Morgunblaðið - 23.11.2007, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
✝ Hjörtur Hjart-arson fæddist í
Reykjavík 13. nóv-
ember 1957. Hann
lést á heimili sínu,
Professorsgatan 2b,
215-53, Malmö í Sví-
þjóð, 7. nóvember
síðastliðinn. For-
eldrar hans eru
Hjörtur Hjartarson
vélfræðingur og
kaupmaður frá
Reykjavík, f. 23.
desember 1929, og
Jensína Guðmunds-
dóttir frá Ingjaldssandi, f. 9. sept-
ember 1928. Systkini Hjartar eru:
1) Drífa, f. 1950, gift Skúla Lýð-
ssyni, f. 1947, synir þeirra Lýður,
f. 1969, Hjörtur, f. 1973, og Skúli,
f. 1980. 2) Ingibjörg, f. 1951, gift
Sigurði Ólafssyni, f. 1951, dætur
þeirra Jenný Klara, f. 1976, Þur-
íður Drífa, f. 1981, og Ólöf Kol-
brún, f. 1982. 3) Anna Ásta, f.
1959, gift Hrafni Sabir, f. 1960,
börn þeirra Grétar Ali, f. 1984, og
Tara Sif, f. 1991. 4) Björn Grétar,
Héðni. Hann fór til sjós og var
messi á Gullfossi, síðan fór hann í
Vélskólann. Árið 1983 stofnaði
Hjörtur ásamt föður sínum inn-
römmunina og verslunina Hjá
Hirti. 1985 fór Hjörtur að vinna
sem umboðsmaður fyrir ýmsa tón-
listarmenn, sem hann starfaði
með í mörg ár. Frá 1991-1994
vann hann hjá prentsmiðjunni
Odda við grafíska hönnun. 1994
stofnaði Hjörtur sitt eigið fyr-
irtæki sem tók að sér allt kring-
um grafíska hönnun, auglýs-
ingagerð og umbrot. Árið 2000
fluttist fjölskyldan til London en
flutti síðan til Malmö í Svíþjóð ár-
ið 2002. Hjörtur var fram-
kvæmdastjóri Norðurlandasviðs
Netheims þangað til hann lést.
Hann sat einnig í stjórn í Íslend-
ingafélaginu í Malmö. Hjörtur var
mikill veiðimaður og hafði mikið
yndi af alls konar veiðiskap, einn-
ig var hann mikill golfáhugamað-
ur.
Hjörtur var mikill fjölskyldu-
og heimilismaður, lagði mikið í að
rækta fjölskyldu- og vina-
sambönd.
Hjörtur verður jarðsunginn frá
Seltjarnarneskirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.
f. 1967. 5) Guð-
mundur Ingi, f. 1968,
giftur Sigríði Sig-
marsdóttur, f. 1978,
börn þeirra Óttar
Orri, f. 2001, og
Jenný, f. 2003.
Hjörtur kvæntist
Birgittu L. Matthías-
dóttur 1980, þau
skildu. Synir þeirra
eru Hjörtur, f. 1981,
og Matthías, f. 1986.
Hjörtur átti eitt afa-
barn, Matthías Hjört
Hjartarson.
Kona Hjartar er Vilborg Ar-
inbjarnar, f. 1958 í Reykjavík.
Hjörtur kynntist henni 1988. Dótt-
ir þeirra er Kristbjörg Karen, f.
1990. Fyrir átti Vilborg tvö börn,
Eygló, f. 1979, og Sigurð, f. 1981,
sem Hjörtur gekk í föðurstað.
Hjörtur var uppalinn á Sel-
tjarnarnesi. Gekk í Mýrarhúsa-
skóla og útskrifaðist þaðan sem
gagnfræðingur. Síðan fór hann í
vélvirkjanám í Iðnskólanum og
var á samningi hjá vélsmiðjunni
Í dag kveðjum við föður okkar. Við
áttum ekki von á að missa þig svona
snemma. Þó svo að við höfum ekki
eytt miklum tíma saman undanfarin
ár þar sem þú bjóst erlendis þá er
margt sem hefur farið um hugann
síðustu daga. Þú munt alltaf eiga sér-
stakan stað í hjarta okkar.
Drottinn er minn hirðir, mig mun
ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig
hvílast,
leiðir mig að vötnum,
þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu
fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt,
því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
(Úr 23. Davíðssálmi)
Pabbi, við elskum þig.
Hjörtur og Matthías.
Elsku besti pabbi minn.
