Morgunblaðið - 05.12.2007, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. DESEMBER 2007 41
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Leikfimi kl. 8.30, vinnustofa
opin 9-16.30, postulínsmálning kl. 9, gönguhóp-
ur kl. 12, matur kl. 12, postulínsmálning kl. 13 og
kaffi kl. 15.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin
handavinnustofa og opin smíðastofa/útskurður
kl. 9-16.30, heilsugæsla kl. 10-11.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, glerlist,
handavinna, fótaaðgerð, hádegisverður, spila-
dagur, kaffi. Aðventuskemmtun 7. des. kl. 17.
Miðaverð 3.500 kr. Skráning í s. 535-2760.
Dalbraut 18-20 | Vinnustofa í handmennt opin
kl. 9-12, leiðb/Halldóra, leikfimi kl. 10, leiðb/
Guðný.
Félag eldri borgara í Kópavogi | Félagsvist í
Gullsmára á mánudögum kl. 20.30, í Gjábakka á
miðvikudögum kl. 13 og föstudögum kl. 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Göngu-Hrólfar
ganga frá Ásgarði kl. 10, síðdegisdans undir
stjórn Matthildar og Jóns Freys kl. 14.30, kaffi-
veitingar. Söngfélag FEB æfir kl. 17.
Félag framsóknarkvenna | Jólafundur FFK
verður 6. des. kl. 20 á Hverfisgötu 33, M.a.
mæta Guðni og Sigmundur Ernir og lesa upp úr
bókinni „Guðni af lífi og sál“. Veitingar, söngur
með harmoniku og trommu. Munið jólapakka
með málsháttum.
Félagsheimilið Gjábakki | Bossía kl. 9.30, gler-
list kl. 9.30 og kl. 13. Handavinna kl. 10, leiðbein-
andi verður til kl. 17. Félagsvist kl. 13. Viðtalstími
FEBK kl. 15-16. Bobb kl. 16.30. Línudans kl. 18,
samkvæmisdans kl. 19, Sigvaldi kennir.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Myndlist kl.
9.05, ganga kl. 10, hádegisverður kl. 11.40,
postulínsm. kl. 13, kvennabrids kl. 14. 10 ára af-
mæli í Gullsmára, Sólveig Ragnarsdóttir sópran
syngur, undirl. Ivona Ösp. Gamanmál að hætti
heimamanna o.fl. Gestur Aðalsteinn Sigfússon
félagsmálastj. Afmæliskaffi fyrir gesti.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Vatns-
leikfimi kl. 8, kvennaleikfimi kl. 9, 9.45 og 10.30,
brids og bútasaumshópur kl. 13, miðar á jóla-
gleði FEBG seldir í Jónshúsi kl. 10-16 og í Garða-
bergi kl. 13-15.
Furugerði 1, félagsstarf | Bókband kl. 9, létt
leikfimi kl. 13.15, barnakór Breiðagerðisskóla
syngur undir stjórn Sigrúnar Erlu Hákonardótt-
ur kl. 14.15. Aðventuskemmtunin á fimmtudag
kl. 20.
Hraunbær 105 | Handavinna og útskurður kl. 9,
ganga kl. 11, hádegismatur kl. 12, brids kl. 13,
kaffi kl. 15. Hárgreiðslustofan Blær opin alla
daga sími 894-6856.
Hraunsel | Morgunrabb kl. 9, handmennt-gler
kl. 10-16, pútt á Keilisvelli kl. 10, línudans kl. 11,
saumar kl. 13, pílukast kl. 13.30, Gaflarakórinn
kl. 16.15.
Hvassaleiti 56-58 | Opin vinnustofa kl. 9-16
hjá Sigrúnu, jólasokkar, taumálun, glermálun
o.fl. Jóga kl. 9-12, Sóley Erla. Samverustund kl.
10.30, lestur og spjall. Böðun fyrir hádegi. Há-
degisverður kl. 11.30. Fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 | Jólafundur bókmenntahóps
11. des. kl. 20. Jólahlaðborð 14. des. kl. 17, verð
3.800 kr. Jólaheimsókn leikskólans Jörva 20.
des. Skapandi skrif á mánud. kl. 16. Allir vel-
komnir.
