Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ ALÞINGI         !"   #$%&'&                                            BÁTASMIÐJAN Trefjar í Hafn- arfirði hefur lokið smíði nýs Cleo- patra báts sem seldur var til Dublin á Írlandi. Báturinn er af nýrri gerð Cleopatra 33 báta sem Trefjar hafa hannað. Báturinn hefur hlotið nafnið Kal- igarian J. Útgerðarmaðurinn er Ro- bert Creedon og mun hann sjálfur róa. Gert er út frá Dublin og er bát- urinn útbúinn til gildruveiða. Uppi- staða aflans er beitukóngur allt árið um kring en einnig mun báturinn stunda veiðar á töskukrabba. Báturinn er 11 brúttótonn. Rými er fyrir fjórtán 380 lítra kör í lest. Í vistarverum er svefnpláss fyrir þrjá ásamt eldunaraðstöðu. Gerir út á beitu- kóng frá Dublin Til veiða Bátur frá Trefjum verður gerður út frá Dublin í Írlandi. ÚR VERINU HLUTFALL línu í þorskafla hefur vaxið úr 11 í tæp 36% á 25 árum, samkvæmt samantekt Fiskistofu. Á sama tíma hefur hlutfall netanna í þorskaflanum minnkað úr 33,5% í tæp 12%. Í meðfylgjandi töflu sést hvernig hlutfallsleg skipting þorskaflans hefur verið milli einstakra veiðar- færa síðastliðin 25 ár. Stærsti hluti aflans er veiddur í botnvörpu. Hlutfall botnvörpunnar var 52 til 60% aflans á níunda ára- tugnum en hefur síðan farið minnk- andi og er nú tæp 44%. Í netin kom þriðjungur þorskafl- ans við upphaf þessa tímabils en það hlutfall hefur smám saman minnkað og var komið niður í tæp 12% á síðasta ári og hefur aldrei verið lægra. Á níunda áratugnum voru um og innan við 10% þorskaflans veidd á línu. Hlutfallið hefur aukist ár frá ári og var á síðasta ári komið í 35,7%. Handfæraaflinn er nú svip- aður og fyrir 25 árum, rétt innan við 3% en á tímabili var 12% aflans dreginn á handfæri. Þá hefur hlut- fall dragnótarinnar aukist og hefur verið 5-6% síðustu ár. Hlutfall línu aukist á kostnað neta GLASAFRJÓVGANIR hafa skilað árangri í rúmlega 40% tilvika frá því að slíkar aðgerðir voru fyrst gerðar hér á landi í upp- hafi 10. áratug- arins. Þetta kom fram í svari Guð- laugs Þórs Þórð- arsonar, heil- brigðisráðherra, við fyrirspurn Steinunnar Val- dísar Ósk- arsdóttur, þing- manns Samfylkingarinnar á Alþingi í gær en sl. sextán ár hafa fæðst tæplega 1.700 börn, sem getin voru með tæknifrjógvun. Fyrst um sinn fóru aðgerðirnar fram á Landspítalanum en árið 2004 var gerður samningur við fyrirtækið Art Medica og sagðist Steinunn Val- dís hafa áhyggjur af því að hlutdeild para í kostnaði hefði aukist, sem væri ekki eðlilegt enda væri ófrjó- semi skilgreind sem sjúkdómur. Góður árang- ur af glasa- frjóvgunum Guðlaugur Þór Þórðarson VERKFÆLNI og slælegum vinnu- brögðum Vegagerðarinnar og metn- aðarleysi samgönguyfirvalda má kenna um stöðu mála varðandi samgöngur til Vestmannaeyja. Þetta er mat Árna Johnsen, þingmanns Sjálf- stæðisflokks, en Herjólfur er í slipp í tvo daga vegna bilunar. „Herjólfur er löngu kominn á aldur og bilanir eru mjög tíðar í skipinu,“ sagði Árni á þingi í gær og bætti við að nýtt skip væri nauðsynlegt. Kristján L. Möller, samgöngu- ráðherra, harmaði stöðuna en sagði skipið Selfoss mundu koma við í Eyj- um og að allt væri gert til að reyna að minnka skaðann. „Núverandi rík- isstjórn er auðvitað að vinna af full- um krafti að því að bæta samgöngur til Eyja,“ sagði Kristján. Verkfælni og metnaðarleysi Árni Johnsen TALIÐ er að aðgreining kynja með litum á fæðingardeildum hafi byrj- að á síðari hluta sjötta áratugarins en fram að því voru nýfædd börn klædd í hvítt. Þetta kom fram í svari Guðlaugs Þórs Þórðarsonar heilbrigðisráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur á Alþingi í gær. „Þegar leið á miðja síðustu öld fannst mörgum að umhverfið á fæðingardeildinni væri of stofn- analegt og smám fóru að koma lit- ir,“ sagði Guðlaugur og lýsti því að fyrst hefðu verið notaðir bleikir og bláir saumar í fötunum en að smám saman hefðu þau þróast í núverandi form. Að því er fram kom í máli Guðlaugs eru alls staðar í boði föt í öðrum litum en hann sagði jafn- framt að það kæmi ekki til