Ég vakna hvern dag og vona að
þetta hafi verið draumur, ég trúi því
ekki enn að þú sért farinn, það er erf-
itt að halda áfram án þín og ég mundi
gera hvað sem er til að fá þig aftur í
mitt líf. En lífið er ekki alltaf sann-
gjarnt, ég er svo tóm að innan og get
ekki falið tárin. En ég mun reyna,
reyna að vera sterk.
Þegar ég var lítil vorum við óað-
skiljanleg. Ég man þegar þú komst
heim úr vinnunni og ég hoppaði í fang
þér, ég var svo spennt og glöð að sjá
þig.
Ég er svo stolt af því sem ég er í
dag enda gerðir þú mig að þeirri
manneskju.
Þú gafst mér svo mikið öryggi.
Sama hvaða mistök ég gerði þá
varstu ætíð til staðar.
Þú læknaðir sársauka minn, þú
skildir minn ótta og passaðir mig. Ég
vil að ófæddur sonur minn verði eins
og þú því það er enginn eins og þú.
Þú ert svo stór hluti af mér og ég er
svo stolt af því að vera dóttir þín. Ég
finn fyrir nærveru þinni alls staðar,
hvort sem það er í hjarta mínu eða
sálu. Þegar mér finnst ég vera ein og
held að ég geti ekki haldið áfram þá
heyri ég þig segja „Karen, allt verður
í lagi, aldrei gefast upp!“.
Ég varðveiti hverja ómetanlega
minningu um þig.
Orð geta ekki lýst þakklæti mínu
fyrir þér, ég er þakklát fyrir allt sem
þú hefur gert fyrir mig.
Elsku pabbi minn, þú ert og verður
alltaf minn betri helmingur. Hvíldu í
friði og mundu að ég mun ávallt elska
þig. Góða nótt, pabbi minn, þú ert, og
verður alltaf hetjan mín. Þín dóttir
Kristbjörg Karen.
Þegar ég fékk símtal frá móður
minni um að fósturfaðir minn hefði
látist leið mér eins og að það hefði
verið slökkt á heiminum. Ég átti aldr-
ei von á að fá svona símtal á þessari
stundu. Hann var mér virkilega góð-
ur pabbi, sem gekk mér í föðurstað.
Hann var alltaf til staðar, bæði á erf-
iðum tímum og góðum. Við áttum líka
sameiginleg áhugamál sem við gátum
eytt löngum tíma í að leika okkur
með. Við pabbi gátum alltaf fundið
nóg að gera, það voru ekki margir
dagar sem við sátum eirðarlausir
heima.
Hann hefur alltaf verið mér fyrir-
mynd í lífinu. Han tók mikið pláss í lífi
mínu og kenndi mér mikið sem hefur
hjálpað mér til að lifa sem best. Mér
þótti mjög vænt um hann og skilur
hann mikið eftir í hjarta mínu.
Ég kveð pabba minn með miklum
söknuði og þakka honum fyrir allt
það góða sem hann hefur gefið mér.
Guð geymi þig.
Saknaðarkveðja
Sigurður.
Elsku pabbi Hjörtur, ég trúi því
varla að þú sért farinn frá okkur. Þú
hefur skilið eftir stórt skarð í lífi okk-
ar.
Alltaf varstu til staðar þegar á
reyndi og einnig gladdistu með okkur
þegar allt lék í lyndi og varst alltaf
svo stoltur af okkur. Fjölskyldan og
vinir voru þér alltaf mikilvæg og þú
passaðir vel upp á okkur öll. Þú skilur
eftir ótalmargar yndislegar minning-
ar sem ég á eftir að varðveita allt mitt
líf.
Ég veit í hjarta mínu að þú vakir
yfir okkur dag og nótt.
Þín dóttir,
Eygló.
Elsku Hjörtur bróðir, besti vinur
minn og trúnaðarvinur. Nú kveð ég
þig með miklum söknuði. Við áttum
svo margar góðar stundir og minn-
ingarnar hellast yfir mig. Ég er svo
þakklát fyrir hvað við vorum góðir
vinir og að hafa átt þig að. Við vorum
svo sammála um að fjölskyldan og
vinirnir væru það dýrmætasta sem
við ættum. Það skipti ekki máli þótt
við byggjum ekki í sama landi, alltaf
héldum við samband hvort við annað
og létum fjarlægðina ekki hafa áhrif.
Sem betur fer hittumst við oft. Okkar
samband var svo sterkt og við fund-
um alltaf á okkur ef eitthvað amaði að
og sem betur fer þá höfðum við alltaf
samband.
