Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 29 ÞANN 27. nóvember síðastliðinn var Þróunarskýrsla Sameinuðu þjóð- anna 2007/2008 kynnt um allan heim. Félag Sameinuðu þjóðanna á Íslandi gekkst fyrir vel heppn- aðri kynningu hennar hér á landi í hátíðarsal Háskóla Íslands. Mikið var fjallað um skýrsl- una í fjölmiðlum og umræður urðu um hana á Alþingi. Eins og kunnugt er lenti Ísland í fyrsta sinn í efsta sæti á þró- unarlista SÞ. Þar er einkum tekið mið af þjóðartekjum á mann, ævilengd og mennt- unarstigi. Þessi nið- urstaða er ótvíræð vísbending um það að þrátt fyrir að auðnum sé mis- skipt hér á landi erum við samt með- al auðugustu þjóða heims. Það legg- ur okkur miklar skyldur á herðar í samfélagi þjóðanna. Baráttan við loftslagsbreytingar Efni þróunarskýrslunnar að þessu sinni er baráttan við loftslagsbreyt- ingar og þörfin á samstöðu manna um allan heim í þeirri baráttu. Þetta viðfangsefni kallar á samstöðu allra, ríkra þjóða jafnt sem snauðra, í að taka höndum saman í baráttunni gegn þeirri vá sem felst í hlýnun andrúmsloftsins. Undanfarið hafa fréttir borist af atburðum sem segja má að end- urspegli þann boðskap sem þróun- arskýrslan hefur nú að geyma. Ann- ars vegar voru það fréttir af fjórðu yfirlitsskýrslu vísindanefndar Sam- einuðu þjóðanna um loftslagsbreyt- ingar sem kynnt var í Valensíu á Spáni á dögunum. Þar er viðurkennt með ótvíræðum hætti að hlýnun and- rúmsloftsins af mannavöldum og þær afleiðingar sem fylgja, jafnt stórar sem smáar, séu staðreynd sem ekki verði umflúin. Hins vegar voru það fréttir af óveðursflóðum við Norðursjó og flóðum vegna fellibyljarins Sidr í Bangladess. Við Norðursjó var grip- ið til þeirra úrræða sem ríkidæmi og tækni gátu veitt, höfninni í Rotter- dam var einfaldlega lokað með risa- stórum flóðvarnarhliðum og í Bret- landi dugðu rándýrar flóðvarnir vel. Í Bangladess var aftur á móti engum flóðvörnum til að dreifa, enda hleyp- ur tala látinna þar á þúsundum og óskað hefur verið eftir alþjóðlegri aðstoð við milljónir manna sem eiga um sárt að binda eftir hamfarirnar. Þarna er því ólíku saman að jafna. Segja má að efni þróunarskýrsl- unnar hafi komið fram með beinum hætti í þessum fréttum. Ríkar þjóðir, sem að mestu hafa skapað vandann allt frá iðnbyltingu, geta gripið til ráðstafana í krafti auðs og tækni. Hinar sæta afleiðingunum, það er að segja þær þjóðir sem verst eru sett- ar í efnahagslegu og félagslegu tilliti, – en líka komandi kynslóðir sem óhjákvæmilega munu erfa vandann. Ef ekkert verður að gert má líka ætla að þróunarsamvinna um víða veröld sé í uppnámi og kjör þeirra sem lakast eru settir verði enn verri en ella, ýmist af völdum flóða eða þurrka, vatnsskorts eða takmark- aðra möguleika á að afla lífsvið- urværis. Þrátt fyrir að illa horfi í þessum málum eru til þau úrræði sem duga til að bregðast við þessari óheillaþró- un, úrræði sem grípa verður til á allra næstu árum, eigi þau að koma að gagni. Á það er lögð áhersla bæði í skýrslu vísindanefndarinnar og í þróunarskýrslunni. Kyoto-bókunin Í næstu viku hefur verið boðað til afar mik- ilvægs fundar alþjóða- samfélagsins á Balí í Indónesíu um framhald Kyoto-samkomulagsins um losun gróðurhúsa- lofttegunda. Heim- urinn væntir þess að árangur verði af þeim fundi. Og sá árangur veltur ekki síst á stefnu og vilja þeirra þjóða sem best eru settar í heiminum og í þeim hópi erum við Íslendingar svo ekki verður um villst. Heimurinn væntir því mikils af okkur. Við höfum efni á að taka á okkur byrðar til að sporna gegn þeirri óheillaþróun sem vænta má af völd- um loftslagsbreytinga. Við höfum meira að segja efni á að vera í far- arbroddi þeirra þjóða sem vilja sýna í verki að þær beiti sér í þessum mál- um. En til þess að svo megi verða þurfum við að líta í eigin barm, því staðreyndin er því miður sú, að þrátt fyrir að tróna á toppi þróunarlistans, erum við líka sú þjóð sem hleypir hvað mestu magni gróðurhúsa- lofttegunda út í andrúmsloftið. Við þurfum því að taka til í eigin ranni. Þróunarskýrsla Sameinuðu þjóðanna Tryggvi Jakobsson fjallar um þróunaraðstoð » Þróunarskýrslanfjallar að þessu sinni um loftslagsbreytingar og áhrif þeirra á lífskjör fólks um víða veröld. Tryggvi Jakobsson Höfundur er formaður Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi Fréttir í tölvupósti Beosound 3 Með BeoSound 3 getur þú spilað tónlist frá innbyggðu útvarpinu eða hlaðið hana inn stafrænt, hvar sem er í Bang & Olufsen hljómgæðum. Hlaðanleg rafhlaðan sem endist í allt að tíu tíma spilun gerir svo allar snúrur óþarfar. BeoSound 3 kostar 59.500 kr. Beovision 8 Við hönnun BeoVision 8 var tekið sérstakt tillit til hljómgæða enda var tækið hannað utan um öflugt hljómkerfið. Háskerpuskjár með speglunarvörn tryggir síðan bestu mögulegu gæði myndarinnar. BeoVision 8 fæst í 26” og 32”. Verð frá 279.000 kr. BeoCom 6000 BeoCom 6000 er þráðlaust símtæki sem einfaldar samskiptin á heimilinu. Síminn er einfaldur í notkun og hægt er að tengja allt að átta símtæki einni stjórnstöð. Stjórnstöðin sem hleður símann er glæsilega hönnuð úr burstuðu áli og fáanleg í tveimur útfærslum, til að hafa á borði eða festa á vegg. BeoCom 6000 kostar 37.500 kr.          Síðumúla 21, Reykjavík. Sími 581 1100. reykjavik@beostores.com www.bang-olufsen.com Gefðu nútímaklassík frá Bang & Olufsen í jólagjöf -hágæðaheimilistæki Kraftmiklar ryksugur fyrir öll heimili Verð frá kr.: 15.990 Miele ryksugurnar eru traustar og kraftmiklar. Þær eru með stillanlegu röri og mikið úrval fylgihluta er fáanlegt með vélini. Verið velkomin í glæsilegar verslanir Eirvíkur á Akureyri og í Reykjavík og kynnið ykkur Miele ryksugurnar. vi lb or ga @ ce nt ru m .is Suðurlandsbraut 20, Reykjavík | Baldursnes 6, Akureyri | Sími 588 0200 Miele ryksugur – litlar og liprar. www.eirvik.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.