Fréttablaðið - 11.04.2009, Side 54

Fréttablaðið - 11.04.2009, Side 54
8 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR KURT VONNEGUT (1922-2007) LÉST ÞENNAN DAG 2007. „Hinn sanni hryllingur er sá að vakna einn morguninn og uppgötva að bekkjarfélagar þínir úr grunnskóla eru farnir að stjórna landinu.“ Kurt Vonnegut var bandarísk- ur rithöfundur af þýskum ættum. Hann var þekktur fyrir að blanda saman satíru, svörtum húmor og vísindaskáldskap í bókum sínum. Þær þekktustu eru Slaughter- house-Five, Cat’s Cradle og Breakfast of Champions. MERKISATUBURÐIR 1700 Messufall er í öllum kirkj- um á páskadag vegna vonskuveðurs. Veturinn var þess vegna kallaður páskavetur. 1814 Napóleon er sendur í út- legð til eyjarinnar Elbu. 1921 Þýski þjóðfáninn verður til. 1944 Marlene Dietrich heldur fyrstu söngskemmtunina fyrir bandaríska hermenn. 1945 Bandaríski herinn frels- ar fanga í Buchenwald-út- rýmingarbúðunum. 1970 Geimflauginni Apollo 13 er skotið frá Canavarel- höfða á Flórída. 1970 Minkarækt hefst að nýju hér á landi er níu hundr- uð læður voru keyptar frá Noregi og settar í minka- bú á Kjalarnesi. Kvikmyndin The Tramp, eða Umrenningurinn, var frum- sýnd vestanhafs þennan dag árið 1915. Þetta var fyrsta meistaraverk gamanleikar- ans og leikstjórans Charles Chaplin. Hinn barnalegi og ljúfi um- renningur kom þó fyrst fram á hvíta tjaldinu árið áður í kvik- myndinni Kid Auto Races. Hinn geðfelldi heimilisleysingi með fram- komu og mannasiði hefðarmanns varð fljótt vörumerki Chaplins. Umrenningurinn gekk um í kjólfatajakka, útskeifur í víðum buxum og of stórum skóm, með kúluhatt, bambusstaf og yfirskegg. Aðrar myndir sem Chaplin gerði í gervi um- renningsins eru Easy Street (1917), The Kid (1921) og City Lights (1931). Ferill Chaplin hófst þegar hann var einungis fimm ára. Móðir hans var að skemmta í leikhúsi í London þegar rödd- in brast og syninum var skófl- að upp á svið til að klára at- riðið. Charlie lenti síðar á ver- gangi í London ásamt bróður sínum eftir lát föður síns og eftir að móðir hans fékk taugaáfall. Þar unnu þeir fyrir sér með söng og dansi á götum borgarinnar. Chaplin ferðaðist víða upp úr 1900 með Fred Carno-leikhópnum og 1913 gerði hann samn- ing við Keystone-kvikmyndafélagið. Fljótt varð hann einn þekktasti skemmtikraftur heims og sá fyrsti til að sameina grín og drama á hvíta tjaldinu. ÞETTA GERÐIST: 11. APRÍL 1915 Umrenningur á hvíta tjaldið timamot@frettabladid.is STUÐNINGUR Sigþrúður Guðmundsdóttir veitti nýverið viðtöku fjár- styrk frá Zonta-klúbbnum Emblu sem rennur í túlkaþjónustu Kvenna- athvarfsins. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Zonta-klúbburinn Embla afhenti Samtökum um kvennaat- hvarf á dögunum fjárstyrk að andvirði 100 þúsund krónur sem rennur í túlkaþjónustu Kvennaathvarfsins. „Emblurnar hafa styrkt okkur undanfarin ár með fjár- munum í þessa þjónustu. Það hefur komið sér mjög vel þar sem til okkar hefur leitað mikið af konum af erlendum uppruna, sem tala litla íslensku. Fyrir tilstuðlan styrksins höfum við getað sinnt þessum hópi mun betur en ella þar sem kostnaður við túlkaþjónustu er mikill,“ segir Sigþrúður Guðmundsdóttir, framkvæmdastýra Samtaka um kvennaat- hvarf, sem veitti styrknum viðtöku. Að hennar sögn hafa erlendar konur í síauknum mæli leit- að aðstoðar til Kvennaathvarfsins