Morgunblaðið - 06.12.2007, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 19
MENNING
BÆKUR
Ævisaga
Guðni af lífi og sál. Saga þjóðar, manns
og stormasamra stjórnmála
Eftir Sigmund Erni Rúnarsson
Útgefandi: Veröld, Reykjavík 2007
424 bls, myndir
GUÐNI Ágústsson fyrrverandi
landbúnaðarráðherra er meðal
þekktustu og vinsælustu stjórn-
málamanna þessa lands. Hann
hefir löngum skorið sig nokkuð
úr í hópi stjórnmálamanna fyrir
sérkennilegt málfar og kímni-
gáfu, en er ræðumaður góður.
Þeir sem til hans þekkja segja að
hann sé einkar skemmtilegur í
viðkynningu og flestum hjálpfús-
ari.
Í þessari bók er ævihlaup
Guðna rakið þar til hann varð
formaður Framsóknarflokksins á
næstliðnu sumri, eftir ótrúlegan
og illskiljanlegan vandræðagang í
flokknum. Hann fæddist í sunn-
lenskri sveit, ólst upp á stóru
heimili og var dagleg önn hans
framan af ævi lík því sem gerðist
um fjölmarga Íslendinga af hans
kynslóð. Hann hóf ungur þátt-
töku í stjórn-
málum, var
kjörinn þing-
maður árið
1987 og fetaði
sig svo hægt
og bítandi upp
metorðastig-
ann, varð land-
búnaðarráð-
herra árið 1999
og gegndi því
embætti til vors 2007. Árið 2001
var hann kjörinn varaformaður
Framsóknarflokksins og hafði
það embætti á hendi uns hann
varð formaður.
Ekki er hægt að kalla þessa
bók ævisögu í eiginlegri merk-
ingu enda söguhetjan enn á besta
aldri og í fullu fjöri. Hún er nær
því að teljast minningabók og
frásögnin virðist nær alltaf höfð
eftir Guðna, þótt hún sé ekki í
fyrstu persónu. Þessi bók er
þannig í ætt við rit sem algengt
er að rituð séu um stjórn-
málamenn erlendis á meðan þeir
eru enn í starfi. Í útlöndum
skrifa svokallaðir „spin doctors“,
sem ef til vill mætti kalla rokka á
íslensku, gjarnan slíkar bækur og
tilgangurinn er öðru fremur að
styrkja ímynd söguhetjunnar
meðal kjósenda og eigin flokks-
manna. Í sumum tilvikum eru
þessar bækur málsvörn og ætlað
að bregða jákvæðu ljósi á fram-
göngu manna í erfiðum og um-
deildum málum.
Mér skilst af fréttum að þeir
Guðni og Sigmundur hafi hafist
handa á liðnu sumri, um það bil
eða skömmu eftir að Guðni varð
formaður flokks síns. Það má
heita undraskammur tími til rit-
unar bókar um svo margbrotið
efni sem hér er um fjallað, ís-
lenska stjórnmálasögu síðustu
áratuga. Því miður ber bókin
þess merki að vera unnin á
skömmum tíma. Hún er ekki vel
skrifuð, textinn ýmist marflatur
blaðamannatexti eða tilgerð-
arlegur og uppskrúfaður og fyrir
kemur að orð eru notuð í rangri
merkingu. Þannig er ríkisstjórn
Gunnars Thoroddsen kölluð
„ráðahagur“ Gunnars á bls. 205.
Orðið „ráðahagur“ merkir kvon-
fang, og í fornu máli einnig efna-
hagur. Margt var Gunnar Thor-
oddsen skammaður fyrir veturinn
1980 en aldrei var hann sakaður
um fjölkvæni. Annað dæmi um
sérkennilega málnotkun er á bls.
208 þar sem sagt er að Albert
Guðmundsson hafi verið „veðr-
aður af veraldarbrölti“. Aldrei
hef ég heyrt að fólk geti veðrast
(sumir uppveðrast að vísu yfir
eigin ágæti), en það gera t.d.
steinar og málning. Ýmis fleiri
dæmi mætti nefna um flausturs-
leg vinnubrögð og að menn hafa
komist í tímahrak. Þannig er
Freysteinn Jóhannsson blaða-
maður á Morgunblaðinu sagður
Guðmundsson í texta og aftur í
nafnaskrá.
