Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 31
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið
Hádegismóum 2, 110 Reykjavík
Bréf til blaðsins | mbl.is
SMIÐJUDAGAR 2007 verða haldnir
í 13. sinn og að þessu sinni um borð í
Sæbjörginni og nágrenni Hafnar-
fjarðarhafnar, núna um helgina, 19.-
21. október nk. Að þessu sinni er
þemað „Á sjó“ en megintilgangurinn
með mótinu er að gefa eldri skátum
færi á að taka þátt í 50. alþjóðlega
skátamótinu JOTA (Jamboree on the
Air) og 11. Alþjóðlega skátamótinu
JOTI (Jamboree on the Internet) auk
skemmtunar.
Metþátttaka er að þessu sinni, en
tæplega tvö hundruð eldri skátar á
aldrinum 13-18 ára verða á mótinu,
sem sett verður með „rómantískri
sundferð“ í Hafnarfjarðarsundlaug á
föstudagskvöld. Landsbjörg kemur
mjög öflug að mótinu að þessu sinni
og lánar m.a. Sæbjörgina sem móts-
stað, en hún mun liggja við festar all-
an tímann við hliðina á Grímseyjar-
ferjunni nýju og verður þar aðsetur
fyrir námskeið, mötuneyti og svefn-
stað á meðan á mótinu stendur. Sjó-
björgunarsveitir taka þátt í þessu
með því að kynna þátttakendum sjó-
björgun og siglingar, en þátttakend-
ur eru einmitt á þeim aldri sem gætu
hugsanlega byrjað í unglingadeildum
björgunarsveitanna á næstunni og
væntir Landsbjörg þess að þeir fái
góða nýliða í björgunarsveitastarfið í
kjölfar Smiðjudaga.
Smiðjuhópurinn, sem stendur að
mótinu, hefur sl. árstaðið fyrir svona
mótum víða á landinu auk þess sem
þeir hafa skipulagt Smiðjuleika á enn
fleiri stöðum á höfuðborgarsvæðinu
sem og úti á landi. Í smiðjuhópnum
eru margir fv. félagsforingjar og allir
eru meðlimirnir Gilwell-skátar. Móts-
stjóri að þessu sinni kemur úr röðum
þátttakenda undanfarin ár og þekkir
vel hvað unglingarnir vilja, en hann
heitir Andri Týr Kristleifsson, úr
skátafélaginu Kópum í Kópavogi.
Mótið hefst á föstudagskvöld og
verða menn að koma á milli kl. 19 og
20.30 til að fá aðgangsskírteini, en
enginn fær að fara á mótssvæðið án
þess að hafa slíkt. Rómantíska sund-
ferðin er síðan kl. 22 og þar verður
mótið sett, áður en haldið er til skips
að nýju og talstöðvar og tölvur settar
í gang til að hitta skátasystkin um
víða veröld, en á síðasta ári tóku yfir
650.000 skátar um allan heim þátt í
JOTA-JOTI-mótinu.
Á laugardag og sunnudag verða
fjörugir póstar sem björgunarsveit-
irnar stjórna, bæði á sjó og landi og
auðvitað verður kvöldvaka haldin kl.
20 á laugardagskvöld, þar sem bæj-
arstjórn Hafnarfjarðar, hafnarstjórn
og aðrir mætir gestir eru hjartanlega
velkomnir en bæjaryfirvöld í Hafn-
arfirði hafa ætíð stutt vel við bakið á
skátastarfinu og ber að þakka það.
GUÐMUNDUR JÓNSSON,
er í Smiðjuhópnum.
Smiðjudagar
haldnir
í 13. sinn
Frá Guðmundi Jónssyni:
GUÐNI formaður lýsti því yfir
á vordögum, að ófarir Fram-
sóknar ættu rætur sínar að rekja
til Íraksstríðs og þátttöku fyrr-
verandi ríkisstjórnar í því.
Auðvitað var það dauðasök, en
menn misminnir ekki, þegar þeir
rifja upp, að áður hafði formað-
urinn lýst því að Bush hinn
bandaríski hefði í óleyfi sett nafn
Íslands á lista hinna stríðsfúsu
þjóða og bæri forsetanum þess
vegna að biðja Íslandsmenn af-
sökunar á þeim verknaði.
Ekki er öll vitleysan eins á
Framsóknarbænum fremur en
fyrri daginn.
Flestir aðrir þykjast sjá, að það
séu óbótamenn í fjármálum, sem
riðið hafa gömlu Framsókn um
þvert bak sl. áratug. Hafa þar
farið fremstir Halldór Ásgríms-
son og Finnur Ingólfsson.