Íþróttafélagið Glóð | Pútt í Sporthúsinu í Dals-
mára kl. 9.30-11.30. Ringó í Smáranum kl. 12.
Línudans í Húnabúð, Skeifunni 11, kl. 17. Uppl. í
síma 564-1490.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun fimmtudag kl.
10 er keila í Keiluhöllinni í Öskjuhlíð. er Lista-
smiðjan á Korpúlfsstöðum er opin kl. 13-16.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkrunarfræð-
ingur frá heilsugæslunni kl. 10.30, leikfimi kl. 11,
handverksstofa opin kl. 13, kaffiveitingar kl.
14.30, bingó kl. 15.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan opin kl. 9-16, vinnu-
stofa í handmennt opin á sama tíma, Halldóra
leiðb. við kl. 9-12. Félagsvist kl. 14.
Sjálfsbjörg félag fatlaðra á höfuðborgarsvæð-
inu | Félagsvist í Hátúni 12, kl. 19.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla og fótaaðgerðir kl.
9-12, aðstoð v/böðun, kl. 9.15-16, handavinna kl.
10-12, sund kl. 11.45, hádegisverður kl. 12.15,
verslunarferð í Bónus kl. 13-16, tréskurður kl.
14.30-15.45, kaffiveitingar.
Þórðarsveigur 3 | Jólabingó 6. des. kl. 14.30,
kaffi og kökur á 300 kr.
Kirkjustarf
Bessastaðasókn | Foreldramorgunn er í Holta-
koti kl. 10-12, leikaðstaða fyrir börnin. Opið hús
hjá eldri borgurum í Litlakoti kl. 13-16. Sr. Jóna
Hrönn Bolladóttir kemur í heimsókn. Bæna- og
kyrrðarstund í Leikskólanum Holtakoti kl. 20-
21.
Breiðholtskirkja | Kyrðarstund kl. 12. Tónlist,
hugvekja, fyrirbænir. Léttur málsverður í safn-
aðarheimili eftir stundina. Kirkjuprakkarar 7-9
ára kl. 16. TTT 10-12 ára kl. 17. Æskulýðsfélag
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Bústaðakirkja | Starf eldri borgara í kirkjunni
jk, 13-16.30. Spilað, föndrað og gestur kemur í
heimsókn.
Dómkirkjan | Hádegisbænir kl. 12.10. Léttur há-
degisverður á kirkjuloftinu á eftir. Bænarefnum
má koma á framfæri í síma 520-9700 eða með
tölvupósti til domkirkjan@domkirkjan.is.
Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Alt-
arisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan
hádegisverð að lokinni stundinni. TTT fyrir 10-12
ára í Rimaskóla og Korpuskóla kl. 17-18.
Grensáskirkja | Samverustund aldraðra kl. 12
með mat og spjalli. Helgistund kl. 14.
Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8. Hugleið-
ing, altarisganga og morgunverður í safn-
aðarsal eftir messuna.
Hjallakirkja | Fjölskyldumorgunn kl. 10-12.
Kristniboðssalurinn | Háaleitisbraut 58-60.
Samkoma kl. 20. „Enginn er sem Guð faðir.“
Ræðumaður er Ragnar Gunnarsson. Guðlaugur
og Birna segja fréttir frá Eþíópíu. Kaffi eftir
samkomuna.
Laugarneskirkja | Foreldramorgunn kl. 10, um-
sjón hefur sr. Hildur Eir Bolladóttir. Gönguhóp-
urinn Sólarmegin leggur upp frá kirkjudyrum kl.
10.30.Kirkjuprakkarar kl. 14.30 (1.-4. bekkur).
Fermingarfræðsla fellur niður fram í janúar.
Neskirkja | Fyrirbænamessa kl. 12.15, prestur
sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús kl. 15, Þóra
Jónsdóttir ljóðskáld flytur hugleiðingu og les
ljóð. Kaffiveitingar á Torginu.
Vídalínskirkja Garðasókn | Foreldramorgunn
kl. 10-12.30. Tinna Gunnarsdóttir hjúkrunarfr. og
djáknanemi verður með fræðslu um „þung-
lyndi“.Kaffi og djús á boðstólum.
