Fréttablaðið - 11.04.2009, Page 2
2 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
íslenskur ríkisborgari
www.okkarsjodir.is
Lífeyrissjóðirnir eiga að starfa í þágu þeirra sem greiða í þá.
Lífeyrisþegar geta ekki borgað sukk örfárra einstaklinga.
Við viljum endurskoðun á lífeyrissjóðakerfinu strax. Yfir 19.000
manns hafa þegar skrifað undir, stefnum á 25.000. Lífeyrissjóðirnir
eru okkar eign!
Jóhanna!
Valdið er í
þínum höndum!
Jónatan, fáið þið ekki yfirdrátt
hjá Gleðibankanum til að
redda betra hóteli?
„Þetta er svo glaður hópur að þess
þarf ekki.“
Íslenski Eurovision-hópurinn kemur til
með að gista á Cosmos, „frekar lélegu
meðalhóteli“ í Moskvu í maí, að sögn
Jónatans Garðarssonar, liðsstjóra.
FJÖLMIÐLAR Íbúar á Álftanesi geta
frá og með deginum í dag nálgast
Fréttablaðið í svokölluðum Frétta-
blaðskössum, sem hafa verið sett-
ir við götur og fjölfarna staði í
sveitarfélaginu.
Hætt var að bera Fréttablaðið í
hús á Álftanesi um síðustu mán-
aðamót. Var það liður í sparnað-
araðgerðum útgefanda blaðsins.
Að sögn Jóns Kaldal, ritstjóra
Fréttablaðsins, bárust mikil við-
brögð frá íbúum Álftaness. við
þeirri ákvörðun.
„Það er auðvitað slæmt að
þurfa að draga úr þjónustunni, en
eftir áföllin í efnahagslífi lands-
ins verðum við að gæta ítrasta
aðhalds við útgáfu blaðsins. Það
er á hinn bóginn gott að fá þessi
sterku viðbrögð. Það sýnir okkur
að fólk kann virkilega að meta
Fréttablaðið. Dreifingin með
Fréttablaðskössunum kemur
til móts við þá miklu eftirspurn
sem er eftir blaðinu,“ segir Jón
Kaldal.
Eins og áður sagði hafa Frétta-
blaðskassarnir verið settir upp
víða á Álftanesi. Að sögn Hann-
esar Hannessonar, framkvæmda-
stjóra Pósthússins, sem sér um
dreifingu blaðsins, verður endan-
leg staðsetning þeirra ákveðin í
samráði við bæjaryfirvöld og íbúa
á svæðinu. - kg
Íbúar á Álftanesi geta nú nálgast Fréttablaðið í Fréttablaðskössum:
Fréttablaðskassar á Álftanesi
■ Gatnamót Bæjarbrekku og Kirkjubrekku
■ Við innkeyrslu í Miðskóga
■ Við innkeyrslu í Brekkuskóga
■ Bjarnastaðavör, á móti bæjarskrifstofu
■ Við hornið á Lyngholti
■ Birkiholt 1
■ Asparholt 1
■ Þrír kassar við Vesturtún 7-25; 31-45; 40
■ Hólmatún 20-23 og 5-19
■ Sjávargata 26
FRÉTTABLAÐSKASSAR Á ÁLFTANESI
■ Túngata 12
■ Blikastígur
■ Tveir kassar við Norðurtún
■ Austurtún
■ Hátún
■ Suðurtún
■ Blátún
■ Nýja hverfið
■ Við leikskóla
■ Við sundlaug
■ Við íþróttamiðstöð
STJÓRNMÁL Samfylkingin fékk 5
milljóna króna styrk frá Kaup-
þingi árið 2006, en það var hæsti
einstaki styrkurinn sem flokkur-
inn fékk það árið. Samanlagt fékk
flokkurinn 36 milljónir króna
frá fimmtán fyrirtækjum. Bank-
arnir þrír studdu flokkinn allir,
Landsbankinn um 4 milljónir og
Glitnir um 3,5. Þá studdi Straum-
ur Burðarás flokkinn um 1,5
milljónir og Sparisjóður Reykja-
víkur lagði fram 1 milljón. Baug-
ur styrkti flokkinn um 3 milljónir
króna árið 2006.
Samfylkingin þáði styrki
að upphæð 45 milljónir króna
umrætt ár, 9 milljónir komu frá
einstaklingum.
Ársreikningar Samfylkingar-
innar frá stofnun hennar eru og
hafa um árabil verið aðgengi-
legir á vef hennar og má þar sjá
heildar yfirlit styrkja frá einstakl-
ingum og lögaðilum. Nöfn ein-
stakra styrktaraðila hafa hins
vegar ekki verið birt, fyrr en með
nýjum lögum árið 2007. - kóp
Samfylkingin upplýsir um styrki sem eru hærri en 500 þúsund krónur:
Fékk fimm milljónir frá Kaupþingi
STYRKIR YFIR 500 ÞÚSUND
Actavis hf. 3.000.000
Baugur Group hf. 3.000.000
Eignarhaldsfélag Samvinnutrygginga 1.000.000
Eimskipafélag Íslands 1.000.000
Exista ehf. 3.000.000
Eykt ehf. 1.000.000
FL Group hf. 3.000.000
Glitnir 3.500.000
Kaupþing 5.000.000
Ker hf. 3.000.000
Landsbanki Íslands 4.000.000
Milestone 1.500.000
SPRON 1.000.000
Straumur Burðarás 1.500.000
Teymi ehf. 1.500.000
Samtals 36.000.000
Fréttablaðið kemur næst út á
þriðjudag. Afgreiðsla blaðs-
ins er lokuð í dag og næstu tvo
daga. Afgreiðsla verður aftur
opin á þriðjudag. Þjónustu-
ver er opið frá klukkan 10 til
22 alla daga nema á morgun,
páskadag, en þá er opið til
klukkan 18.
