Morgunblaðið - 06.12.2007, Side 26
neytendur
26 FIMMTUDAGUR 6. DESEMBER 2007 MORGUNBLAÐIÐ
mikil samevrópsk rannsókn, sem var
hluti af þátttöku Matís í SEAFOOD
plus-verkefninu, sem styrkt er af
Evrópusambandinu. Markmið rann-
sóknarinnar var að kanna hvort eld-
isþorskur, sem framleiddur var með
sérstöku tilliti til dýravelferðar ann-
ars vegar og hinsvegar framleiddur á
hefðbundinn hátt, hefðu mismunandi
gæðaeinkenni. Einnig var gerð neyt-
endakönnun til að kanna hvort neyt-
endur hefðu mismunandi smekk fyrir
þessum afurðum og hvort mismun-
andi upplýsingar um eldið hefðu áhrif
á hvernig neytendum geðjaðist að af-
urðunum. Upplýsingar af þessum
toga eru taldar mikilvægar fyrir þá,
sem stunda fiskeldi, vinna vörur úr
eldisfiski sem og seljendur.
Útlit, lykt, bragð og áferð
Á Íslandi var könnunin tvískipt.
Annars vegar komu rúmlega eitt
hundrað manns í höfuðstöðvar Matís
og smökkuðu á norskum eldisþorski
og hinsvegar fengu um sjötíu fjöl-
skyldur fisk með sér heim til að elda
og smakka. Sambærileg könnun var
gerð meðal neytenda í Hollandi og á
Spáni á sama tíma.
Eldisþorskurinn var flakaður og
frystur í Noregi og síðan sendur til
hinna landanna. Gæðaeinkenni eld-
isþorsks, sem slátrað hefur verið á
mismunandi hátt, geta verið mismun-
andi með tilliti til útlits, lyktar,
bragðs og áferðar. Þó að neytendur
geti greint þennan mun er oft erfitt
fyrir þá að koma orðum yfir hvers
eðlis munurinn er. Því voru þessi ein-
kenni greind af sérþjálfuðum skyn-
matshópi Matís. Dómararnir fundu
Fiskeldi er í stöðugri þróunog hefur vaxið töluvertvíðsvegar í heiminum. Bú-ist er við að aukning í fisk-
framleiðslu á heimsvísu muni koma
úr fiskeldi á næstu árum og því er
ekki óraunhæft að ætla að smekkur
og viðhorf neytenda muni í vaxandi
mæli hafa áhrif á þróun í fiskeldinu,
að sögn Emilíu Martinsdóttir, sviðs-
stjóra hjá Matís. Hún flutti fyr-
irlestur á haustráðstefnu Matís fyrir
skömmu þar sem hún velti fyrir sér
spurningunni af hverju fólk vildi helst
ekki leggja sér til munns stressaðan
eldisfisk.
Velferð dýra í fiskeldinu
Velferð dýra og umhverfisvæn
matvælaframleiðsla hefur í auknum
mæli vakið áhuga almennings á sama
tíma og áhersla hefur verið lögð á að
koma á reglugerðum um fiskeldi. Eitt
af þeim sjónarmiðum, sem hafa verið
í umræðunni, er einmitt velferð dýra í
eldisframleiðslu. Mikilvægt er því tal-
ið að kanna hvort mismunandi með-
ferð á fiski í tengslum við dýravelferð
hefur í raun áhrif á bragð og eig-
inleika afurðarinnar. Ef sú er raunin
gæti það haft áhrif á neytendur.
Haustið 2006 var framkvæmd viða-
mun á þorskinum eftir því hvernig
hann var framleiddur. Eldisþorskur,
sem framleiddur var með hefð-
bundnum aðferðum, reyndist hafa
flögukenndari og mýkri áferð og
minnti meira á villtan fisk, en eld-
isþorskur, sem framleiddur var með
sérstöku tilliti til velferðar dýra,
reyndist hafa kjötkenndari og seigari
áferð. Þeir neytendur, sem komu í
höfuðstöðvar Matís til að smakka
fisk, fengu að vita að fiskurinn, sem
þeir smökkuðu, væri norskur eld-
isþorskur, en engar upplýsingar voru
veittar um framleiðsluaðferðina.