síðustu ár. Fram að síð- asta ársfjórðungi hafi þær einnig verið í miklum meirihluta dvalargesta, eða 65 prósent. Breyting hafi hins vegar orðið í kjölfar bankahrunsins á síðasta ári en þá hafi hlutfallið al- gjörlega snúist við. „Ástæðan er sannarlega ekki sú að heim- ilisofbeldi hafi minnkað nokkuð, síður en svo. Við teljum að miklu frekar megi rekja ástæðuna til þess að konurnar eru ekki alltaf fjárhagslega sjálfstæðar og sjá skilnað því síður sem raunhæfan möguleika. Þær reyna því fremur að þrauka erfitt ástand,“ bendir hún á. „En einmitt vegna þess má kannski segja að styrkur- inn hafi aldrei verið mikilvægari en einmitt nú,“ heldur hún áfram. „Því enda þótt færri erlendar konur leiti hælis hjá okkur en áður, bjóðum við þeim upp á viðtalstíma hér í Kvennaathvarfinu. Og þótt konurnar eigi kannski erfiðara um vik með að slíta sambandi við ofbeldismenn, þurfa þær engu síður á þessum stuðningi að halda. Þá er gott að vita af þjónustunni sem við hjá Samtökum um kvennaathvarf veit- um,“ segir Sigþrúður að lokum. Mikilvægt að aðstoða alla „Er þetta gamla konan? Nei, þetta hlýtur að vera dóttir hennar, er það fyrsta sem þýtur gegnum huga blaða- manns þegar hin hundrað ára Hlíf Böðvarsdóttir tekur á móti honum. Teinrétt, í svörtum síðbuxum og sætri mussu, býður hún til sætis í íbúð sinni við Dalbrautina. Hlíf ólst upp á Laugarvatni og það er bjart yfir uppvaxtarárunum í henn- ar huga. „Ég tel mig hafa alist upp á skemmtilegu menningarheimili. Þang- að lágu straumar úr ýmsum áttum. Margir gistu hjá okkur á ferðum sínum, bæði háir og lágir, innlendir og útlendir og foreldrar mínir, Böðvar Magnússon og Ingunn Eyjólfsdóttir, voru ákaflega gestrisnir. Við vorum tólf systkinin sem upp komumst, ellefu systur og einn bróðir. Við áttum marg- ar ferðir niður að hvernum, sóttum í hann heitt vatn, bökuðum í honum öll brauð og þvoðum þvottinn við hann. En hverinn var dálítið frá bænum og það var á brattann að sækja á heim- leiðinni.“ Hlíf kveðst hafa verið mikið fyrir hesta. „Pabbi átti fína reiðhesta og ég hataði lata hesta eins og pest- ina. Það varð snemma keppikefli að eignast eigin hest. Eitt sumarið sá ég fallegt folald og sagði pabba að hann gæti fengið kindurnar mínar tvær ef ég fengi folaldið. Hann gekk að því og ég fékk bréf upp á það. Það varð samt ekki eins góður hestur og ég óskaði svo ég seldi hann og keypti mér skag- firskan gæðing.“ Það var ekki sjálfgefið á ungdóms- árum Hlífar að komast í skóla. En hún var svo heppin að skólinn kom til hennar. „Héraðsskólinn á Laugarvatni var byggður á kreppuárum en samt með glæsibrag. Í logndrífu leit hann út eins og álfahöll í mínum augum. Við Magnea systir mín settumst strax á skólabekk fyrsta veturinn sem hann starfaði. Þar var margt söngfólk og ég var búin að læra á orgel og gat spil- að undir.“ Hlíf kynntist mætu fólki á náms- árunum tveimur í Laugarvatnsskóla. Einn maður hreif hana þó mest. Guð- mundur Gíslason kennari, sem var níu árum eldri en hún. Þau giftust og með honum flutti hún í Hrútafjörðinn þegar hann tók þar við skólastjóra- stöðu. „Hvernig dettur þér í hug að fara úr svona fallegu héraði eins og Laugardalnum í Hrútafjörð?“ spurðu vinir mínir. En mér leið vel fyrir norð- an,“ segir Hlíf. „Ég átti indælan eigin- mann og fjögur góð börn. Guðmundur var mikill veiðimaður og átti bát sem við sigldum á þvers og kruss um fjörð- inn þegar okkur vantaði fisk í soðið.