Morgunblaðið - 17.11.2007, Side 8

Morgunblaðið - 17.11.2007, Side 8
8 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR HILMARI Snorrasyni var veitt við- urkenning í Dublin á Írlandi á dög- unum. Um er að ræða viðurkenn- ingu sem Sea and Shore Safety Services veitir árlega þeim sem stuðla að auknu öryggi meðal sæ- farenda. Viðurkenninguna fékk hann fyrir störf sín sem skólastjóri Slysavarnaskóla sjómanna og fyrir störf sín sem formaður Int- ernational Association for Safety and Turvival Training. Hilmar þakkaði starfmönnum slysavarna- skólans og sagði þetta ekki síður vera viðurkenningu fyrir þeirra frábæru störf. Verðlaun Angela Murphy og Denis O’Callaghan borgarstjóri í Dublin afhentu Hilmari viðurkenninguna. Hilmar hylltur NÝ 33 MW lágþrýstivél verður tek- in í notkun í Hellisheiðarvirkjun í dag og á sama tíma verður gesta- skáli stöðvarhússins tekinn form- lega í notkun. Orkan frá nýju vél- inni, sem er hin fyrsta sinnar tegundar hér á landi, mun fara á al- mennan markað. Nú þegar eru gestir í Hellisheið- arvirkjun orðnir um 5.000 talsins, en skálinn telst ekki fullbúinn fyrr en nú, er sýningaraðstaða hefur verið útbúin. Frá 15. júlí sl. hafa gestir þó getað sótt upplýsingar og leiðbeiningar í gestskálann. Lágþrýstivél og gestaskáli NÝ landskjörstjórn hefur verið kos- in af Alþingi. Í henni sitja sem að- almenn Gísli Baldur Garðarsson, Hervör Lilja Þorvaldsdóttir, Ást- ráður Haraldsson, Bryndís Hlöð- versdóttir og Þórður Bogason. Varamenn verða Hrafnhildur Stef- ánsdóttir, Ólafur Helgi Kjart- ansson, Sólveig Guðmundsdóttir, Elín Blöndal og Eysteinn Eyjólfs- son. Landskjörstjórn kom saman á fimmtudag og kaus Gísla Baldur Garðarsson formann og Bryndísi Hlöðversdóttur varaformann. Einn- ig var ákveðið að ráða Einar Far- estveit lögfræðing sem ritara lands- kjörstjórnar. Ný landskjör- stjórn fundar LANDSVIRKJUN hlaut íslensku gæðaverðlaunin í ár, en þau voru afhent í níunda sinn í fyrradag. Samgöngu- ráðherra, Krist- ján Möller, af- henti verðlaunin. Íslensku gæða- verðlaunin eru samstarfsverk- efni Stjórnvísi, forsætisráðuneyt- isins, VR og Háskóla Íslands. Í umsögn matsnefndar segir m.a. að Landsvirkjun sé öflugt og metn- aðarfullt þekkingarfyrirtæki sem gefi sambærilegum fyrirtækjum er- lendis ekkert eftir. Frumkvæði og metnaður starfsmanna fái notið sín og leiðtogar og stjórnendur fyr- irtækisins hafi skýra framtíðarsýn. Fyrirtækinu sé umhugað um ímynd sína og taki mjög virkan þátt í sam- félagslegum verkefnum á jákvæðan og uppbyggilegan hátt. Gæðaverðlaun til Landsvirkjunar Í húsleit Samkeppniseftirlitsins voru að sögn Magnúsar tekin afrit af tölvugögnum og viðskipta- samningum og öðrum göngum sem þeim tengjast. Hann segir Innnes ekkert hafa að fela og því fagni hann húsleitinni. „Vonandi verða allir hreinsaðir af þessum alvarlega rógburði. Ef ske kynni að hjá einhverjum leyndist óhreint mjöl í pokahorninu vona ég að það verði hreinsað.“ Magnús segist efast um að samráð sé haft á matvörumarkaði. „Ef um samráð er að ræða, hvers vegna breytist verðið þá svona hratt?“ spyr hann. „Það gefur frekar til kynna að það sé hörð samkeppni á markaðnum.“ Að mati Magnúsar er ekki réttlátt að kenna matvöruverslunum um hátt matvöruverð á meðan „VIÐ áttum ekki von á þessu en þó má segja að þetta hafi verið eðlilegt skref af hálfu samkeppn- isyfirvalda miðað við þær ásakanir sem fram hafa komið um að birgjar ættu hlut að máli,“ segir Magnús Óli Ólafsson, framkvæmdastjóri sölusviðs hjá heildversluninni Innnesi, um húsleit Sam- keppniseftirlitins í fyrradag hjá Krónunni, Bónus og þremur birgjum, þar á meðal Innnesi. „Okkur kemur hins vegar á óvart að húsleit sé gerð hjá okkur,“ segir Magnús en bendir á að Krónan og Bónus séu stærstu viðskiptavinir fyrirtækisins. Hann neitar því alfarið að fyrirtækið finni fyrir þrýstingi af hálfu verslana að blanda sér í verð- stríð þeirra. „Við skiptum okkur ekki af verðlagn- ingu verslana.