Fréttablaðið - 11.04.2009, Qupperneq 30
I BLS. 2 + Bókaðu á www.icelandair.is
LONDON
Flug til London gefur 2.500–8.000 Vildarpunkta.
Vildarklúbbur
THAI RICE
303 Portobello Road
Eftir að hafa notið dagsins á Portobello
markaðnum er gott að tylla sér niður á Thai
Rice, við endann á Portobello Road. Þetta er
látlaus staður en voða krúttlegur og maður fær
besta tælenska matinn í London og alltaf
tipp-topp þjónustu.
LEVANTE
Líbanskur staður í miðbænum, rétt hjá Oxford
Street. Þar er frábært að koma saman í hóp og
panta blandaðan matseðil til að smakka sem
flest. Magadansmeyjar dilla sér þar um helgar,
sem myndar seiðandi stemningu. Mæli með að
panta dísætt te í eftirrétt og eftirréttabakkann.
www.levant.co.uk/levant/
HUMMINGBIRD BAKERY
133 Portobello Road, Notting Hill
Þegar maður röltir niður Portobello Road á
fallegum laugardegi og gramsar á markaðnum
er alveg nauðsynlegt að stoppa þar við og fá
sér eina „cupcake“ og kaffibolla. Yndislegar
skreyttar, litlar formkökur með litríku kremi.
www.hummingbirdbakery.com
BEACH BLANKET BABYLON
Flottur veitingastaður á tveimur stöðum í
London, Notting Hill í Vestur-London og
Shoreditch í Austur-London. Fallegar innrétt-
ingar og gaman að borða þar. Síðan má enda á
dansgólfinu þegar líður á kvöldið.
www.beachblanket.co.uk
PACIFICO
Skemmtilegur, mexíkóskur veitingastaður í
Covent Garden. Þar er alltaf stemning og
frábær matur og æðislegar margarítur. Það er
ekki hægt að panta borð svo að oft myndast
stemning á barnum þar sem fólk bíður eftir
borði. www.cafepacifico-laperla.com
MÍN
Flug og gisting í 2 nætur
frá 46.900 kr.
á mann í tvíbýli á K West Hotel & Spa ****
Innifalið: Flug báðar leiðir, flugvallarskattar,
gisting og morgunverður.
Spitalfields Á sunnudögum er gaman að
ráfa um þennan skemmtilega markað við Brick
Lane. Best er að vera kominn tiltölulega
snemma til að gera sem best kaup og rölta
síðan um hverfið þar sem er fullt af skemmti-
legum „vintage-búðum“.
Sigling á Thames Tilvalin leið til að þess
að sjá borgina og öðlast góða yfirsýn yfir hana á
stuttum tíma. Frábært er að gera þetta á fallegum
degi. Á bátunum sem bjóða þessar skoðunar-
ferðir eru leiðsögumenn sem segja skemmtilega
frá. Einnig er hægt að fara á bát þar sem hægt er
að borða á meðan siglt er niður ána.
Borough Market Matvörumarkaður við
Thames, alltaf á laugardögum. Þarna er matur
frá ýmsum heimshornum og má smakka flest.
Skemmtilegt að byrja daginn á markaðnum.
Á eftir er hægt að ganga með fram ánni og
njóta útsýnisins.
King´s Road Ein af elstu verslunargötu-
num í London, við Sloane Square lestarstöðina.
Þarna eru margar „boutiques“ og skemmtilegar
búðir með muni til heimilisins. Skemmtileg gata
til að rölta eftir með kaffibolla í hendinni ef fólk
vill ekki vera í mannmergðinni á Oxford Street.
Victoria & Albert Museum Safn í
South Kensington sem er tileinkað listum og
tísku. Oft eru þar settar upp skemmtilegar
sýningar svo að það er þess virði að fylgjast með
því sem verið er að sýna hverju sinni. Gaman fyrir
þá sem hafa áhuga á tísku og listum.
National Gallery / National Portrait
Gallery Myndlistarsöfnin við Trafalgar
Square. Þarna er stærsta safn í heimi af
evrópskum listaverkum. Gaman að líta þar við
þegar maður á leið um Trafalgar Square.
Aðgangur er ókeypis.
Regent´s Park Skemmtilegur garður í
hjarta Lundúna þar sem gaman er að skoða sig
um. Þarna eru líka London Zoo og rósagarður
drottingarinnar sem er rosalega fallegur á
sumrin.
Greenwich Skemmtilegt hverfi þar sem
meðal annars eru fornmuna- og matvöru-
markaðir sem gaman er að skoða. Þarna er líka
The Royal Observatory í Greenwich Park. Þar
mætir austrið vestrinu, ef svo má segja, og
lengdarbaugurinn er á núlli.
Dover Street Market Flott búð. Skylda
að kíkja í hana ef fólk hefur áhuga á tísku og
fallegum hlutum. 17–18 Dover Street.
Brick Lane Gata austan við miðborgina,
nálægt Spitalfields. Þar er fullt af indverskum
stöðum og mikið næturlíf. Gaman er að fara á
Brick Lane í góðra vina hópi, fá sér indverskan
mat og fara síðan á barrölt um hverfið. Mikið af
ungu fólki býr í hverfinu svo að alltaf er eitthvað
um að vera á börunum í nágrenninu. Skemmtile-
gur bar er t.d. The Commercial Tavern.
„Afternoon tea“ Eitt af því breskara sem
hægt er að gera í London er að fá sér
síðdegiste og ég mæli hiklaust með því. Hægt
er að fara á flest af fínni hótelunum. Þetta er
yfirleitt síðdegis, kl. 14–17, og oftast þarf að
panta borð með svolitlum fyrirvara. Innifalið í
verðinu er te, samlokur, skonsur og úrval af
kökum. Einnig er hægt að fá kampavín með.
Mæli með The Ritz á Piccadilly eða The
Wolseley. www.theritzlondon.com/tea/
The Mayfair Hotel Ef mann langar
að fá sér flottan kokteil þá er The Mayfair málið.
Þar eru rosalega flottir og góðir kokteilar.
www.themayfairhotel.co.uk
Veitingastaðir
Vala Björk Ásbjörnsdóttir
stílisti
Reykjavík – London
frá 14.500 kr.
Flug aðra leiðina með flugvallarsköttum.
Flogið er allt að fjórtán sinnum í viku.