Morgunblaðið - 06.12.2007, Síða 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 11
FRÉTTIR
www.xena.is
GLÆSIBÆ S: 553 7060
MJÓDDINNI S: 557 1291
HEITUSTU
SKÓRNIR
Í DAG
Vandaðir, fallegir fóðraðir
m e ð e k t a g æ r u s k i n n i
St: 36-41
VELDU VANDAÐ EKTA UGG
Villeroy & Boch / kringlunni / 533 1919
Glæsilegir hör jóladúkar
og löberar frá Kardelen
Peysur
Ný sending
Verð kr. 3.990
Laugavegi 54
sími 552 5201
Hlý jólagjöf
M
bl
9
45
56
8
Í HÚSAKYNNUM Kvenréttinda-
félgs Íslands á Hallveigarstöðum
við Túngötu stendur nú yfir sýning
sem varpar ljósi á sögu félgsins síð-
ustu hundrað árin. Sýningin var
opnuð í gær við hátíðlega athöfn og
stendur fram yfir áramót með hléi
yfir bláhátíðarnar. Með sýningunni
er botninn sleginn í afmælisár fé-
lagsins en haldið hefur verið upp á
hundrað ára afmælið með hátíð í
janúar og ráðstefnu í júní. Á sýn-
ingunni gefst fólki kostur á að
skoða kröfuspjöld, ljósmyndir og
skjöl frá starfi félagsins allar götur
frá árinu 1907.
Við opnun sýningarinnar héldu
þær Þorbjörg I. Jónsdóttir, formað-
ur KRFÍ, og Auður Styrkársdóttir,
forstöðukona Kvennasögusafns
Reykjavíkur, erindi og Margrét
Sverrisdóttir, varaformaður félags-
ins, flutti ljóð sem Ólína Einars-
dóttir orti til þess á fyrri hluta síð-
ustu aldar. Ljóðið hefst svo:
Talið er merki þróttar þrátt
það að vera sonur,
en landið hefur löngum átt
líka sterkar konur.
Barðist fyrir frelsi hraust,
frónskur man það lýður,
Auður, sem að Eyjúlf laust,
ennþá höggið svíður.
Þó ljóstið ei nú með silfursjóð,
samt mun undan brenna,
ennþá hygg ég Auðar blóð
í Íslandsdætrum renna.
Sýningin er opin miðvikudaga til
sunnudaga frá klukkan 14-18, en
verður lokuð frá 22. desember til 3.
janúar.
Morgunblaðið/Frikki
Réttlæti Á sýningunni gefur meðal annars að líta kröfuspjöld.
Sýning um 100
ára sögu KRFÍ
NÝR sendiherra Frakka, Olivier
Mauvisseau, afhenti í fyrradag
Ólafi Ragnari Grímssyni trún-
aðarbréf sitt við formlega athöfn á
Bessastöðum. Mauvisseau tekur við
embætti sendiherra af Nicole
Michelangeli.
Mauvisseau hefur margoft komið
til Íslands og hefur mikinn áhuga á
landi og þjóð eftir því sem kemur
fram í tilkynningu frá sendiráðinu.
Hann starfaði áður í Osló og lærði á
þeim tíma að tala norsku. Und-
anfarið hefur hann einbeitt sér að
íslenskunámi til þess að undirbúa
störf sín hér á landi og hefur náð
ágætum tökum á málinu.
Þetta er fyrsta sendiherrastaðan
sem Mauvisseau gegnir. Hann er
menntaður í stjórnmálafræðum og
sérhæfði sig í náminu í pólitískum
og efnahagslegum rannsóknum á
Sovétríkjunum og Austur-
Evrópuþjóðum.
Nýr franskur sendiherra
FORSVARSMENN Bónusversl-
ananna biðja viðskiptavini að skila
pokum með teljósum sem seldir
hafa verið þar. Kertin eru seld 50
saman í glærum poka með bláum
og gulum merkingum. Strikamerk-
ið á pokanum er 20037932.
Kvörtun barst frá viðskiptavini
sem sagði kertin hafa orðið alelda
eða sprungið. Málið er í skoðun hjá
framleiðanda kertanna í Evrópu.
Innkalla kerti
Kerti Bónus innkallar teljós.