Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 28
Heimahönnun Þessa hirslu hlóðu
Stefán og Kristín úr dönskum múr-
steini á nokkrum kvöldum. Eldhús-
megin hýsir hún bakaraofninn og
pottahirslu og borðstofumegin varð
til pláss fyrir vínrekkann.
V
ið erum afskaplega hrifin
af skandinavískri hönn-
un, sérstaklega danskri
hönnun, sem er fyrst og
fremst einföld og stíl-
hrein auk þess sem við blöndum líka
saman gömlu og nýju. Heimili eiga
að vera notaleg því heimili eru fyrir
fólk. Við höfum því aldrei vanið okk-
ur á að henda út dótinu okkar með
reglulegu millibili til að kaupa eftir
nýjustu tísku enda eru ákveðnir hlut-
ir í okkar eigu sem við skiljum ekk-
ert við okkur. Við viljum nefnilega
setja okkar eigin karakter á heimilið
okkar. Það er svo mikilvægt að fólki
líði vel heima hjá sér,“ segir Kristín
Árnadóttir, húsmóðir í vinalegu
þriggja hæða einbýlishúsi, sem virð-
ist kúra notalega við Nesveg vestast
í Vesturbæ Reykjavíkur.
Húsið lætur lítið yfir sér að utan,
en leynir á sér þegar inn er komið.
Heimili hjónanna Kristínar, sem
starfar hjá Söfnunarsjóði lífeyris-
réttinda, og Stefáns Melsted, lög-
fræðings og forstöðumanns hjá
Tryggingamiðstöðinni, ber vott um
smekkvísi enda hefur húsmóðirin
„ólæknandi“ áhuga á öllu, sem fallið
getur undir hönnun og annað punt-
erí.
„Ég er nú farin að röfla í eigin-
manninum um að taka eldhúsið aftur
í gegn og er búin að fara í nokkra
hringi í huganum án þess að hafa náð
almennilegri lendingu því þetta gæti
orðið svolítið snúið ef ég ætla að láta
gólfefnið halda sér,“ viðurkennir
Kristín og lítur til bónda síns sem
bætir við: „Hún stjórnar ferðinni
enda hefur hún fegurðarskyn á háu
stigi. Ég fæ að koma með mínar hug-
myndir og svo komumst við oftast að
sameiginlegri niðurstöðu,“ segir
Stefán og brosir.
Þrjár konur á einu bretti
Kristín og Stefán búa nú tvö í hús-
inu sínu því börnin þrjú eru flogin að
heiman og barnabörnin eru orðin
fjögur á aldrinum sex til fjórtán ára.
Kristín var aðeins tvítug að aldri
þegar hún festi kaup á einbýlishús-
inu á Nesvegi ásamt fyrri eiginmanni
sínum árið 1969. Fjórum árum síðar
lést hann úr krabbameini og Kristín
stóð þá, 24 ára gömul, uppi sem
ekkja með tvær ungar dætur, þær
Aðalheiði og Ragnheiði Ásgríms-
dætur.
Kristín og Stefán giftust svo árið
1976 og „þar með fékk fátækur lög-
fræðineminn þrjár konur upp í hend-
urnar á einu bretti enda vorum við
mæðgurnar afskaplega samrýndar.
Ég kannaðist aðeins við piltinn því
æskuvinkona mín er systir hans. Þau
eru alin upp við Nesveg, í gömlu húsi
sem nú er búið að rífa, og gengu í
Melaskólann og Hagaskólann eins
og ég, en maður var bara ekkert að
pæla í þessum yngri strákum þá“,
segir Kristín og hlær og útskýrir að
hún hafi þriggja ára forskot í aldri á
eiginmanninn.
Fjölskyldan hefur búið í húsinu
allar götur síðan að undanskildum
tveimur árum, 1980 til 1982, þegar
hún fluttist til Kaupmannahafnar
þar sem Stefán lagði stund á fram-
haldsnám í lögfræði og húsið var í
leigu á meðan.
Þrjú börn
og fjögur barnabörn
Örverpið Stefán Örn, sem nú er 24
ára og er búsettur í Kaupmannahöfn
þar sem hann er að læra til kokks á
Restaurant Grønnegade, bættist við
fjölskylduna að aflokinni námsdvöl
fjölskyldunnar í Danmörku og svo
var farið að hefjast handa við að taka
húsið í gegn smátt og smátt.
„Við höfum að heita má verið í rúm
tuttugu ár að breyta húsinu eftir
okkar hugmyndum, en höfum auðvit-
að notið leiðsagnar góðra manna.
Meðal annarra hefur arkitektinn
Sigurður Björgúlfsson teiknað for-
stofu, sem við létum byggja við hús-
ið, auk frístandandi bílskúrsins. Við
höfum reynt að gera það sjálf sem
við getum, en líka notið aðstoðar
góðra iðnaðarmanna, sem orðið hafa
miklir vinir okkar, ef þeir á annað
borð voru það ekki áður.
En til að gera langa sögu stutta
má segja að mikil breyting hafi átt
sér stað hér innan dyra. Stigahúsið
var opnað og búinn til nýr stigi. Í
stað langs gangs með sjö hurðum á
aðalhæðinni var rýmið opnað með
niðurrifi veggja og eldhúsið byggt
upp á allt öðrum stað en það áður
var,“ segir Stefán.
Miðhæðin rúmar nú stofu, eldhús,
borðstofu, skrifstofuherbergi og
gestasnyrtingu. Gluggi í borðstofu
var stækkaður niður í gólf og búin til
tvöföld svalahurð út á myndarlegan
Dönsk borðstofuhúsgögn Borðið, sem var keypt í Epal, er átthyrnt og stækkanlegt fyrir tólf
manns með lausri marmaraplötu í miðjunni. Philip Stark stólarnir voru svo keyptir í Casa.
Stofan Svarta leðursófasettið eru nýjustu húsgögnin á heimilinu, keypt í Exó. Brúnu stólarnir
eftir hönnuðinn Bruno Matson voru keyptir fyrir fjölmörgum árum.
Morgunblaðið/Golli
Samhent Hjónin Kristín Árnadóttir og Stefán Melsted eru hrifin af skandinavískri hönnun. Heimilið á þó að
þeirra sögn einnig að hafa karakter enda vilja þau fyrst og fremst að það sé notalegt.
„Viljum setja
okkar karakt-
er á heimilið“
Heimili og hönnun er mikið áhugamál hjá Krist-
ínu Árnadóttur enda býr hún bæði yfir smekkvísi
og fegurðarskyni, eins og Jóhanna Ingvarsdóttir
komst að þegar hún sótti þau Kristínu og Stefán
Melsted heim á Nesveginn.
Mér finnst lýsing skipta
sköpum ef maður vill
skapa „kósí“ stemningu.
Og svo lærðum við það af
Dönum að það er allt í lagi
að blanda saman nýjum og
gömlum hlutum. Það er
bara skemmtilegt
lifun
28 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