Fréttablaðið - 11.04.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 11.04.2009, Síða 42
6 Hvers vegna fórstu að starfa í stjórnmálum? Ég hef brennandi áhuga á framvindu þjóðfélagsmála. Ég get ekki haft áhrif á þau nema með því að starfa í stjórn- málaflokki. Framsóknarflokkurinn er framsýnastur allra flokka hér á landi og því helga ég honum krafta mína. Hverjar eru helstu pólitísku hugsjónir þínar? Auðlindamál af öllu tagi eru mitt hjartans mál, hvort sem um er að ræða nýtingu þeirra, verndun eða gjaldtöku. Loftslagsmál eru mér einnig hugleik- in ásamt umhverfisrétti. Hagkvæm auðlindanýting þjóðarinnar er forsenda uppbyggingarstarfsins sem nú er að hefjast. Hvers vegna ætti fólk að kjósa Framsóknarflokkinn, en ekki einhvern annan flokk? Framsóknarflokkurinn er eini flokkur- inn sem hefur komið fram með róttæk- ar tillögur að endurreisn heimilanna. Framsóknarflokkurinn er umbóta- sinnaður atvinnumálaflokkur og hefur ætíð lagt áherslu á hátt atvinnustig þjóðarinnar. Framsóknarflokkurinn vill aðgerðir strax. Hver eru stærstu einstöku mál komandi kosninga? Atvinnumál, björgun heimila og fyrir- tækja, auk raunverulegra tillagna að sparnaði í ríkisrekstri. Hver eru helstu áhugamál þín, utan stjórnmálanna? Áhugamál mín eru flest samtvinnuð pólitíkinni eins og til dæmis áhugi minn á auðlindamálum þjóðarinnar. Annars eru það samvistir við fjöl- skylduna og útivera með börnunum mínum. Hvernig verð þú frítíma þínum? Ég nýti frítímann í gæðastundir með mínum börnum og til að lesa góðar bækur. Auðlindamál á oddinum Framsóknarflokkurinn er eini flokkurinn með róttækar tillögur að endurreisn heimilana, segir Vigdís Hauksdóttir, oddviti flokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður. 1. SÆTI REYKJAVÍK SUÐUR Vigdís Hauksdóttir. LJÓSMYND/BALDUR KRISTJÁNSSON VIGDÍS HAUKSDÓTTIR, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður, er lögfræðingur að mennt. Henni var gert að velja á milli þess að fara í framboð og starfa sem lögfræðingur hjá Alþýðusambandi Íslands, eins og mikið var fjallað um í fjölmiðlum fyrir nokkrum vikum. Vigdís er 44 ára, dóttir Hauks Gíslasonar og Sigurbjargar Geirsdóttur. Hún á tvö börn, Hlyn Þorsteinsson, sextán ára, og Sólveigu Þorsteinsdóttur, ellefu ára. SVIPMYND REYKJAVÍKURKJÖRDÆMI SUÐUR – 1. SÆTI Aðeins einn flokkur er á móti tillögu Framsóknar um stjórnlagaþing. Meginrökin fyrir stjórnlagaþingi eru þau að gefa þjóðinni tækifæri til að endurskoða stjórnskipun landsins. Það var ætlunin við stofnun lýðveldis. Því standast ekki andmæli um að stjórn- lagaþing taki vald frá alþingismönnum sem eru nú einráðir um stjórnarskrána. Þingmenn hafa á undanförnum 65 árum ekki getað sæst á meirihátt- ar breytingar á stjórnarskrá auk þess sem Framsóknarflokkurinn hefur fært þau rök fyrir tillögu sinni um stjórn- lagaþing að óeðlilegt sé að Alþingi ák- veði sína eigin starfslýsingu og tengsl sín við ríkisstjórn, dómstóla o.s.frv. Aldur stjórnarskrárinnar, 130 ár, er því ekki meginástæðan fyrir stjórnlaga- þingi. Andstæðingar stjórnlagaþings vilja að það sé ráðgefandi. Þeir óttast völd þess. Ekki hefur þó verið lagt til að stjórnlagaþing eigi lokaorðið. Þingið á að gera tillögu til þjóðarinnar um nýja stjórnaskrá, eftir samráð við Alþingi. Með „ráðgefandi“ er því í raun átt við að stjórnlagaþing geri tillögu til Alþingis í stað þjóðarinnar. Framsóknarflokkurinn vill að ný og nútímaleg stjórnarskrá verði samin af stjórnlagaþingi þar sem eiga sæti þjóðkjörnir fulltrúar, að skerpt verði á aðskilnaði löggjafar- og framkvæmda- valds og ráðherrar gegni ekki þing- mennsku. Þjóðin fái að semja starfslýsingu Alþingis Framsóknarflokkurinn vill að stofnað verði stjórnlagaþing. KRÖFTUGT FLOKKSÞING Framsóknarmenn tvínónuðu ekki við að svara kalli almennings um breytingar. Stjórnlagaþing var ein af tillögum flokksþingsins í janúar síðasliðinn. MYND/EINAR ERLENDSSON SUÐURKJÖRDÆMI Eygló Harðardótt- ir alþingismaður, sem er í 2. sæti í Suðurkjördæmi, segir það valda sér þó nokkrum áhyggjum að stjórnvöld telji fullnægjandi að fresta greiðslum hús- næðisskulda um 2-5 ár. „Án raunveru- legra aðgerða til aðstoðar heimilunum munu 100.000 fjölskyldur kikna undan skuldabyrðinni á meðan þær sem eftir eru burðast með skuldir það sem eftir er. Meðal helstu áhyggjuefna kjósenda er hvernig framtíð þeir geti búið börn- unum sínum.“ REYKJAVÍK NORÐUR Þórir Ingþórs- son, sem er í 3. sæti framboðslista Framsóknarflokksins í Reykjavík norður, segir að helsta áhyggjuefni kjósenda sé atvinnuöryggi. „Ísland mun fleyta sér yfir þessa erfiðleika með hugviti, reynslu og þekkingu. Ekki síst á sviði veiða og vinnslu á sjávarfangi.“ Ísland eigi margar auðlindir sem nýtast þjóðinni. „Aðalmálið er að hámarka hagnað. Baráttuandi þjóðarinnar mun vaxa um leið og stjórnvöld koma með skýra framtíðarsýn.“ Baráttuandinn mun eflast Sitjið ekki heima á kjördag Þórir Ingþórsson ásamt ömmu sinni Guðrúnu Bjarnadóttur Eygló Harðardóttir FRAMSÓKNARREIÐ Þrjár öflugar framsóknarkonur í útreiðartúr frambjóðenda í Reykjavík, Guðrún Valdimarsdóttir í 3. sæti Rvk suður, Vigdís Hauksdóttir í 1. sæti Rvk suður og Ásta Rut Jónasdóttir í 2. sæti Rvk norður.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.