Morgunblaðið - 23.11.2007, Side 1
STOFNAÐ 1913 320. TBL. 95. ÁRG. FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is
HAGLEIKSMAÐUR
HANN SAT FAST VIÐ SAUMA Í EITT OG
HÁLFT ÁR OG GAF AFRAKSTURINN >> 21 Leikhúsin í landinu
Staður fyrir
stefnumót? >> 40
á www.jolamjolk.is
Spennandi leikur hefst
1. desember.
Fylgstu með
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞAÐ eru ekki einasta hlutafjáreigendur sem
verða fyrir barðinu á niðursveiflu á hluta-
bréfamarkaði. Öll heimili í landinu verða fyr-
ir óbeinum áhrifum af verðfallinu. Samhengi
er á milli hlutabréfaverðs og gengis krón-
unnar. ,,Fyrstu áhrifin
geta verið veiking
krónunnar og það mun
stuðla að aukinni verð-
bólgu,“ segir Gylfi
Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri ASÍ.
Verðlækkun hluta-
bréfa getur líka snert
lífeyrissparnað lands-
manna. Hlutabréf
verða sífellt stærri
hluti af verðbréfaeign
lífeyrissjóða, sem gerir
þá viðkvæmari fyrir
sveiflum á mörkuðum.
„Þetta getur leitt til þess að staða lífeyris-
sjóðanna versni,“ segir Gylfi.
Ósennilegt er þó að lækkunarhrinan leiði
til skerðingar á áunnum réttindum sjóð-
félaga. Þegar framtíðarskuldbindingar líf-
eyrissjóðanna eru reiknaðar er gert ráð fyrir
að sjóðirnir nái að meðaltali 3,5% raunávöxt-
un, að sögn Hrafns Magnússonar, fram-
kvæmdastjóra Landssamtaka lífeyrissjóða.
Raunávöxtun sjóðanna í fyrra var sérlega
góð eða 10,2%, síðustu 3 árin var hún yfir
10% og frá því mælingar hófust 1991 hefur
hún að meðaltali verði 6,63%. Þessi ávöxtun
hefur gert að verkum að lífeyrissjóðir hafa
aukið réttindin á hverju ári og greitt umfram
það sem gert er ráð fyrir í samþykktum.
„Lífeyrissjóðirnir eru langtímafjárfestar og
eiga alveg að þola einhverjar sveiflur niður á
við,“ segir Hrafn. „Tryggingafræðilega stað-
an hefur batnað svo mikið að ég hef ekki trú á
því að þetta hafi nein […] áhrif til lækkunar,
en þetta gæti hins vegar haft það í för með
sér að sjóðirnir sæju sér ekki fært að bæta í
réttindin á næsta ári ef markaðurinn verður í
þessari stöðu um áramótin.“
Björn R. Guðmundsson, forstöðumaður á
greiningardeild Landsbankans, telur að
stærstu áhrifin af niðursveiflu á hlutabréfa-
markaði á heimilin sé á væntingar einstak-
linga um efnahagsástandið á hverjum tíma,
„og að hve miklu leyti slíkar væntingar ráða
ákvörðunum um fjárfestingu eða neyslu.
Þetta mótar í ákveðnum skilningi heildarum-
gjörð efnahagsumræðunnar og tilfinningu
fyrir efnahagslífinu,“ segir hann. Lækkanir á
hlutafjármörkuðum kunna hins vegar að
hafa meiri áhrif á ávöxtun séreignasparnað-
ar. Hann hefur vaxið hröðum skrefum í 197
milljarða um seinustu áramót. Stærstur hluti
er í vörslu lífeyrissjóða en einnig banka,
sparisjóða o.fl. þar sem mismunandi áhættu-
samar leiðir eru valdar við ávöxtun hans.
Séreignasparnaður hjá lífeyrissjóðunum er
háður sömu fjárfestingarreglum og sjóðirnir
starfa eftir. Hann er yfirleitt betur varinn
fyrir svona skammtímasveiflum en séreigna-
sparnaður sem kynni að vera í bönkunum því
þar eru ýmsar leiðir sem menn geta farið, að
sögn Hrafns.
Hlutafjár-
dýfan tekur
alla með
Lífeyrissjóðir eiga að
þola niðursveifluna
Neikvæð áhrif Veik-
ing krónunnar mun
stuðla að aukinni
verðbólgu.
ALMENN lækkun gengis ís-
lenskra hlutabréfa heldur
áfram en í gær hægði þó held-
ur á henni. Úrvalsvísitala
kauphallarinnar lækkaði þá um
0,6% og bar 5,8% lækkun á
gengi Existu þá hæst. Enn-
fremur var mikil velta með
bréf félagsins sem bendir til
þess að lækkunin skýrist fyrst
og fremst af veðköllum (e.
margin calls) á lánum með veði
í hlutabréfum í félaginu. Gengi
fyrirtækja á borð við Sampo,
Kaupþing og Storebrand, sem
vega þungt í eignasafni félags-
ins, hækkaði í gær sem rennir
stoðum undir þá skýringu að
um veðköll hafi verið að ræða.
