Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 14
14 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Yfirbragð Alþingis hefurverið með rólegra mótiundanfarið og nýir semgamalreyndir þingmenn
hafa haft orð á því. Þeir sem muna
einhver ár aftur í tímann segja að
það sé eðlilegt á fyrsta þingvetri nýs
kjörtímabils. Þá hafa sumir nefnt
sterkan meirihluta og litla og ósam-
stiga stjórnarandstöðu sem mögu-
legar skýringar fyrir deyfðinni á Al-
þingi. Kannski má bæta því við að
ríkisstjórnarsamstarfið virðist ekki
alveg vera búið að festa sig í sessi í
huga margra, ekki síst eftir allt
borgarstjórnardramað. Flokkarnir
passa sig því á að vera góðir hver við
annan, svona ef ske kynni að þeir
þurfi á vináttunni að halda síðar.
En ég ætla að gerast svo hátíðleg
að spá því að ríkisstjórnarsamstarfið
verði farsælt og endist a.m.k. út
kjörtímabilið, ef ekki lengur. Þess
vegna hvet ég þingmenn til að hætta
að vera of hógværir og þá fær frétta-
þyrsta fjölmiðlafólkið kannski aðeins
meira að gera.
Margar kynhneigðir
Kolbrún Halldórsdóttir mælti í
vikunni fyrir frumvarpi til breytinga
á hjúskaparlögum sem kveður á um
að ein lög eigi að gilda um samkyn-
hneigð og gagnkynhneigð pör. Eng-
inn stjórnarliði tók þátt í umræðun-
um en þetta er eitt af þeim málum
sem væri mjög gaman að fá sem
flesta þingmenn til að taka afstöðu
til. Allir sem tóku til máls voru fylgj-
andi frumvarpinu að undanskildum
Jóni Magnússyni, þingmanni Frjáls-
lyndra, sem taldi að réttindi sam-
kynhneigðra mætti tryggja á annan
hátt í lögum.
Sú skoðun á fullan rétt á sér en
Jón fór þó út á hálan ís þegar hann
talaði um að til væri „margs konar
kynhneigð“ og að sumar væru refsi-
verðar samkvæmt hegningarlögum.
Jón færðist í fyrstu undan því að
svara þegar hann var inntur eftir því
hvað hann ætti við en nefndi síðan
barnakynhneigð og sagðist reikna
með að allir væru sammála um að
hún ætti að vera refsiverð.
Samkvæmt íslenskri orðabók er
kynhneigð „hneigð manns til gagn-
stæðs eða sama kyns í ásta- og kyn-
lífsefnum“. M.ö.o. nær orðið kyn-
hneigð yfir það kyn sem fólk hneigist
til og varla hægt að tala um fleiri
kynhneigðir en gagnkynhneigð,
samkynhneigð og tvíkynhneigð.
Engin ástæða er til þess að spyrða
umræðu um samkynhneigð saman
við ofbeldi gegn börnum.
Fundarstjórn
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra hefur greinilega ekki setið
auðum höndum undanfarið. Í vik-
unni mælti hann fyrir þremur frum-
vörpum og lagði fram tvö og allt eru
þetta vel unnin og þörf frumvörp,
t.d. um almannavarnir og um með-
ferð sakamála.
Björn kom hins vegar dálítið á
óvart þegar hann tók sér hálfpartinn
fundarstjórnarvald á Alþingi í vik-
unni. Samkvæmt dagskrá átti Björn
að ræða almenn hegningarlög en
þegar hann var búinn að tala í u.þ.b.
mínútu áttaði fólk sig á því að hann
var að flytja ræðu um almanna-
varnafrumvarpið. Forseti hringdi
bjöllunni og benti á mistökin en
Björn þakkaði bara fyrir og hélt
ótrauður áfram. Það er mögulegt að
forseti hafi sagt Birni að halda
áfram, án þess að það hafi heyrst, en
þetta leit a.m.k. ankannalega út.
Mikill órói greip um sig í þingsal og
ekki síst hjá þingmönnum sem voru
á mælendaskrá.
