Morgunblaðið - 17.11.2007, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MESSUR Á MORGUN/KIRKJUSTARF
AKRANESKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 15.
AKUREYRARKIRKJA: | Afmæli Akureyrarkirkju. Hátíð-
armessa kl. 14. Sr. Svavar A. Jónsson og sr. Sólveig
Halla Kristjánsdóttir, félagar úr messuhópi, aðstoða,
allur Kór Akureyrarkirkju syngur. Björn Steinar kveður
söfnuðinn. Organistar Eyþór Ingi Jónsson og Björn
Steinar Sólbergsson. Fjáröflunardagur Kvenfélags Ak-
ureyrarkirkju.
ÁRBÆJARKIRKJA: | Tónlistarguðsþjónusta kl. 11.
Rökkurkórinn frá Skagafirði syngur, stjórnandi Sveinn
Sigurbjörnsson. Valborg Kjartansdóttir syngur einsöng.
Anna Hugvarðardóttir, fiðla. sr. Þór Hauksson þjónar
fyrir altari og prédikar. Sunnudagaskólinn í safn-
aðarheimili kirkjunnar á sama tíma Kirkjukaffi á eftir.
ÁSKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Elíasar og
Hildar Bjargar. Messa kl. 14. Kór Áskirkju syngur, org-
anisti Magnús Ragnarsson. Strax að messu lokinni
hefst kökubasar og flóamarkaður Safnaðarfélags
Ásprestakalls í safnaðarheimili kirkjunnar. Kaffi á
könnunni.
ÁSTJARNARKIRKJA | Messa kl. 11. Sunnudagaskóli á
sama tíma. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og tónlistar-
stjóri Helga Þórdís Guðmundsdóttir. Kaffisopi og ávext-
ir á eftir í safnaðarheimilinu.
BESSASTAÐAKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11 í sal
Álftanesskóla. Bolli Már, Matthildur, Snædís og Sunna
Dóra stjórna starfinu. Foreldrar hvattir til að koma með
börn sín. Kvöldvaka í salnum kl. 20. Kvöldvaka í hátíð-
arsal Álftanesskóla kl. 20. Tónlist, talað mál og kaffi.
Unglingahljómsveitin ACID sér um tónlistina ásamt
Bjarti Loga organista. Stundina annast sr. Hans Guð-
berg Alfreðsson og sr. Friðrik J. Hjartar.
BREIÐHOLTSKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli
Jónasson. Nýstofnaður kór Breiðholtskirkju syngur,
organisti Julian Isaacs. Barnaguðsþjónusta á sama
tíma. Léttur málsverður í safnaðarsal eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA: | Barnamessa kl. 11. Söngur og
fræðsla fyrir alla fjölskylduna. Ungmennahljómsveit
spilar undir stjórn Renötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14.
Kór Bústaðakirkju, organisti Renata Ivan. Molasopi eft-
ir messu. Pálmi Matthíasson.
DIGRANESKIRKJA: | Messa kl. 11. Prestur sr. Gunnar
Sigurjónsson, organisti Bjarni Þ Jónatansson, kór
Digraneskirkju, B-hópur. Sunnudagaskóli í kapellu á
sama tíma. Léttar veitingar að messu lokinni.
www.digraneskirkja.is
DÓMKIRKJAN: | Messa kl. 11. Sr. Anna Sigríður Páls-
dóttir prédikar. Dómkórinn syngur, organisti er Kjartan
Sigurjónsson. Barnastarf á kirkjuloftinu meðan á
messu stendur.
Kl. 20 Æðruleysismessa.
EGILSSTAÐAKIRKJA: | Sunnudagaskóli kl. 11. Messa
kl. 14, organisti Torvald Gjerde. 19. nóv. Kyrrðarstund
kl. 18.
EYRARBAKKAKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA: | Fjölskylduguðsþjónusta kl.
11. Möguleikhúsið sýnir leikritið „Höll ævintýranna“.
Skemmtun verður í safnaðarheimili kirkjunnar kl. 16-
18. Vinabandið spilar og danshópur Gerðubergs sýnir
dansa. Aðgangseyrir 1.000 kr. Kaffiveitingar, dans og
skemmtun.
