Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 4
4 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Enn betra golf 3
Enn betra golf
Eftir
Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan
Íslandsmeistara
og golfkennara
Eftir Arnar Má Ólafsson
landsliðsþjálfara og
Úlfar Jónsson
margfaldan Íslandsmeistar
a
GOLF
ENN BETRABETRA
G
O
LF
A
rnar M
ár Ó
lafsson og Ú
lfar Jónsson
11/20/07 11:46:42 PM
Jólabók golfarans!
Borgartúni 23 · 105 Reykjavík · Sími: 512 7575 - www.heimur.is
eftir Arnar Má Ólafsson og Úlfar Jónsson
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
RÍKISSTJÓRNIN hefur kynnt að-
gerðir til að bæta kjör aldraðra og
öryrkja en aðgerðirnar verða lög-
festar á vorþingi. Í þeim felst m.a. að
skerðing tryggingabóta vegna tekna
maka verður afnumin frá og með 1.
apríl nk. Frítekjumark vegna at-
vinnutekna ellilífeyrisþega á aldrin-
um 67-70 ára verður hækkað í allt að
100 þúsund krónur á mánuði frá 1.
júlí nk. Skerðing lífeyrisgreiðslna
vegna innlausnar séreignasparnaðar
verður afnumin frá 1. janúar 2009.
Heildarkostnaður vegna aðgerða
ríkisstjórnarinnar er talinn munu
nema 2.700 milljónum króna árið
2008 og 4.300 milljónum á heilu ári
eftir það. Samanlagt nemur því
heildarkostnaður vegna ákvarðana
núverandi ríkisstjórnar til að bæta
kjör aldraðra og öryrkja um fimm
milljörðum króna á ársgrundvelli.
Þetta kom fram á blaðamannafundi
fimm ráðherra í Alþingishúsinu í
gær þar sem aðgerðirnar voru
kynntar.
„Ég legg áherslu á að þetta er
bara skref. Við erum alls ekki hætt.
Þetta er það sem við ráðum við að
gera núna í augnablikinu,“ sagði
Geir H. Haarde forsætisráðherra
þegar hann kynnti fyrirhugaðar að-
gerðir ríkisstjórnarinnar.
Mikil réttarbót að afnema
tekjutengingu við maka
„Ég er afskaplega stolt af því
skrefi sem hér er stigið í þá veru að
bæta kjör aldraðra og öryrkja,“
sagði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra og minnti á að í
stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
væri kveðið á um að málefni yngstu
og elstu kynslóðanna skyldu sett í
forgang. Benti hún á að nýkynntar
aðgerðir fælu í sér miklar réttarbæt-
ur fyrir aldraða og öryrkja og vísaði
þar m.a. til þess að afnema ætti
skerðingu tryggingabóta vegna
tekna maka. „Við teljum að þetta sé
gríðarlega mikilvæg réttarbót fyrir
þessa hópa og í samræmi við nú-
tímahugmyndir um það að allir ein-
staklingar séu fjárhagslega sjálf-
stæðir.“ Fram kom í máli
Ingibjargar að ríkisstjórnin teldi
mikilvægt að upplýsa með góðum
fyrirvara um afnám skerðingar líf-
eyrisgreiðslna vegna innlausnar sér-
eignasparnaðar þótt sú aðgerð gæti
ekki komið til framkvæmda fyrr
vegna tæknilegra annmarka. Benti
hún á að fólk hefði nú tök á að fresta
því að leysa út séreignasparnað sinn.
Jóhanna Sigurðardóttir félags-
málaráðherra minnti á að margir
hefðu komið að vinnu tillagnanna
sem nú væru fram komnar. Þeirra á
meðal væru hagsmunasamtök aldr-
aðra og öryrkja sem og aðilar vinnu-
markaðarins, þ.e. ASÍ og BSRB.
Sagði hún verulegan hluta þeirra til-
lagna sem finna mætti í stjórnar-
sáttmálanum og sneru að lífeyris-
þegum vera í höfn með nýkynntum
aðgerðum. Minnti hún á að stóra
málið væri síðan yfirstandandi vinna
við heildarendurskoðun almanna-
tryggingakerfisins með það fyrir
augum að frekari aðgerðir til að
bæta kjör aldraðra og öryrkja kæmu
til framkvæmda á árunum 2009 og
2010.
„Þetta sýnir að þessi ríkisstjórn
mun ekki bara tala, heldur líka
framkvæma. Ég held að hér hafi
verið unnin afskaplega góð vinna á
tiltölulega stuttum tíma. Það eru
mörg úrlausnarefni framundan en
þetta gefur hins vegar mjög skýran
tón um áherslur þessarar ríkis-
stjórnar,“ sagði Guðlaugur Þór
Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Árni M. Mathiesen fjármálaráð-
herra tók undir þetta og sagðist líta
svo á að ríkisstjórnin væri að stíga
stórt skref í málaflokknum með
þessum aðgerðum sínum. Aðspurður
sagði hann innistæðu fyrir hluta að-
gerðanna á komandi fjárlögum. „Við
munum síðan leggja til við fjárlaga-
nefndina við þriðju umræðu að út-
gjöldin verði aukin um rúman millj-
arð frá því sem er í frumvarpinu.“
5 milljarðar á ári til að bæta
kjör aldraðra og öryrkja
Morgunblaðið/Ómar
Styrkir stöðu aldraðra og öryrkja Jóhanna Sigurðardóttir, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Geir H. Haarde
kynntu aðgerðir ríkisstjórnar til að bæta kjör aldraðra og öryrkja. Aðgerðirnar taka gildi á næsta ári.