Hugsanlega áttaði Björn sig ekki
strax og hélt þess vegna áfram en
forseti þingsins hefði með réttu átt
að stöðva hann aftur og óska eftir að
hann byrjaði á réttu máli.
Með búnt og byssu
Vinstri græn ollu usla sl. fimmtu-
dag í umræðum um kúvendingu
sveitarstjórnar Flóahrepps sem hef-
ur þvert á fyrri áætlanir ákveðið að
setja Urriðafossvirkjun á að-
alskipulag. Guðfríður Lilja Grét-
arsdóttir hóf umræðuna og sagði
lýðræðislega kjörna fulltrúa hafa
„bakkað með sitt nei og sína sann-
færingu“ og ekki þorað annað and-
spænis ægivaldinu sem Lands-
virkjun er. Steingrímur J. Sigfússon
bætti um betur og sagði Lands-
virkjun hafa mætt á staðinn daginn
eftir að hreppsnefndin hafnaði virkj-
unaráformum „með seðlabúntið í
annarri hendinni og byssuna í hinni“.
Þetta eru þung orð. Er verið að
halda því fram að Landsvirkjun beri
fé á sveitarstjórnir og að þær taki
við því? Ef svo er þá er um mjög al-
varlegt mál að ræða og þyrfti að taka
upp á öðrum vettvangi og þar sem
allir sem aðild eiga að málinu geta
svarað fyrir sig.
Hitt er svo annað mál og það er að
Guðfríður Lilja og félagar fengu lítil
sem engin svör við spurningum sín-
um. Ætla stjórnvöld að axla ein-
hverja ábyrgð í málinu? Lands-
virkjun er ríkisfyrirtæki og þess
vegna geta stjórnvöld ekki bara bent
á sveitarfélögin. Hvar stendur Sam-
fylkingin? Afstaða stjórnvalda þarf
að vera skýr, hver svo sem hún er.
Duglegir varaþingmenn
En til að enda annars óþarflega
neikvætt þingbréf á jákvæðu nót-
unum þá langar mig að hrósa þeim
varaþingmönnum sem hafa komið
inn á þing það sem af er þingvetri.
Þeir hafa sannarlega tekið hlutverk
sitt alvarlega og ekki setið með
hendur í skauti sér. Þannig eru nú til
meðferðar í þinginu fjögur frum-
vörp, ein þingsályktunartillaga og
ellefu fyrirspurnir sem varaþing-
menn hafa lagt fram. Mörg málanna
eru í takt við pólitíska stefnumótun
sem hefur átt sér stað innan flokk-
anna og til fyrirmyndar að varaþing-
menn, sem koma oftast bara inn á
þing í tvær vikur, taki af skarið með
svona miklum myndarbrag.
Byssur og barnakynhneigð á rólegu þingi
ÞINGBRÉF
Halla Gunnarsdóttir
BÆJARSTJÓRN Garðabæjar sam-
þykkti á fundi sínum á fimmtudag
að torgið sem nýtt hús Nátt-
úrufræðistofnunar Íslands rís við í
Urriðaholti í Garðabæ verði nefnt
Jónasartorg. Það var Stefán Kon-
ráðsson, formaður skipulags-
nefndar bæjarins, sem lagði fram
tillöguna í tilefni af 200 ára fæðing-
arafmæli Jónasar Hallgrímssonar,
en hann hefur stundum verið kall-
aður fyrsti íslenski náttúrufræðing-
urinn.
Í tilkynningu frá Garðabæ segir,
að nýlega hafi verið ákveðið að reisa
nýbyggingu í Urriðaholti sem hýsa
á Náttúrufræðistofnun Íslands, sem
flyst þá frá Hlemmi í Reykjavík til
Garðabæjar. Húsið rís við torg sem
rammaskipulag Urriðaholts og til-
lögur að deiliskipulagi gera ráð fyr-
ir neðst við Urriðaholtsbraut. Segir
bærinn, að með nafngift torgsins sé
tengslum Jónasar Hallgrímssonar
við náttúruvísindi haldið á lofti þótt
vissulega sé hann þekktari sem
þjóðskáld. Þess má geta, að nokkrir
elstu munir safnsins munu vera frá
Jónasi komnir.
