Morgunblaðið - 18.10.2007, Blaðsíða 8
8 FIMMTUDAGUR 18. OKTÓBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
ALLT iðar af lífi í Húsdýragarð-
inum. Í vikunni bar kýrin Blökk
myndarlegum nautkálfi. Kálfurinn
sem er rauður var 44 kg við burð og
braggast vel. Kálfurinn hefur feng-
ið nafnið Ulrik. Í fjósinu búa auk
kúnna og kálfanna gylturnar
Freyja og Frigg og gölturinn Gull-
inbursti og svo grísirnir þeirra
Friggjar og Gullinbursta.
Rauður Ulrik
ÁRSFUNDUR
Alþýðusambands
Íslands verður
haldinn á Hótel
Nordica í dag og
á morgun. Grét-
ar Þorsteinsson,
forseti ASÍ, flyt-
ur stefnuræðu kl.
10 í dag og fé-
lagsmálaráð-
herra, Jóhanna
Sigurðardóttir, flytur ávarp.
Helstu viðfangsefni fundarins
eru: Efnahags- og kjaramál og Nor-
ræna velferðarsamfélagið og
vinnumarkaðsmódelið. Framsaga
og fyrri umræða um efnahags- og
kjaramál fer fram fyrir hádegi í
dag. Framsaga og fyrri umræða um
norræna velferðarsamfélagið og
vinnumarkaðsmódelið verður eftir
hádegi. Nánar á www.asi.is.
Kjaramál rædd
á ársfundi ASÍ
Grétar
Þorsteinsson
SAMÞYKKTAR hafa verið í bæjar-
stjórn Seltjarnarness breytingar á
deiliskipulagi íþrótta- og skóla-
svæðis sem áætlað er á Hrólfs-
skálamel við Suðurströnd. Gert er
ráð fyrir stækkun á aðstöðu til fim-
leikaiðkunar í íþróttamiðstöð. Þá
verður byggt vallarhús með dóm-
araherbergi, félags- og búningaað-
stöðu, einnig verður reist yfir 300
manna stúka við gervigrasvöll.
Framkvæmdir við vallarhús og
stúku hefjast á næstu vikum.
Bætt aðstaða
STJÓRN Ellimálaráðs Reykjavík-
urprófastsdæma og nokkur hópur
eldri borgara gengu á fund Páls
Magnússonar útvarpsstjóra í dag
með undirskriftalista þar sem ósk-
að er eftir að dagskrárliðurinn Orð
kvöldsins komi inn aftur, en hann
var felldur út úr vetrardagskránni
á rás 1, segir í fréttatilkynningu.
Orð kvöldsins
FOLALDASÝNING Hrossaræktar-
félags A-Landeyja fór fram í hlöð-
unni á Skíðbakka III á laugardag.
Efnilegasta folaldið að mati dóm-
ara var Leikdís Leiknisdóttir frá
Borg. Glæsilegasta folaldið, valið í
kosningu áhorfenda, var Rós Gusts-
dóttir frá Skíðbakka IA. Báðar
höfðu þessar hryssur til að bera
jafna byggingu, mikla mýkt, leik-
gleði og fallegan fótaburð.
Mikið efni
Ljósmynd/ Sigríður Elka Guðmundsdóttir
Leikdís Jöfn bygging og mikil mýkt.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
MARGT bendir til þess að munntób-
aksnotkun sé að aukast hér á landi,
sér í lagi meðal karlmanna á aldr-
inum 18-34 ára. Bann hefur legið við
innflutningi og sölu á fínkorna munn-
tóbaki frá árinu 1997, en algengt er
að íslenskt neftóbak sé notað sem
munntóbak. Í sölutölum Áfengis- og
tóbaksverslunar ríkisins má sjá að
nokkur aukning hefur verið í sölu á
neftóbaki.
Lýðheilsustöð hefur látið útbúa
vefsvæði þar sem fjallað er um munn-
tóbak og neikvæð áhrif þess – auk
þess sem hægt er að taka þátt í vef-
leik – og var vefurinn kynntur í gær.
Um leið var ýtt úr vör verkefni sem
miðar að því að kynna vefinn og skað-
semi munntóbaksnotkunar.
Notkun ekki bundin við íþróttir
Talið er að á Íslandi noti um 3.700
manns munntóbak daglega. Af þeim
eru langflestir í aldurshópnum 18-34
ára og er munur milli kynja mikill.
Um 16% karlmanna í umræddum
aldurhópi nota munntóbak, annað-
hvort daglega eða öðru hvoru, en að-
eins 1,6% kvenna.