Þegar þið Villa fluttuð til Svíþjóðar
og svo þaðan til London saknaði ég
ykkar mjög mikið en sem betur fer
gat ég heimsótt ykkur nokkrum sinn-
um þangað og alltaf var jafngaman að
fara með þér því alls staðar sem þú
komst eignaðist þú vini og einhverja
uppáhaldsstaði. Það var svo gaman
að koma í heimsókn til ykkar þegar
þið bjugguð í London því auðvitað
varst þú búinn að skanna alla staði í
borginni og vissir hvert átti að fara og
hvaða staðir voru bestir. Alls staðar
sem þú komst við eignaðist þú vini
eða kunningja og alltaf var ég stolt af
þér elsku bróðir.
Þegar þið fluttuð aftur til Svíþjóðar
var ennþá skemmtilegra að heim-
sækja ykkur á ykkar yndislega heim-
ili. Þú varst alltaf jafn viljugur að fara
með okkur fjölskyldumeðlimi að
skoða ýmsa staði.
Ferðum þínum til Íslands fjölgaði
vegna vinnu þinnar og þá var ég svo
ánægð að þú gætir búið á heimili
mínu. Alltaf gátum við setið og talað
tímunum saman og rætt um allt milli
himins og jarðar. Skemmtilegast
þótti okkur að tala um ferðir í útlönd-
um og indverskan mat. Við hlógum
oft að því þegar við töluðum um að við
hefðum örugglega búið á Indlandi í
fyrra lífi, því við heilluðumst af svo
miklu frá Indlandi. Indverskur matur
var þitt uppáhald og ég naut þess allt-
af að bjóða þér í mat hjá mér. Þú
varst líka svo laginn við að útbúa
þannig mat og vildir alltaf fá nýja og
nýja uppskrift hjá mér. Oft hringdir
þú í mig um kvöldmatarleytið og
spurðir mig „hvað varst þú með í mat-
inn í kvöld?“ og „hvað varst þú með
marga rétti?“ Svo hlógum við saman
því ekkert símtal var án brandara eða
gríns frá þér. Þú komst mér alltaf til
að hlæja eða sjá jákvæðu hliðina á
öllu. Ég vil þakka þér Hjörtur bróðir
minn fyrir hvað þú reyndist góður
bróðir og hvað þú reyndist börnunum
okkar Sabirs góður frændi. Ali og
Tara hafa alltaf virt þig og leituðu oft
til þín varðandi ýmis mál, því eins og
ég sagði alltaf ef ég gat ekki svarað
börnunum mínum: „Hringiði eða
sendið email til Hjartar, hann veit
þetta örugglega!“ „Horfðu til himins
með höfuðið hátt, horfðu til heimsins
úr höfuðátt“ (Nýdönsk) er lag sem ég
og Villa þín hugsuðum um alla nóttina
eftir að þú lést elsku bróðir og ég veit
að þetta eru skilaboð frá þér. Hvíl í
friði.
Þín systir,
Anna Ásta.
Í dag kveð ég barnsföður minn sem
kvatt hefur þennan heim alltof
snemma. Með trú, von og kærleika í
hjarta veit ég að þú ert á góðum stað.
Ég þakka þér fyrir að gefa mér þessa
tvo yndislegu drengi sem við eigum
og barnabarn.
Já, lofið Drottin, allir þjónar Drottins, þér
er standið í húsi Drottins um nætur.
Fórnið höndum til helgidómsins og lofið
Drottin.
Drottinn blessi þig frá Síon, hann sem er
skapari himins og jarðar.
(Sálmur 134)
Guð blessi ykkur öll.
Birgitta Lára Matthíasdóttir.
Elsku mágur minn og vinur, ég á
eftir að sakna þín svo mikið. Ég vil
þakka þér fyrir þann tíma sem ég
fékk að eiga með þér. Þú reyndist
mér alltaf svo góður og ég mun aldrei
gleyma hvað þú tókst mér vel þegar
ég kom í fjölskylduna. Þú varst sann-
ur vinur og kenndir mér margt. Þú
hafðir yndi af því að borða góðan mat
og naut ég þess oft með þér hvað þú
varst duglegur að borða og elda ind-
verskan mat. Þú varst svo fróður um
margt og oft hló ég að því hvað þú virt-
ist vita meira en ég um mína trú. Þú
varst oft ekki sáttur við að ég væri að
drekka bjór og lést mig oft heyra það
að múslimar ættu ekki að drekka en
oftast var þetta bara í gríni. Við áttum
margar góðar stundir og er ég þakk-
látur fyrir það þegar þú þurftir að
dveljast hér á landi vegna vinnu þinn-
ar að þú bjóst á heimili okkar. Ég mun
aldrei gleyma því þegar þú komst
heim úr einni veiðiferðinni þinni með
stóran silung og vildir bjóða okkur í
mat. Þú varst búinn að frétta af því að
ég borðaði ekki fisk og það tókst þú
ekki í mál, „sannir menn borða auðvit-
að fisk,“ sagðir þú og bauðst okkur til
þín og kenndir mér að borða þennan
indælis silung. Ég hafði unun af því að
heimsækja þig til Svíþjóðar og Köben
því þú eins og alltaf varst búinn að
koma þér upp fullt af vinum, kunn-
ingjum og uppáhaldsstöðum. Fjöl-
skyldan þurfti engan leiðsögumann
með þig í för því þú varst búinn að afla
þér allra upplýsinga um helstu staðina
sem áhugavert var að heimsækja.
