Fréttablaðið - 11.04.2009, Qupperneq 22
22 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
Hvað vitið þið um hvort annað?
Katla: Ég veit að Heimir er Víking-
ur og mikill íþróttamaður. Keppti í
fótbolta og handbolta í gamla daga.
Hann ólst upp á Tunguveginum.
Heimir: Hvernig veist þú þetta?!
Katla: Ég hef bara sambönd.
Heimir: Veistu þetta eða gerðir þú
eitthvert tékk áður?
Katla: Kannski.
Heimir: Ég sem grófst ekkert
fyrir.
Katla: Nei, nei. Maðurinn minn
vissi þetta, því hann er úr sama
hverfi og þú. En ég held þið þekkist
nú ekki. Þannig að ég veit sem sagt
eitthvað um íþróttaafrek Heimis
og æskuslóðir.
Heimir: Ég get ekki sagt að ég viti
um nein íþróttaafrek hjá þér.
Katla: Nei, engar áhyggjur. Þau
eru engin.
Heimir: Og ég veit ekkert um þínar
æskuslóðir en ég veit að þú ert
stórskemmtileg og góð leikkona.
Persónulega finnst mér gaman
hvað margar góðar ungar leik-
konur hafa komið fram á síðustu
árum. Ég bjó svo lengi úti, alveg til
ársins 2003, og þegar ég kom heim
sá ég þetta því svo glöggt.
Gulli Helga góð eftirherma
Byrjum í þingpontu. Þingmenn
virðast geta gert ýmislegt annað
í ræðustól en að tala. Nú nýverið
hóf Árni Johnsen upp raust sína og
söng í ræðustól.
Ef þið ættuð að fá formenn flokk-
anna í óvænta hæfileikakeppni í
þingsal, hver haldið þið að myndi
vinna – og með hvaða leyndu hæfi-
leikum?
Hverjir eru eftirminnilegustu
„óvenjulegu“ hæfileikar sem þið
munið eftir hjá Íslendingi?
Heimir: Ég held að Bjarni Bene-
dikts sé svolítill prakkari. Ég sé
hann alveg fyrir mér mæta í jakka-
fötum sem hann gæti rifið utan af
sér og verið þá í Elvis-eftirhermu-
búningi undir. Eflaust ekki slæm
Elvis-eftirherma.
Katla Margrét: Ég sæi Jóhönnu
Sigurðardóttur eða Sigmund
bursta Bjarna í steppdansi.
Heimir: Annars hvað varðar
óvenjulega hæfileika hjá Íslend-
ingum þá man ég eftir litlum
strák, syni vinar míns, sem var
tekinn í viðtal hjá Íslandi í dag.
Hann var þá ekki nema tveggja til
þriggja ára. Hann þekkti í sundur
alla bíllykla og það var alveg sama
hvaða bíllykill var dreginn fram,
hann þekkti hvaða tegund hann
tilheyrði. Hann heitir Guðmund-
ur Ólafsson.
Katla: Jóhannes Haukur, sem ég
vinn með í Söngvaseiði, er með
gúmmíandlit. Þið sáuð hvernig
hann lék Geir H. Haarde í skaup-
inu. Hann getur sem sagt breytt
andlitinu þannig að enginn skilur
hvernig hann fer að því – togar það
til án hjálpar. Hann, Jóhann Sig-
urðarson og Guðjón Davíð Karls-
son, Gói, eru líka afbragðs eftir-
hermur.
Heimir: Gulli Helga er líka gletti-
lega góð eftirherma. Hann tekur
auðvitað Bubba, en nær líka Ólafi
Ragnari vel og fleirum.
Yrðum hvort á sinni hæðinni
Í vikunni heyrðum við af því að
íslenskir karlar verði manna elst-
ir. Ef þið náið háum aldri og farið
á elliheimili – hvaða þrír afþrey-
ingarmöguleikar viljið þið að séu í
boði svo ykkur leiðist ekki? Hvað
viljið þið hafa í matinn? Og nefn-
ið mér þrjá fræga Íslendinga sem
þið væruð til í að hafa í næstu her-
bergjum við ykkur?
Katla: Ég myndi vilja að boðið yrði
upp á hugleiðslu og hópferðir í leik-
hús og á kaffihús.
Heimir: Það er ekki spurning að ég
vel golf. Ég myndi líka vilja hafa
vísindakvöld einu sinni í viku þar
sem farið væri yfir nýjustu tækni
og vísindi. Svo yrði að vera ein-
hver keppni, spilakvöld eða eitt-
hvað þess háttar: Ég er svo mikil
keppnismanneskja. Það er svo
ekki spurning að það yrði fyrst og
fremst íslenskur matur á boðstól-
um. Fiskur tvisvar í viku og saltað
hrossakjöt sömuleiðis.
