Fréttablaðið - 11.04.2009, Page 1

Fréttablaðið - 11.04.2009, Page 1
HELGARÚTGÁFA Sími: 512 5000MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI11. apríl 2009 — 87. tölublað — 9. árgangur Tveir áratugir frá mesta íþróttaslysi í sögu Bretlands HILLSBOROUGH 20 RÖKSTÓLAPARIÐ 22 Sigurður Gísli Pálmason athafnamaður og framleiðandi Draumalandsins HELGARVIÐTAL 16 Katla Þorgeirsdóttir og Heimir Karlsson Mín Borg ferðablað Icelandair fylgir með Fréttablaðinu í dag. GEYMIÐ BLAÐIÐ FORDÓMAR GEGN FEITU FÓLKI Sigrún Daníelsdóttir sálfræðingur um líkamsímynd og átröskun. VIÐTAL 24 DAGUR TIL PÁSKA Áfram Skólahreysti! – AÐALSTYRKTARAÐILI SKÓLAHREYSTI Munið keppnina í kvöld á RÚV kl. 18 FRÉTTA- BLAÐIÐ RIFJAR UPP PÁSKAHÁTÍÐ- INA Á ÁRUM ÁÐUR HELGAREFNI 26 AUSTURRÍKI Kona var á fimmtudag sektuð um 360 evrur, eða rúmar 60.000 íslenskar krónur, fyrir að hringja 49 sinnum á dag í son sinn á tveggja og hálfs árs tíma- bili. Þetta kemur fram hjá frétta- stofu Reuters. Sonurinn höfðaði málið gegn 73 ára gamalli móður sinni í borg- inni Klagenfurt, sunnarlega í Austurríki. „Mig langaði bara til að tala við hann,“ sagði konan eftir dómsuppkvaðninguna. - kg Kona sektuð í Austurríki: Hringdi allt of oft í son sinn STJÓRNMÁL Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segist vonast til þess að mistök Geirs H. Haarde, sem lágu í að þiggja stórfé frá tveimur fyrir- tækjum, skaði flokkinn ekki í komandi kosningum. Hann segist vera að rannsaka málið og um leið og öll gögn liggi fyrir verði málið upplýst. Einnig hverjir áttu frum- kvæði að fjáröfluninni. „Ég hef verið að afla mér upp- lýsinga til að fá heildarmynd af atburðarásinni og er enn í þeirri vinnu. Ég skil vel að menn velti þessu fyrir sér. Það skiptir mestu að hjá Sjálfstæðisflokknum var ákveðið að veita þessu viðtöku af fyrrverandi formanni flokks- ins og hann hefur stigið fram og sagst bera ábyrgð á því. Það finnst mér mestu skipta varðandi þá stað- reynd að Sjálfstæðisflokkurinn þáði styrkina.“ Bjarni segir styrkina frá Lands- bankanum og FL Group hafa verið óeðlilega háa og ljóst að ákvörðun um þá hafi verið tekin af æðstu stjórnendum fyrirtækjanna. „Ég mun ekki geta svarað fyrir það sem nýviðtekinn formaður hvers vegna viðkomandi stjórnendur tóku þessa ákvörðun. Ég get mér þess til að það hafi haft um þá ákvörðun að gera að styrkveiting- ar í framtíðinni yrðu ekki nema upp á 300 þúsund krónur.“ Bjarni segir að flokknum muni veitast erfitt að finna fé til að endur greiða styrkina. Hann sé að vinna í því hvernig það verði gert. 184 þyrftu að leggja fram 300 þúsund króna hámarksstyrk til að hafa upp í milljónirnar 55. Þingflokkur Sjálfstæðisflokks- ins fundaði um málin í gærkvöldi. Bjarni segir það ekki hafa verið rætt að Guðlaugur Þór Þórðar- son viki af lista. „Hann hefur gert grein fyrir sínum hlut og það getur vel verið að hann þurfi að gera það eitthvað frekar. Ég tel að það sé mjög mikilvægt fyrir flokkinn og Guðlaug Þór að öll atburðarás sé skýr og liggi fyrir.“ Kjartan Gunnarsson, fyrrver- andi framkvæmdastjóri flokksins, kallaði í gær eftir því að þeir sem komu að styrkveitingunum stigu fram. Bjarni tekur undir það, enda eigi fjármögnun fyrir Sjálfstæðis- flokkinn ekki að vera leyndarmál. Bjarni segir Kjartan hafa skýrt sína aðkomu að málinu og staða hans sé því óbreytt. - kóp / sjá síðu 4 Segir að erfitt verði að endurgreiða styrkina Bjarni Benediktsson vonast til að þau mistök Geirs H. Haarde að þiggja stórfé frá tveimur fyrirtækjum skaði flokkinn ekki í kosningum. Verið sé að afla upp- lýsinga og málið verði skýrt á næstu dögum, líka hverjir öfluðu styrkjanna. Í GOLFI Í GJÓLUNNI Þessi nýttu föstudaginn langa til golfiðkunar á Korpuvelli í gærdag. Ætla má að margir landsmenn nýti frítíma sinn til að æfa sveifluna þessa dagana, enda verður golfíþróttin vinsælli með hverju árinu sem líður. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.