Morgunblaðið - 23.11.2007, Síða 2
2 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
SVANDÍS Svavarsdóttir, leiðtogi
nýja meirihlutans í Reykjavík, var
gestur á aðalfundi íbúasamtaka
Hlíða, Holta og Norðurmýrar í gær-
kvöld og kom fram á fundinum að
lagning Miklubrautar í stokk í Hlíða-
hverfi hefði nú forgang á mislæg
gatnamót Kringlumýrarbrautar og
Miklubrautar.
Svandís var, að sögn Hilmars Sig-
urðssonar, formanns samtakanna,
einnig spurð um íbúalýðræði og hét
hún að haft yrði nánara samráð við
íbúa á fyrri stigum mála, hverfaráð
yrðu efld. „Hún var spurð um flug-
völlinn og sagði hún það sína per-
sónulegu skoðun að hann ætti að
fara og nýi meirihlutinn væri þeirrar
skoðunar,“ sagði Hilmar.
Það var mikil ánægja með yfirlýs-
ingu Svandísar um stokkalausnina.
Komin eru frumdrög að hönnuninni
sem gerð voru í tíð fráfarandi meiri-
hluta og ég tel að hægt sé að byggja
á þeim með breytingum. Ég tel lík-
legt að það sé ársferill framundan í
sambandi við hönnun og umhverfis-
mat og annað áður en framkvæmdir
geta hafist.“
Svandís treysti sér, að sögn Hilm-
ars, ekki til að tilgreina nákvæmlega
hvenær framkvæmdir hæfust við
stokkana en skriður yrði kominn á
þær fyrir lok kjörtímabilsins.
Hann hafði eftir henni að hafnar
væru viðræður við ríkið um hlut þess
í framkvæmdinni og lögð yrði
áhersla á að ljúka þeim sem fyrst.
Stokkur fyrir Miklubraut
verður forgangsverkefni
Nýi meirihlutinn
hyggst bíða með
mislæg gatnamót
Morgunblaðið/Ómar
Fundur Svandís Svavarsdóttir, oddviti VG, mætti á fund íbúasamtakanna í
gærkvöldi og ræddi um kröfu íbúa um að setja Miklubraut í stokk.
SÍLDVEIÐIFLOTI Íslendinga er kominn á Breiðasund
og veiðir þar síld í gríð og erg. Þetta er eitthvað sem
heimamenn áttu ekki von og hefur ekki gerst áður.
Margir Hólmarar sigldu inn á Breiðasund til að fylgjast
með veiðunum. Á myndinni er áhöfnin á Hugin VE að
taka gott kast. Í gær voru átta síldarskip inni á Breiða-
sundi nálægt Hrappsey og Öxney á veiðum, en þar er
mikla síld að finna.
Mikil síldveiði innarlega á Breiðafirði
Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason
BORGARRÁÐ á
að segja til um
hvort starfsemin
falli að skipulagi á
svæðinu en hlut-
verk þess er ekki
að segja til um
hvort tiltekin at-
vinnustarfsemi sé
slæm eða góð.
Það segir Brynjar
Níelsson, lögmað-
ur Bóhem, sem gagnrýnir samþykkt
meirihluta borgarráðs frá því í gær.
Borgarráð samþykkti þá að leggjast
gegn því að nektardans yrði heim-
ilaður á þremur skemmtistöðum,
Club Óðali, Vegas og Bóhem. Að
öðru leyti leggst ráðið ekki gegn út-
gáfu rekstrarleyfis.
Í lögum um veitingastaði, gisti-
staði og skemmtanahald er lagt bann
við að bjóða upp á nektarsýningar
nema fengin sé sérstök undanþága. Í
rekstrarleyfisumsóknum umræddra
staða var sótt um þá undanþágu, en í
bókun meirihlutaflokkanna segir
m.a. að fulltrúar meirihlutans séu
ekki tilbúnir að veita hana, enda
bryti það í bága við samþykkta
stefnumótun borgarinnar. „Um-
sögnin er send með almannahags-
muni í fyrirrúmi sem og þá pólitísku
sannfæringu að yfirvöldum beri að
hafna því að líkamar kvenna séu
hlutgerðir með þessum hætti.“
Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks
voru hins vegar ekki vissir um að
borgarráðsmenn gætu tekið ákvarð-
anir sem slíkar og létu bóka að ekki
væri hægt að horfa framhjá því að
starfsemin væri heimil skv. lögum.
Einnig kemur fram í bókun þeirra að
lögfræðingar borgarinnar hafi bent
á að slík ákvarðanataka gæti bakað
borginni skaðabótaskyldu.