FÍLADELFÍA: | Brauðsbrotning kl. 11. Ræðumaður er
Hafliði Kristinsson. Bible studies at 12.30 in the main
hall. Everyone is welcome. Almenn samkoma. kl.
16.30. Ræðumaður er Helgi Guðnason, Gospelkór
Fíladelfíu leiðir söng. Aldursskipt barnakirkja, öll börn
1-13 ára velkomin.
FRÍKIRKJAN í Hafnarfirði: | Sunnudagaskóli kl. 11.
Umsjón hafa Sigríður Kristín, Hera og Örn. Kvöldmessa
kl. 20. Altarisganga. Kór Fríkirkjunnar leiðir sönginn
undir stjórn Arnar Arnarsonar. Kaffi í safnaðarheimilinu
að lokinni guðsþjónustu.
FRÍKIRKJAN í Reykjavík: | Útvarpsguðsþjónusta kl.
11, athugið breyttan messutíma. Hjörtur Magni prédik-
ar um stöðu kirkjunnar í nútímasamfélagi, á 108 ára
afmæli safnaðarins. Tónlistina leiða Carl Möller org-
anisti og Anna Sigga ásamt Kammerkór Fríkirkjunnar.
Barnaguðsþjónusta kl. 14 í umsjá Ásu Bjarkar, Péturs
og Nöndu.
FRÍKIRKJAN KEFAS | Sunnudagaskóli kl. 11. Almenn
samkoma kl. 14 þar sem Sigrún Einarsdóttir prédikar,
lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Að samkomu lokinni
verður kaffi og samvera.
FÆREYSKA Sjómannaheimilið: | Samkoma kl. 17.
Jógvan Purkhus frá Klaksvik í Færeyjum predikar. Á eft-
ir samkomu er kaffi og spjall.
GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagaskóli í Ingunn-
arskóla kl. 11. Umsjón Sigurbjörg Þorgrímsdóttir,
María Gunnlaugsdóttir og Anna Elísa Gunnarsdóttir.
Jón Jóhannsson djákni á Sóltúni kemur í heimsókn.
Messa í Þórðarsveigi 3 kl. 14. Prestur sr. Sigurjón Árni
Eyjólfsson, tónlistarstjórn Þorvaldur Halldórsson.
Kirkjukaffi.
GRAFARVOGSKIRKJA: | Gospelmessa kl. 11. Séra
Lena Rós Matthíasdóttir prédikar og þjónar fyrir altari.
Kyrjukórinn frá Þorlákshöfn og félagar úr Gosp-
elsystrum í Reykjavík syngja. Stjórnandi Gróa Hreins-
dóttir, píanisti Aðalheiður Þorsteinsdóttir. Sunnudaga-
skóli kl. 11. Umsjón Hjörtur og Rúna, undirleikari
Stefán Birkisson. Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgarholts-
skóla. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón Gunn-
ar og Dagný, undirleikari Guðlaugur Viktorsson.
GRENSÁSKIRKJA: | Morgunverður kl. 10. Bænastund
kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Lellu, Lilju Irenu
o.fl. Messa kl. 11. Altarisganga, samskot í Líknarsjóð.
Messuhópur þjónar, kirkjukór Grensáskirkju leiðir
söng, organisti Árni Arinbjarnarson, prestur sr. Ólafur
Jóhannsson. Molasopi eftir messu.
GRINDAVÍKURKIRKJA: | Kvennamessa kl. 14. Sr. Auð-
ur Eir Vilhjálmsdóttir predikar og kvenfélagskonur lesa
ritningarlestra ásamt því að selja kaffiveitingar eftir
messu. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Friðriks V.
Stefánss. organista og með honum leika á gítar Andri
og Anton.
GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: | Guðsþjónusta
kl. 14. Einsöngur Björn Björnsson, organisti Kjartan
Ólafsson, séra Ólöf Ólafsdóttir prédikar og þjónar fyrir
altari. Félag fyrrum þjónandi presta.
HAFNARFJARÐARKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11.
