Morgunblaðið - 23.11.2007, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 23.11.2007, Qupperneq 30
30 FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Ásgeir Ein-arsson fæddist í Reykjavík 14. des- ember 1965. Hann lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 7. nóv- ember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Einar Brynjólfsson, f. 4. júlí 1927, og Bjarnveig Sig- björnsdóttir, f. 21. apríl 1942, d. 19. mars 1990. Bræður Ásgeirs eru 1) Kristinn Þór, f. 4. nóvember 1962, kvæntur Margréti Daníelsdóttur. Börn þeirra eru Daníel, Kristín og Jón Þór. 2) Brynjar, f. 14. desem- ber 1965, kvæntur Steinunni Björgu Ingvarsdóttur. Börn þeirra eru Elísabet Inga, Berg- lind, Arnar Páll og Ingvar Þór. Hálfbræður Ásgeirs samfeðra eru 1) Brynjólfur, f. 12. október 1953. Börn hans eru Særún Lísa, Jó- hanna Soffía, Guðrún María, Ein- ar Geir og Bryndís Hrund. 2) Valdimar, f. 2. janúar 1956, kvæntur Fanný Þóru Erlings- dóttur. Dóttir þeirra er Sigríður Fjölskyldan flutti til Sönderborg- ar í Danmörku vorið 1997 þar sem hann stundaði nám við Syd Dansk Universitet og útskrifaðist hann sem véltæknifræðingur í júní 2001. Að námi loknu vann hann til skamms tíma hjá Skaganum ehf., Cormall og Danfoss AS. Eftir að fjölskyldan flutti heim til Íslands árið 2005 starfaði hann hjá Borg- arplasti og síðan hjá Kone ehf. sem aðstoðarframkvæmdarstjóri. Ásgeir var mjög virkur í fé- lagsmálum, hann var ein af drif- fjöðrum í starfi Íslendingafélags- ins í Sönderborg. Sá hann um fótboltamót Íslendingafélaganna, Klakamótið, þegar það var haldið í Sönderborg. Einnig var hann virk- ur í Vidar Håndbold þar sem hann bæði spilaði með, þjálfaði yngri kynslóðina og var í stjórn skipu- lagsnefndar sem sá um stærsta handboltamót í Sönderborg og haldið var af Vidar Håndbold. Einnig var hann í stjórn Bæj- arhátíðarinnar, „Byfesten“, sem var mjög eftirsótt stjórnarseta af Dönum. Eftir heimkomuna gekk hann í Oddfellow og var hann mjög stoltur af þeim félagsskap og hlakkaði til hvers fundar. Útför Ásgeirs verður gerð frá Laugarneskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 13. Jóhanna. Ásgeir kvæntist Lindu Björk Háv- arðardóttur, f. 23. mars 1969. Þau giftu sig 28. maí 1994 í Lauganeskirkju. Börn þeirra eru Kristófer, f. 20. októ- ber 1995, og Vikt- oría, f. 15. júlí 1998. Sonur Ásgeirs og fyrrum sambýlis- konu, Svövu Ein- arsdóttur, er Þor- steinn Rúnar, f. 23. mars 1987. Foreldrar Lindu Bjarkar eru Hávarður Emilsson, f. 17. september 1945 og Fríður Hlín Sæmundsdóttir, f. 13. mars 1947. Bræður hennar eru 1) Gunnar, f. 14. mars 1971, maki Steinunn Olga Einarsdóttir. Börn þeirra eru Karen Brá, Bergrún Una. 2) Guðlaugur, f. 4. júní 1981, í sam- búð með Kötlu Ísaksdóttur. Ásgeir ólst upp í foreldrahúsum á Seltjarnarnesi og síðan í Breið- holti. Hann lærði vélvirkjun í Iðn- skólanum og hjá Vélsmiðjunni Héðni. Hann vann lengst af hjá OLÍS, Smiðjustáli og Kælingu. Hart er höggið – rífur og slítur inn að hjartarótum. Sársaukinn óendanlega mikill – hvílíkur vanmáttur. Orð eru lítils megnug, því miður. Yndislegur maður fallinn í valinn. Þú varst einstakur. Þökkum af alhug allar samveru- stundirnar sem við áttum og voru þær bara góðar. Þín er sárt saknað, meira en orð fá lýst, en við eigum kærleika þinn, ást og umhyggju í minningunni og hún verður ekki frá okkur tekin. Biðjum almættið að gefa Lindu Björk og börnunum styrk og stuðn- ing til að takast á við lífið án þín, kæri tengdasonur. