Morgunblaðið - 23.11.2007, Blaðsíða 20
Eftir Kristínu Ágústsdóttur
Neskaupstaður | Fjölgreinanám
hófst við Nesskóla í Neskaupstað í
haust, en það er nám sem er sniðið
að þörfum barna sem ekki finna sig í
hefðbundnu skólanámi. Fyrirmynd-
in er sótt til Lækjarskóla í Hafnar-
firði og þykir hafa gefist vel. Að sögn
Maríasar B. Kristjánssonar skóla-
stjóra Nesskóla er ekki vitað til þess
að þetta hafi verið reynt utan höfuð-
borgarsvæðisins áður, með þessu
sniði.
Fjölgreinanámið, sem er ætlað
fyrir 7.-10. bekk, er til húsa á skóla-
torfunni í Neskaupstað, í íbúðarhúsi
sem tímabundið hýsti skólaeldhús
Nesskóla. Fjórir nemendur mynda
kjarnann sem stundar fjölgreina-
nám, auk þess sem þrír nemendur
koma reglulega í verklega kennslu
og hópar úr Nesskóla koma í af-
mörkuð verkefni. Þrír starfsmenn
starfa við fjölgreinanámið og að
sögn Maríasar hefur hann verið ein-
staklega heppinn með starfsfólk til
að vinna þetta verkefni, sem er að
miklum hluta hugsjónastarf.
Marías segist fagna mjög að tekist
hafi að koma þessu námi á laggirnar.
„Lykilatriði til þess að það geti tek-
ist er að hafa nemendahóp sem fell-
ur að verkefninu og hæft starfsfólk
sem vill taka að sér svona verkefni,
sem er mjög ólíkt hinni hefðbundnu
kennslu. Þá verður húsnæði að
henta bæði sem kennslurými og af-
þreying fyrir nemendur og síðast en
ekki síst er mikilvægt að hafa for-
eldra sem vinna með okkur að verk-
efninu af heilum hug.“
Enginn sagði þetta auðvelt
Það er Elvar Jónsson sem heldur
utan um verkefnið og segir hann að
þó fyrirmyndin sé til staðar hafi
þurft að útfæra verkefnið með nýj-
um hætti. „Enda aðstæður allt aðrar
hér en í Hafnarfirði, t.d. eru nem-
endur miklu færri og einstaklingar í
náminu með mjög ólíkar þarfir,“
segir Elvar. „Markmiðið er að nem-
endum líði betur í skólanum, nái
þannig betri tökum á náminu og skili
sér sem hæfari einstaklingar í sam-
félaginu. Allt byggist þetta á því að
samtvinna áhugasvið, hæfileika og
nám nemendanna. Það sagði enginn
að þetta væri auðvelt. Það koma
mjög erfiðir dagar inn á milli, en
þeim hefur fækkað. Við erum mjög
ánægð með þann árangur sem náðst
hefur og fyrsta markmiðinu hefur
verið náð. Nemendum líður mun
betur sem gerir það að verkum að
þeir eiga auðveldara með að einbeita
sér að námi. Sem dæmi um framfar-
ir má nefna að í upphafi annar gát-
um við kannski sinnt bóklegu námi í
10-15 mínútur í senn, en nú vinnum
við í allt að klukkustund í senn.“
Foreldrar segjast finna jákvæðar
breytingar á börnum sínum sem
þarna stunda nám og greinilegt að
nemendur séu í aðstæðum sem þeim
líður vel í. Jafnframt telja foreldrar
mikilvægt að samfélagið sjái fjöl-
greinanámið eins og það raunveru-
lega er, jákvætt og æskilegt úrræði
fyrir einstaklinga sem líði illa í hefð-
bundnu skólastarfi, en ekki sem
geymslu fyrir erfiða einstaklinga.
Alcoa Fjarðaál hefur nú ákveðið að
styrkja verkefnið mjög myndarlega
með 10,5 milljóna króna styrk næstu
þrjú árin, sem breytir mjög lands-
lagi verkefnisins, að sögn Maríasar.
„Nú getum við unnið frekar að þró-
un námsins og þetta auðveldar okk-
ur mjög að útfæra margar góðar
hugmyndir sem fram hafa komið.
T.d. er æskilegt að fá fleira fagfólk
til samstarfs og byggja upp góða
kennsluaðstöðu með búnaði og
námsgögnum.“
Fjarðaál styður verkefnið
Að sögn Ernu Indriðadóttur
framkvæmdastjóra samfélags- og
upplýsingamála hjá Alcoa Fjarðaáli
hrifust fyrirtækið og styrktarsjóður-
inn af því hugsjónastarfi sem unnið
hefur verið við að koma verkefninu á
laggirnar. „Það var heillandi að sjá
menn huga að þeim nemendum sem
af ýmsum ástæðum passa ekki inn í
hið hefðbundna skólakerfi. Þá er það
staðreynd að oft þurfa foreldrar hér
fyrir austan, sem eiga börn með sér-
þarfir, að leita til höfuðborgarinnar
um úrlausn sinna mála og því fannst
okkur þetta vera góð leið til að auka
þjónustu hér á svæðinu. Það er
stefna Alcoa að taka þátt í því sam-
félagi þar sem það starfar og okkur
finnst alveg sérstaklega ánægjulegt
að taka þátt í þessu metnaðarfulla
verkefni og bindum vonir við að það
nýtist fleirum í Fjarðabyggð í fram-
tíðinni,“ sagði Erna.