Katla: Við Heimir yrðum greini-
lega ekki á sömu deild. Ég yrði á
hæðinni fyrir neðan og þar yrði
boðið upp á girnilega grænmetis-
rétti, ferska ávexti og fisk.
Heimir: Ég myndi alveg skreppa
niður til þín öðru hvoru og
smakka.
Katla: Hvað varðar fólkið í næstu
herbergjum þá dettur mér nú helst
í hug eitthvert þríeyki, eins og
Wathne-systur.
Heimir: Ég myndi vilja hafa
Diddú og hún yrði að þola það að
ég myndi syngja með henni svona
stundum. Og Egil Ólafsson.
Katla: Af hverju?
Heimir: Ég ætla að syngja líka
með honum.
Katla: Hahaha.
Heimir: Ég veit ekki hvort þau
myndu nenna því. En þau yrðu að
gera það.
Katla: Á meðan þið syngið er ég
að renna fyrir lax með Wathne-
systrum.
Myndum ekki ráða Audda sem
öryggisvörð
Þjófar stela öllu steini léttara um
þessar mundir, hvort sem er úr
skartgripabúðum um hábjartan
dag eða af heimilum. Hver hald-
ið þið að sé besta heimatilbúna
þjófavörnin? Ef þið fengjuð að
velja ykkur tvo þjóðþekkta Íslend-
inga til að vakta heimilið ykkar,
hverja mynduð þið fá í starfið?
Katla: Góður hundur er góð þjófa-
vörn.
Heimir: Jú, það held ég að sé besta
lausnin. Ef fólk býr í fjölbýlishúsi
gæti það svo fengið sér páfagauk
sem væri þjálfaður þannig að um
leið og einhver kæmi inn yrði hann
brjálaður og hætti ekki að gagga
fyrr en hann heyrði lykilorðið.
Katla: Þetta er fín hugmynd. Það
er einmitt kona á Suðurnesjum
sem þjálfar páfagauka.
Heimir: Í alvöru?
Katla: Já, það var í blaðinu um
daginn. Hún tekur fugla og leið-
beinir fólki með uppeldi þeirra.
Hún gæti kannski kennt fuglun-
um þetta.
Heimir: En ef maður ætlaði að
ráða einhverja til að gæta húss-
ins þá yrðu það auðvitað að vera
einhverjir sem gætu hrætt fólk
í burtu. Einhver eins og Hjalti
Úrsus? Eða Magnús Ver?
Katla: Ég hugsa að ég myndi ráða
Sveppa og Audda. Þeir eru svo
skemmtilegir, þá yrði svo gaman
að koma heim.
Heimir: Já, en Auddi er kjúkling-
ur. Hann þorir aldrei að henda
sér í þessi áhættuatriði í þáttun-
um þeirra. Hann myndi örugglega
flýja af hólmi ef hann mætti þjófi.
Katla: Þá er kannski spurning að
fá frekar einhvern kraftajötun með
Sveppa. Sveppi myndi vaða í þá. Ég
tek Hjalta Úrsus með.
Heimir: Já, taktu hann. Ég fæ
Andrés Guðmundsson sem á og
rekur Skólahreysti. Og einhverja
konu með. Hver er mesta hörkutól-
ið sem við þekkjum? Jónína Ben?
Eða Þórhildur Þorleifs? Já Andrés
og Þórhildur.
Afkáralegar skyrtur
Fermingarveislur eru í hámarki.
Hvað er eftirminnilegast frá eigin
fermingu? Ef þið ættuð að velja gjöf
handa fermingarbörnum landsins
– hvað yrði í pakkanum? Og ef þið
ættuð að gefa þeim gott ráð í vega-
nesti – hvað yrði það?
Heimir: Skyrtan sem ég var í.
Hún var svo hryllilega hallæris-
leg. Drappgullituð með dökklituð-
um hestshausum!
Katla: Ertu ekki að grínast í mér,
ég man eftir þessum skyrtum. En
fyndið – hvaða árgerð ertu?
Heimir: ´61. En þú?
Katla: Ég er ´71. En frændi minn
er fæddur 1960. Hann átti svona.
Að vísu með hestum. En ég man
að pabbi vinkonu minnar átti eina
með hausunum. Hún var gul sú
með brúnum hestum. Ógeðsleg-
ar. Ég var nú litlu skárri; í kjólum
sem þá voru í tísku og voru eins og
strigapokar – leit helst út eins og
gömul bóndakerling. En ef ég ætti
að velja fermingargjöf handa börn-
um landsins þá væri það lopapeysa.
Og heilræðið yrði: Ekki setja hana
á suðu.