“ ríkið taki „tugi og hundruð milljóna í tolla og gjöld.“ Ólafur O. Johnson, forstjóri O. Johnson & Kaaber, sem Samkeppniseftirlitið gerði einnig húsleit hjá í gær, segist ekki hafa trú á því að sam- ráð sé á matvörumarkaði. „Þeir komu hingað og við létum þá fá öll þau gögn sem þeir vildu fá. Mál- ið er því nú í þeirra höndum. Það er allt hreint í okkar pokahorni. Þetta er allt byggt á einhverjum sögusögnum sem [Samkeppniseftirlitið] hefur fengið.“ Ólafur telur eðlilegt að könnun á meintu sam- ráði sé gerð. „Það er gott og blessað að það sé ver- ið að reyna að finna niðurstöðu í málinu.“ Ekki náðist í forstjóra Íslensk-ameríska. Finna ekki fyrir þrýstingi Eftir Andra Karl andri@mbl.is „SEGJA má að þetta sé í beinu og eðlilegu framhaldi af þeirri niður- stöðu sem kom fram í sumar hjá Mannréttindadómstól Evrópu. Það var minn málflutningur í þessu máli hvað varðar þátt læknaráðs, að það hljóti að hafa áhrif á afstöðu dómsins hvaða gildi álitsgerð læknaráðs hef- ur,“ segir Heimir Örn Herbertsson, lögmaður manns sem krafðist þess að viðurkennd yrði skaðabótaskylda ís- lenska ríkisins vegna líkamstjóns sem hann hlaut í kjölfar bráðakrans- æðastíflu sem starfsfólki Landspítala yfirsást að greina og veita meðferð við í tæka tíð í febrúar árið 2003. Í niðurstöðu dómsins kemur fram að við mat á sönnunargildi umsagnar læknaráðs, um það hvort biðin hafi verið eðlileg, verði að líta til þess að sérfræðingurinn sem ráðið leitaði til starfar hjá Landspítala, og einnig formaður ráðsins og aðrir í réttar- máladeild þess. Var það m.a. til þess fallið að draga úr hlutleysi umsagn- arinnar. Ári eftir áfallið óskaði maðurinn eftir áliti landlæknisembættisins á því hvort að um mistök hafi verið að ræða á greiningu sjúkdómsins. Í álitsgerð embættisins er komist að þeirri niðurstöðu að meðferð manns- ins hafi verið áfátt og á þá leið að hann hefði átt að fá segaleysandi meðferð tveimur klukkustundum fyrr en raun varð á. Í kjölfarið óskaði maðurinn eftir af- stöðu ríkislögmanns til bótaskyldu og óskaði ríkislögmaður umsagnar læknaráðs. Ráðið leitaði sérfræðiráð- gjafar brjóstholsskurðlæknis sem starfaði hjá Landspítalanum og komst hann að því að eðlilega hefði verið staðið að greiningu og dráttur á meðferð hefði fyrst og fremst stafað af óljósum klínískum einkennum mannsins. Skaðabótaskyldu var því hafnað. Heimir Örn segir ljóst að um breytt viðhorf sé að ræða til álits- gerða læknaráðs og það megi rekja til niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu frá því í sumar. Dómstóllinn úrskurðaði þá að stúlka sem veiktist strax eftir fæð- ingu árið 1998 skyldi fá skaðabætur. Hæstiréttur hafði hafnað skaðabóta- skyldu og var sú ákvörðun að mestu byggð á álitsgerð læknaráðs. Í úr- skurðinum sagði að stúlkan hefði með réttu getað óttast að læknaráð væri ekki með öllu hlutlaust í ljósi þess að fjórir þeirra sem sátu í ráðinu stöfuðu hjá Landspítala. Heimir Örn telur að afnema beri læknaráð og nota eigi dómkvadda matsmenn þess í stað. „Fólk er að lenda í því að kalla eftir áliti og það eiga að vera til úrræði fyrir það til að fá skýr svör. Það er óþolandi að það sé réttaróvissa með það hvert skuli leita með slíkt og að það séu ekki bærir aðilar í samfélaginu sem geta tekið það að sér. Það veldur réttar- óvissu á meðan ráðið er ekki aflagt.“ Þegar úrskurður Mannréttinda- dómstólsins var kveðinn upp sagði þáverandi formaður læknaráðs í sam- tali við Morgunblaðið að ráðið væri úrelt fyrirbæri og lögum um það bæri að breyta. Ekki náðist í Sigurð Guð- mundsson, landlækni og formann læknaráðs, við vinnslu fréttarinnar. Héraðsdómur dregur í efa hlutleysi umsagnarinnar Morgunblaðið/Júlíus Landspítali Maðurinn hefur verið óvinnufær síðan hann fékk bráða- kransæðastíflu og glímt við erfið veikindi sem ekki sér fyrir endann á.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.