Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 27
daglegtlíf
Þegar vetra tekur og kólnar í
veðri er um að gera að mæta
kára með fallegu höfuðfati og
hlýjum vettlingum. »30
tíska
Kristín Árnadóttir og Stefán
Melsted eru mikið fyrir skand-
inavíska hönnun, en vilja setja
sinn karakter á heimilið. »28
innlit
bæra jólavertíð verzl-
unarinnar í landinu
komist langt með að
eyðileggja sjálfa
jólahátíðina fyrir fólki.
Það er nóg að byrja
jólin í byrjun desem-
ber.
Æskilegast er að
samtök verzlunarinnar
hafi forgöngu um að
snúa ofan af þeirri þró-
un, sem er komin of
langt, að byrja jólahá-
tíðina tveimur mán-
uðum fyrir jól. Það
hlýtur að vera hagfellt
fyrir verzlunina sjálfa.
Allt tilstand verzlunarinnar fyrir
jólin kostar peninga og eykur
rekstrarkostnað og
standi það í tvo mán-
uði í staðinn fyrir þrjár
vikur hlýtur að fylgja
því margvíslegur
kostnaður, sem ekki er
víst að skili sér í stór-
aukinni verzlun.
Almenningur er
þreyttur á þessu jóla-
standi löngu fyrir jól.
Fólk hefur engan
áhuga á að jólaæðið
standi svo lengi, sem
verzlunin stefnir nú á.
Vafalaust er skiln-
ingur á þessu hjá
mörgum verzlunar-
aðilum en gera má ráð fyrir að þeir
telji sig knúna til að fylgja í fótspor
þeirra, sem fara svo snemma af
stað, sem raun ber vitni.
Þess vegna er ekki ólíklegt að í
ljós kæmi við athugun samtaka
verzlunarinnar á viðhorfum kaup-
manna að langflestir þeirra séu
sammála þeim sjónarmiðum, sem
hér eru sett fram.
Ætli jólaverzlunin sé ekki nokkuð
ákveðin stærð hvort sem er? Senni-
lega kaupir fólk hvorki meira né
minna fyrir jólin, þótt jólastandið í
verzlunum hefjist svo snemma og til
hvers er þá leikurinn gerður?
Tökum höndum saman og komum
þessum málum í skynsamlegan far-
veg áður en þau fara gjörsamlega
úr böndum. Haldi fram svo horfir
hefst jólastandið í byrjun október
innan tíðar.
Hvernig er hægt að koma í vegfyrir, að kaupmenn byrji jólin
snemma í nóvember? Engir nema
kaupmenn hafa áhuga á því að
jólahátíðin standi í tvo mánuði. Þeir
byrja fyrr með hverju árinu sem líð-
ur og nú er þetta gersamlega komið
úr böndum. Er nauðsynlegt að setja
lög á verzlunarstéttina til þess að
halda henni í skefjum í aðdraganda
jóla?!
Þetta er fáránlegt.
Snýst jólahaldið ekki um eitthvað
annað en verzlun og viðskipti? Það
getur varla verið að markmiðið með
jólahaldinu sé að koma upp tveggja
mánaða samfelldri verzlunarhátíð –
eða hvað?
Það er hægt að halda því fram
með fullum rökum, að þessi snemm-
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Þetta er búin að vera brjál-uð vinna en líka rosalegagaman. Við fengum frí ískólanum í heila viku til
að vinna í atriðinu okkar og það
veitti ekkert af því. Einn daginn
vorum við í fjórtán klukkutíma í
skólanum og allan tímann stans-
laust að vinna að verkefninu. Það
eru ótal smáatriði sem þarf að
huga að og ýmis vandamál sem
þarf að leysa. Þetta er mikil
handavinna og það liggur líka heil-
mikil vinna á bak við möppuna sem
við þurfum að skila til dómnefndar
fyrir keppnina þar sem við segjum
frá vinnuferlinu, efnum sem við
notum og útfærslu hugmynda.
Þannig að við erum vissulega orðn-
ar svolítið þreyttar en við erum
líka mjög spenntar,“ segja þær
Salka Þórðardóttir, Elísa Rut
Hallgrímsdóttir, Þóra Karólína
Ágústsdóttir og Berglind Björg
Þorvaldsdóttir en í dag taka þær
þátt í keppni sem heitir Stíll 2007.
Allstaðar að af landinu
Í þessari keppni er keppt í hönn-
un á fatnaði, hárgreiðslu og förðun
en þetta er í sjöunda sinn sem
keppni þessi er haldin. Hún er á
vegum SAMFÉS (Samtök félags-
miðstöðva á Íslandi) og að þessu
sinni er hún haldin í Íþróttahúsinu
í Smáranum. Krakkarnir sem taka
þátt í keppninni eru á aldrinum 13-
16 ára og þau koma frá félags-
miðstöðvum um land allt en aðeins
getur eitt lið komið frá hverri stöð
og í hverju liði geta verið tveir til
fjórir einstaklingar. Keppendur
þurfa að vinna út frá ákveðnu
þema og áherslan er fyrst og
fremst á listræna sköpun, fantasíu
og frumleika en ekki tískustrauma.