60ára afmæli. Í dag, mið-vikudaginn 5. desem-
ber, er Ásgeir M. Kristinsson
afi og forstöðumaður hjá
Vegagerð ríkisins, sextugur.
50ára afmæli. Í dag, mið-vikudaginn 5. desem-
ber, er Stefán S. Guðjónsson
framkvæmdastjóri fimmtíu
ára. Eiginkona Stefáns er
Helga R. Ottósdóttir hjúkr-
unarfræðingur. Þau hjónin
fagna tímamótunum í dag í
faðmi fjölskyldu og vina.
dagbók
Í dag er miðvikudagur 5. desember, 339. dagur ársins 2007
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að þér elskið hver annan, eins og ég hef elskað yður. (Jh.. 15, 12.)
Rannsóknastofa í kvenna- ogkynjafræðum við Háskóla Ís-lands býður til fyrirlestrarnæstkomandi fimmtudag kl.
12 í hátíðarsal Háskólans. Þar mun
Guðný Björk Eydal, dósent í fé-
lagsráðgjöf, flytja erindið Fyrirvinna og
fjölskyldur – Svipmyndir af íslenskri
fjölskyldustefnu.
„Fyrirlesturinn fjallar um íslenska
fjölskyldustefnu eins og hún birtist okk-
ur í lögum frá Alþingi,“ segir Guðný,
sem hefur rannsakað þetta svið sér-
staklega.
„Ég fjalla um fjölskyldustefnu frá
sögulegu sjónarhorni og byrja fyrir tæp-
lega 100 árum þegar verið var að setja
sifjalöggjöf, um hjónaband og réttindi
og skyldur í hjónabandi. Þá mótuðum
við, eins og hinar Norðurlandaþjóðirnar,
mjög framsækna löggjöf sem byggðist á
réttindum karls og konu sem tveggja
jafnrétthárra einstaklinga, en á þeim
tíma voru ráðandi sjónarmið feðraveldis
í sifjalöggjöf anarra ríkja,“ segir Guðný.
„Önnur löggjöf þróaðist hins vegar hæg-
ar og var sýn löggjafans, t.d. í almanna-
tryggingalögum til 1970 og skattalögum
til 1958, sú að karlmenn væru fyr-
irvinnur og konur í flestum tilvikum
giftar heimavinnandi mæður sem hefðu
skyldum að gegna við fjölskylduna sem
húsmæður.“
Miklar framfarir verða síðan í sifja-
löggjöf í nútímanum: „Bæði byrjar lög-
gjafinn að gera ráð fyrir fjölbreyttari
fjölskylduformum og veitir fjölskyldum
samkynhneigðra lagaleg réttindi. Þá er
einnig lögð aukin áhersla á rétt barna til
beggja foreldra og með barnalögum
1981 er börnum tryggður réttur til um-
gengni og umönnunar beggja foreldra
og á síðasta ári varð sameiginleg forsjá
að meginreglu við skilnað,“ segir Guðný.
„Enn má þó finna ákveðið ósamræmi í
löggjöfinni. Þannig miðast stuðningur
hins opinbera við foreldra við það for-
eldri sem barnið á lögheimili hjá, jafnvel
þótt foreldrar skipti umönnun jafnt á
milli sín, en svo skemmtilega vill til að
nýlega var lagt fram frumvarp á Alþingi
sem leggur til breytingar á þessu.“
Fyrirlestur fimmtudagsins er öllum
opinn og aðgangur ókeypis. Finna má
nánari upplýsingar um viðburði á vegum
RIKK á heimasíðu rannsóknastofunnar
á slóðinni http://rikk.hi.is.
Jafnrétti | Fyrirlestur á vegum RIKK í hátíðarsal HÍ á fimmtudag kl. 12
Fjölskyldustefna í mótun
Guðný Björk Ey-
dal fæddist á Ak-
ureyri 1962. Hún
lauk stúdentsprófi
frá MA 1982, BA-
gráðu og starfs-
réttindanámi í fé-
lagsráðgjöf frá Há-
skóla Íslands 1986,
meistaranámi frá
Gautaborgarháskóla 1993 og dokt-
orsnámi frá sama skóla 2005. Guðný
starfaði sem félagsráðgjafi áður en hún
hóf störf við HÍ 1999, fyrst sem lektor
og dósent frá 2006. Sambýlismaður
Guðnýjar er Tómas Björn Bjarnason
ráðgjafi og eiga þau tvo syni.