Í tillögunni segir að fram til þessa
hafi engin gata, vegur, stræti eða
torg á Íslandi verið kennt við Jónas
Hallgrímsson og megi segja að það
sé orðið tímabært með tilliti til
stöðu Jónasar í íslenskri þjóðarvit-
und.
Torgið Hið nýja Jónasartorg verður áberandi í Urriðaholtinu.
Jónasartorg í Garðabæ
ÁSTANDIÐ á Gaza-svæðinu er orð-
ið hryllilegt og óttast heilbrigðisráð-
herra Palestínumanna, dr. Bassim
Naim, að heilbrigðiskerfið muni
hrynja á næstu vikum verði ekkert
að gert. Sveinn Rúnar Hauksson
heimilislæknir og formaður félagsins
Ísland-Palestína, sem er að ljúka sex
vikna heimsókn til Gaza hitti ráð-
herrann í gær og hefur jafnframt hitt
fjölmarga lækna og heimsótt sjúkra-
stofnanir í ferðinni. „Hann taldi að ef
ekki yrðu neinar breytingar á því
umsátursástandi sem íbúar á Gaza
búa við, þá myndi heilbrigðiskerfið
hrynja á nokkrum vikum. Þar á hann
við skort á lyfjum og tækjum til
rannsókna á sjúkrahúsum og fleira,“
segir Sveinn Rún-
ar. „Hernámsyf-
irvöld gefa ekki
leyfi fyrir neinum
innflutningi á
varahlutum í
tækjabúnað á
sjúkrahúsum og
gefin eru mjög
takmörkuð leyfi á
innflutningi nauð-
synlegustu lyfja.“
Ein og hálf milljón manns er á
Gaza og eru nú varla til verkjalyf á
borð við Panodil, að sögn Sveins
Rúnars, og sjúkrahús þurfa að verja
miklum tíma í hluti á borð við að út-
vega bensín á sjúkrabíla sína.
Gazabúar þola ekki
margar vikur enn
Sveinn Rúnar
Hauksson
Eftir Guðmundur Sverri Þór
sverrirth@mbl.is
ÁRANGUR Íslendinga í efnahags-
málum er framúrskarandi og ætti
landið að vera fyrirmynd annarra.
Þetta segir bandaríski hagfræðing-
urinn Arthur Laffer sem staddur var
hér á landi og flutti fyrirlestur í Þjóð-
menningarhúsinu í gær. Í samtali við
Morgunblaðið að fundinum loknum
sagði Laffer Íslendinga hafa sýnt
fram á að réttmæti hugmynda hans
en tók jafnframt skýrt fram að
skattalækkanir væru ekki eina
ástæða þenslunnar og góðærisins
sem einkennt hefur íslenskt efna-
hagslíf á undanförnum árum. „Fleiri
þættir spila að sjálfsögðu inn í, þetta
er samspil margra hluta,“ segir Laf-
fer sem viðurkennir að hann hafi ekki
náð að kynna sér til hlítar allar þær
breytingar sem orðið hafa á íslensku
efnahagsumhverfi á undanförnum
árum og áratugum. Hann segir það
hins vegar engum vafa undirorpið að
breytingar þær sem ráðist hefur ver-
ið í á íslensku skattakerfi hafi skilað
miklum árangri.
Þótt kenningum Laffers hafi
stundum verið beitt sem sönnun þess
að skattar eigi ekki rétt á sér segir
hann þá vera illa nauðsyn. „Öll hag-
kerfi þurfa einhvern skattagrundvöll
til þess að byggja þjónustu hins op-
inbera á. Hin pólitíska umræða á síð-
an að fjalla um hversu mikil hin op-
inera þjónusta á að vera en
skatturinn á ekki að þurfa að vera
meiri en svo að það dekki kostnað
hins opinbera. Ef möguleiki er á að
lækka skatta og samtímis auka
tekjur hins opinbera hver er þá á
móti því að lækka skatta? Annað væri
brjálæði. Það er það sem ég hef verið
að benda á,“ segir hann og ítrekar að
Laffer-kúrfuna eigi ekki að líta á sem
einhverja óhrekjanlega hagfræði-
kenningu, hann hafi upphaflega riss-
að hana upp til þess að sýna nem-
endum sínum fram á að það geta
verið tekjuáhrif af skattalækkunum.