Þemað í ár eru íslensku þjóðsög-
urnar.
„Í hugmyndavinnunni lögðumst
við ekki í lestur á þjóðsögunum en
við þekkjum auðvitað margar slík-
ar. Aftur á móti fórum við á Þjóð-
minjasafnið til að reyna að fá hug-
mynd um hvað við ættum að gera,
en andinn kom ekki yfir okkur þar.
Hugmyndin kviknaði á leiðinni
heim frá safninu þegar við keyrð-
um framhjá Tjörninni,“ segja þær
vinkonurnar en það er hernaðar-
leyndarmál hvernig atriðið þeirra
verður. „Við vorum mjög lengi að
ákveða hvernig við ættum að út-
færa hugmyndina og gerðum
margar skissur, bæði að förðun-
inni, hárgreiðslunni og fatnaðinum.
Við vorum ekki alltaf sammála en
þá ræddum við það bara fram og
til baka. Við erum alvöru konur og
getum alveg talað út um hlutina,“
segja þær og hlæja dátt. Þær
segja það hafa verið heilmikla
reynslu að standa í þessu öllu sam-
an en engin þeirra ætlar sér að
læra förðun, hárgreiðslu eða fata-
hönnun í framtíðinni. Þær stefna á
Versló eða Kvennó eftir að grunn-
skóla lýkur og einhverjar þeirra
segja að vel geti verið að Listahá-
skólinn verði svo fyrir valinu eftir
það.
Sífellt umfangsmeiri keppni
Stíll 2007 er mikil hátíð sem
stendur alveg frá klukkan fjögur í
dag til klukkan níu í kvöld. Fyrstu
tvo tímana verða keppendur að
vinna með fyrirsætuna sína, farða
hana, greiða henni og klæða og
dómararnir sem eru fagmenn á
hverju sviði, fylgjast með vinnu-
brögðunum. Einnig verða
skemmtiatriði sem krakkar frá fé-
lagsmiðstöðvunum sjá um og ein-
hverjar hljómsveitir troða upp eins
og til dæmis Ljótu hálfvitarnir. Og
tískusýningar verða í löngum röð-
um.
Keppnin Stíll er alltaf að vaxa
og sífellt fleiri taka þátt og nú hafa
fimmtíu og tvö lið skráð sig. Sýnt
verður frá keppninni í beinni út-
sendingu í þættinum Laugardals-
lögin í kvöld.
Fantasía og sköpun á Stíl 2007
Morgunblaðið/Ómar
Til í slaginn Þær brugðu á leik uppi á húsþaki. F.v. Salka með trommukjuðana, Berglind Björg, Elísa og Þóra.
Vinningshafar 2006 Ísdrottningin lengst til hægri sigraði í fyrra en hún
koma frá félagsmiðstöðinni Friði á Sauðárkróki. Þemað: Móðir náttúra.
Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur
khk@mbl.is
LYF sem vinna eiga á offitu virðast
ekki virka nema að takmörkuðu
leyti að því er greint var frá á
fréttavef BBC í gær. Einstaklingar
sem tóku inn offitulyf léttust aðeins
lítillega og margir voru áfram tölu-
vert mikið of feitir samkvæmt
rannsókn sem birt var í læknaritinu
British Medical Journal. Þar var
sýnt fram á að með því að taka inn
offitulyf á borð við orlistat léttist
fólk ekki um meira en 5 kg, eða um
5% af líkamsþyngd, sem ekki þykir
nægjanlegt til að réttlæta notkun
þeirra.
Að sögn sérfræðinganna sýnir
þetta að lyf koma ekki í stað heil-
brigðs lífernis, lausnin felist enn í
því að borða minna og hreyfa sig
meira.
Yfir milljarður manna víðsvegar
um heim telst vera yfir offitu-
mörkum og margir því ginnkeyptir
fyrir skyndilausnum.
Í þessari nýjustu rannsókn, sem
prófessor Raj Padwal og samstarfs-
menn hans við háskólann í Alberta í
Kanada unnu, voru skoðaðar þrjá-
tíu rannsóknir á 20.000 manns, þar
sem hluti hópanna neytti eins
þriggja offitulyfja – orlistat, sibut-
ramine eða rimonabant – í eitt ár
en samanburðarhópar fengu stað-
leysulyf. Allir þátttakendur í rann-
sóknunum voru of feitir og vógu að
meðaltali um 100 kg.
Þeir sem neyttu offitulyfjanna
léttust 5%-10% meira en þeir sem
tóku inn staðleysulyf en ekki þótti
sannað að þyngdartapið væri nóg
til að hafa teljandi áhrif á heilsu
þeirra og langlífi. Í öllum tilfellum
lækkuðu offitulyfin hins vegar
ákveðna gerð kólesteróls, en erf-
iðar aukaverkanir lyfjanna fólu í
sér að 30%-40% þátttakenda gátu
ekki lokið prófunum.
Lausnin
ekki í
pilluformi
Hollusta Lausnin fellst enn í hreyf-
ingu og hollu mataræði.
Morgunblaðið/Ómar
|laugardagur|17. 11. 2007| mbl.is