Tónlist
Hafnarborg | Ingveldur Ýr Jóns-
dóttir messósópran og Antonía
Hevesi á píanó. Ingveldur Ýr
Jónsdóttir er gestur hádegistón-
leikanna og kemur hún fram í
fyrsta sinn opinberlega sem
sópran og flytur sópranaríur.
Langholtskirkja | Jólatónleikar
Tónskóla þjóðkirkjunnar verða
dagana 8. og 14. des. kl. 17. Á tón-
leikunum koma fram nemendur
skólans og flytja fjölbreytta efnis-
skrá.
Organ | Hljómsveitin The End
spilar á tónleikum kl. 21. Ókeypis
aðgangur.
Reykholtskirkja | Jólatónleikar
Freyjukórsins undir stjórn Zsuz-
sönnu Budai, verða 6. desember
kl. 20. Gestir kórsins verða Páll
Óskar Hjálmtýsson og Monika
Abendroth hörpuleikari. Flutt
verða hátíðleg verk og jólalög.
Tónberg – Salur Tónlistarskól-
ans | Grundartangakórinn og
Kvennakór Hafnarfjarðar halda
sameiginlega jólatónleika kl. 20.
Á dagskrá eru innlend og erlend
jólalög ásamt klassískum verkum.
Miðar seldir við innganginn,
miðaverð er 1.500 krónur.
Skemmtanir
Aflagrandi 40 | Jólafagnaður 7.
desember. Húsið opnað kl. 18.
Fordrykkur og jólahlaðborð. Sen-
jórítukórinn flytur jólalög. Guðrún
Stephensen flytur jólasögu.
Ræðumaður kvöldsins er Helgi
Hjörvar. Miðaverð 3.300 kr.
Mannfagnaður
Kvenréttindafélag Íslands |
Jólafundur félagsins verður hald-
inn í samkomusal Hallveigarstaða
við Túngötu, kl. 20. Lesið verður
úr nýútkomnum bókum, tónlist
og jólahappdrætti – vinningar.
Úthlíð í Biskupstungum | Að-
ventukvöld í Úthlíðarkirkju og í
Réttinni 6. desember kl. 20. Í
kirkjunni syngur Karlakór Selfoss
og sr. Sigurður Sigurðarson
vígslubiskup flytur bæn. Í Rétt-
inni leikur Valdimar Bragason á
flautu, Björn Sigurðsson segir frá
jólahaldi í Úthlíð fyrir 60 árum og
Karlakór Selfoss syngur. Aðgang-
ur ókeypis en veitingar að hætti
hússins verða til sölu á vægu
verði.
Fyrirlestrar og fundir
Aflagrandi 40 | Súpa og brauð í
félagsmiðstöðinni 6. desember
kl. 12.15, Vilborg Dagbjartsdóttir
rithöfundur heldur erindi. Fé-
lagsmiðstöðin býður öllum sem
starfa í Vesturbænum upp á að
hittast yfir súpu, brauði.
Barnaheill – Save the Children á
Íslandi | Hvernig eru starfsstéttir
sem vinna með börnum, eða að
málefnum þeirra, búnar undir það
að takast á við mál tengd kyn-
ferðislegu ofbeldi gegn börnum?
Hvernig búa íslenskir háskólar
nemendur sína undir slíkt?
Barnaheill boðar til hádeg-
isfundar um þessi mál, í Korn-
hlöðunni kl. 12-13.
Geðhjálp | Túngötu 7. Fé-
lagsfælnihópur Geðhjálpar kemur
saman kl. 20-21.30. Allir sem
eiga eða hafa átt við félagsfælni
að stríða eru velkomnir.
Náttúrufræðistofnun Íslands |
Fræðsluerindi í Möguleikhúsinu
við Hlemm kl. 12.15-13. Freydís
Vigfúsdóttir líffræðingur flytur
erindið: Sjófuglar í breytilegu um-
hverfi. Nánari umfjöllun á http://
ni.is/midlun-og-thjonusta/
hrafnathing/greinar//nr/690.