Útgáfa Fréttablaðsins:
Kemur næst
út á þriðjudag
SAMFÉLAGSMÁL „Við Sigurður hitt-
umst um það bil einu sinni í viku,
keyrum saman í um 45 mínút-
ur, fáum okkur kannski ís eða
pylsu og kók,“ segir Hrönn Björg
Harðardóttir ökukennari. Sigurð-
ur Sigurðsson, sem er geðfatlað-
ur, á sér þann draum að taka bíl-
prófið aftur, en hann var með próf
áður en hann veiktist. Þangað til
það tekst fer hann reglulega í öku-
tíma hjá Hrönn.
Hrönn byrjaði að kenna Sigga,
eins og hann er kallaður, fyrir
nokkrum árum en ákvað fljótlega
að hætta að rukka fyrir tímana.
„Við erum bara bílavinir eins og
við köllum það,“ segir hún í sam-
tali við Fréttablaðið. Blaðamað-
ur og ljósmyndari þiggja stuttan
rúnt hjá Sigga og Hrönn og Leifur
Leifsson, vinur Sigga, er einnig
með í för, þau ætla öll að fá sér
ís á eftir.
„Hún Hrönn er fín,“ segir Sig-
urður sem má þó lítið vera að því
að ræða við blaðamann, hann
þarf að einbeita sér að akstrinum,
nema hvað. „Ég vann einu sinni
á lyftara í Áburðarverksmiðj-
unni, það verður að koma fram,“
bætir hann samt við. „Var ekki
nema nokkrar mínútur að setja
á hann.“
Hrönn hefur starfað sem öku-
kennari í fullu starfi í fimm ár, en
kennt á bíl í níu ár. Hún kennir á
tvenns konar bíla, annar þeirra er
sjálfskiptur og sérútbúinn fyrir
fatlaða og það er á honum sem
þau Sigurður rúnta um bæinn.
Hrönn segir það einfaldlega hafa
þróast að hún fór að hitta Sigurð
vikulega og taka hann í ökutíma
án þess að rukka fyrir. „Maður
hættir bara að rukka, mér finnst
þetta bara svo gaman og gefandi,“
segir hún. sigridur@frettabladid.is
Rúnta og fá sér ís
Ökukennarinn Hrönn Björg Harðardóttir og Sigurður Sigurðsson hittast reglu-
lega. Sigurður, sem er geðfatlaður, sest undir stýrið og þau rúnta um bæinn.
Framtíðarmarkmið hans er að taka bílpróf. Hrönn rukkar ekki fyrir tímana.
FÓLK „Við erum að byggja upp
nýtt samfélag, okkar eigið sam-
félag, og þetta hús verður notað
undir listsköpun og róttæka
starfsemi af ýmsu tagi,“ segir
Arnar Þórisson, meðlimur hóps
sem flutti inn í autt hús á Vatns-
stíg á laugardag.
Húsið hefur staðið autt nokkuð
lengi. Að sögn Arnars hefur hóp-
urinn eytt síðustu dögum við þrif
og tiltektir. „Kapítalistarnir sem
eiga húsið láta það grotna niður.
Það hlýtur að vera betur nýtt sem
félagsmiðstöð.“
Samkvæmt lögreglunni á höf-
uðborgarsvæðinu hafa engar
kvartanir borist frá eigendum
hússins vegna hústökunnar. - kg
Hústökufólk á Vatnsstíg:
Félagsmiðstöð í
auðu húsi
UMHVERFISMÁL Auglýst hefur
verið eftir tilboðum í byggingu
Gestastofu Vatnajökulsþjóðgarðs
á Skriðuklaustri. Húsið verður
reist samkvæmt vottuðum vist-
vænum byggingarstöðlum og
unnið verður samkvæmt stefnu
ríkisstjórnarinnar um vistvæn
innkaup.
Meðal markmiða við hönnun
byggingarinnar er að takmarka
neikvæð umhverfisáhrif, skapa
heilnæman vinnustað, minnka
rekstrarkostnað og stuðla að
góðri ímynd. Sömu hugmynda-
fræði er einnig beitt við bygg-
ingu þjóðgarðsmiðstöðvar á
Hellissandi. - kóp
Vatnajökulsþjóðgarður:
Umhverfisvott-
uð bygging
FÉLAGAR Á FERÐ Sigurður Sigurðsson ökunemi og Hrönn Björg Harðardóttir ökukennari búin að koma sér vel fyrir og reiðubúin í
reglubundinn vikulegan bíltúr. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VATNSSTÍGUR 7 Hópurinn hefur eytt
síðustu dögum í þrif og tiltekt.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
L‘AQUILA, AP Yngsta fórnarlamb
jarðskjálftans í Abruzzo-héraði
á Ítalíu í síðustu viku hefði orðið
fimm mánaða gamalt á morgun,
páskadag. Jarð-
arfarir 205 af
þeim 290 sem
létu lífið af
völdum skjálft-
ans fóru fram
í gær. Tveir
fundust látnir í
rústum í gær-
morgun.
Alls voru tut-
tugu af þeim
sem létust á barns- eða unglings-
aldri. Benedikt páfi XVI sendi
íbúum á svæðinu skilaboð þar
sem hann hvatti fólk til að halda
í vonina.
Yfir 800 eftirskjálftar hafa
mælst á svæðinu eftir stóra
skjálftann á mánudag, sem mæld-
ist 6,3 á Richter. Um 15.000
manns sem misstu heimili sín
búa nú í tjöldum víðsvegar um
héraðið. - kg
Jarðskjálftinn á Ítalíu:
Páfi sendi
íbúum skilaboð
BENEDIKT PÁFI
SPURNING DAGSINS