Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 52
52 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
Lífið á
landnámsöld
Sýningin er opin
alla daga frá 10–17
Aðalstræti 16
101 Reykjavík
www.reykjavik871.is
Kalvin & Hobbes
ENN EIN YNDISLEG
SÓLARUPPRÁS OG EKKI
SÁLU AÐ SJÁ
SVO KEMUR MAÐUR
HEIM MEÐ FISK FYRIR
KLUKKAN NÍU. DAGURINN ER
VARLA BYRJAÐUR
SUNDSPRETTUR Í
MORGUNSÁRIÐ OG SVO
BÁTSFERÐ
ÉG HEF SÉÐ HRESSARA
FÓLK Í VINNUNNI
ÞÚ GETUR
BORÐAÐ
ÞETTA
SJÁLFUR
ÉG VIL FÁ
SJÓNVARP!
Kalvin & Hobbes
PABBI SJÁÐU,
ÉG VEIDDI FISK
JÁ, HANN ER
GLÆSILEGUR. ÉG
SKAL KENNA
ÞÉR AÐ
HREINSA HANN
GERA
HVAÐ?
FLÁ HANN
OG BEIN-
HREINSA
TAKK FYRIR ÞESSAR
OSTASAMLOKUR. ÞÆR ERU
VONANDI ALVEG BEINLAUSAR
Kalvin & Hobbes
MÉR SÝNIST ÉG SJÁ
HVAL ÞARNA Í DJÚPINU!
ÞETTA
ER STEINN!
SJÁÐU,
ÞARNA
ER RISA
STÓR ÁLL!
ÞETTA
ER ÞANG!
ÓTRÚLEGT,
ÞARNA ER
MASTUR AF
LÖNGU SOKKNU
SPÆNSKU
HERSKIPI!
ÞETTA
ER GREIN!
ÞETTA ER
ÖMURLEGT! AF
HVERJU ERU
ENGIN BÍÓ
HÉRNA!
Litli Svalur
© DUPUIS
ANSANS... KOMDU
ÞÉR ÞAÐAN NIÐUR
KRAKKAORMUR!
HVAÐ ERTU
EIGINLEGA
AÐ REYNA
AÐ GERA?
JA... ÉG ER AÐ LEITA
AÐ SLÖKKVARANUM
TIL ÞESS AÐ
SLÖKKVA... SLÖKKVA!
ER EKKI Í LAGI MEÐ
ÞIG? ÞETTA ER
HÁSPENNULÍNA!
BURT MEÐ ÞIG SPELLVIRKI!
ANNARS HRINGI ÉG Í
FORELDRA ÞÍNA, KRAKKI...
HLAUPTU
BURT!
FLJÓTUR!
ÉG GAT
ÞAÐ EKKI
KENNARI.
MÉR VAR
BANNAÐ AÐ
REYNA
Í DAG:
AÐ KUNNA
AÐ VEIÐA
dagbók|velvakandi
Toppþjónusta
ÞAÐ er mikið kvartað yfir ýmsu í
dag en mér þætti vænt um að fá
þennan stutta pistil sem fjallar um
góða og lipra þjónustu birtan í
Morgunblaðinu. Fyrir tæplega 4 ár-
um keypti ég stafræna Canon-
myndavél sem reyndist mér vel þar
til um daginn að ég hugðist kveikja á
henni, þá var skjárinn kolsvartur.
Ég sneri mér því til þjónustuaðilans,
Beco við Langholtsveg í Reykjavík.
Þar var mér tjáð að myndflagan í
vélinni væri biluð eða ónýt og var
mér þar með hætt að litast blikuna.
Umræddur hlutur er hjartað í hverri
stafrænni myndavél auk þess að
vera mjög dýr. Tjáði þá
starfsmaðurinn mér að þeir myndu
gera við þetta mér að kostn-
aðarlausu. Þegar ég svo kom að
sækja vélina úr viðgerð beið eftir
mér ný vél þar sem ekki reyndist
hægt að gera við þá gömlu. Þetta
kalla ég toppþjónustu, engar vífi-
lengjur, japl jaml eða fuður eða
samningaviðræður um einhverjar
smánarbætur eða þess háttar. Geng-
ið var hreint til verks auk þess sem
maður hefur ekki annað á tilfinning-
unni en verið sé að ganga erinda við-
skiptavinarins sem þar af leiðandi
heldur tryggð við fyrirtækið og
vörumerkið, í þessu tilfelli Canon.
Takk fyrir, þið hjá Beco.
Virðingarfyllst,
Heimir Örn Gunnarsson.
Sjóvarpsdagskráin
ÉG ER einn þeirra eldri borgara er
greiða nauðungaráskriftina af RUV.
Þykir mér dagskráin þar eins og
fleirum heldur þunnur þrettándi.
Allar helgar eilífur bolti og bílasport.
Hvers eigum við að gjalda sem lang-
ar að heyra og sjá guðsþjónustur,
kórsöng, dans, þætti um handavinnu
og sitthvað fleira? Mætti ekki sjón-
varpa messu? Ég varpa þessari
fyrirspurn til þjóðkirkjunnar.
Í sumar var ég viðstödd í Ráðhúsi
Reykjavíkur færeyskan dans, það
var hin besta skemmtun, þeim við-
burði hefði mátt sjónvarpa svo fleiri
nytu. Amerískir þættir, Mæðgurnar,
Bráðavaktin (sem ég trúi varla að
nokkur maður sleppi lifandi frá) og
sitthvað fleira, svona óttalega vella,
og hefur gengið of lengi. Svo loks, sé
einhver athyglisverð mynd á dag-
skrá þá er það svo seint að kvöldinu
að komið er að svefntíma venjulegs
fólks. Mér svona datt þetta í hug.
Og að lokum, leikara í sjónvarpið,
gefið þeim frjálsar hendur í smá-
tíma. Sé það of dýrt, þá bara endur-
sýnið Undir sama þaki eða Heilsu-
bælið, maður getur þó alltént hlegið.
Með kveðju.
Eldri borgari,
á naumum eftirlaunum.
Svarað í síma 5691100 frá 10–12 og
13–15 | velvakandi@mbl.is
HÉR sést dæmi um hversu slæmt skyggnið er á götunum um þessar mundir
í rigningunni og myrkrinu. Allir bílstjórar ættu því að fara varlega.
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Slæmt skyggni í umferðinni
FRÉTTIR
SKÝ stendur fyrir ráðstefnu um
áskoranir í starfsumhverfi hugbún-
aðargeirans og nýjungar í aðferða-
fræði þriðjudaginn 20. nóvember á
Grand hótel Reykjavík kl. 13–16.
Að þessu sinni verður farið vítt og
breitt yfir þau viðfangsefni sem þeir
sem stunda hugbúnaðarþróun
standa frammi fyrir þessi missserin.
Fjallað verður um þann skort sem
er á menntuðu tölvufólki en hann er
víða farinn að hafa verulega haml-
andi áhrif á framþróun og rekstur
upplýsingatæknimála. Reynt verður
að varpa ljósi á umfang vandans og
hvernig bregðast á við honum í bráð
og lengd, segir í fréttatilkynningu.
Nánari upplýsingar og dagskrá er
að finna á vefsíðunni www.sky.is/
hugbunaoarraostefna.html
Ráðstefna um
hugbúnaðargeirann