Morgunblaðið - 23.11.2007, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 23. NÓVEMBER 2007 47
Páll Óskar – Allt fyrir ástina ÞAÐ er ómögulegt annað en að
taka ofan fyrir Páli Óskari, svo
glæst er endurkoma hans sem
sólólistamanns á þessari plötu en
heil átta ár eru síðan hann sendi
slíkan grip frá sér. Í svipinn man
ég hreinlega ekki eftir öðru eins.
Plötuna umlykur firnamikið ör-
yggi; þar sem lífsgleðin er tand-
urhrein og hugrekkið er mikið.
Páll Óskar leggur hérna öll spilin
á dansgólfið ef svo mætti segja,
innibyrgð orka leysist úr læðingi
með til-
komumiklum
hætti og þessi
langa bið hefur
sannanlega
verið þess
virði.
Þessi plata
er svo miklu,
miklu meira en einföld teknó-
skotin danspoppplata. Það er
djúpt á stuðinu ef svo mætti segja.
Páll Óskar stígur fram sem eins-
lags stuðboltalegt söngvaskáld og
vægi texta er nærfellt það sama
og tónlistarinnar. Platan spilast
eiginlega eins og bíómynd þar sem
meginþemað er ástin, bæði í sinni
fegurstu og ljótustu mynd. Fyrsta
lagið, „Partí fyrir tvo“ er nokkurs
konar uppslag en svo tekur við
óslitið rennsli þar sem hver tónn
og textabrot skiptir mál. Uppfyll-
ingarefni er einfaldlega ekki til
staðar. Lausnin, lokaniðurstaðan
er svo í hinu stórkostlega lagi „Nú
passar allt“. Mikilfengleg, drama-
tísk, falleg smíð; allt þetta í senn.
Naumhyggjulegt teknó með
þungri undiröldu sem umbreytist
þegar á líður í litríka, melódíska
stemmu með Pál Óskar syngjandi
yfir; með pálmann og „svarið“ í
höndunum. Það „passar allt“ í
þessu lagi og sama má reyndar
segja um plötuna sem heild. Loka-
lagið, hið ballöðukennda „Einhver
elskar mig“ er síðan lagið sem
gárar undir kreditlistanum.
Þegar Páll syngur finnur maður
að honum er mikið niðri fyrir;
hvort sem hann gleðst eða engist
um í hugarangri. Hann tilkynnir
keikur í titillaginu: „allt fyrir ást-
ina/eina sem aldrei er nóg af“ en í
hinu angurværa og dumbungslega
(en þó taktdrifna og stuðvæna. Já,
þetta er ótrúlegt) lagi „Er þetta
ást?“ segir „Öll tengsl við sjálfan
mig rofinn/af ást til þín er ég dof-
inn … þú heldur á hjarta mínu/og
nærir kvöl mína og pínu“. Rauði
þráðurinn er elska á lífinu, bjart-
sýni, von og trú. Þetta kann að
hljóma klisjukennt en svona er
þetta bara. Og þetta er það vel
sett fram; flutt á svo sannfærandi
máta og af það mikilli ástríðu að
þú þarft að vera rækilega kalinn á
líkama og sál ætlir þú ekki að
hrífast með.
Arnar Eggert Thoroddsen
Einstök
endur-
koma
EINKAR ILLKEYTT FERÐAKISTA, ÍMYNDAÐIR DREKAR, TRÖLL,
PÚKAR, ÁLFAR, GALDRAMENN, DAUÐINN SJÁLFUR OG
HAMINGJUSAMUR TÚRISTI SEM ALLIR VILJA DREPA
,,Einn fyndnasti og besti
rithöfundur Bretlands”
The Independent
,,Ég hef sjaldan hlegið eins mikið né
skemmt mér eins konunglega
!" #$
% & ' (
) & % $&
**
+
"
,% ' & - '
& "
EINN PLÚS TVEIR ERU