Heimir: Sniðugt. En af því að við
þurfum að ala upp næstu kynslóð
betur en hefur verið gert þá myndi
ég fá einhvern til að útbúa auð-
lærða og auðlesna bók um fjármál.
Heilræðið væri alveg klárlega að
fjármálin þín eru fjármálin okkar.
Þetta skiptir okkur öll máli. Eitt-
hvað í þeim dúr.
Lopapeysa og fjármálabók.
Að lokum. Hrunið í haust setti
okkur flest út af laginu. Hvenær
fenguð þið mesta sjokkið? Hömstr-
uðuð þið eitthvað? Hafið þið breytt
einhverju í neysluvenjum síðan í
haust?
Katla: Mér finnst maður nánast
daglega fá smásjokk við að fylgj-
ast með fréttunum. Þetta er að
koma í svona smáskömmtum. Ég
hamstraði ekki en ég hef breytt
mjög miklu í heimilishaldinu. Við
verslum til að mynda bara einu
sinni í viku og búum til matseðil
fyrir vikuna.
Heimir: Já, ég hef reynt það ein-
mitt. Það bara gengur ekki. Ég hef
hins vegar alveg klárlega breytt
um aksturslag og keyri hægar og
fer ekki með snúningsmælinn yfir
2000 snúninga.
Katla: Við heimilisfólk reynum að
velja eitthvað til skiptis á seðil-
inn. Allir hafa atkvæðisrétt – eldri
strákurinn fær til dæmis að velja
hvað á að vera í matinn einn dag-
inn í vikunni. Eitt heimagert pitsu-
kvöld og eitt grjónagrautskvöld. Ég
finn alveg að þetta er að virka.
Heimir: Þetta er sniðugt. En ég
hamstraði ekki neitt. Mesta sjokk-
ið fékk ég þegar við vorum sett
á hryðjuverkalistann en síðan
eins og Katla segir – manni hefur
ofboðið upp á síðkastið með reglu-
legu millibili. Þessi uppgötvun að
menn sem voru að stjórna bönk-
unum hafi getað hagað sér eins og
algjörir hálfvitar með fé. Og við
sjáum auðvitað á öllu að til að byrja
með hefðu þeir aldrei átt að fá að
stjórna bönkunum – byggjandi hér
sumarbústaði upp á 840 fermetra
og svo framvegis. Þegar það kom
svo í ljós hvaða laun þessir menn
voru að þiggja á þessum stutta
tíma, samanber Lárus Welding
og fleiri sem fengu fleiri hundr-
uð milljónir, fannst mér að þessir
menn sem gerðu þessa starfssamn-
inga ættu að sæta ábyrgð. Hverjir
voru það sem ákváðu að bjóða þessi
laun? Það þarf að finna þá.
Með Wathne-systrum og Diddú
Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona hefur undanfarna mánuði útbúið sérstakan matseðil vikunnar í sparnaðarskyni. Heimir
Karlsson, útvarps- og sjónvarpsmaður, keyrir hægar og passar að snúningsmælirinn fari ekki yfir 2000 snúninga. Júlía Margrét
Alexandersdóttir hitti Rökstólapar vikunnar og efndi meðal annars með þeim til hæfileikakeppni í þingpontu.
HEFUR BÁÐUM OFBOÐIÐ Í LITLUM SKÖMMTUM Katla Margrét Þorgeirsdóttir leikkona og Heimir Karlsson, sjónvarps- og útvarpsmaður, segja að þau hafi bæði verið að fá
sjokk í litlum skömmtum síðan efnahagshrunið varð í haust. Heimir vill draga þá til ábyrgðar sem buðu ofurlaunasamninga. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Katla: Ég hugsa að ég myndi ráða Sveppa og Audda. Þeir
eru svo skemmtilegir, þá yrði svo gaman að koma heim.
Heimir: Já en Auddi er kjúklingur. Hann þorir aldrei að
henda sér í þessi áhættuatriði í þáttunum þeirra.
...Heimir og Katla Margrét höfðu hist einu sinni áður í þættinum Ísland í
bítið. Það var hins vegar bara Katla sem mundi eftir því.
...ef Heimir og Katla Margrét ættu að ráða spyril fyrir næsta vetur í Gettu
betur myndi Heimir ráða Helgu Brögu. Katla Margrét myndi vilja fá Halldór
Gylfason sem spyril.
...Heimir skilur ekki hvernig Katla Margrét fer að því að muna allan þann
texta sem hún þarf að fara með. Hann sjálfur hafi gullfiskaminni. Hún segir
þetta bara vera þjálfunaratriði.
...Heimir segir að hann myndi aldrei þora að leika á sviði, hann fengi svo
mikinn aulahroll yfir sjálfum sér.
➜ VISSUÐ ÞIÐ AÐ...