Ég mun aldrei gleyma síðustu
heimsókn okkar til ykkar sl. ágúst og
hvað við áttum góðar stundir, þá sér-
staklega þegar við borðuðum á einum
af þínum uppáhaldsveitingastöðum í
Malmö, Indian Express. Elsku Hjört-
ur þú munt alltaf eiga stað í hjarta
mínu. Guð veri með þér.
Þinn mágur og vinur
Sabir.
Það var sorgardagur á heimili okk-
ar við fregnir af andláti Hjartar.
Hjörtur var drengur góður og við
fyrstu kynni fann ég hversu einlægur
og tilfinningaríkur hann var og við-
mótið oft töfrandi. Við urðum sam-
stundis vinir. Hjörtur tengdist gjarn-
an því sem ég tók mér fyrir hendur
hverju sinni. Þar var hann bæði upp-
örvandi og áhugasamur. Það var mér
dýrmætur tími. Oft reyndi þó á þol-
inmæðina, því rólegri maður fyrir-
fannst varla. Ógleymanlegir eru veiði-
túrar þar sem hann notaði „bara“
flugu og leit mig hornauga þegar ég
þræddi maðkinn á öngulinn. Mér
stekkur bros á vör er ég minnist þess
er hann kenndi mér golf, rólegur og
yfirvegaður. Hann var góður sögu-
maður og hafði áhuga á mörgu. Hann
spilaði dart og snóker og var áhuga-
maður um bardagalistir, vel að sér í
tónlistar- og myndlistarmenningu,
lipur með pensilinn og átti góða menn-
ingarvitneskju. Austurlensk matar-
gerðarlist átti huga hans og gaman að
fara með honum út að borða. Vitn-
eskja hans náði víða, t.d. um bíla, mót-
orhjól, flugvélar, hergögn og fleira.
Þegar krakkarnir okkar Sellu uxu
úr grasi átti þessi „bangsi“ mikið pláss
í hjarta þeirra. Sonur minn sagði dag-
inn eftir þessa sorgarfrétt: Pabbi,
manstu þegar þú varst búinn að fylla
mælinn af leiðindum og allir voru í
sárum heima. Þá kom Hjörturinn
óvænt og fór með mig í bíltúr og ræddi
við mig eins og fullorðinn mann.
Svona var þessi góði og tryggi vin-
ur.
Heima hjá mér hefur gamli tíminn
stundum verið í umræðunni og hafa
hann og Villa þá komið þar við sögu og
ber alltaf hæst hversu skemmtilegur
og orðheppinn hann var.
Hjörtur var góður AA-maður,
tryggur og orðvar.
Mér eru ljúfar minningarnar um
hann og draga þær nú fram tár í augu
mér.
Hver stóð í dyragættinni heima hjá
mér þegar erfiðast var í lífi mínu? Jú,
Hjörturinn sterki.
Breiddi hann út faðminn og hjúfraði
mig að sér og sagði: „Er eitthvað sem
ég get gert?“
Hjálpaði mér að takast á við raun-
veruleikann sem oft virtist ósann-
gjarn þar til maður gat heimfært
gjörninginn á sjálfan sig.
Stoltur segi ég að Hjörturinn var
vinur minn og átti trúnað minn alla tíð
og ég veit að það var gagnkvæmt.
Þegar erfitt var fórum við oft í
ógleymanlega göngutúra, krufðum
málin til mergjar og hlógum eða grét-
um eftir því hvort átti við.
Á síðasta fundi okkar ræddum við
lengi saman og fann ég hvað trúfesta
hans var mikil.
Hann sagði mér frá hversu Guð
væri búinn að vera honum og fjöl-
skyldu hans góður og hversu góður
framgangur væri í lífi þeirra. Ég efast
ekki um að þessi elsku vinur minn sit-
ur nú í allsnægtum, kíminn að venju,
og tekur þátt í hjálparstarfi Drottins.
