Fréttablaðið - 11.04.2009, Síða 21

Fréttablaðið - 11.04.2009, Síða 21
LAUGARDAGUR 11. apríl 2009 21 Miðvikudaginn eftir slysið á Hillsborough var forsíða götu- blaðsins The Sun undirlögð fyrirsögninni „Sannleikurinn“. Í umfjöllun sinni um Hillsborough vitnaði blaðið í nafnlausan heimildarmann sem hélt því fram að stuðningsmenn Liverpool á vellinum hefðu rænt peningaveskjum af þeim látnu, ráðist á lögreglumenn og sjúkraliða, migið á þá og fleira í þeim dúr. Löngu síðar, eða í júlí 2004, birti blaðið afdráttarlausa afsök- unarbeiðni vegna greinarinnar, þar sem fram kom að „mestu mistök í sögu blaðsins hefðu verið gerð“. Kelvin MacKenzie, þáverandi ritstjóri blaðsins, baðst afsökunar daginn eftir birt- ingu greinarinnar og aftur árið 1993, þegar hann sagðist sjá eftir öllu saman. Ástæða birtingarinnar hefði verið sú að nafnlausi heimildarmaðurinn sem vitnað var í hefði verið þingmaður breska Íhaldsflokksins. MacKenzie dró þessa afsökunarbeiðni til baka í nóvember 2006. Umfjöllun The Sun vakti upp mikla reiði fólks í Liverpool og víðar. Enn þann dag í dag neita margir stuðningsmenn liðsins að lesa blaðið, og sölutölur frá 2004 sýndu að The Sun seldist í einungis 12.000 eintökum á dag í Liverpool og nágrenni, 200.000 færri eintökum en tíðkaðist fyrir umfjöllun blaðsins um Hillsborough. „sannleikur“ the sun SANNLEIKURINN Aðdáendur Liverpool í Kop-stúkunni kröfðust sannleikans um Hillsborough fyrir bikarleik gegn Arsenal í janúar 2007. NORDICPHOTOS/AFP Yngsta fórnarlambið var hinn tíu ára gamli Jon-Paul Gilhooley, náfrændi Stevens Gerrard sem gegnir fyrirliðastöðu Liverpool í dag. Sá elsti sem lét lífið var hinn 62 ára John Alfred Anderson. Sorg á bökkum Mersey Þegar afdrif slyssins urðu ljós tók við þjóðarsorg í Englandi. Daglegt líf stöðvaðist að miklu leyti í Liverpool-borg og þúsund- ir heimsóttu Anfield Road, heima- völl Liverpool, sem var opnaður almenningi til að leita sér sálu- hjálpar og votta hinum látnu virð- ingu sína. Kenny Dalglish, þjálf- ari Liverpool, og leikmenn liðsins tóku virkan þátt í atburðarásinni dagana eftir harmleikinn með heimsóknum til hinna slösuðu og aðstandenda hinna látnu. Frægt varð þegar hinn tvítugi Sean Luckett, sem hafði verið meðvitundarlaus í öndunarvél á sjúkrahúsi í tvo sólarhringa eftir slysið, komst til meðvitundar þegar Dalglish stóð við sjúkrarúm piltsins og sagði nafn hans. Nokkur minnismerki hafa verið reist til minningar um þá sem lét- ust á Hillsborough, þar á meðal á Anfield og á Middlewood Road, nálægt Hillsborough-leikvangin- um. Það minnismerki fékkst þó ekki sett upp fyrr en eftir miklar deilur og þrýsting frá samtökum fjölskyldna hinna látnu. Málaferli litlu skilað Samtökin, sem bera nafnið The Hillsborough Family Support Group, hafa barist æ síðan ásamt The Hillsborough Justice Campa- ign og fleiri samtökum fyrir rétt- læti til handa hinna látnu undir kjörorðinu „Justice for the 96“. Meginuppistaðan í baráttu þeirra hefur alla tíð verið sú krafa að viðeigandi aðilar í aðdraganda slyssins skuli látnir sæta ábyrgð á því sem nefnt hefur verið glæp- samlegt gáleysi varðandi helstu öryggisatriði á vellinum. Sem dæmi um málaferli sem farið hafa fram í tengslum við atburðinn má nefna að David Duckenfield, aðstoðaryfirlög- regluþjónninn sem tók þá ákvörð- un að opna hliðin fyrir fjöldanum fyrir utan völlinn, var ákærður fyrir manndráp í tveimur ákæru- liðum. Duckenfield viðurkenndi við réttarhöldin að hafa, örfáum mínútum eftir að harmleikurinn átti sér stað, logið því að hátt- settum yfirmönnum enska knatt- spyrnusambandsins að Liverpool- aðdáendurnir hefðu sjálfir brotið hliðin niður. Fleiri löggæslumenn voru einnig ákærðir fyrir að hafa hagrætt sönnunargögnum, en allir hafa þeir verið sýknaðir á endan- um. Taylor-nefndin svokallaða, sem sett var á fót af stjórnvöldum til að komast að rótum þess sem olli slysinu, komst að þeirri niðurstöðu að mörgu hefði verið ábótavant í öryggisgæslunni á vellinum. Til að mynda hefði átt að fresta upp- hafi leiksins í stað þess að hleypa svo mörgum inn á leikvanginn á sama tíma. Nefndin fann einnig að hönnun ýmissa öryggistækja inni á vellinum. Lokaniðurstaðan var þó í raun sú að lögregla á staðnum hefði brugðist hlutverki sínu. Hingað til hefur því enginn verið látinn sæta raunverulegri ábyrgð á þeim mörgu og afdrifa- ríku mistökum sem gerð voru, og hafa ofannefnd samtök heitið því að linna ekki látum fyrr en bót verður á. Gjörbreytt íþrótt Taylor-nefndin skipaði einnig fyrir um viðamiklar umbætur á knattspyrnuleikvöngum í Eng- landi. Strax daginn eftir harm- leikinn var hafist handa við að rífa niður stálgirðingarnar alræmdu á nokkrum stórum leik- vöngum, til að mynda á Baseball Ground, þáverandi heimavelli Derby County, og White Hart Lane, heimavelli Tottenham. Einnig voru félögin skyld- uð til selja eingöngu aðgöngu- miða í sæti, lög sett sem áttu að hamla svartamarkaðsbraski með miða og ýmislegt fleira. Það má því með sanni segja að atburðir 15. apríl 1989 hafi breytt knatt- spyrnunni á varanlegan hátt. Því miður komu þær breytingar ekki til af góðu.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.