FL Group hækkaði um 0,5% í
kauphöllinni í gær en gengi fé-
laga sem vega þungt í eigna-
safni þess félags lækkaði hins
vegar. Þannig lækkaði gengi
Glitnis um 0,2%, Finnair um
6,7% og Royal Unibrew um
1,0%. Undantekningin er
Commerzbank sem hækkaði
um 0,43% en vegna þakkar-
gjörðarhátíðarinnar í Banda-
ríkjunum voru engin viðskipti
með bréf AMR.
Helstu hlutabréfavísitölur
Evrópu og Asíu hækkuðu í
gær en lokað var í Bandaríkj-
unum eins og áður segir.
Enn meiri lækkun
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRNAR- og eigendafundi
Orkuveitu Reykjavíkur, sem átti að
vera í dag, var í gær frestað um
viku. Júlíus Vífill Ingvarsson, borg-
arfulltrúi sjálfstæðismanna, segist
telja víst að ekki hafi enn náðst sam-
staða um stefnuna í málum OR inn-
an nýja meirihlutans.
Fulltrúar minnihlutans í stýri-
hópnum svonefnda eru bundnir
trúnaði og mega því ekki tjá sig um
hugmyndir sem þar er fjallað um.
„Þær hugmyndir sem verið er að
vinna með í stýrihópnum varðandi
lok þessa máls hafa nú komið fyrir
almannasjónir,“ segir Júlíus Vífill.
„Það er ljóst hvert stefnir og þá er
ákaflega óeðlilegt að stjórn OR skuli
ekki fá upplýsingar um tillögur sem
samkvæmt fréttum eru orðnar mjög
nákvæmar, svo langt komnar að
samningar virðast hafa verið gerðir
milli ýmissa aðila sem hagsmuni
hafa af niðurstöðu málsins,“ segir
Júlíus.
Hann minnir á að OR sé eigandi
REI og þessir hlutir heyri því tví-
mælalaust undir stjórn OR. Um
stýrihópinn, þessa „furðulegu
nefnd“, gildi engin lög eða reglur og
hann sé í engu samræmi við hefðir
borgarkerfisins.
Dagur B. Eggertsson borgar-
stjóri segir að fundinum hafi verið
frestað þar sem í reynd hafi ekki
verið mikilla tíðinda að vænta í bili.
Hann sagði að sér hefði verið falið
að ræða við fulltrúa annarra eigenda
HS og ráðherra um leiðir til að
tryggja að eignarhald á orkulindum
yrði áfram í almannaeigu og stefnt
væri að slíkum viðræðum.
Borgarstjóri var spurður um frétt
Morgunblaðsins í gær um að í stýri-
hópnum væri m.a. rætt um að eign
OR í Hitaveitu Suðurnesja yrði látin
renna inn í REI, og þaðan inn í GGE
gegn hlutafé í síðarnefnda fyrirtæk-
inu. „Þetta er ekki annað en vinnu-
skjal úr stýrihópnum sem sjálfstæð-
ismenn hafa lekið í fjölmiðla í von
um að þyrla upp einhverju ryki,“
svaraði Dagur B. Eggertsson.
Ágreiningur um verð
Stjórnvöld á Filippseyjum ákváðu
í gær að ganga til viðræðna við Red
Vulkan, sem átti hæsta tilboð í fil-
ippseyska orkufélagið PNOC-EDC.
Ákveðið var að REI og GGE yrðu
ekki aðilar að kauptilboðinu með
fyrirtækinu First Gen og talið er að
ágreiningur sé um verð – tilboðið
hljóðaði upp á 84 milljarða króna.
Samkvæmt samstarfssamningi REI
og GGE við First Gen geta íslensku
félögin þó komið inn í kaupin á síð-
ari stigum málsins, kjósi þau það.
REI og GGE | 4
Ekki náðst
samstaða
um stefnuna
Eigendafundi Orkuveitunnar frestað
Borgarstjóri ræðir við eigendur HS
Júlíus Vífill
Ingvarsson
Dagur B.
Eggertsson
RYKIÐ þyrlaðist um manninn sem sagaði og lagði hellur af miklum
móð í nágrenni Borgartúns í skammdegissólinni í gær.
Nú er sól lágt á lofti og þegar þurrt og kyrrt er í veðri er hætt við
svifryki, sem sést vel í blindandi sólinni. Þannig voru einmitt að-
stæður í gær í höfuðborginni og mældist svifryk hátt yfir heilsu-
verndarmörkum í Reykjavík. Á hádegi var sólarhringsmeðaltal 100
míkrógrömm í rúmmetra, en sólarhringsviðmiðunarmörk eru 50.
Í dag er spáð rigningu eða slyddu um allt land og því ólíklegt að
svifryksgildi verði hátt.
Morgunblaðið/Valdís
Sagað í svifrykinu