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Takk fyrir allt. Hávarður Emilsson og Fríður Hlín Sæmundsdóttir. Elsku Ási minn. Hér sit ég við kertaljós og mynd af þér og langar að skrifa nokkur kveðjuorð. En þetta líf getur verið svo óréttlátt og maður getur ekki stjórnað því. Það finnur maður þegar þú ert tekinn frá okkur í blóma lífsins. Ekki átti ég von á því þegar við hittumst á Hellu í sumar að það væri síðasta samveru- stundin okkar úti á landi. En nú vona ég að þér líði vel, kominn í faðm mömmu þinnar og ömmu og afa. En það var svo sárt að sjá hvað sjúk- dómurinn herjaði hratt á þig og ekki nema á tveim mánuðum varstu far- inn. En samt var húmorinn ekki langt undan, allt fram til síðasta dags. Það var svo gaman að sjá, þegar ég hugsa til baka, þegar við Binni vorum að byrja að hittast að hann var tvíburi, og það fór ekki á milli mála þegar þið voruð tveir saman, alveg eins, og mjög hressir, að sjá þessa gleði og væntumþykju á milli ykkar. Þið gátuð bullað og ruglað í hvor öðrum og það gerðuð þið á ykk- ar hátt. En það var svo gott að hafa þig nálægt sér, því þú hafðir svo góða nærveru. Ég man í eitt skipti þegar þú komst til okkar þegar við bjuggum í Horsens, þá var Binni að vinna í Noregi og þú komst með mér út á flugvöll til að ná í Berglindi og Arnar Pál. Þau komu hlaupandi til þín og héldu að þú værir pabbi sinn og þú tókst þau í fangið og knúsaðir þau eins og þín eigin. Einnig hvernig þú varst við Elísabetu Ingu og Ingv- ar Þór, alltaf jafn góður en samt með smástríðni sem þeim þótti svo skemmtileg. Líka þegar þið bræður kölluðuð á krakka hvor annars og sögðuð þeim að koma til pabba, það þótti þeim nú ekki leiðinlegt. En Ási minn, það er margs að minnast og ég ætla ekki að fara að telja það upp frekar, en við eigum eftir að sakna þess að fara ekki öll saman í sumarbústað eins og við gerðum á síðasta ári. Það var svo skemmtileg ferð og mikið hlegið. Elsku Ási, ég vil fá að þakka þér fyrir þau forréttindi að fá að kynnast þér og njóta nærveru þinnar í gegn- um árin, þín er sárt saknað. Megi góður guð styrkja ykkur, elsku Linda, Þorsteinn Rúnar, Kristófer, Viktoría og fjölskylda, í ykkar miklu sorg. Hvíl í friði, minn kæri mágur. Steinunn Björg. Sæll frændi. Svona heilsaðir þú mér ávallt, hvort heldur sem var er við hittumst eða heyrðumst í síma, við höfðum þekkst frá því við mundum eftir okk- ur enda systkinabörn. En fyrir rúmum 20 árum kom ég í heimsókn til þín upp í Árbæ og þá varð ekki aftur snúið því frá þeim tíma urðum við góðir vinir og varaði sú vinátta allt fram til þess tíma er þú kvaddir. Þarna eignuðust þið Svava frum- burðinn hann Þorstein Rúnar og skipaði hann stóran sess í lífi ykkar. Eftir að þið hættuð sambúð og þú fluttir úr Árbænum voru ófáar ferð- irnar sem við fórum saman austur yfir fjall til þess að sækja Þorstein Rúnar eða fara með hann austur aft- ur eftir pabba-helgarnar. Á tímabili unnum við frændurnir saman ásamt tvíburabræðrum okk- ar, Steina frænda, Valla og fleiri góð- um félögum sem dyraverðir uppi í Broadway, og það var heldur betur skemmtilegur tími og margt brallað. Á þessum tíma fórst þú að eltast við samstarfsdömu okkar hana Lindu Björk og ekki leið á löngu þangað til þið byrjuðuð að vera saman. Það var eins og þið hefðuð alltaf verið ætluð hvort öðru, svo samrýmd voruð þið og hafið verið alla tíð síðan enda með svipaðan húmor sem hefur örugg- lega ekki skemmt fyrir í ykkar góða hjónabandi enda endurnýjuðuð þið heitin að hættri danskra fyrir ekki svo löngu síðan. Þegar við Dóra byrjuðum að búa, og keyptum okkar fyrstu íbúð á horninu á Sigtúni og Gullteig, voruð þið í húsinu skáhallt á móti okkur á Gullteignum og þá var oft rölt yfir götuna í kaffi og spjall. Þið Linda Björk voruð ávallt mjög samrýmd og eignuðust tvö yndisleg börn, þau Kristófer og Viktoríu. Á tímabili voruð þið í námi í Danmörku og svo búsett þar á tímabili eftir að námi lauk og þá í vinnu. Við hjónin og Haukur Þór fórum til Köben sumarið 2005 og þá var ekki að því að spyrja, þið Linda Björk og krakk- arnir komuð keyrandi einhverja 300 km til þess að deila með okkur einum degi, og var þessi dagur okkur mjög dýrmætur og þú hafðir á orði að það væri munur að Björk þín hefði verið við nám í Köben og gæti því frætt okkur öll um þessa fínu borg, og ekki spillti hvað börnin okkar náðu vel saman. Þarna