Eftir aðfarir þeirra og vikapilta
þeirra í hinni svokölluðu einka-
væðingu – undir verndarvæng og
með fullri þátttöku Sjálfstæð-
isflokksins – mátti helftin af fylgi
Framsóknar ekki vatni halda,
enda alin upp við önnur viðhorf af
mönnum á borð við Eystein Jóns-
son, sem aldrei mátti vamm sitt
vita í meðferð opinbers eða ann-
arra fjár.
Enn á ný getur undirritaður
ekki orða bundizt vegna „sölu“
bankaráðsmanna Landsbanka Ís-
lands á helmingi hlutafjár í Vá-
tryggingafélagi Íslands. Á þeirri
„sölu“ báru beina ábyrgð Helgi S.
Guðmundsson, formaður banka-
ráðs, og varaformaður, Kjartan
Gunnarsson, framkvæmdastjóri
Sjálfstæðisflokksins. Og aðal
„kaupendur“ Finnur Ingólfsson
og Helgi S. sjálfur!
Þegar þessi þjófnaður fór
fram, var ríkisendurskoðandi –
Rendi gamli – Sigurður Þórð-
arson, endurskoðandi Lands-
banka Íslands. Hann hefur því
skrifað þegjandi og hljóðalaust
upp á afbrot Helga og Kjartans.
Enda afgreiddi hann mál bank-
ans eftir pöntunum banka-
málaráðherra Framsóknar,
Finns Ingólfssonar og Valgerðar
Sverrisdóttur.
„Sölu“verð bréfa Landsbank-
ans í VÍS var kr. 6,8 milljarðar.
Innan þriggja ára seldu „kaup-
endurnir“ bréfin fyrir 31,5 millj-
arða króna. Gróði gripdeild-
armanna tæpir 25 milljarðar.
Og svo valsa „kaupendurnir“
um: Kaupa flugfélög; fara í tíu
hnattreisur; leggja undir sig sjóði
Samvinnutrygginga upp á 30
milljarða, og eru meðal þeirra,
sem gera nú tilraun til að ná und-
ir sig orkuauðlindum Íslands.
Ef lögum væri framfylgt,
myndu Helgi og Kjartan nú sitja
af sér eins og ein sextán ár í
rasphúsi.
Þar sem undirritaður var einn
af eigendum í Landsbankanum,
þegar þessi afbrot voru framin,
hyggst hann, þótt seint sé, leita
réttar síns vegna meðferðar þess-
ara kóna á eignum bankans. Í
leiðinni mun hann snúa sér til
forsetadæmis Alþingis og óska
eftir rannsókn þess á aðild und-
irsáta þess – Renda – að málinu.
Sverrir Hermannsson
Rasphúsmenn
Höfundur er fv. bankastjóri
Landsbanka Íslands.
FRIÐUR er verðmætasta eign
hverrar þjóðar og forsenda hagsæld-
ar og hamingju. Það að stilla til friðar
og endurbyggja grunnviði samfélags
í lok ófriðar er ein mikilvægasta
hjálp, sem hægt er að veita nokkurri
þjóð. En að undanförnu hafa ýmsir
spurt spurninga sem þessara:
Eiga Íslendingar erindi í frið-
argæslu á erlendri grund? Eigum við
að taka þátt í að stilla til friðar á
átakasvæðum, hafa eftirlit með því
að friður haldist eða vinna að því að
tryggja varanlegan frið?
Svörin við þessum spurningum eru
tvímælalaust jákvæð. Ísland er vel í
stakk búið að leggja fram borg-
aralega starfsmenn til friðargæslu-
verkefna en þörfin fyrir slíka starfs-
menn hefur stóraukist í breyttu
alþjóðaumhverfi eftir lok kalda
stríðsins. Íslendingar hafa tekið virk-
an þátt í friðargæslu síðan 1994.
Friðargæsla, sem Ísland tekur þátt í,
miðar að flestu því sem talið var hér
að framan nema þeim þætti sem lýt-
ur að því að stilla til friðar með beinni
íhlutun. Þar sem slíkt ástand er þarf
íhlutun herliðs til að tryggja öryggi
og afvopna stríðandi aðila. Íslenskir
friðargæsluliðar sinna hins vegar
margvíslegum störfum í þágu friðar
sem snúa m.a. að því að halda gang-
andi lykilþáttum samgangna, til
dæmis flugvallarmannvirkjum,
byggja upp þekkingu og getu í
stjórnkerfi og innviðum ríkja, hafa
eftirlit með vopnahléi, stuðla að
framþróun, mannréttindum, jafn-
rétti og lýðræði í ríkjum þar sem
átök hafa verið.
Friðargæsluliðar starfa nú í níu
löndum við mjög
fjölbreytt störf og á
hverju ári starfa um
50-60 manns fyrir ís-
lensku friðargæsl-
una víða um heim við
skemmri eða lengri
verkefni, oft við
mjög erfiðar að-
stæður. Þátttaka
kvenna í friðar-
gæslustörfum hefur
aukist verulega á
seinni árum og er
það eðlilegur hluti af
aukinni áherslu á uppbyggingu með
þátttöku kvenna í stríðshrjáðum
löndum. Með þátttöku okkar í frið-
argæslu tökum við ábyrgð á al-
þjóðavettvangi og leggjum okkar
skerf til að stuðla að var-
anlegum friði, uppbygg-
ingu og vernd mannrétt-
inda.
