Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 60

Morgunblaðið - 17.11.2007, Síða 60
60 LAUGARDAGUR 17. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ WWW.SAMBIO.ISVERSLAÐU MIÐA Á NETINU Á VIPSALURINNER BARA LÚXUS ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA KVIKMYND ÁRSINS HANDRIT ÁRSINS LEIKSTJÓRI ÁRSINS LEIKKONA ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI LEIKARI ÁRSINS Í AÐALHLUTVERKI MYNDATAKA OG KLIPPING FORELDRAR, VINNINGSHAFI 6 EDDUVERÐLAUNA, HEFUR VERIÐ TEKIN AFTUR TIL SÝNINGA, VEGNA FJÖLDA ÁSKORANA. A.T.H TAKMARKAÐUR FJÖLDI SÝNINGA. SÝND Í KRINGLUNNI OG AKUREYRI 16., 17. og 18. nóv. eru í SAMbíóunum Kringlunni og Akureyri KRINGLAN STELPUDAGAR 16.NÓV BRATZ kl. 3:40 L NANCY DREW kl. 5:50 7 NO RESERVATIONS kl. 8 L KRINGLAN STELPUDAGAR 17.nóv BRATZ kl. 3:50 L NANCY DREW kl. 3:50 7 IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 12. NO RESERVATIONS kl. 8 L KRINGLAN STELPUDAGAR 18.nóv BRATZ kl. 1:30 L NANCY DREW kl. 3:40 7 IN THE LAND OF WOMEN kl. 5:50 12 NO RESERVATIONS kl. 8 L AKUREYRI STELPUDAGAR 17-18.nóv BRATZ kl. 4 L NANCY DREW kl. 6 7 tilboð kr. 350 TILBOÐ KR. 350 SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, AKUREYRI OG SELFOSSI SÝND Í ÁLFABAKKA "RIDLEY SCOTT LEIKSTÝRIR RUSSELL CROWE OG DENZEL WASHINGTON Í BESTU MYND ÞESSA ÁRS!" Ó.E. HVERNIG TÓKST EINUM BLÖKKUMANNI AÐ VERÐA VALDAMEIRI EN ÍTALSKA MAFÍAN? eeee ,,Virkilega vönduð glæpamynd í anda þeirra sígildu.” - LIB, TOPP5.IS SPARBÍÓ 450kr á allar sýningar merktar með app AMERICAN GANGSTER kl. 5D - 8D - 11:10D B.i.16.ára DIGITAL AMERICAN GANGSTER kl. 5 - 8 - 11:10 LÚXUS VIP JESSE JAMES kl. 5 - 8 - 11:10 B.i.16.ára JESSE JAMES kl. 1:30 LÚXUS VIP 30 DAYS OF NIGHT kl. 8 - 10:30 B.i.16.ára MICHAEL CLAYTON kl. 5:30 - 8 - 10:30 B.i.7.ára TRANSFORMERS kl. 1 - 5 B.i.10.ára THE INVASION kl. 8 B.i.16.ára ÍÞRÓTTAHETJAN m/ísl. tali kl. 1 - 3 LEYFÐ THE BRAVE ONE SÍÐUSTU SÝN. kl. 10:30 B.i.16.ára STARDUST kl. 12:30 - 3 - 5:30 B.i.10.ára ASTRÓPÍA SÍÐUSTU SÝN. kl. 1 - 3 LEYFÐ RATATOUILLE m/ísl. tali kl. 12:30 - 3 LEYFÐ / ÁLFABAKKA A.T.H. BYGGÐ Á SÖNNUM ATBURÐUM. Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson jbk@mbl.is „ÉG bý í Vesturbænum, og Steingrímur organisti í Neskirkju hringdi í mig og spurði mig hvort ég vildi ekki halda tónleika í kirkjunni. Mér fannst það skemmtileg hugmynd, enda bý ég rétt hjá og geng daglega framhjá þessu húsi,“ segir Jón Ólafsson sem mun halda tónleika ásamt Stefáni Hilmarssyni í Neskirkju á morgun. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Tónað inn í aðventu sem Steingrímur Þórhallsson hefur veg og vanda af, en þetta munu vera fyrstu eiginlegu popp- tónleikarnir í röðinni. Þá gerist það ekki á hverjum degi að þeir Jón og Stefán leiða saman hesta sína. „Ég hef mikið spilað einn míns liðs á þessu ári, og datt því í hug að það væri sniðugt að gera eitthvað annað en að vera einn að spila mín lög. Ég ræddi við Steingrím og okkur fannst áhugavert að prófa Stebba Hilm- ars í þessu samhengi, bara með einu píanói í kirkju,“ segir Jón og bætir því við að tónlistin á tónleikunum muni koma úr ýmsum áttum. „Ég tek einhvern hluta af tónleikunum einn og svo kemur Stebbi og þá spilum við eitthvað af hans efni. Hann hefur líka verið að syngja lög eftir aðra, til dæmis Gumma Jóns og Eyfa, og svo tók hann meira að segja „Líf“ eftir mig á sínum tíma, þannig að það er ekki ólíklegt að við tökum það.“ Valsari og Þróttari Þetta mun hins vegar ekki vera í fyrsta skipti sem þeir Jón og Stefán koma fram saman því eins og margir eflaust vita var Jón í Sálinni hans Jóns míns á fyrstu starfsárum sveitarinnar. „Svo vor- um við líka saman í Superstar í Borgarleikhúsinu, auk þess að hafa spilað saman í hinum ýmsu einkasamkvæmum. En við höfum aldrei spilað á svona tónleikum saman,“ segir Jón. „Svo erum við náttúrlega báðir rauð-hvítir, hann er Valsari og ég er Þróttari,“ segir hann og hlær. En mega menn búast við trúarlegri stemningu í kirkjunni á morgun? „Ég hef enga trú á því, langt í frá. Við munum ekki setja okkur í neinar stell- ingar - og ég vona að tónleikagestir geri það ekki heldur.“ Popparar í húsi Guðs Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson halda tónleika í Neskirkju á morgun Morgunblaðið/Brynjar Gauti Þróttarinn og Valsarinn Það er ekki á hverjum degi sem Jón Ólafs og Stebbi Hilmars spila saman. Tónleikarnir í Neskirkju hefjast kl. 17 á morgun, sunnudag. Miðasala fer fram við innganginn og miðaverð er 1.000 kr. ÞÓTT hún eigi enn fjögur ár í þrítugs- aldurinn hefur Na- talie Portman nú þegar verið ráðin til þess að leikstýra sinni fyrstu mynd. Sú heitir Saga um ástir og drunga (A Tale of Love and Darkness). Mynd- in byggir á endur- minningum Amos Oz sem ólst upp í Jerúsalem á fimmta og sjötta áratug síðustu ald- ar – en uppvaxtarsaga Oz er þó ekki síður notuð til þess að segja frá því hvernig Ísrael nútímans varð til. Sú saga er jafnvel enn umdeildari í dag heldur en hún var þá og því er ljóst að Portman velur sér ekki auð- velt verkefni til þess að hefja leik- stjóraferilinn á, en leikkonan fædd- ist í Jerúsalem árið 1981 þótt hún hafi búið lengstum í Bandaríkjunum. Hún hefur þó fengið ágætisskólun hjá leikstjórum á borð við Milos For- man, Tim Burton, Michael Mann, Zach Braff, Wes Anderson, Luc Besson, Wong Kar Wai og Ted Demme, sem allir hafa leikstýrt henni síðan hún hóf leikferilinn þrettán ára gömul. Natalie leikstýrir Portman Kemur sér fyrir bak við myndavélina.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.