Brynjar Níelsson sagði í samtali
við Fréttavef Morgunblaðsins að þó
svo að hver og einn hefði rétt á sinni
skoðun væri ótækt að borgarráð
tæki ákvarðanir í þessu tilviki út frá
pólitískri hugmyndafræði, enda væri
það ekki hlutverk þess. Hann sagði
að ekki yrði við unað en ákvarðanir
um hvort Bóhem leitaði réttar síns
hefðu ekki verið teknar.
Borgarráð vill ekki
heimila nektardans
Brynjar
Níelsson
Í HNOTSKURN
»Meirihlutaflokkarnir létubóka að neikvæð umsögn
væri liður í baráttunni gegn
klámvæðingu og vændi.
»Lögmaður Bóhem segir aðborgarráð eigi að gefa um-
sögn út frá skipulagi, ekki
pólitískri hugmyndafræði.
»Sjálfstæðismenn eru ekkivissir um að borgarráð
geti tekið ákvörðun um bann.
BJÖRN Bjarna-
son, dóms- og
kirkjumálaráð-
herra, hefur skip-
að Valtý Sigurðs-
son, forstjóra
Fangelsismála-
stofnunar ríkis-
ins, í embætti rík-
issaksóknara.
Valtýr tekur við
starfinu 1. janúar
nk., þegar Bogi Nilson lætur af störf-
um.
Í samtali við Morgunblaðið sagðist
Valtýr hlakka til að takast á við ný
verkefni, ekki síst í ljósi nýs frum-
varps dómsmálaráðherra sem hefur
í för með sér töluverðar breytingar á
ákæruvaldinu. Hann tók þó jafn-
framt fram að árin hjá Fangelsis-
málastofnun hefðu verið afar gleði-
leg og hluta af honum langi til að
klára þau verkefni sem framundan
eru hjá embættinu.
Aðrir umsækjendur um embætti
ríkissaksóknara voru Egill Stephen-
sen, saksóknari við embætti ríkis-
saksóknara, Guðjón Ólafur Jónsson
hæstaréttarlögmaður, Jón H.B.
Snorrason, aðstoðarlögreglustjóri
og saksóknari embættis lögreglu-
stjórans á höfuðborgarsvæðinu,
Ólafur Þór Hauksson, sýslumaður á
Akranesi, og Sigríður J. Friðjóns-
dóttir, saksóknari við embætti rík-
issaksóknara.
Skipaður
ríkissak-
sóknari
Valtýr
Sigurðsson
Valtýr Sigurðsson
tekur við 1. janúar nk.
BORGARRÁÐ Reykjavíkur sam-
þykkti kauptilboð átta bjóðenda í
byggingarrétt á 22 lóðum sunnan
Sléttuvegar í gær. Samþykkt var lóð
fyrir fjölbýlishús með 28 íbúðum á
rúmar 347 milljónir króna, bygging
tvíbýlishúsa á 8 lóðum á 31,2-38,2
milljónir króna, auk 13 lóða fyrir
keðjuhús á kaupverðinu 25,9-32,9
milljónir króna.
Buðu yfir
30 milljónir
í lóðirnar
♦♦♦
Tölum saman
Laugardagsfundur í Valhöll kl. 10:30
Allir velkomnir!
Landssamband sjálfstæðiskvenna stendur fyrir fundi um frumvarp
félagsmálaráðherra um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.
Kaffi og meðlæti í boði
Með framsögu verða:
Bjarni Benediktsson
alþingismaður
Katrín Helga Hallgrímsdóttir
varaformaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
Hrafnhildur Stefánsdóttir
yfirlögfræðingur Samtaka atvinnulífsins
Maríanna Traustadóttir
jafnréttisfulltrúi ASÍ
Fundarstjóri:
Drífa Hjartardóttir
formaður Landssambands
sjálfstæðiskvenna
SKULDATRYGGINGAÁLAG allra
íslensku bankanna hækkaði um 45
punkta í gær og hefur það aldrei verið
hærra en einmitt nú. Þannig er álag á
skuldabréf Kaup-
þings nú 360
punktar, þ.e.
3,6%, álagið á bréf
Glitnis er 255
punktar og álagið
á bréf Lands-
bankans er 195
punktar.
Tryggingaálag-
ið á skuldabréf
banka um allan
heim hefur farið hækkandi á undan-
förnum vikum eftir því sem kreppan á
lánsfjármörkuðum heimsins hefur
undið upp á sig og segir Guðni Að-
alsteinsson, framkvæmdastjóri fjár-
stýringar Kaupþings, gærdaginn
hafa verið þann versta um langt skeið
á markaðnum. Álag á bréf nær allra
banka hafi hækkað umtalsvert.
Álagið
hækkar
mikið
Guðni Aðal-
steinsson