Hafsteinn Viðar Jensson, verkefn-
isstjóri tóbaksvarna hjá Lýðheilsu-
stöð, segir það vissulega tíðindi að svo
stór hluti ungra karla skuli nota tób-
akið og telur að notkunin hafi aukist
töluvert að undanförnu. Spurður út í
hvort að notkunin sé meiri hjá
íþróttafólki segir Hafsteinn Viðar það
hafa loðað við umræðuna, en sé í raun
einföldun þar sem tengingin milli
ungs fólks í forvarnarstarfi eða
íþróttum og tóbaksnotkun stingi í
augun – vandamálið sé í raun stærra.
Engum dylst að skaðsemi munn-
tóbaks er mikil en þrátt fyrir það
vantar tilfinnanlega langtímarann-
sóknir á skaðseminni. Í árslok 2005
kom þó út sænsk skýrsla sem þykir
traust þegar meta á áhrif á heilsuna.
Þar kemur m.a. fram að notkun
munntóbaks getur valdið krabba-
meini í munnholi og brisi.
Sala jókst um 20 þúsund dósir
Erfitt getur verið að nálgast fín-
korna munntóbak hér á landi, þó svo
að töluvert sé um ólöglegan innflutn-
ing, og notast því margir við íslenskt
neftóbak. Hafsteinn Viðar segir
aukningu í neyslu á íslensku nef-
tóbaki og nefnir hana falda munn-
tóbaksneyslu. „Fólk notar það ef það
kemst ekki í ólöglega innflutt munn-
tóbak og salan hefur aukist meira en í
öðru tóbaki.“
Á síðasta ári seldust 14,4 kg af nef-
tóbaki hjá ÁTVR en það er um fjór-
um prósentum meira en árið á undan
– þá seldust 13,8 kg. Til samanburðar
seldust 12,7 kg árið 2004. Mest er
aukningin í 50 g dósum og á milli ár-
anna 2004 og 2005 jókst salan um ríf-
lega 20 þúsund dósir.
Skýrar vísbendingar um aukn-
ingu í notkun munntóbaks
Morgunblaðið/Frikki
Leikur Frjálsíþróttakonan Helga Margrét Þorsteinsdóttir var fyrst til að
skrá sig til leiks. Hafsteinn Viðar Jensson stendur henni við hlið.
Í HNOTSKURN
»Lýðheilsustöð hefur látiðútbúa vefsvæði þar sem
fjallað er um munntóbak, nei-
kvæð áhrif þess og mikla
ánetjan.
»Á vefsvæðinu eru einnigleiðbeiningar um hvernig
beri að hætta notkuninni.
3.700 manns nota munntóbak daglega, sextán prósent 18-34 ára karla
TENGLAR
..............................................
http://www.lydheilsustod.is/
munntobak
MÁLÞING um hjónabandið og staðfesta samvist
verður haldið í Þjóðminjasafninu á morgun og
hefst kl. 13.30. Að málþinginu stendur hópur
presta í samvinnu við Samtökin ’78.
Málþingið er haldið daginn fyrir kirkjuþing svo
kirkjuþingsmenn geti sótt það. Umræðuefni mál-
þingsins mun verða til umfjöllunar á kirkjuþingi.
Málshefjendur á málþinginu eru fimm talsins.
Fyrst mun dr. Sólveig Anna Bóasdóttir siðfræð-
ingur fjalla um hjónabandið og mæla með þeirri
skoðun að hjónabandið skuli standa opið öllu full-
veðja fólki sem vill lifa saman í skuldbindandi ást-
artengslum. „Ég hef lagt upp það sem kjarnaatriði
að það sé ekki kynhneigðin
heldur kærleikurinn sem sé að-
alatriðið í hjúskap og hjúskap-
arlöggjöf,“ sagði Sólveig.
Þá mun Hulda Guðmunds-
dóttir, kirkjuþingsmaður og
MA í guðfræði, mæla með
þeirri leið að hjónaband karls
og konu og staðfest samvist
fólks af sama kyni verði ekki
sameinuð heldur haldi sér-
kennum sínum sem jafngild
sambúðarform sem prestar fái umboð til að stað-
festa að lögum. Loks mun Lára V. Júlíusdóttir lög-
fræðingur lýsa lagaumhverfi hjónabands og stað-
festrar samvistar.
Feðgarnir Kristján Kolbeins og Eyjólfur Krist-
opher Kolbeins munu lýsa samskiptum sínum, en
sonurinn er hommi. Tónlistarmennirnir Páll Ósk-
ar Hjálmtýsson og Monika Abendroth munu flytja
sálma og ástarljóð. Málþinginu lýkur með pall-
borðsumræðum þar sem framsögumenn sitja fyrir
svörum ásamt fulltrúum frá Samtökunum ’78.
Stefnt er að málþingslokum um kl. 16.30.
Fundarstjóri málþingsins er Ólafur Stephensen
og styrktaraðili þess er Gunnþórunn Jónsdóttir.
Hjónaband og staðfest samvist
Sólveig Anna
Bóasdóttir