Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 21
ERLENT
Baráttusaga
Margrét J. Benedictsson
helgaði líf sitt
jafnréttisbáráttu kvenna.
Saga hennar má ekki gleymast.
M
bl
9
36
50
9
Fyrsti
vestur-íslenski
feministinn
Þættir úr baráttusögu
Margrétar J. Benedictsson
Björn Jónsson
holar@simnet.is
Ármúla 42 · Sími 895 8966
mánudag - föstudag 10-18
laugardag 10-18 sunnudag 13-17Opið
Frábær jólatilboð
Gefðu öðruvísi jólagjöf í ár
Handunnir
kínverskir
listmunir
Ósló. AFP. | Samþykkt var á presta-
stefnu norsku þjóðkirkjunnar í gær
að heimila vígslu samkynhneigðra
presta eða djákna.
Fimmtíu af 84 fulltrúum á presta-
stefnunni samþykktu tillögu um að
afnema bann við vígslu samkyn-
hneigðra presta. Hinir fulltrúarnir
þrjátíu höfðu óskað eftir frekari at-
hugun á málinu.
Í textanum, sem samþykktur var,
segir að biskupar og aðrar kirkju-
stofnanir sem velja presta eigi síð-
asta orðið og geti enn hafnað um-
sækjanda sem er samkynhneigður
og býr með maka af sama kyni.
Meirihluti ellefu biskupa norsku
þjóðkirkjunnar hafði lýst því yfir að
þeir væru hlynntir því að bannið
yrði afnumið.
Vígsla sam-
kynhneigðra
presta leyfð
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
STJÓRNVÖLD í Sádi-Arabíu hafa á
undanförnum árum sýnt viðleitni til
að bæta ímynd konungdæmisins sem
satt best að segja hefur ekki verið
sérstaklega góð. Nú síðast höfðu þau
boðið fjölda erlendra fjölmiðlamanna
til að sækja leiðtogafund OPEC-
ríkjanna í Riyadh um helgina, en
OPEC eru samtök helstu olíu-
útflutningsríkja heimsins.
Víst er hins vegar að dómur sem
féll í umtöluðu nauðgunarmáli fyrir
rétti fyrr í vikunni í Qatif í austur-
hluta landsins gæti skyggt á vel
skipulagðan fund valdamannanna,
því að jafnvel í Sádi-Arabíu þykir
rétturinn hafa gengið fram af fá-
dæma hörku; ekki gagnvart nauðg-
urunum, heldur fórnarlambinu!
Forsaga málsins er þessi: nítján
ára stúlka í Qatif hitti fyrrverandi
unnusta sinn fyrir einu og hálfu ári og
settist með honum inn í bíl. Hún
hugðist biðja hann um að skila mynd-
um sem hann átti af henni, enda var
hún um það bil að giftast öðrum
manni. Sjö menn komu þá að og
rændu þeim og nauðguðu báðum og
mun stúlkunni alls hafa verið nauðg-
að fjórtán sinnum.
Dómstóll í Qatif dæmdi nauðg-
arana sjö til fangelsisvistar, frá tíu
mánuðum til fimm ára, og áttu allir að
sæta húðstrýkingu, 80 til 1.000 högg-
um hver. Er sá dómur talinn hafa
verið vægur, enda liggur dauðarefs-
ing við nauðgun í Sádi-Arabíu. Hitt
vekur þó enn meiri athygli að fórn-
arlömbin tvö voru einnig dæmd til
húðstrýkingar, 90 högga hvort, fyrir
að hafa verið saman í bílnum til að
byrja með. En refsilöggjöfin í Sádi-
Arabíu byggist á afar strangri túlkun
á íslömskum lögum og skv. henni er
það glæpur fyrir konu að vera ein
með manni sem ekki er bóndi hennar
eða ættingi.
Reitti dómarana til reiði
Lögmaður konunnar, Abdulrahm-
an al-Lahem, taldi dóminn yfir skjól-
stæðingi sínum óréttlátan og dóminn
yfir gerendunum of vægan. Það virð-
ist hins vegar hafa reitt dómarana til
reiði að al-Lahem skyldi áfrýja mál-
inu og síðan ræða það opinberlega,
því að í vikunni felldu þeir nýjan úr-
skurð. Þar var refsing nauðgaranna
vissulega þyngd – úr tveimur árum í
fangelsi til níu – en stúlkan skal hins
vegar nú vera húðstrýkt 200 sinnum
og sæta sex mánaða fangelsisvist.
Hin frjálslyndari öfl í Sádi-Arabíu
eru yfir sig hneyksluð á úrskurði
þessum og segja hann til marks um
að dómskerfið sé langt frá því að vera
í lagi. Hitt er talið hafa hugsanlega
skipt máli að al-Lahem lögmaður hef-
ur áður gagnrýnt dómskerfið í S-
Arabíu. Hann hefur tímabundið verið
sviptur rétti til að iðka lög en hann er
sakaður um tilraun til að grafa undan
dómstólnum í Qatif. Refsingu yfir
stúlkunni hefur skv. New York Times
ekki enn verið framfylgt en stúlkan
er nú gift og ætlar bóndi hennar að
halda málinu áfram fyrir dómstólum.
Staða kvenna er ekki sterk í S-Arabíu
Reuters
Íslömsk lög Konum í S-Arabíu er bannað að vera einar með körlum sem
ekki eru eiginmenn þeirra eða ættingjar. Þær hylja gjarnan andlit sitt.
Fórnarlambi
nauðgunar refsað