Verst er þó að bókin er ein
samfelld lofrolla, í ætt við bisk-
upa- og heilagra manna sögur
miðalda, og lesandinn hlýtur að
fá þá hugmynd að Guðni Ágústs-
son hafi aldrei misstigið sig í líf-
inu. Það getur verið tilfellið, en
oft hefur þó verið á hann deilt og
ekki eru allar athafnir hans í ráð-
herraembætti óumdeildar. For-
vitnilegasti hluti bókarinnar er
lokakaflinn, þar sem segir frá
átökunum um fjölmiðlafrum-
varpið og síðan frá brotthvarfi
Halldórs Ásgrímssonar úr stjórn-
málum. Þar kemur þó næsta fátt
fram sem ekki var kunnugt áður.
Guðni Ágústsson á erfitt verk
fyrir höndum ef hann hyggst
hefja Framsóknarflokkinn til
fyrri vegs og virðingar. Þar verð-
ur þessi bók honum trauðla að
liði.
Jón Þ. Þór
Ný biskupasaga
Sigmundur Ernir
Rúnarsson
SAGA af bláu sumri eftir Þórdísi
Björnsdóttur (f. 1978) er fyrstu per-
sónu frásögn stúlku sem dvelst í
húsi ömmu sinnar yfir sumartím-
ann. Stúlkan kom með rútunni, ein á
ferð með gamla og lúna tösku og
pakka af kaffi, og ætlar augljóslega
að dvelja um hríð en tilgangurinn er
óljós. Stúlkan lætur hugann reika,
rifjar upp bernskuminningar um
ömmu sína, hlustar á klassíska tón-
list, sötrar kaffið og leggst í bað.
Einveran er yfirþyrmandi, stúlkan
fær kvíðahnút í magann yfir því einu
að þurfa að fara út í búð og mókir í
vitundarleysi á gólfinu eða undir
rúmi. Einhver undirliggjandi ógn er
á sveimi: „Sólarhringarnir siluðust
bland við græn-
an og gráan var
mér sýnilegur
þaðan sem ég
sat eins og ugla á
grein. Hljóðið
var notalegt
þegar létt kvöld-
golan lék um
laufblöðin ,
minnti mig á
framandi höf og
fjarlægja heima, en í miðjum niðn-
um heyrði ég sjálfa mig segja eitt-
hvað í hálfum hljóðum sem ég vissi
ekki alveg hvað var“ (51).
Stúlkan á Klukkusafninu, önnur
hlið eða annað sjálf sögumanns,
skrifar hugsanir sínar niður en hún
óttast að einhver muni stelast í bók-
ina og lesa hana (77). Það er einmitt
það sem hin stúlkan gerir þegar hún
laumast inn í hús úrsmiðsins en eftir
lesturinn fær hún nagandi sam-
viskubit og leggst í langt mók eftir
miklar geðshræringar. Í lokin er
eins og dauðinn sé í nánd, baðkerið
er fullt af heitu vatni, stúlkan hugsar
um orðin sem hún las í dagbókinni
„og fylltist mikilli auðmýkt gagnvart
þeim leyndardómi sem héðan í frá
yrði alltaf ósnertanlegur, en fæli
samt í sér óljósa minningu um eitt-
hvað ljúft og kvalafullt“ (125).
Sagan er þéttofin, stíllinn
áreynslulaus, ljóðrænn og fallegur
og minnir á kyrrleiksástríðuna í
skáldskap Gyrðis og Jóns Kalmans.
Í textanum eru undirliggjandi ógn
og dauði ásamt ást og fegurð og bók-
arkápan er í fullkomnu samræmi,
þar má sjá tvær stúlkur á gamalli
ljósmynd en andlit þeirra hafa verið
skorin burt af fullkomnu miskunn-
arleysi. Saga af bláu sumri er fyrsta
skáldsaga Þórdísar sem er vel kunn
fyrir ljóðagerð. Seintekin og sér-
kennileg skáldsaga um tíma, minn-
ingar, þráhyggju og leit, hún vekur
spurningar en svarar þeim ekki.
Steinunn Inga Óttarsdóttir
BÆKUR
Skáldsaga
Saga af bláu sumri.
Eftir Þórdísi Björnsdóttur
Bjartur, Reykjavík 2007, 125 bls.
áfram hægir og yfirvegaðir, en upp-
fullir af fyrirboðum“ (62). Dauðinn
er alls staðar, amman er nýlátin,
gamall úrsmiður vitjar leiðis konu
sinnar á hverjum degi og sögumað-
urinn sjálfur hefur séð drauga frá
unga aldri. Persónur sögunnar eru
allar nafnlausar og virðast hvorki
vera lífs né liðnar. Krabbamaðurinn
er óhugnanlegur, rödd hans er „ein-
kennilega hol líkt og hún bærist inn-
an úr helli þangað sem engin lifandi
manneskja hefði nokkurn tímann
stigið fæti, ekkert kvikt nema blóð-
maurar og sveltandi dýr“ (43).
