Morgunblaðið - 05.12.2007, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Björn Jóhann
Björnsson, fréttastjóri, bjb@mbl.is Daglegt líf Anna Sigríður Einarsdóttir, annaei@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi,
gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is, Stefán Ólafsson, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Sigurlaug Jakobsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur
Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„NIÐURSTÖÐUR þessara spurn-
inga gleðja eflaust ekki foreldra en
renna einnig stoðum undir hvimleiða
staðalímynd sem loðir við MH-inga,“
segir m.a. í málgagni nemendafélags
Menntaskólans í Hamrahlíð, Bene-
ventum, sem nýverið kom út. Klaus-
an að framan var rituð í tengslum við
niðurstöður úr skoðanakönnun
blaðsins, nánar tiltekið spurningu
um fíkniefnaneyslu nemenda. Sam-
kvæmt niðurstöðum könnunarinnar
hafa rétt tæplega 46% nemenda á
lokaári sínu í skólanum notað fíkni-
efni.
Könnunin var unnin rafrænt og
gerð á vegum nemendafélagsins.
Svarendur eru 555 nemendur, sem
er rúmlega helmingur allra nemenda
skólans. Töluvert fleiri stúlkur tóku
þátt í könnuninni eða 340 á móti 215
piltum.
Svör nemenda við umræddri
spurningu eru afar mismunandi eftir
því á hvaða ári viðkomandi er. Þann-
ig hafa aðeins 8,4% nemenda á fyrsta
ári neytt fíkniefna, en strax á öðru
ári er hlutfallið rokið upp í tæp
sautján prósent. Á þriðja ári er það
sama upp á teningnum, hlutfall
þeirra sem notað hafa fíkniefni
hækkar upp í 33,1%.
Niðurstöðurnar eru aðeins sund-
urliðaðar eftir því á hvaða ári við-
komandi nemandi er, en t.d. ekki eft-
ir fíkniefnum. Hins vegar varpar
setning frá ritstjórn ljósi á hvaða
fíkniefni nemendur nota helst. „Sem
betur fer voru kannabisefni langvin-
sælust meðal þeirra sem neytt höfðu
fíkniefna, þannig að ekki þarf að hafa
áhyggjur af ótímabærum dauðdaga
nemenda.“
Af öðrum athyglisverðum svörum
má nefna að áfengisneysla virðist
vera nokkuð almenn í skólanum.
Rúmur helmingur nemenda á fyrsta
ári sagðist drekka áfengi en hlutfall-
ið var komið í um og yfir 90% hjá
nemendum á lokaári.
Jafnframt var spurt út í stjórn-
málaskoðanir og af niðurstöðum
þeirra spurninga að dæma virðist
sem Vinstrihreyfingin – grænt fram-
boð eigi upp á pallborðið í skólanum.
Um 41% nemenda kvaðst kjósa VG
en næstu flokkar á eftir eru Sam-
fylkingin með 24% og Sjálfstæðis-
flokkur með 20%.
Að lokum virðast flestir nemendur
MH hlynntir aðskilnaði ríkis og
kirkju eða 67% og 73% nemenda á 3.
og 4. ári. Óvíst er hvort marktæk
svör hafi fengist hjá nýnemum en
35% nemenda á fyrsta ári sögðust
ekki skilja spurninguna.
Fíkniefnaneysla nemenda
í MH eykst mikið milli ára
FRÉTTASKÝRING
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
ÞRÁTT fyrir stíf fundahöld í kjaraviðræðum
á almennum vinnumarkaði eru viðræður um
launalið samninga enn ekki komnar á skrið.
Efasemdir virðast vaxandi innan verkalýðs-
hreyfingarinnar um að það takist að ljúka gerð
samninga fyrir jól en viðræðuáætlanir gera ráð
fyrir að endurnýjun kjarasamninga verði lokið
eftir tíu daga.
Sameiginlegar kröfur verkalýðshreyfingar-
innar gagnvart stjórnvöldum og atvinnurek-
endum í tengslum við kjarasamningana eru í
meginatriðum frágengnar. Ætlar forysta ASÍ,
landssambandanna, VR og Flóafélaganna, að
ganga endanlega frá sameiginlegum áherslum
gagnvart Samtökum atvinnulífsins (SA) og
stjórnvöldum á föstudaginn.
Launþegasamtökin leggja mesta áherslu á
skattalækkanir, umbætur í húsnæðismálum og
almannatryggingamálin með uppstokkun bóta-
kerfisins en einnig á fjölda annarra stærri og
smærri mála. Reiknað er með að samkomulag
náist milli stéttarfélaganna fyrir föstudag um
kröfur í skattamálum en ólíkar hugmyndir hafa
komið frá einstökum landssamböndum. Starfs-
greinasambandið vill tvö skattþrep en önnur
sambönd hafa lagt áherslu á hækkun persónu-
afsláttar. Gengið er út frá því sem vísu að sú
krafa verði sett fram að allar lágmarksbætur í
velferðarkerfinu verði að minnsta kosti 150 þús-
und kr. á mánuði og með sama hætti hækki lág-
marksatvinnuleysisbætur í 150 þúsund.