Fréttir og tilkynningar
AA-samtökin | Neyðarsími AA-
samtakanna er 895-1050.
Blóðbankinn | Blóðbankabíllinn
verður við Fjarðarkaup 6. desem-
ber kl. 13-17.
Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur
| Matar- og fataúthlutun kl. 14-17
að Hátúni 12b, sími 551-4349,
netfang maedur@simnet.is
NORRÆNA félagið og Hjálp-
ræðisherinn í samstarfi við
verslanir í miðborg Reykja-
víkur, MS, Nóa-Síríus og
Kötlu bjóða alla borgarbúa
og gesti höfuðborgarinnar
velkomna niður í miðbæ
laugardagana 8., 15. og 22.
desember milli kl. 14 og 18 til
þess að njóta góðrar stemningar, ljúfra veitinga og hátíð-
legs söngs.
Settar verða upp sjö stöðvar þar sem sjálfboðaliðar frá
Hjálpræðishernum og Norræna félaginu munu bjóða gest-
um og gangandi upp á heitt súkkulaði, piparkökur og
mandarínur. Kór Norræna félagsins, Vox Borealis, og söng-
fólk frá Hjálpræðishernum verða með söng og uppákomur.
Heitt súkkulaði og söngur
FRÉTTIR
AÐVENTUHÁTÍÐ verður haldin í Hásölum Hafnarfjarðarkirkju á
vegum Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og Hafnarfjarðarkirkju
á fimmtudag. Hefst hátíðin kl. 20.00 með því að gestum verður boð-
ið upp á kakó og piparkökur í Ljósbroti safnaðarheimilisins. Kl.
20.30 verður gengið í Hásali. Guðni Ágústsson, formaður Fram-
sóknarflokksins, flytur hugleiðingu. A capella-kór kirkjunnar
syngur undir stjórn Guðmundar Sigurðssonar kantors. Einleik á
flautu annast Gunnar Gunnarsson, skólastjóri..
Aðventuhátíð Krabbameins-
félags Hafnarfjarðar
FÉLAG um billjarð á Íslandi hefur áhuga á að byggja íþróttina upp
að danskri fyrirmynd. Félagið hefur óskað eftir samstarfi við fé-
lags- og íþróttayfirvöld í Reykjavík um stofnun klúbba sem gætu
orðið miðstöðvar fyrir skipulagt íþróttastarf á þessu sviði. Félagið
boðar til opins fundar um samstarfið og frekari uppbyggingu
greinarinnar sem almenningsíþróttar, fimmtudaginn 6. desember
kl. 17 í Félagsmiðstöðinni Aflagranda 40. Á vef Reykjavíkurborgar
má einnig nálgast upplýsingar um fundinn.
Billjarður fyrir almenning
GÓÐIR hálsar, stuðningshópur
um krabbamein í blöðruháls-
kirtli, og stuðningshópur
kvenna sem fengið hafa
krabbamein í eggjastokka,
verða með sameiginlegan
aðventufund í húsi Krabba-
meinsfélagsins í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík í dag, miðvikudaginn
5. desember, kl. 17.
Ýmislegt verður á dagskrá,
svo sem upplestur, tónlistarat-
riði og kynning á nýjum bók-
um.
Heitt súkkulaði og smákökur
verða á boðstólum. Aðstand-
endur eru boðnir sérstaklega
velkomnir á þessa aðventusam-
komu.
Aðventufundur
stuðningshópa Hæsti styrkur
Hæsti styrkurinn til menningar-
verkefna sem menningarráð
Suðurlands úthlutaði um helgina
var 2 milljónir kr., ekki 3 millj-
ónir eins og misritaðist í frétt í
blaðinu í gær. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Ragnheiður
Jensína Bjarman
Í minningargrein eftir Sig-
urlaugu Sveinsdóttur Bjarman,
systur Ragnheiðar, misritaðist
að þau Marteinn Friðriksson
hefðu dvalið í Reykjavík fyrstu
hjúskaparár sín. Hið rétta er að
þau dvöldu á Akureyri þar til þau
fluttu til Ólafsfjarðar.
LEIÐRÉTT