“ Næst rifjar Hlíf upp komu hersins í Hrútafjörð 1940. „Það var vond send- ing,“ segir hún. „Herinn lagði undir sig Reykjaskóla í tvö ár og kennslan féll niður. En það varð að ráði að við yrðum þar áfram og samkomulagið við hermennina var alla tíð gott. Tang- inn varð fullur af bröggum og meira að segja búið að byggja sjúkrahús úti í mýrinni. Guðmundur var oft túlkur og hermönnunum innan handar svo þeir máluðu skólastofurnar og lögðu dúka á gólfin áður en þeir fóru. Það var mikil dýrðarstund þegar skóla- haldið fór af stað aftur.“ Eftir tuttugu ár í Hrútafirðinum hélt Hlíf til Reykjavíkur. „Guðmund- ur var búinn að ráða sig á Fræðslu- skrifstofunni en veiktist og dó síð- sumars 1955, fimmtíu og fimm ára. Þá tók alvara lífsins við hjá mér. Ég fór fljótlega að vinna hjá Rannsókna- stofnun fiskiðnaðarins, byggði í Álf- heimunum í félagi við frænda minn, en þegar börnin voru farin seldi ég það húsnæði og keypti íbúð í Skipholt- inu, tilbúna undir tréverk.“ Meðal eftirminnilegra atburða á ævi Hlífar er konungskoman 1921. „Þá borðaði allt kóngafólkið á Laug- arvatni og það var mikið um að vera. Ég átti að vera að passa hesta ofan við garð fyrir einhverja ferðamenn en fannst það ómögulegt og þaut heim. Litlu systur mínar fimm höfðu fengið nýja kjóla og slaufur í hárið og drottn- ingin tók mynd af þeim. Okkur Mar- gréti systur fannst við vera afskipt- ar svo við fórum líka í okkar fínustu kjóla og héldum út á flatirnar. Við sáum drottninguna þar sem verið var að hjálpa henni á hestbak til að ríða austur að Geysi. Einn hélt í ístaðið og annar lyfti. Prinsarnir, Friðrik og Knútur, stukku hins vegar á bak, þurftu ekki einu sinni að stíga í ístaðið. Við Magga heimtuðum að fá að fara niður að Ölfusá því þar ætlaði kóngafólkið að fara um daginn eftir. Við fengum hross og riðum niður að Minni-Borg og gistum hjá Ragnheiði systur okkar sem tók okkur afskaplega vel en vakti okkur ekki næsta morgun í tæka tíð svo við fórum ekki lengra. En við vorum vel ríðandi, það var voða gaman í ferðinni og við vorum alveg búnar að gleyma kónginum þegar við komum heim!“ Hvað skyldi Hlíf finnast um þjóð- málin? „Það er nú svo viðkvæmt að tala um þjóðmál núna. Maður veit ekki á hvaða stein á að tylla sér,“ segir hún snögg upp á lagið. „En ég hef alltaf fylgst vel með pólitík og er heiðursfélagi í kvenfélagi Framsókn- arflokksins. Það er gaman og líflegt í þeim félagsskap. Ég er líka hrifin af Samfylkingunni. Það er gott fólk í öllum flokkum, bara með mismunandi áherslur.“ Hlíf spilar bridds tvisvar í viku og prjónar stælvesti sem njóta mik- illa vinsælda. Hún er með opið hús í dag á Dalbrautinni milli 15 og 19 og yrði glöð ef gestirnir tækju með henni dansspor. HLÍF BÖÐVARSDÓTTIR: FAGNAR ALDARAFMÆLI Á DALBRAUTINNI Í DAG Vill að gestirnir taki dansspor HLÍF Á LAUGARVATNI Í góðum félagsskap tónmenntakennaranna Kristínar, Nönnu Hlífar, Barböru og Elfu íklæddum vestum sem hún hefur hannað og prjónað. MYND/INGA LÁRA GUÐMUNDSDÓTTIR AFMÆLI RAGNAR GUNNARSSON TÓNLISTAR- MAÐUR ER FJÖRUTÍU OG SEX ÁRA Í DAG. HINRIK ÓLAFSSON LEIKARI ER FJÖRUTÍU OG SEX ÁRA Í DAG. TORFI TULINIUS PRÓFESSOR ER FIMMTÍU OG EINS ÁRS Í DAG. JÓNAS ÞÓR SAGNFRÆÐ- INGUR ER SEXTUGUR Í DAG.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.