Kveð ég þig nú elsku vinur, eina af
perlum lífs míns, hjálparann með góða
húmorinn og ógleymanlega krúttlega
útlitið.
Drottins vegir voru þínir vegir.
Bið ég Jesú Krist að vera með for-
eldrum hans og systkinum, börnum
hans og Villu, frábærum lífsförunaut
hans.
Bið ég Guð að blessa þau, náð og
friður verði í lífi þeirra á hverjum
degi.
Vilhjálmur Svan og fjölskylda.
Jæja, kallinn minn, þá drekkum
ekki kaffi saman í Köben einsog við
ætluðum okkur. Það var ég sem var of
tímabundinn, ekki bara einu sinni og
ekki bara tvisvar. Þess vegna varð
ekkert af kaffisopanum. Vonandi hitt-
umst við aftur seinna. Ég vil fara
þangað sem þú ferð. Góðir menn eiga
tryggða góða vist eftir að lífinu lýkur
hér. Þannig fer með þig. Ég man alla
greiðana sem þú gerðir mér og öðrum.
Áttir alltaf bestu græjurnar, þær voru
ekki bara fyrir þig. Kristborg og
Kristján og ég tölum mikið um þig
þessa dagana. Og höfum reyndar oft
gert. Þannig maður varst þú.
Villa mín og aðrir sem elska Hjört.
Megi góður Guð styrkja ykkur á erf-
iðum tímum. Það hafið misst mikið, en
eigið um leið margar góðar minningar
um frábæran mann.
Sigurjón M. Egilsson.
Fimmtudaginn 8. nóvember barst
mér sú harmafrétt að Hjörtur H.
Hjartarson hér í Malmö hefði látist
kvöldið áður. Mig setti hljóðan, því við
vorum að vinna saman að tölvuvæð-
ingu útvarpsins hérna hjá okkur.
Þetta sannaði mér enn einu sinni að
maður veit ekki hvenær kallið kemur
og að maður er sjaldan viðbúinn því.
Kynni mín af Hirti voru í gegnum
Íslendingafélagið hér í Malmö. Hjört-
ur, Villa kona hans og börnin Karen,
Siggi og Eygló komu öll og tóku þátt í
starfsemi félagsins og í Útvarpi
ÍMON. Það var samheldinn hópur og
skemmtilegur að vinna með.
Hjörtur var hógvær maður, lá lágt
rómur en kom samt fram sinni skoðun
og áliti á mönnum og málefnum sem
voru til umræðu í hvert sinn. Höfðum
við oft gaman af að rifja upp þá tíð er
við báðir vorum virkir þátttakendur í
verkalýðspólitíkinni og landsmálapóli-
tík þá á Íslandi þótt við værum þá á
ystu mörkum til beggja handa. Hjört-
ur kunni vel til verka hvað tölvur og
heimasíðugerð snerti og er Útvarp
ÍMON varð 25 ára í nóvember 2005
opnaði hann fyrir okkur heimasíðu
Útvarps ÍMON er hann hafði hannað
og sett upp. Þessi afmælissíða bar
þess glöggt merki að hér var atvinnu-
maður að verki.
Á þeim stutta tíma sem við fengum
með Hirti þá gegndi hann störfum
varaformanns ÍMON, síðar formanns
og nú vararitara ásamt því að vera rit-
stjóri fréttabréfs okkar Landans. Þá
starfaði Hjörtur með okkur í Útvarpi
ÍMON og hjálpaði okkur með endur-
nýjun á stúdíói útvarpsins en þar ent-
ist tíminn ekki til að leggja lokahönd á
starfið, því miður. Þættir Hjartar í
Útvarpi ÍMON voru vandaðir og kom
þar fram kunnátta hans á íslenskri
tónlist og tónlistarmönnum. Þátta
hans verður saknað. Ég vil fyrir hönd
okkar í Íslendingafélaginu í Malmö og
nágrenni og eins útvarpsfólksins
þakka Hirti fyrir ánægjulegt sam-
starf. Eins sendum við Villu og fjöl-
skyldu hennar okkar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Fræ í frosti sefur,
fönnin ei grandar því.
Drottins vald á vori
vekur það upp á ný.
Elska hans gefur
öllu líf og skjól.
Guðs míns kærleiks kraftur,
kom þú og ver mín sól.
(Sigurbjörn Einarsson)
Hilmar Jónasson,
formaður Íslendingafélags
Malmö og nágrennis.
Hjörtur Hjartarson