Prestur sr. Þórhallur Heimisson, ræðuefni: Hinir hinstu
tímar. A Capella-kór kirkjunnar flytur kórverk og leiðir
söng, kantor Guðmundur Sigurðsson. Kirkjukaffi í safn-
aðarheimilinu eftir stundina. Sunnudagaskóli fer fram
á sama tíma í safnaðarheimilinu og Hvaleyrarskóla.
HALLGRÍMSKIRKJA: | Fræðslumorgunn kl. 10 „Kier-
kegaard og efnishyggjan“ dr. Birna Bjarnadóttir flytur
erindi. Messa og barnastarf kl. 11, sr. Birgir Ásgeirs-
son prédikar, fermingarbörn aðstoða, félagar úr Mót-
ettukórnum leiða söng, organisti er Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir. Barnastarf er í umsjá Magneu Sverrisdóttur.
HÁTEIGSKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta og messa kl.
11. Umsjón barnag. Erla Guðrún og Páll Ágúst. Org-
anisti Douglas A. Brotshie, prestur Tómas Sveinsson.
Léttar veitingar eftir messu.
HJALLAKIRKJA: | Messa kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir
þjónar, félagar úr kór kirkjunnar syngja og leiða safn-
aðarsöng, organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Sunnu-
dagaskóli kl. 13. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl.
18 og opið hús á fimmtudag kl. 12. www.hjallakirkja.is
HJALTASTAÐARKIRKJA | Gengið til kirkju frá Kóreks-
stöðum kl. 11 og gengið að Hjaltastað til messu. Sókn-
arpresturinn sr. Jóhanna I. Sigmarsdóttir prédikar og
þjónar fyrir altari.
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: | Sunnudagsskóli kl.
11. Samkoma kl. 17. Dögg Harðardóttir talar.
HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: | Samkoma kl. 20.
Umsjón: Áslaug K. Haugland. Heimilasamband fyrir
konur mánudag kl. 15. Lofgjörðarsamkoma fimmtudag
kl. 20. Opið hús daglega kl. 16-17.30 nema mánu-
daga. Fatabúðin í Garðastræti 6 er opin virka daga kl.
13-18 og laugardaga kl. 13-16.
HRÍSEYJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
HVERAGERÐISKIRKJA: | Guðsþjónusta og barnastarf
kl. 11.
ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: | Fjölbreytt barnastarf kl.
11. Fræðsla fyrir fullorðna á sama tíma. Friðrik Schram
fjallar um nýja Biblíuþýðingu. Samkoma kl. 20 með lof-
gjörð og fyrirbænum. Friðrik Schram predikar.
KFUM og KFUK: | Lofgjörðarvaka kl. 20. Lofgjörð, fyr-
irbæn og vitnisburðir.
KOTSTRANDARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 14.
KÓPAVOGSKIRKJA: | Barnastarf kl. 12.30. Umsjón
Sigríður, Þorkell Helgi og Örn Ýmir. Guðsþjónusta kl.
14. Prestur sr. Auður I. Einarsdóttir, Gerðubergskórinn
kemur í heimsókn og syngur undir stjórn Kára Friðriks-
sonar, organisti Lenka Mátéová. Kaffi og konfekt eftir
messu. Kyrrðar- og bænastund þriðjudag kl. 12.10.
LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Landakoti kl. 14, á
stigapalli á 2. hæð. Sr. Bragi Skúlason, organisti Ing-
unn Hildur Hauksdóttir.
LANGHOLTSKIRKJA: | Messa og barnastarf kl. 11. Kór
Kórskóla Langholtskirkju syngur, stjórnandi Bryndís
Baldvinsdóttir, prestur sr Jón Helgi Þórarinsson, org-
anisti Jón Stefánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni
með Rut og Steinunni. Minningartónleikar um sr. Sig-
urð Hauk eru kl. 20. Flutt verða Magnificat og Actus
Tragicus.
LAUGARNESKIRKJA: | Messa og sunnudagaskóli kl.
11. Sr. Hildur Eir Bolladóttir prédikar. Kór og organisti
og meðhjálpari þjóna ásamt sunnudagaskólakenn-
urum, fulltrúum lesarahóps og hópi fermingarbarna. Í
messukaffi verður selt heimagert konfekt til styrktar
unglingastarfinu Adrenalín gegn rasimsa.
