Morgunblaðið - 17.11.2007, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 53
Krossgáta
Lárétt | 1 þröng hola, 4
gerir við, 7 svikult, 8
hnakkakert, 9 greinir, 11
umtalað, 13 sprota, 14 á
jakka, 15 poka, 17 skor-
dýr, 20 drýsill, 22 árnar,
23 lagarmál, 24 sníkju-
dýrið, 25 geta neytt.
Lóðrétt | 1 spakur, 2 mis-
sætti, 3 sigaði, 4 niðji, 5
fleinn, 6 nagdýr, 10 lærir,
12 gríp, 13 erfðafé, 15
sæti, 16 matreiðslu-
manns, 18 sér, 19 byggja,
20 tímabilin, 21 vont.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sannprófa, 8 suddi, 9 yfrið, 10 tin, 11 auðga, 13
agnið, 15 gusts, 18 hlass, 21 kol, 22 tafla, 23 ýmist, 24
rakalaust.
Lóðrétt: 2 andúð, 3 neita, 4 reyna, 5 förin, 6 usla, 7 iðið, 12
get, 14 gúl, 15 gáta, 16 safna, 17 skata, 18 hlýða, 19 arins,
20 sáta.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Reyndu að skilja megindrætti per-
sónuleika þíns – og þess vegna verða ást-
fanginn af einhverjum þeirra. Það er betra
en óska þess að vera eins og einhver annar.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú ert að hugsa um heildarmyndina.
Jafnvægi á milli ýmissa svæða í lífi þínu er
verðugt verkefni. Þegar þú lifir rétt verður
allt frábært.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú vilt trygglyndi frá ástvinum,
samstarfsfélögum og undirmönnum. Þú
vilt vita að það sem þeir gera í nærveru
þinni er það sama og þeir gera í fjarveru
þinni.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú skilar vinnu þinni af gáska og
án þess að vera minntur á það. Einmitt
þetta – og ekkert meira – gerir að verkum
að þú skiptir sköpum í heiminum.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Ef þú ert að pæla í hvað fólki finnst
um þig, þá finnur þú nú þegar fyrir hugs-
unum þess. Nei, þú ímyndar þér það ekki!
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Fólk sem hagar sér heimskulega
veldur vandræðum, en reyndu að sjá
fyndnu hliðina á því. Heima fyrir má koma
í veg fyrir rugling með listum.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Ef þú mættir sjálfum þér á götu núna,
hvað myndirðu hugsa? Það mun einmitt
gerast núna þegar alheimurinn leyfir þér
að horfast í augu við sjálfan þig.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú vinnur á móti sterkum öfl-
um – eins konar tilfinningaleg viðnáms-
þjálfun. Þú getur ekki annað en orðið
sterkari fyrir vikið – og sigrað!
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Þú ert hugrakkur – jafnvel
hugrakkari en vanalega. Að þekkja eigin
ótta mun bjarga þessum degi. Því vanalega
þarftu helst að gera það sem þú óttast.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Fólk sem dýrkar þig vill að þú
upplifir hluta af lífi þess. Jafnmikið og þér
finnst gaman að sjá heiminn með augum
vina þinna, þá geturðu ekki beðið eftir að
komast heim í kvöld.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Nýtt fólk kemur inn á þitt
svæði, og þú veist ekki enn hvað þér finnst
um það. Þegar þú efast um persónuleika
fólks, athugaðu hvernig vini það á.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Hápunktar á ferlinum eru bein af-
leiðing breytinga í einkalífinu. Þegar
mottóið er að „gera það strax“, þá komast
hlutirnir í verk. Meyja hjálpar þér með
eignirnar.
stjörnuspá
Holiday Mathis
Staðan kom upp á alþjóðlegu móti
sem lauk fyrir skömmu í Barcelona.
Spænski stórmeistarinn Miguel Il-
lescas (2598) hafði hvítt gegn koll-
ega sínum og landa Marc Narciso
(2546). 40. Hxh5+! gxh5 41. Dxe2
Dxf1+ svartur hefði einnig tapað
eftir 41 … a1=D 42. Dxh5+ Kg7 43.
Dg5+ Kh7 44. Dh4+ Kg7 45. Rf5+
Kg6 46. Dh6+ Kxf5 47. Dh7+. 42.
Dxf1 Hb843. Dd3+ hvítur vinnur nú
með því að næla í a2-peð svarts.
43 …Kg7 44. Rf5+ Kh7 45. Rh6+!
Kg7 46. Dc3+ f6 47. Rf5+ Kg6 48.
Rh4+ Kg7 49. Dg3+ Kh7 50. Dg6+
Kh8 51. Dxf6+ og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Tilþrif í Wroclaw.
Norður
♠KG874
♥KG7
♦2
♣9543
Vestur Austur
♠Á93 ♠D6
♥842 ♥D953
♦Á1053 ♦DG9874
♣1082 ♣7
Suður
♠1052
♥Á106
♦K6
♣ÁKDG6
Suður spilar 4♠.
Pólverjinn Narkiewicz las rétt í
sagnir andstæðinga sinna og hitti fyrir
vikið á baneitrað útspil. Spilið kom upp
í leik Ítala og Pólverja í keppninni um
Evrópubikarinn í Wroclaw.
Versace vakti í suður á 1G, makker
hans, Lauria, yfirfærði í spaða með 2♥
og sagði svo 3♦ næst, sem sýnir lauflit í
þeirra kerfi. Og Versace hækkaði í 4♦
til að lýsa yfir ofurstuðningi við laufið.