greina af sinni hálfu að skipta sér af þess- um málum. Þingmenn VG veltu því upp hvort aðgreining kynjanna strax við fæð- ingu hefði áhrif á framkomu við börn, t.d. þannig að stúlkur fengju blíðlegra viðmót, og hvort hið op- inbera ætti að hefja hana á þennan hátt. „Hin kyngreinda veröld er af- skaplega föst í sessi,“ sagði Stein- grímur J. Sigfússon. Aðgreining kynja með lit- um hófst á sjötta áratug Morgunblaðið/Kristinn Litaval Kolbrún stakk upp á því að sleppt yrði endurnýjun á bláu og bleiku fötunum og séð hvort það breytti nokkru að notast við þau grænu og gulu. Eftir Höllu Gunnarsdóttur halla@mbl.is ORRUSTUFLUGVÉLUM sem taka munu þátt í loftrýmiseftirliti hér á landi verður í sjálfsvald sett hvort þær bera vopn eða ekki. Þetta kom fram í svari Ingibjargar S. Gísladóttur, utanríkisráðherra, við fyrirspurn Steingríms J. Sigfússon- ar, þingmanns VG, á Alþingi í gær. Ingibjörg sagði flugheri banda- lagsríkja NATO hafa mjög mismun- andi reglur um hvort vélar í eftirlits- flugi væru vopnaðar eða ekki. T.d. væru flugvélar Bandaríkjanna og Breta yfirleitt ekki vopnaðar en vél- ar Frakka og Spánverja væru það ævinlega. Þá sagði Ingibjörg að gert væri ráð fyrir að hér á landi yrðu til- tækar geymslur fyrir vopn flugvéla. Ekki öryggi í vopnuðum vélum Steingrímur sagði ljóst að engin sjálfstæð stefna hefði verið mótuð hér á landi heldur aðeins tekið við því sem NATO hefur ákveðið eða hentar einstaka aðildarríkjum. „Þetta eru mér mikil vonbrigði og þetta er aft- urför frá því sem var,“ sagði Stein- grímur og vísaði til þess að flugvélar Bandaríkjahers voru ekki vopnaðar við eftirlit hér á landi. „Í ljósi þess líka að yfirlýstur tilgangur þessa eft- irlits og þessara æfinga er ekki sá að takast á við aðstæður á ófriðartím- um, þá spyr maður hvers vegna í ósköpunum er yfirhöfuð leyfður vopnaburður?“ spurði Steingrímur og taldi það ekki auka öryggi fólks að hafa „harðvopnaðar flugvélar á sveimi“ yfir höfði sér. Orrustuflugvélar mega vera vopnaðar í eftirliti Steingrímur J. segir enga sjálfstæða stefnu hafa verið mótaða Vilja gögn um söluna Langur tími fór í umræður um störf þingsins og síðan fundarstjórn for- seta í upphafi þingfundar í gær sem varð til þess að þingfundur stóð leng- ur fram á kvöld en ætlað var. Stjórn- arandstaðan gagnrýndi harðlega að þingmenn hefðu ekki fengið í hendur gögn um Þróunarfélag Keflavíkur- flugvallar en til stendur að ræða skýrslu forsætisráðherra um það í dag. Atli Gíslason,VG, sagði eignirnar hafa verið seldar með óeðlilegum hætti og vildi m.a. upplýsingar um sölusamninga sem voru gerðir vegna sölu eigna ríkisins á vellinum. Árni M. Mathiesen, fjármálaráðherra, sagði hins vegar að Ríkisendurskoð- andi teldi að um viðskiptamál væri að ræða og gögnin ættu því ekki að liggja alls staðar frammi. Nefndarmönnum þingnefnda stæði þó til boða að fara þangað og skoða gögnin. Í samkeppni Sigurður Kári Kristjánsson, Sjálf- stæðisflokki, vildi fá svör frá sam- gönguráðherra í gær um hvort hann hygðist koma í veg fyrir að Íslands- póstur væri í sam- keppni við einka- aðila. Sigurður tók prentmarkaðinn sem dæmi og sagði fyrirtækið hafa þá framtíð- arsýn að vinna ný lönd. Kristján L. Möller, samgöngu- ráðherra, sagði að Íslandspóstur hefði lengi verið í sam- keppni við einkaaðila, t.d. með dreif- ingu blaða og fjölpósts. Félagið væri rekið eins og hvert annað hlutafélag og ekki væri ástæða til að grípa til að- gerða. Stjórnarskrárnefnd Stjórnarflokkarnir hafa ekki tekið af- stöðu til þess hvort og hvernig eigi að halda starfi stjórnarskrárnefndar áfram, að því er fram kom í svari for- sætisráðherra við fyrirspurn Sivjar Friðleifsdóttur á þingi í gær. Nefndin var skipuð í ársbyrjun 2005 og skilaði af sér einni tillögu til stjórnarskrár- breytingar sl. vetur en sú tillaga hlaut ekki afgreiðslu. Dagskrá þingsins Þingfundur hefst kl. 10:30 í dag og þriðja umræða um fjáraukalög fyrir árið 2007 er á dagskrá. Sigurður K. Kristjánsson ÞETTA HELST …

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.