LÁGAFELLSKIRKJA: | Messa kl. 11, félagar úr Kirkju-
kór Lágafellssóknar syngja, organisti Guðmundur Óm-
ar Óskarsson, meðhjálpari Hólmfríður Jónsdóttir,
prestur sr. Þórhildur Ólafs.
LINDASÓKN í Kópavogi: | Guðsþjónusta og sunnu-
dagaskóli í Salaskóla kl. 11. Þorvaldur Halldórsson
leiðir safnaðarsönginn, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjón-
ar.
NESKIRKJA: | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr
Háskólakórnum leiða safnaðarsöng, organisti Stein-
grímur Þórhallsson, sr. Örn Bárður Jónsson prédikar og
þjónar fyrir altari. Börnin byrja í kirkjunni en fara síðan í
safnaðarheimilið. Söngur, brúður og sögur. Kaffi og
spjall á Torginu eftir messu.
NJARÐVÍKURKIRKJA (Innri-Njarðvík): | Sunnudagskóli
kl. 11. Umsjón hafa Brynja Vigdís Þorsteinsdóttir, Dag-
mar Kunákova og Jenný Þórkatla Magnúsdóttir.
SALT, kristið samfélag | Samkoma kl. 17. „Áhugamað-
ur um jólahlaðborð.“ Ræðumaður sr. Kjartan Jónsson.
Lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf.
SELFOSSKIRKJA: | Messa kl. 11. Næstsíðasti sunnu-
dagur kirkjuársins. Unglingakór Selfosskirkju undir
stjórn Jörgs E. Sondermanns. Vænst er þátttöku ferm-
ingarbarna og foreldra þeirra. Áslaug Pálsdóttir og
Hansína Kristjánsdóttir lesa ritningarlestra. Léttur há-
degisverður að lokinni athöfninni.
SELJAKIRKJA: | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Söngur,
biblíusaga, ný mynd. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pét-
ur Bollason prédikar. Kirkjukórinn leiðir söng, organisti
Jón Bjarnason. Guðsþjónusta með Þorvaldi kl. 20. Sr.
Ólafur Jóhann Borgþórsson prédikar, Þorvaldur Hall-
dórsson sér um tónlistina.
SELTJARNARNESKIRKJA: | Messa kl. 11. Félagar úr
Kammerkór kirkjunnar leiða tónlistarflutning undir
stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Sunnu-
dagaskólinn er á sama tíma, minnum einnig á æsku-
lýðsfélagið kl. 20. Prestur er Sigurður Grétar Helgason.
VEGURINN, kirkja fyrir þig | Samkoma kl. 11. Kennsla
fyrir alla aldurshópa. Guðlaug Tómasdóttir kennir. Létt
máltíð að samkomu lokinni. Samkoma kl. 19. Högni
Valsson prédikar. Lofgjörð, fyrirbænir og samfélag í
kaffisal á eftir.
VÍDALÍNSKIRKJA: | Guðsþjónusta kl. 11 í umsjón
djákna. Nanna Guðrún Zoëga, Jóhanna Guðrún Ólafs-
dóttir og Jóhanna Kristín Guðmundsdóttir annast guðs-
þjónustuna. Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir prédikar. Jó-
hann Baldvinsson organisti og félagar úr kór kirkjunnar
annast tónlistina. Sunnudagaskóli á sama tíma.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: | Sunnudagaskóli kl.
11, stund fyrir börn á öllum aldri. Guðsþjónusta kl. 13.
Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Úlriks Ólason-
ar.
YTRI-NJARÐVÍKURKIRKJA: | Sunnudagskólinn kl. 11.
Umsjón hafa Hanna Vilhjálmsdóttir og María Rut Bald-
ursdóttir. Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Kór kirkjunnar
leiðir söng undir stjórn Gunnhildar Höllu Baldursdóttur
organista. Meðhjálpari er Ástríður Helga Sigurðardóttir.
Matt. 25.
Orð dagsins:
Tíu meyjar.
Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonHríseyjarkirkja.