Friðargæslan verður til
umfjöllunar í Háskólanum
á Bifröst næstkomandi
föstudag, en það er hluti af
fyrirlestraröð um Ísland á
alþjóðavettvangi, sem ut-
anríkisráðuneytið og há-
skólarnir í landinu standa
fyrir í vetur. Ég hvet þá
sem áhuga hafa til að
sækja fundinn og taka
þátt í að ræða þátttöku Íslands í al-
þjóðlegri friðargæslu.
Starf í þágu friðar
Anna Jóhannsdóttir
skrifar um gildi friðargæslu
Anna Jóhannsdóttir
»Með þátttöku okkar ífriðargæslu tökum
við ábyrgð á alþjóða-
vettvangi og leggjum
okkar skerf til að stuðla
að varanlegum friði,
uppbyggingu og vernd
mannréttinda.
Höfundur er forstöðumaður Íslensku
friðargæslunnar.
Traustur kaupandi hefur beðið okkur að útvega heilsárs Frístundahús í
Grímsnes og Grafningshreppi eða í næsta nágrenni. Húsið þarf að vera full-
búið með heitu og köldu vatni o.fl. Stærð má vera frá 70 fm til 120 fm. Lóð
þarf að vera gróin. Kostur ef stutt er í þjónustu.
Staðgreiðsla í boði.
Nánari upplýsingar gefur Heiðar Birnir sölumaður í síma 824 9092
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.
Frístundarhús í Grímsnes
og Grafningshreppi
Mb
l
92
28
01
Námsstefna í Safnaðarheimili Háteigskirkju
20. október 2007 kl. 9-16
Fyrirlesarar:
Svanhildur Svavarsdóttir M.Sc. ccc SLP
Boðskiptafræðingur og Einhverfu sérfræðingur.
Arizona State Department of Education.
Björg T. LeSueur MA Ed
Sérkennari og Einhverfu ráðgjafi.
Kyrene School District, Arizona.
Kynntar verða:
• Rannsóknir um nám, hegðun og mikilvægi leiksins.
• Rannsóknir sem sýna fram á að leikurinn eflir tilfinningalegt jafnvægi og færni í námi.
• Kenningar um áhrif leiks fyrir börn með
• Einhverfu og alvarlegar málhamlanir.
• Leiðir til að efla leik hjá börnum.
• Leiðir til að skoða og meta leikfærni.
• Sýndar verða myndir frá ýmsum leikskólum og skólum bæði í Bandaríkjunum og á
Íslandi.
Sendið svar á sigsvany13@yahoo.com
Upplýsingar og pantanir í síma 663 8719. Verð 7.000.
Málþingið er fyrir alla sem áhuga hafa á kennslu og þjálfun barna og unglinga með einhverfu.
Leikurinn er Svarið
Leikur
Boðskipti
Félagstengsl Skynjun
Ímyndun
Hegðun
Setja sig í
spor annarra
M
b
l 9
24
33
3
17.nóv.
frá kr. 59.990
Kúbuveisla
Mjög takmarkaður fjöldi herbergja
Heimsferðir bjóða frábært tilboð á vikuferð til Kúbu 17. nóvember þar sem dvalið
er í hinni einstöku Havanaborg eða á hinni vinsælu Varaderoströnd. Kúba er
ævintýri sem lætur engan ósnortinn. Ekki aðeins kynnist þú stórkostlegri
náttúrufegurð eyjunnar, heldur einnig þjóð sem er einstök í mörgu tilliti. Gríptu
tækifærið og njóttu lífsins á Varaderoströndinni á frábærum kjörum. Athugið
aðeins takmarkaður fjöldi herbergja á hverjum gististað í boði á þessu verði!
Ótrúlegt tilboð!
Vikuferð
Verð kr. 59.990 - vikuferð
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
viku á Hotel Villa Tortuga **+ með
morgunverði, 17. nóv.. Aukalega fyrir allt
innifalið í viku kr. 10.000 (valkvætt).
Verð kr. 69.990 – Arenas
Doradas ***
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
viku á Hotel Arenas Doradas *** með
morgunverði, 17. nóv. Aukalega fyrir allt
innifalið í viku kr. 10.000 (valkvætt).
Verð kr. 69.990 –
Occidental Miramar ****
Netverð á mann, m.v. gistingu í tvíbýli í
viku á Hotel Occidental Miramar í Havana
**** með morgunverði, 17. nóv.
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
MasterCard
Mundu
ferðaávísunina!