JÓLAMÁNUÐURINN kallar á hreingerningar á ýms-
um sviðum, allir vilja komast í jólabaðið og heimilið
þarf nánast að skína eftir skrúbb á jafnt gólf sem veggi.
Ekki má svo heimilisbíllinn verða útundan. Eitt af því
sem fylgir söltun gatna yfir vetrarmánuðina er sjáan-
legri óhreinindi á bílum og því finnst mörgum nauðsyn-
legt að leggja leið sína reglulega á bílaþvottastöðvar í
skammdeginu.
Bílaþvottur í skammdeginu
Morgunblaðið/Golli
Skerðing tryggingabóta vegna tekna maka verður afnumin 1. apríl nk.
Áætlaður kostnaður er 1.350 milljónir kr. árið 2008 og 1.800 m.kr. á heilu
ári eftir það. Gripið verður til sérstakra aðgerða til að draga úr of- og van-
greiðslum tryggingabóta frá og með 1. apríl 2008. Áætlaður kostnaður er
345 m.kr. árið 2008 og 460 m.kr. á heilu ári.
Vasapeningar vistmanna á stofnunum verða hækkaðir úr 28.500 í 36.500
kr. á mánuði frá 1. apríl 2008.
Frítekjumark vegna atvinnutekna ellilífeyrisþega á aldrinum 67-70 ára
verður hækkað í allt að 100 þús. kr. á mánuði frá 1. júlí 2008. Jafnframt
mun ríkissjóður tryggja að ellilífeyrisþegar fái að lágmarki 25 þús. kr. á
mánuði frá lífeyrissjóði frá 1. júlí 2008. Aðgerðir sem skila öryrkjum sam-
bærilegum ávinningi verða undirbúnar í tengslum við starf framkvæmda-
nefndar um örorkumat og starfsendurhæfingu. Áætlaður kostnaður er
1.000 m.kr. árið 2008 og 2.000 m.kr. á heilu ári.
Aðgerðir ríkisstjórnar
Ríkisstjórnin
kynnir aðgerða-
áætlun til að bæta
stöðu aldraðra og
öryrkja
Í HNOTSKURN
» Í stefnuyfirlýsingu rík-isstjórnarinnar er lögð
áhersla á að styrkja stöðu aldr-
aðra og öryrkja með því að
draga úr tekjutengingum og
skerðingu bóta í almannatrygg-
ingakerfinu.
» Unnið er að heildarend-urskoðun almannatrygg-
ingakerfisins með það fyrir aug-
um að frekari aðgerðir til að
bæta kjör aldraðra og öryrkja
komi til framkvæmda á árunum
2009 og 2010.
Reynir Ingi-
bjartsson, for-
maður AFA, að-
standendafélags
aldraðra sagði í
samtali við Morg-
unblaðið í gær-
kvöldi að málið
væri nýtilkomið
og félagið ekki í
aðstöðu til að
bregðast við að
svo komnu máli. Félagið myndi fara
yfir málið og tjá sig um það á blaða-
mannafundi sem það hefur boðað í
dag.
AFA stendur ásamt öðrum hags-
munasamtökum aldraðra fyrir
blaðamannafundi í dag þar sem
ræða á lokaafgreiðslu fjárlaga fyrir
árið 2008 og brýna þörf á auknu fjár-
magni vegna búsetu- og kjaramála
aldraðra.
Reynir bendir á að þótt sér lítist
ekki alls illa á aðgerðir þær sem rík-
isstjórnin kynnti í gær í málefnum
aldraðra þá sé langt frá því að þær
leysi allan vandann í málaflokknum.
Leysir ekki
allan vandann
Reynir
Ingibjartsson
„Í FLJÓTU
bragði er hér um
mjög jákvætt
skref að ræða og
framfaraspor,“
segir Sigursteinn
Másson, formað-
ur Öryrkja-
bandalags Ís-
lands (ÖBÍ) og
vísar þar sér-
staklega til af-
náms skerðingar vegna tekna
maka.
Sigursteinn fagnar einnig breyt-
ingunni sem gera eigi á frí-
tekjumarkinu, en í yfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar kemur fram að hún
nái til atvinnutekna ellilífeyrisþega
á aldrinum 67–70 ára. Í samtali við
Morgunblaðið segist Sigursteinn
vænta þess að sambærilegt frí-
tekjumark verði útfært fyrir ör-
yrkja líka og vísar þar til þess að
ekki sé hægt að skilja tillögur ráð-
gjafahóps félagsmálaráðherra um
almannatryggingar öðruvísi en svo
að finna eigi leiðir sem gilda eigi
jafnt um aldraða og öryrkja.
Að sögn Sigursteins hefði hann
vilja sjá sumar aðgerðirnar koma
til framkvæmda fyrr á árinu 2008.
„En á svona degi verður maður að
gleðjast yfir því sem náðst hefur.
Hins vegar á varðandi öryrkja eftir
að útfæra ákveðna mikilvæga þætti
og því er of snemmt að fagna mik-
ið. Vonandi hef ég ástæðu til að
gera það í sumar,“ segir Sig-
ursteinn.
Jákvætt skref
Sigursteinn
Másson