Kökubasar og flóa-
markaður í Áskirkju
Safnaðarfélag Ásprestakalls heldur
sinn árlega kökubasar eftir messu
og hefst hann um kl. 15. Sú ný-
breytni verður að þessu sinni að
samtímis verður haldinn flóamark-
aður þar sem á boðstólum verða
ýmsir fallegir og eigulegir munir.
Kökubasarinn og flóamarkaðurinn
eru hlekkir í fjáröflun safn-
aðarfélagsins, en það styður og rek-
ur mikilvæga þætti safnaðarstarfs-
ins.
Skemmtun í Fella-
og Hólakirkju
Skemmtun verður í safnaðarheimili
Fella- og Hólakirkju kl. 16-18.
Gunnar Hauksson, formaður Fella-
sóknar, leiðir skemmtunina, Vina-
bandið spilar, danshópur Gerðu-
bergs sýnir dansa og allir fá að taka
dansspor sem vilja. Kaffiveitingar.
Aðgangseyrir er 1.000 kr. og ágóð-
inn rennur til að kaupa nýjan magn-
ara fyrir Vinabandið sem hefur
skemmt mörgum í gegnum tíðina.
Erindi um Kierkegaard
í Hallgrímskirkju
Á fræðslumorgni kl. 10 í Hallgríms-
kirkju flytur dr. Birna Bjarnadóttir
erindi um danska trúarheimspek-
inginn Kierkegaard. Yfirskrift þess
er: Dýrt metur Drottinn dauða
minn – Kierkegaard og efn-
ishyggjan. Birna er dósent og for-
stöðumaður íslenskudeildar Ma-
nitóbaháskóla í Winnipeg og fjallar
um sýn danska trúarheimspekings-
ins Kierkegaard á trúarhugsun
samtíma síns.
Rökkukórinn syngur
í guðsþjónustu
í Árbæjarkirkju
Tónlistarguðsþjónusta verður í Ár-
bæjarkirkju kl. 11. Tveir kórar
syngja í guðsþjónustunni. Kirkju-
kór Árbæjarkirkju, stjórnandi
Krisztina Kalló Szklenár, og Rökk-
urkórinn frá Skagafirði stjórnandi
hans er Sveinn Sigurbjörnsson en
hann leikur jafnfram á trompet í
guðsþjónustunni. Valborg Kjart-
ansdóttir syngur einsöng og Anna
Hugvarðardóttir á fiðlu. Sr. Þór
Hauksson þjónar fyrir altari og pré-
dikar. Sunnudagaskólinn er á sama
tíma í safnaðarheimilil kirkjunnar.
Kirkjukaffi á eftir.
Útvarpsguðsþjónusta
Í Fríkirkjunni
í Reykjavík
Afmælisguðsþjónusta kl. 11, athug-
ið breyttan messutíma. Hjörtur
Magni Jóhannsson prédika um
stöðu Fríkirkjunnar í Reykjavík í
nútímasamfélagi, nú þegar söfn-
uðurinn er orðinn 108 ára og al-
stærsti söfnuður landsins. Tónlist-
ina leiða Carl Möller organisti og
Anna Sigríður Helgadóttir söng-
kona ásamt Kammerkór Fríkirkj-
unnar. Barnaguðsþjónusta verður í
kirkjunni kl 14 í umsjá Ásu Bjarkar
Ólafsdóttur, Nöndu Maríu Maack
og Péturs Markan. Frænkurnar
Dóra Björg Árnadóttir og Áshildur
María Guðbrandsdóttir syngja.
Helgisaga og leikbrúður auk sálma-
og hreyfisöngsins.
Konfekt gegn rasisma
og fræðsla um sorg í
Laugarneskirkju
Í Adrenalín gegn rasisma koma
saman unglingar úr 9. og 10. bekk
Laugalækjarskóla ásamt jafn-
öldrum sínum úr nýbúadeild Aust-
urbæjarskóla með það að markmiði
að efla tengsl og vináttu milli hópa
af ólíku þjóðerni og menningu. Sl.
tvö ár hefur starfið verið undir
stjórn sr. Hildar Eirar Bolladóttur
og hennar samstarfsfólks í Laug-
arneskirkju. Hildur Eir mun annast
messuhald kl. 11 og í messukaffinu
gefast kostur á að styrkja Adr-
enalínstarfið og kaupa jólakonfekt
sem unnið var á síðasta fundi ung-
linganna.
