Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 3

Morgunblaðið - 17.11.2007, Qupperneq 3
Hvað eiga 2,7 milljónir fermetra, 635 þúsund ljósaperur, 270 þúsund gluggar, 220 þúsund hurðir, 215 þúsund bílastæði, 180 þúsund hurðarhúnar, 3.800 leigurými, 730 lyftur, 270 starfsmenn og 4 lönd sameiginlegt? Eitt fyrirtæki, Landic Property, tengir þetta allt. Þegar Fasteignafélagið Stoðir, Keops og Atlas Ejendomme runnu saman varð til eitt af þremur stærstu fasteignafélögum á Norðurlöndum. Meginstarfsemi Landic Property er á Íslandi, í Svíþjóð, Danmörku og Finnlandi og sérhæfir fyrir- tækið sig í leigu á skrifstofu- og verslunarhúsnæði. Í Danmörku er SAS, Magasin og Illum stærstu leigjendur félagsins. Hið fræga Tietgens Hus er ein af fjölmörgum eignum Landic Property þarlendis. Í Svíþjóð eru skattayfirvöld, réttarkerfið, lögreglan og Stokkhólmsborg stærstu leigjendurnir. Sænsku stórfyrirtækin Telia Sonera, Ericsson, SAS og Nordea bank eru meðal viðskiptavina okkar þar í landi. Á Íslandi eru stærstu leigjendurnir Hagar, Icelandair Hotels og hið opinbera. Stærstu eignir Landic Property á Íslandi eru Kringlan, Spöngin, Holtagarðar og Hótel Hilton Nordica. Eins og gengur og gerist eru fasteignir misgamlar. Sumar eignir Landic Property eru ekki nema nokkurra mánaða gamlar, sumar eru enn teikningar á borði eða hugmynd í kollinum á starfsmanni okkar. Aðrar eignir eru mörg hundruð ára, sögufrægar byggingar. Við erum með starfsemi í fjórum löndum en alls staðar er markmiðið það sama: framúrskarandi þjónusta við leigjendur og áfram- haldandi vöxtur fyrirtækisins. Þegar rætt er um fasteignir er auðvelt að týna sér í tölulegum upplýsingum. En tilgangurinn með upptalningunni á eignum Landic Property er að sýna að þrátt fyrir að við höfum eins og öll fyrirtæki byrjað smátt, þá erum við í dag risastór. Vissulega snýst flest sem við gerum að miklu leyti um steypu, stál, gler, múrsteina, timbur og málningu. En það sem skiptir okkur í Landic Property mestu eru þær þúsundir einstaklinga, skrifstofufólks, ríkisstarfsmanna, verslunarfólks, lögreglumanna og hótelgesta, sem gæða bygg- ingar okkar lífi á hverjum degi. Svo ekki sé minnst á þá tæplega þrjú hundruð skapandi og kraftmiklu starfsmenn sem tryggja viðhald og vegsemd félagsins. Og að allar ljósaperurnar virki. www.landicproperty.com H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.