ ÉG HAFI BORÐAÐ ALLA ÞESSA KASSA AF MORGUNKORNI, BEÐIÐ Í MARGAR VIKUR OG SETT SAMAN ÞYRLUHÚFU SEM GETUR EKKI EINU SINNI FLOGIÐ! EN ÞETTA ER EKKI ALSLÆMT! ÉG FÉKK FÍNAN PAPPAKASSA! NÚNA BYRJAR GAM- ANIÐ FYRIR ALVÖRU MÉR ER SAMA HVAÐ HÚN RÚMAR MIKIÐ!! ÞANNIG AÐ ÞÚ GETUR HÆTT AÐ SEGJAST... „ÆTLA AÐ KOMAST TIL BOTNS Í ÞESSU“ ÉG ÆTLA AÐ FARA ÚT Í RUSLATUNNU... VANTAR ÞIG EITTHVAÐ? ÉG TRÚI ÞVÍ EKKI AÐ MAMMA SÉ AÐ HUGSA UM AÐ FLYT- JA HINGAÐ JÁ, ÞAÐ Á EFTIR AÐ VERA MIKIL BREYTING ÉG HEF EKKI EYTT NEINUM TÍMA MEÐ HENNI FRÁ ÞVÍ AÐ ÉG VAR UNGLINGUR! ÞAÐ ER SVO MIKIÐ SEM ER ÓSAGT! HVERNIG Á ÉG AÐ KOMAST Í GEGNUM ÞETTA? EKKI BÍÐA, FARÐU TIL SÁLFRÆÐINGS Á MORGUN ÉG VISSI AÐ ÞÚ MUNDIR SEGJA ÞETTA HÉRNA GET ÉG FENGIÐ AÐ VERA KÓNGULÓARMAÐURINN... ÁN ÞESS AÐ ÞURFA AÐ VERA Í SKUGGA FRÆGÐAR M.J. EÐA... KANNSKI EKKI dagbók|velvakandi Nagladekkin menga Það eru kannski tveir eða þrír dag- ar á vetri sem er einhver hálka á höfuðborgarsvæðinu. Þess vegna er það einhver misskilningur að setja nagla í dekk á þessum tíma. Fólk ætti að athuga að þessir naglar róta upp malbikinu og valda bæði skemmdum á því og mengun. Í raun ætti að setja gjald á þessi nagladekk Vegfarandi Vistvænir bíla og nagladekk Mig langar til að bera fram þá spurningu til borgaryfirvalda hvort vistvænir bílar séu enn vistvænir ef þeir fara á nagladekk. Mér var sagt þar fyrir nokkrum dögum þar sem ég var stödd á dekkjaverkstæði að maður væri eingöngu 3-4 daga á ári öruggari á nagladekkjum en t.d. heils- ársdekkjum. En hina 362 dagana er maður á góðum vetrar- eða heils- ársdekkjum. Er ekki kominn tími á að tak- marka nagladekkjanotkun með skattlagningu? Lesandi. Týnd læða UNG grábröndótt læða, vel í hold- um, með ljósa bringu, hvarf sl. þriðjudag frá Digranesheiði 4, Kópavogi. Var með bleika hálsól og er eyrnamerkt. Hafi einhver orðið hennar var er hann beðinn að hafa samband í síma 690-6956 eða 554- 7004. Tyrkja-Gudda og Ono Aðfaranótt 9. október las ég í Áföngum Sigurðar Nordals grein- arkorn um Guðríði Símonardóttur, Tyrkja-Guddu, eiginkonu Hallgríms Péturssonar. Var Sigurði þar í mun að rétta hlut hennar, sem gegnum aldirnar var úthúðað, í þjóðsögum sökuð um ýmsa algera óhæfu. M.a. fávíslega um skurðgoðadýrkun, hún hafi hatast við sálmabröltið, jafnvel stuðlað að bruna húss þeirra og láti vinnumanns, með álagaorðum. Það er niðurstaða Nordals, að lýðurinn hafi svert Guðríði, ein- ungis vegna þess að Hallgrímur Pétursson hafi ekki verið nógur „hvítur“. Þetta var mér ofarlega í huga þennan þriðjudag, fæðingardag Johns Lennons, kveikidag frið- arljósssúlu konu hans. Svo rann upp fyrir mér ljós(!), er frú Yoko Ono var ötuð auri hvers konar í símatímum útvarpsins. Hvert atriði lýðsins stefndi í raun að því einu að hvítþvo minningu Lennons, afmá vankanta hans, hvers breyskleiki er einna best skrásetti sögunnar. Ono er, af fullri alvöru sumra, sökuð um að hafa eyðilagt Bítlana og svo plöt- ur Lennons, sem í þessari bítlavídd jafnast fullvel á við að brenna fyrstu uppköst Passíusálmanna. Margt er líkt með Guddu og Ono; báðar exótískar gagnvart mönnum sínum, eldri og lífsreyndari en þeir, töpuðu börnum (í Barbaríið og kristinn sértrúarsöfnuð) o.fl. Það hallaði á báða, Lennon og Hallgrím, væru þeir bornir saman. En þó við viljum halda minningu þeirra beggja á lofti, á stalli, með styttu og öllu, þá eiga þessar merku konur ekki að vera svartar fyrir. Skarpi, Baldursgötu 30 Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Þessi reffilegi maður hjólar ákveðinn upp Klapparstíginn meðan blikkbelj- urnar standa í röðum sofandi hjá – vel gallaður í kuldanum og nýtur frels- isins og útiverunnar. Morgunblaðið/Sverrir Hjólað í skammdeginu Til leigu í Skútuvogi 1 Skrifstofuhúsnæði - 151 fm Frábær staðsetning Björn Daníelsson, lögg. fasteignasali Þverholti 14 | 105 Reykjavík | Sími 595 9000 | Fax 595 9001 | www.holl.is | holl@holl.is tákn um traust Ítarlegri upplýsingar liggja fyrir á skrifstofu Hóls, Skúlagötu 17. Upplýsingar gefur Stefán Bjarni í síma 694 4388. Um er að ræða gott skrif- stofupláss sem er 151fm að stærð. Góð lofthæð er í plássinu og í miðju rýminu eru þakgluggar sem gefa góða birtu. Gæti hentað mjög vel fyrir heildsölu eða þjónustufyrirtæki. Miklir möguleikar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.