eyddum við dýrmæt- um tíma saman og enduðum á pitsu- staðnum Mamma Rosa á Strikinu um kvöldið og kvöddumst svo seint um kvöldið og þá áttuð þið eftir að keyra aftur til baka – þarna var ykk- ur Lindu Björk rétt lýst því ykkur fannst þetta ekkert mál að koma og eyða með okkur heilum degi og eiga svo eftir að keyra alla leið til baka. Í íþróttum og viðskiptum er oft haft á orði að maður verði að vera á tánum til að vinna leik, en þinn síð- asti leikur var óvæginn og hafðir þú aldrei möguleika á að vinna hann þótt þú sýndir þinn bestu leik sem gamall handboltakappi og stæðir þig eins og hetja í þessari baráttu. Vertu sæll, frændi, þín verður sárt saknað. Elsku Linda Björk, Þorsteinn Rúnar, Kristófer og Viktoría. Við fjölskyldan sendum ykkur okkar innilegustu samúðarkveðjur. Örn Stefánsson og fjölskylda. Ási elskulegi frændi okkar, nú ertu farinn frá okkur eftir stutta og Ásgeir Einarsson ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang- amma og systir, SIGRÍÐUR KRISTJANA VAGNSDÓTTIR, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Ísafirði þann 19. nóvember síðastliðinn. Útförin verður gerð frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 24. nóvember kl. 11.00. Jarðsett verður á Nauteyri að athöfn lokinni. Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur. ✝ Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRIS GUNNARSSONAR, Heiðarvegi 3, Selfossi. Guð blessi ykkur öll. Gunnar Hafsteinn Þórisson, Loftveig Kristín Kristjánsdóttir, Jón Þórisson, Gunnar Þórisson, Vilborg Þorgeirsdóttir, Þórir Már Þórisson, Steinþór Ingi Þórisson, Árni Óli Þórisson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, BERGÞÓR GUÐJÓNSSON frá Hlíðardal, Vestmannaeyjum, lést sunnudaginn 18. nóvember. Jarðarförin fer fram frá Landakirkju í Vestmanna- eyjum laugardaginn 1. desember kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Slysavarnafélagið Eykyndil í Vestmannaeyjum. Gynda María Davíðsdóttir, Sólrún Bergþórsdóttir, Róbert Hugo Blanco, Guðrún Sigurbjörg Bergþórsdóttir, Birgir Rögnvaldsson og barnabörn. ✝ Elskulegur faðir, sonur, bróðir og afi, SVEINBJÖRN BJARKASON, verður kvaddur frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. nóvember klukkan 13.00. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Samhjálp, banka- reikningur 1163-26-777, kennitala: 551173-0389. Fyrir hönd aðstandenda, Katrín Sjöfn Sveinbjörnsdóttir, Jósef Zarioh, Axel Jósefsson Zarioh, Aðalheiður Lára Jósefsdóttir, Guðrún Lára Sveinbjörnsdóttir, Þorsteinn Bjarnason, Bjarki Elíasson, Ásthildur Sigurjónsdóttir, Björk Bjarkadóttir, Kristján Friðriksson, Stefán Bjarkason, Þorbjörg Garðarsdóttir, Þórunn María Bjarkadóttir, Róbert S. Róbertsson, Þórdís Cortellino Björnsdóttir, Ruggiero Cortellino, Árni Haukur Björnsson, Þórey Bjarnadóttir og fjölskyldur. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar elsku- legs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐMUNDAR ÞORLEIFSSONAR frá Svínhólum í Lóni, Innilegar þakkir til starfsfólks Hjúkrunarheimilis HSSA fyrir hlýhug og góða umönnun. Unnsteinn Guðmundsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Ragnhildur Guðmundsdóttir, Eysteinn Ingólfsson, Áslaug Guðmundsdóttir, Jón Bjarnason, Júlíus Guðmundsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, JÓN GUÐJÓNSSON rafvirkjameistari, Hjúkrunarheimilinu Eir, áður Brautarlandi 6, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir 21. nóvember. Jarðarförin auglýst síðar. Arndís Guðjónsdóttir, Guðjón Magnús Jónsson, Sigríður Þorláksdóttir, Margrét Katrín Jónsdóttir, Hrönn Guðjónsdóttir, Björn Baldvinsson, Magnea Ólöf Guðjónsdóttir, Halldór Kjartansson Björnsson, Arndís Guðjónsdóttir, Magnús Örn Guðmarsson, Jón Þór Guðjónsson, Eva Björg Torfadóttir, Hrafn Eyjólfsson, Hrafnhildur Eyjólfsdóttir, Halldór Ingi Hákonarson, Jón Örn Eyjólfsson, og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.