Á vorönn er fyrirhugað að bjóða
nemendum víðar úr Fjarðabyggð að
nýta sér námið, en að sögn Maríasar
hafa foreldrar úr öðrum kjörnum
sveitarfélagsins haft samband og
óskað eftir því að börn þeirra komist
að í náminu. Auk þess hefur fram-
takið fengið jákvæð viðbrögð innan
skólasamfélagsins í Fjarðabyggð.
Börnum í Nesskóla hjálpað á flug
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Metnaðarfullt Elvar Jónsson, Marías B. Kristjánsson, Erna Indriðadóttir, Stefanía Freysteinsdóttir, Aneta Cwikl-
inska og Dagmar Traustadóttir koma öll að verkefninu, en við það eru bundnar miklar vonir í skólastarfinu.
Frumraun í athyglisverðu fjölgreina-
námi utan höfuðborgarsvæðisins
20 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
PÓSTSENDUM
www.islandia.is/~heilsuhorn
Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889,
fæst m.a. í
Lífsins Lind í Hagkaupum,
Maður Lifandi Borgartúni 24,
Maður Lifandi Hæðarsmára 6,
Lyfja, heilsuvörudeild, Selfossi,
Yggdrasil Skólavörðustíg 16 og Fjarðarkaupum,
Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka,
Krónan Mosfellsbæ,
Nóatún Hafnarfirði
Liver blend
Fyrir lifrina
AUSTURLAND
BÆJARRÁÐ Akureyrar ákvað á
fundi í gær að veita 30 milljónir
króna aukalega til byggingar reið-
hallar í bænum, svo hægt verði að
taka mannvirkið í notkun.
Hestamannafélagið Léttir óskaði
eftir því að fjárveiting bæjarins til
verkefnisins yrði aukin um 43 millj-
ónir. Í samningi bæjarins og Léttis
frá því í mars 2006 og viðauka frá
ágúst 2006 var kveðið á um að heild-
arstyrkveiting vegna byggingar
reiðhallar yrði rúmlega 120 milljónir
króna og hefur sá styrkur þegar ver-
ið greiddur. Jafnframt var skýrt
kveðið á um að ekki yrði um frekari
greiðslur frá bænum að ræða vegna
þessarar framkvæmdar eða til
rekstrar reiðhallarinnar.
Í fundargerð bæjarráðs segir að
þrátt fyrir þessi ákvæði sé ljóst að án
aðkomu bæjarins verði ekki hægt að
taka húsið í notkun á næstunni. Bæj-
arráð samþykki því að auka styrk
bæjarins vegna byggingarinnar um
30 milljónir króna með því skilyrði að
Hestamannafélagið Léttir sýndi
fram á að það gæti sjálft útvegað þá
fjármuni sem vantar til þess að hægt
verði að taka húsið í notkun. Til þess
að mæta kostnaði vegna viðbótar-
framlagsins verður dregið úr fé til
framkvæmda í hesthúsahverfum um
10 milljónir á ári næstu þrjú ár.
30 milljónir
til viðbótar
í reiðhöllina
FYRSTI geisladiskurinn með Sin-
fóníuhljómsveit Norðurlands er að
koma út. Þar leikur hún tónverk
eftir Snorra Sigfús Birgisson við
ævintýrið um Stúlkuna í turninum
eftir Jónas Hallgrímsson og af því
tilefni verður hljómsveitin með tón-
leika í Ketilhúsinu á Akureyri á
sunnudaginn.
Snorri Sigfús samdi tónverkið að
beiðni Sinfóníuhljómsveitar Norð-
urlands sem flutti það á síðan á
skólatónleikum í grunnskólum á
Norðurlandi haustið 2005.
Sagan fjallar um baráttu góðs og
ills. Boðskapurinn er sígildur og
skýr, hið góða mun sigra að lokum
ef við sýnum nægilega trú og
tryggð. Tónlistin túlkar söguna
samhliða því sem hún er sögð. Upp-
taka á tónverkinu var gerð í tónlist-
arhúsinu Laugarborg í janúar árið
2006. Í bæklingi með geisladiskin-
um er ævintýri Jónasar prentað í
heild sinni með myndskreytingum
listakonunnar Veronicu Nahmias,
sem búsett er í Hollandi og vel
þekkt þar í landi m.a. fyrir að
myndskreyta barnabækur. Þá er í
bæklingnum ritgerð eftir Pál Vals-
son sem hann nefnir Jónas og ugl-
urnar.