Jafnframt varar hann við því að vald-
hafar reyni að finna einhvern topp á
Laffer-kúrfunni til þess að finna
hæsta skattstig sem ekki veldur
verðmætatapi. Aðalatriðið sé að
skattstigið sé vinstra megin við
hæsta punkt á kúrfunni. En hvað á að
gera þegar lægsta hagkvæma skatt-
stigi hefur verið náð?
„Þá þarf að hætta að lækka skatta.
og finna aðrar leiðir til þess að örva
hagkerfið. Við verðum að leyfa
stjórnmálamönnum að taka ákvörð-
un um hvaða leiðir á að nota. Það er
hins vegar alveg ljóst að hingað til
höfum við gengið alltof langt í að
hækka skatta,“ segir Laffer.
Íslenska hagkerfið hefur þanist út
með ógnarhraða á undanförnum ár-
um og hefur verið sagt að fram-
leiðsluspenna sé í hagkerfinu. Þá
hafa sérfræðingar erlendra stofnana
á borð við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn
og OECD varað við því að skattar séu
lækkaðir á miðju þensluskeiði. Það sé
eins og að hella olíu á eld. „Það er
ekki verið að hella olíu á eld með því
að lækka skatta. Að mínu mati getur
hagkerfið ekki þanist of mikið út. Það
veldur engum vandræðum að hafa
framleitt of mikið,“ segir Laffer og
segir kenningar um framleiðslu-
spennu rangar. „Það er ekkert að
neikvætt við ofhitað hagkerfi, hvað
svo sem það þýðir. Atvinnuleysi get-
ur aldrei verið of lágt og fólk getur
aldrei verið of ríkt. Það er aldrei
hægt að útrýma fátækt of hratt,“
bætir hann við og aðspurður um
raddir þess efnis að með skattalækk-
unum breikki bilið á milli fátækra og
ríkra segir hann að þýði það að
minnka bilið að hinir fátæku verði fá-
tækari þá vilji hann ekki að það
minnki. „Það meiðir mig ekki þótt
einhverjir séu ríkari en ég og ef þú
verður ríkari og ég verð ríkari þá hef
ég það betra. John F. Kennedy sagði
eitt sinn að enginn Bandaríkjamaður
hefði nokkurn tíma orðið betur settur
af því að draga annan niður og að í
hvert skipti sem einn Bandaríkja-
maður hagnaðist myndu allir hagn-
ast. Ennfremur sagði hann að á flóði
lyftust öll skip og það er sú regla sem
ég lifi eftir. Í hvert skipti sem afkoma
Bandaríkjamanns batnar þá verð ég
hamingjusamur, gildir þá einu hvort
um er að ræða fátæka eða ríka. Ég vil
að þeim fátæku farnist betur og ég vil
að þeim ríku farnist betur,“ segir
Arthur Laffer og segist að lokum
þakklátur Íslendingum. „Árangur
ykkar hefur rennt stoðum undir Laf-
fer-kúrfuna,“ segir hann og hlær.
Ofhitnun ekki hættuleg
Arthur Laffer segir hagkerfið ekki geta þanist of mikið út
Brautryðjandi Arthur Laffer er sagður hafa rissað kenningar sínar upp á
servéttu á veitingastað til þess að skýra þær fyrir blaðamanni.
Í HNOTSKURN
» Arthur Laffer er heims-þekktur fyrir Laffer-
kúrfuna svokölluðu sem sýnir
að tekjur hins opinbera af
skattheimtu geta hækkað
þrátt fyrir að skattar lækki.
» Laffer var hugmynda-fræðingurinn á bak við
skattalækkanir Ronald Reag-
an og hefur einnig komið að
endurbótum á írska skattkerf-
inu.
Morgunblaðið/RAX