Þessum hópi neytenda fannst eld-
isþorskur framleiddur með hefð-
bundnum aðferðum ívið betri en
þorskur, sem framleiddur var með
sérstöku tilliti til velferðar dýra.
Helst var það áferðin og lyktin, sem
þeim fannst betri af hinum hefð-
bundna eldisþorski.
Morgunblaðið/Jón Sigurðarson
Fiskeldið Kannað var hvort eldisþorskur, framleiddur með tilliti til dýravelferðar, hefði sérstök gæðaeinkenni.
Vilja frekar
óstressaðan fisk
Neytendum finnst
„stressaður“ eldisfiskur
álíka góður og „óstress-
aður“. Þó virðist ábata-
samt fyrir framleið-
endur að mæta
auknum kröfum um
velferð dýra. Jóhanna
Ingvarsdóttir kynnti
sér rannsókn þar sem
Íslendingar mátu
þorsk, framleiddan á
mismunandi hátt.
!"#$
%
!"#$
&#$
!"#$
(")#
*
landi en í þessu til-
tekna brauðgerð-
arhúsi. Víkverji hefur
ekki farið í stórmark-
aði eða lágvöruverðs-
verslanir að leita að
stollen.
x x x
Samanburður á verðisambærilegra
brauða í verslunum
tveggja brauðgerð-
arhúsa við fjölfarnar
götur í Berlín og
Reykjavík olli Víkverja
nokkrum áhyggjum af
sínu íslenska verð-
skyni.
Það er á almanna vitorði að
„brauðið dýra“ á sér fleiri hlið-
stæður. Reglulega rís umræða um
hátt vöruverð hér á landi og menn
skilja ekkert í því hvernig á því
stendur! Kaupmenn barma sér og
bera m.a. við háum flutningskostn-
aði. Á sama tíma spretta endalaust
upp nýjar búðir og útibú versl-
unarkeðja. Er það í þágu hag-
kvæmni að í sumum verslunum sýn-
ist manni vera fleira starfsfólk en
viðskiptavinir lungann úr vikunni?
Eins má spyrja hvort neytendur
kysu heldur lægra vöruverð eða of-
urlangan afgreiðslutíma verslana?
Víkverji var nýlegastaddur í Berlín.
Aðventunnar var farið
að gæta í brauðbúðum
og matvöruverslunum.
Þar mátti m.a. sjá hið
ágæta jólabrauð stol-
len. Víkverji stóðst
ekki mátið og snaraði
sér inn í eina brauð-
búðina og keypti girni-
legt stollen-brauð
hjúpað drifhvítum
vanillusykri. Brauðið
kostaði 3,95 evrur eða
um 360 íslenskar krón-
ur samkvæmt þágild-
andi gengi.
x x x
Kominn heim til Íslands fór Vík-verji í brauðbúð í Reykjavík
að kaupa með kaffinu. Þar var jóla-
baksturinn einnig kominn í hillur,
smákökur, jólakökur og viti menn –
girnileg stollen. Minnugur hins ljúf-
fenga stollen-brauðs í Berlín spurði
Víkverji hvað íslenska stollen-
brauðið kostaði. Jú, litlar 1.860
krónur! Það sló nokkuð á jólaskap
Víkverja og þann daginn var maul-
að eitthvað hversdagslegt en fok-
dýrt með kaffinu.
Eflaust má finna ódýrari stollen-
brauð í einhverjum verslunum hér á
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
• Fallegar íbúðir í þremur húsum á sjávarlóð í Sjálandi.
• Húsin eru hönnuð af Birni Jóhannessyni.
• Lyfta er í húsunum frá bílakjallara og upp í íbúðirnar.
• Stórglæsilegt útsýni.
• Fullbúnar - stærð 111 - 150 fm.
• Aðeins 8 íbúðir eftir.
LANGALÍNA 10-14 – TIL AFH. FYRIR JÓL
Sverrir Kristinsson, löggiltur fasteignasali.