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
mun kynna geisladiskinn með tón-
leikum í Ketilhúsinu á Akureyri á
sunnudaginn kl. 16. Sögumaður er
tónskáldið Snorri Sigfús Birgisson
og stjórnandi er Guðmundur Óli
Gunnarsson. Aðgangur er ókeypis
en hægt er að kaupa geisladiskinn á
staðnum.
Útgáfan var styrkt af afmælis-
nefnd Jónasar Hallgrímssonar í til-
efni af 200 ára ártíð skáldsins.
Stúlkan í turninum á disk
Snorri Sigfús
Birgisson
Guðmundur Óli
Gunnarsson
SN flytur tónlist Snorra Sigfúsar við ævintýri Jónasar
BJÖRG Þórhallsdóttir sópransöng-
kona, núverandi bæjarlistamaður,
heldur tónleika í Akureyrarkirkju
kl. 17 á sunnudaginn. Þar syngur
hún lög af nýútkominni plötu, þriðju
sólóplötu sinni, og eru þetta þriðju
tónleikar Bjargar á Akureyri í ár.
„Þetta er annað árið í röð sem ég
stend fyrir svona stórum tónleikum í
Akureyrarkirkju og fyrst ég ákvað
að halda útgáfutónleika kom ekki
annað til grein en halda þá á Ak-
ureyri,“ sagði Björg en hún verður
svo með aðra tónleika í Fríkirkjunni
í Reykjavík 1. desember.
„Ég hef alla tíð lagt mikla rækt
við minn heimagarð,“ sagði Björg.
Hún kveðst bera miklar taugar til
kirkjunnar, en þar var faðir hennar
heitinn, séra Þórhallur Höskuldsson,
sóknarprestur. „Akureyrarkirkja er
líka eitt allra besta tónleikahús á
landinu, hljómburðurinn þar er ein-
staklega fallegur, og þar fyrir utan
finnst mér hún auðvitað fallegasta
kirkja landsins!“
Björg gaf út jóladisk í fyrra. „Nú
er ég með tónlist úr ýmsum áttum;
þekkt íslensk og erlend dægurlög og
vinsæl lög úr heimi klassískrar tón-
listar, söngleikja og kvikmynda-
tónlistar,“ segir hún. „Öll þessi lög
eru mér kær, og valin sérstaklega
með það í huga að skapa vellíðan og
hlýtt andrúmsloft. Þau tengjast öll
saman í einstaklega fallegum útsetn-
ingum Jóns Guðmundssonar gít-
arleikara og Einars Jónssonar bás-
únuleikara.“
Á plötunni leikur 12 manna hljóm-
sveit með Björgu og „ungur og upp-
rennandi stórtenór, Bragi Bergþórs-
son, syngur dúett með mér í þremur
lögum.“ Listrænn stjórnandi og tón-
meistari var Sverrir Guðjónsson.
Bragi og hljómsveitin koma fram
með Björgu á tónleikunum.
Björg Þórhallsdóttir með stóra tónleika í Akureyrarkirkju
Björg
Þórhallsdóttir
Bragi
Bergþórsson
Þriðja sólóplata Bjargar
TVÆR málstofur verða haldnar í
dag á vegum viðskipta- og raunvís-
indadeildar Háskólans á Akureyri
og eru allir velkomnir.
Halldór Gunnar Ólafsson, sjávar-
útvegsfræðingur og framkvæmda-
stjóri BioPol, fjallar kl. 11.45 um
þetta nýstofnaða sjávar-
líftæknifyrirtæki á Skagaströnd, í
anddyri Borga og kl. 12.10 hefst er-
indi Stefáns B. Gunnlaugssonar,
lektors við viðskipta- og raunvís-
indadeild HA, sem hann kallar
Tæknigreining á íslenskum verð-
bréfamarkaði. Fyrirlestur Stefáns
verður í stofu K202 á Sólborg og
hann svarar fyrirspurnum að er-
indinu loknu.
Fjallað um
hafið og verð-
bréfin í HA
LESIÐ verður upp úr þremur nýj-
um þýddum bókum á Amtsbóka-
safninu í dag kl. 17.15 og starfsemi
Blindrabókasafnsins einnig kynnt.
Karl Emil Gunnarsson les upp úr
þremur nýjum þýðingum sínum.
Þetta eru eftirfarandi bækur:
Nornin í Portobello eftir Paulo
Coelho, Yacoubian byggingin eftir
Alaa Al Aswany og Stiklað á stóru
um næstum allt eftir Bill Bryson.
Með Karli í upplestrinum verður
Þóra Sigríður Ingólfsdóttir, for-
stöðumaður Blindrabókasafnsins,
og mun hún segja frá starfsemi
safnsins og þjónustu við blinda,
sjónskerta, lesblinda og aðra þá
sem geta ekki fært sér prentað let-
ur í nyt.
Stiklað á
stóru um
þýðingar