Flókið kerfi, en í hnotskurn vissi Nar-
kiewicz um mikið lauffitt í NS og lagði
af stað með ♣2 í stunguleit.
Versace tók slaginn heima og spilaði
strax ♦K. Hugmyndin var að skera á
tígulsamband varnarinnar og afla um
leið upplýsinga. Narkiewicz drap og
gaf makker sínum laufstungu. Austur
spilaði tígli til baka, Versace trompaði,
fór heim á ♥Á, spilaði trompi að blind-
um og vestur dúkkaði. Gosi eða kóng-
ur? Versace hugsaði málið lengi, stakk
loks upp kóng. Ástæðan lá í útspilinu.
Vestur hefði varla gert út á laufstungu
nema eiga fyrsta vald í trompinu – ás-
inn, frekar en dottninguna.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
1 Skákstúlkan Hildur Berglind Jóhannsdóttir lagði GeirHaarde í skák. Hve gömul er hún?
2 Hver er forstjóri Samkeppniseftirlitsins?
3 Hvert er nafnið á auðlindafélagi því sem Hafn-arfjörður, Grindavík og Vogar hafa stofnað?
4 Krakkar í skóla einum í Reykjavík kvörtuðu undanskólalóðinni við borgarstjóra sem brást skjótt við. Í
hvaða skóla?
Svör við spurn-
ingum gærdagsins:
1. Lögð hefur verið
fram þingsályktun-
artillaga um að
stofnað verði við HÍ
prófessorsembætti í
nafni Jónasar Hall-
grímssonar. Hver er
fyrsti flutnings-
maður? Svar: Árni
Johnsen. 2. Þingmaður frá Færeyjum er í lykilstöðu á danska
þinginu. Hver er hann? Svar: Edmund Joensen. 3. Leikhópurinn
Fjalakötturinn frumsýnir Heddu Gabler í Tjarnarbíói í kvöld. Eftir
hvern er leikritið? Svar: Henrik Ibsen. 4. Gunnar Heiðar Þorvalds-
son vill vera áfram hjá liði sínu í Noregi. Hvaða lið er það? Svar:
Vålerenga.
Spurter… ritstjorn@mbl.is
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
dagbók|dægradvöl
Sudoku
Miðstig
Lausnir síðustu Sudoku
Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com
Frumstig Miðstig Efstastig
Frumstig
© Puzzles by Pappocom
Þrautin felst í því að fylla út í reitina
þannig að í hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig
að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt
birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má
tvítaka neina tölu í röðinni.
Efstastig
FRÉTTIR
KYNNINGAR- og umræðufundur
um geðhvörf verður haldinn í Geð-
hjálp, Túngötu 7, Reykjavík mánu-
daginn 19. nóvember kl. 20.
Gefin hefur verið út bókin „Þeg-
ar ljósið slokknar“ sem er bar-
áttusaga sonar og móður. Í bókinni
segir frá Titus Dickens sem
greindist sextán ára gamall með
geðhvörf. Í hönd fóru erfið ár en
Clare móðir hans gafst aldrei upp í
glímunni við sjúkdóminn og kerfið.
Clare og Títus byrjuðu að skrifa
bókina saman en hann svipti sig
lífi áður en verkinu var lokið.
Clare Dickens mun segja frá bók-
inni og reynslu sinni og Títusar
sonar síns.
Kjartan Þórarinsson leikari og
góður vinur Títusar les valda kafla
úr bókinni.
Einnig segir Sigursteinn Másson
sína sögu og lýsir reynslu sinni af
íslenska geðheilbrigðiskerfinu.
Umræður og kaffiveitingar.
Fundurinn er öllum opinn.
,,Þegar ljós-
ið slokknar“
FRAMLAG tveggja ungmenna í Ár-
skóla á Sauðárkróki var valið til
birtingar í ritið „If I ruled the
world“ sem gefið var út í júlí á veg-
um Alþjóðasambands Soroptimista.
Í ritinu er að finna myndir og hug-
leiðingar barna, þjóðþekktra ein-
staklinga og virtra kvenna innan
Soroptimistasamtakanna um
hvernig heimurinn liti út ef þau
fengju að ráða. Í ritið var valin
mynd eftir Þórdísi Þórarinsdóttur í
7. bekk og hugleiðing eftir Hafþór
Aron Tómasson í 9. bekk. Nýverið
afhenti Ingunn Ásdís Sigurð-
ardóttir, fyrrverandi sendifulltrúi
Soroptimistasambands Íslands,
börnunum á Sauðárkróki við-
urkenningu.
Í ritinu er einnig að finna hug-
leiðingar frá þremur íslenskum So-
roptimistum, þeim Berglindi Ás-
geirsdóttur, Salóme Þorkelsdóttur
og Sigrúnu Klöru Hannesdóttur.
Söluhagnaði ritsins var varið til
að bæta bágar aðstæður og heilsu
íbúa í Central Mindanao á Filipps-
eyjum með hreinlætisaðstöðu fyrir
almenning og brunnum með heil-
næmu vatni.
Verðlaun Ingunn Ásdís Sigurðadóttir(f.v.), Kári Marísson kennari, Snæbjört Pálsdóttir 9. ÁH, Hafþór Aron Tóm-
asson 9. KH sem á tilvitnun í bókinni og Ásdís Hermannsdóttir kennari glöð í bragði með viðurkenninguna.
Ungmenni fá viðurkenningu