Því verður beint til stjórnvalda að vinna að
jöfnun lífeyrisréttinda, að breytingum á löggjöf
um vinnuslys og skaðabótalögum og að bæta
réttarstöðu íslenskra starfsmanna í dótturfyr-
irtækjum íslenskra fyrirtækja erlendis. Mikil
áhersla verður lögð á menntamálin, einkum á
löggjöf um fullorðinsfræðslu. Þá mun verka-
lýðshreyfingin áreiðanlega taka upp gamalt
baráttumál um að rökstyðja verði uppsagnir og
samþykkt Alþjóðavinnumálastofnunarinnar
(ILO) verði fullgilt um að vinnuveitandi þurfi
alltaf að hafa haldbæra rökstudda ástæðu til
uppsagnar.
Einnig verður fjölmörgum sameiginlegum
kröfum beint að vinnuveitendum, m.a. um ráðn-
ingarsamninga, en að mati verkalýðshreyfing-
arinnar er komið út fyrir eðlileg mörk er ein-
staklingar sem láta af störfum eru bundnir af
ráðningarsamningi um að vinna ekki hjá keppi-
naut í tiltekinn tíma. Þá hefur verið unnið að út-
færslu hugmynda sem ekki hafa áður sést í
kjarasamningum um að bundið verði í samn-
inga hvernig fara ber með launagreiðslur laun-
þega sem fá laun sín greidd í erlendri mynt og
samdar leiðbeiningar um hvernig standa eigi að
því. Unnið verði að jöfnun slysatrygginga,
auknum réttindum erlendra starfsmanna, um
frítökurétt, hvíldartíma o.fl.
Flestir forystumenn innan verkalýðshreyf-
ingarinnar virðast sammála um að vart verði
hvikað frá þeirri kröfu að endurskoðunar-
ákvæði verði sett í væntanlega kjarasamninga
ef samið verður til lengri tíma en eins árs.
Margar kröfur á stjórnvöld og SA
Efasemdir um að samningar náist fyrir jól Fyrirkomulag launa í erlendri mynt komi í kjarasamn-
inga Verkalýðshreyfingin stendur fast á endurskoðunarákvæði ef samið verður lengur en til eins árs
Í HNOTSKURN
»Kjaraviðræður í þessari viku standafyrst og fremst á milli SA og Starfs-
greinasambandsins og Flóafélaganna.
»VR hefur birt hluta kröfugerðar ogvill m.a. semja um svokallaðan „bak-
sýnisspegil“, svo þeir sem ekki hafa not-
ið launaskriðs síðustu mánuði fái hækk-
un sem því nemur.
ÓLAFUR F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista,
var í gær formlega kosinn í embætti forseta
borgarstjórnar með átta atkvæðum meirihlut-
ans. Ólafur tók til máls að kosningu lokinni og
þakkaði það traust sem honum væri sýnt.
Þetta var fyrsti borgarstjórnarfundur Ólafs
frá því hann sneri aftur til starfa, en hann hef-
ur verið í veikindaleyfi frá því snemma á þessu
ári.
Morgunblaðið/RAX
Ólafur tekinn við sem forseti borgarstjórnar
HÆSTIRÉTTUR hefur fellt úr
gildi gæsluvarðhald yfir karlmanni
á þrítugsaldri, Tomasi Malakausk-
as, sem stöðvaður var hér á landi
þrátt fyrir endurkomubann vegna
aðildar sinnar í líkfundarmálinu
svonefnda.
Réttinum þótti ekki næg ástæða
fyrir varðhaldi en Tomas skal sæta
farbanni til 7. desember nk., þegar
felldur verður yfir honum dómur.
Gæsluvarð-
haldi breytt
í farbann
FIMM ungmenni sluppu við alvar-
leg meiðsl eftir að bifreið sem þau
voru í fór út af Grafningsvegi rétt
við Hagavík á níunda tímanum í
gærkvöldi og valt um 20-30 metra
niður gil.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi
var fljúgandi hálka á því svæði þar
sem bifreiðin fór út af. Talið er að
ökumaðurinn hafi misst stjórn á bif-
reiðinni á hálum veginum, en hann
er ekki grunaður um ölvun.
Ungmennin, sem eru í kringum
tvítugt, voru lemstruð eftir óhapp-
ið, en ekki alvarlega slösuð.
Valt 20-30
metra niður gil