Fræðsla um sorg og sorgar-
viðbrögð verður þriðjudaginn 20.
nóvember kl. 20 og hefst með sam-
veru í kirkjuskipi þar sem Þorvald-
ur Halldórsson og Gunnar Gunn-
arsson flytja sálma og
sóknarprestur segir nokkur orð. Í
safnaðarheimili mun Sigrún Magn-
úsdóttir greina frá lífi sínu, en hún
hefur gengið í gegnum mikla sorg-
arreynslu. Jafnframt mun sr. Bjarni
Karlsson sóknarprestur fara yfir
helstu þætti sem mæta okkur á vegi
sorgarinnar. Þeim sem það kjósa er
gefinn kostur á að taka þátt í sorg-
arhópi sem koma mun saman þrjú
næstu þriðjudagskvöld undir hand-
leiðslu Sigrúnar o.fl. sjálfboðaliða.
Fundi lýkur kl. 22 og er aðgangur
er ókeypis.
Gerðubergskórinn
í Kópavogskirkju
Gerðubergskórinn kemur í sína ár-
legu heimsókn í Kópavogskirkju og
syngur í guðsþjónustu kl. 14. Kári
Friðriksson sem stjórnar kórnum
sem syngur nokkur lög að predikun
lokinni. Gestirnir frá Félagsstarf-
inu í Gerðubergi taka virkan þátt í
guðsþjónustunni, en þau Anna
Magnea Jónsdóttir og Valdimar
Ólafsson lesa ritningarlestra, prest-
ur sr. Auður Inga Einarsdóttir. Fé-
lagar úr kór Kópavogskirkju
syngja og leiða almennan safn-
aðarsöng. Organisti og kórstjóri
Lenka Mátéová. Boðið verður upp á
kaffi og konfekt í Borgum að guðs-
þjónustu lokinni.
Djáknamessa og kvöld-
vaka í Garðaprestakalli
Sunnudagaskólarnir tveir, eru í Ví-
dalínskirkju og sal Álftanesskóla.
Helsta nýbreytni helgarinnar er
djáknaguðsþjónusta í Vídal-
ínskirkju kl. 11, en hana leiða þrír
djáknar, sem allir eru búsettir í
Garðabæ, þær Nanna Guðrún
Zoëga, Jóhanna Guðrún Ólafsdóttir
og Jóhanna Kristín Guðmunds-
dóttir. Í athöfninni mun Jóhanna
Guðrún Ólafsdóttir flytja prédikun,
en félagar úr kór Vídalínskirkju
leiða sönginn undir stjórn organist-
ans, Jóhanns Baldvinssonar. Kvöld-
vaka verður kl. 20, í hátíðarsal
Álftanesskóla. Þar skiptist á tónlist
og talað mál, en setið er til borðs og
notið léttra veitinga með kaffi-
húsastemningu á meðan dagskráin
er flutt. Að þessu sinni sér ung-
lingahljómsveitin ACID um tónlist-
ina ásamt Bjarti Loga Guðnasyni,
organista. Sr. Hans Guðberg Al-
freðsson og sr. Friðrik J. Hjartar
annast stundina.
Hinir hinstu tímar
í Hafnarfjarðarkirkju
Þema guðsþjónustu sem hefst kl. 11
í Hafnarfjarðarkirkju fjallar um
hina hinstu tíma. Rætt verður um
kenningu biblíunnar um heimsendi,
bæði endi allra tíma og hinn per-
sónulega endi sem bíður allra á
dauðastundu. Prestur er sr. Þór-
hallur Heimisson. A Capella kór
kirkjunnar flytur kórverk og leiðir
söng undir stjórn Guðmundar Sig-
urðssonar. Kirkjukaffi verður í
safnaðarheimilinu eftir stundina.
Þar verður kynnt fræðsludagskrá
kirkjunnar.