Á Klukkusafninu er önnur (eða
sama?) stúlka en hún vinnur hjá úr-
smiðnum og nú upphefst laumuleg-
ur eltingarleikur þar sem raunveru-
leiki og fantasía renna saman í
undarlegri og þjáningarfullri þrá-
hyggju: „Í huganum sá ég stúlkuna
ganga burt og halda heimleiðis, og
jafnvel dökkblár augnlitur hennar í
Tími, minningar, þráhyggja
Þórdís
Björnsdóttir
BÆKUR
Ævisaga
Engin miskunn. El Grillo karlinn. Lífshlaup Ey-
þórs Þórissonar v/v
Skrásetjari: Tryggvi Harðarson
Útgefandi: Brokkur ehf, Hafnarfirði 2007
205 bls, myndir
LÍFSHLAUP Eyþórs Þórissonar er
ærið skrautlegt, svo ekki sé fastar að
orði kveðið, og margt hefur hann reynt
um dagana. Hann hefur verið veit-
ingamaður, þjónn á þekktum veit-
ingastöðum úti í heimi, kaupmaður, sjó-
maður og kannski
fyrst og fremst einn
allsherjar reddari.
Hann hefur alla tíð
verið kvensamur og
kvenhollur í betra
lagi og sjaldan setið
sig úr færi til að
njóta hins ljúfa lífs.
Oft hefur hann þén-
að vel um dagana og
haft mikla peninga á milli handa en jafn-
an tekist að losa sig við þá jafnharðan
aftur, enda mun það bjargföst skoðun
hans að peningar séu til að nota þá.
Hann hefur háð marga og harða glím-
una við Bakkus konung, oft orðið undir
en alltaf tekist að komast aftur á fæt-
urna. Þar hefur hann tíðum notið góðra
vina en maðurinn er vinmargur og sagð-
ur með afbrigðum hjálpfús.
Tryggvi Harðarson hefur tekið sér
fyrir hendur að skrá söguna af lífshlaupi
Eyþórs og tekist vel. Frásögn hans er
hröð og skemmtileg aflestrar og vísast í
stíl við viðfangsefnið. Eyþór hefur kom-
ið víða við um dagana og komið mörgu í
verk, þrátt fyrir allt. Hann er greinilega
einn þeirra sem hafa þann meðfædda
hæfileika að geta kjaftað fólk frá ráði og
rænu en kann líka vel sitt fag og hefur
gert marga góða hluti. Margir muna
hann vafalaust enn frá því hann rak
söluskálann á Geithálsi og á Seyðisfirði
hefur hann komið mörgum góðum hlut-
um í verk. Getur hann þó varla talist til
fyrirmyndar um neitt.
Þetta er skemmtileg bók um reyf-
aralega ævi. Með henni fylgir ávísun frá
Síldarbankanum upp á einn El Grillo
bjór á Kaffi Láru á Seyðisfirði og varla
verður það til að draga úr ferðamanna-
straumnum austur.
Jón Þ. Þór
Brokkgengur
lífskúnstner
Tryggvi Harðarson
Ármúla 21 • 108 Reykjavík • Sími 533 4040
kjoreign@kjoreign.is • www.kjoreign.is
Dan V.S. Wiium hdl., lögg. fasteignasali gsm 896 4013
Falleg 2ja herb. íbúð á 2. hæð (efri) Fallegar innréttingar og góðar svalir. Íbúðinni
fylgir bílskýli og geymsla. Toppeign á frábærum stað. Húsvörður. Lokaður garður.
Engin aldurskvöð. Íbúðin laus við kaupsamning. Verð. 23,9 millj.
Kristinn Valur Wiium Ólafur Guðmundsson
sölumaður s. 896-6913 sölustjóri s. 896-4090
ÁSHOLT - 105 RVK.
Steinsteypt tveggja hæða hús með sérstæðum bílskúr. Skráð stærð 216,5 fm, gólf-
flötur stærri. Vel staðsett eign, í botnlangagötu við óbyggt svæði. Barnvænt hverfi,
Elliðaárdalurinn við lóðamörkin. Hús í mjög góðu ástandi, einn eigandi frá upphafi.
Verð 54,9 millj.
NEÐSTABERG- 111 RVK.
jöreign ehf