Fréttablaðið - 11.04.2009, Qupperneq 78
58 11. apríl 2009 LAUGARDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
PERSÓNAN
LÁRÉTT 2. teikniblek, 6. frá, 8. verkur,
9. húsfreyja, 11. skst., 12. upp, 14.
kölski, 16. tveir eins, 17. traust, 18.
umfram, 20. gangflötur, 21. gefa frá
sér reiðihljóð.
LÓÐRÉTT 1. sléttur, 3. innan, 4.
réttari, 5. sjáðu, 7. töf, 10. spreia,
13. sigað, 15. ekkert, 16. þvottur, 19.
íþróttafélag.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. túss, 6. af, 8. tak, 9. frú,
11. no, 12. neðan, 14. satan, 16. tt,
17. trú, 18. auk, 20. il, 21. urra.
LÓÐRÉTT: 1. jafn, 3. út, 4. sannari,
5. sko, 7. frestur, 10. úða, 13. att, 15.
núll, 16. tau, 19. kr.
„Jú, við ætlum að fara um landið,
leita að Ormi og öðrum leikurum í
myndina,“ segir Gunnar Björn Guð-
mundsson kvikmyndaleikstjóri.
Eins og fram hefur komið í Frétta-
blaðinu stendur til að kvikmynda
hina sígildu sögu Ólafs Hauks Sím-
onarsonar, Gauragang, en í henni
glíma áðurnefndur Ormur Óðins-
son og vinir hans við þau vanda-
mál sem fylgja unglingsaldrin-
um. Leikstjórinn Gunnar Björn
og kvikmyndafyrirtækið ZikZak
ætla að fara fremur óhefðbundna
leið til að finna leikara í myndina
því þeir ætla að þvælast um land-
ið og fá fólk á öllum aldri í prufur.
Gauragangur var sett upp í Þjóð-
leikhúsinu fyrir allnokkrum árum
og þá lék stórleikarinn Ingvar E.
Sigurðsson aðalhlutverkið.
Um er að ræða hálfgerða Gaura-
gangs-leit í ætt við Idol-stjörnuleit
Stöðvar 2. Ekki eru gerðar aðrar
kröfur en þær að fólk geti leik-
ið þannig að um er að ræða kjör-
ið tækifæri fyrir áhugaleikhópa,
skólafólk með leikaradrauma í
maganum og svo hinn venjulega
meðaljón sem hefur falda leik-
hæfileika. „Við ætlum að fara á alla
helstu staðina, byrjum á Ísafirði
hinn 4. maí, svo verður farið til
Vestmannaeyja, Egilsstaða, Akur-
eyrar og herlegheitunum lýkur svo
í Reykjavík 9. maí,“ útskýrir Gunn-
ar en upphaflega stóð til að fara í
þessa miklu leitarferð síðustu helg-
ina í apríl. „En svo var tilkynnt
að þjóðin ætti að kjósa, það setti
strik í reikninginn hjá okkur því
við vildum ekki lenda í einhverj-
um kappakstri við frambjóðend-
ur heldur einbeita okkur alfarið að
okkar leit.“
Gunnar lýsir því yfir að ekki sé
búið að ráða í nein hlutverk í mynd-
inni þannig að þeir séu opnir fyrir
öllu hæfileikafólki, hvar sem það
leynist á landinu. Ekki þarf að
skrá sig í prufurnar, fólk á ein-
faldlega að mæta á tilteknum tíma
sem auglýstur verður nánar síðar.
„Þegar þetta er búið ætlum við að
vera búnir að fullvissa okkur um
að Ormur og allir hinir séu fundn-
ir,“ segir Gunnar en ráðgert er að
tökur hefjist í lok september eða
byrjun október. „Við erum sjálfir
mjög spenntir fyrir þessu og telj-
um þetta bestu leiðina til að finna
rétta fólkið.“ freyrgigja@frettabladid.is
GUNNAR BJÖRN: ÆTLAR AÐ FINNA ORM ÓÐINSSON
Leita að nýjum stjörnum
fyrir kvikmyndina Gauragang
Á ÞVÆLINGI Gunnar Björn Guðmundsson leikstjóri hyggst finna Orm Óðinsson hvar
sem hann er að finna á landinu. Leitin hefst 4. maí og lýkur í Reykjavík 9. maí.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við tókum þessa ákvörðun þegar
allt hrundi,“ segir Einar Þorsteins-
son, fréttamaður á RÚV, en hann
hyggst halda utan í nám í stjórn-
málafræði. Einar ætlar þó ekki
að fara til Noregs eða Danmerkur
eins og margir landar hans held-
ur kýs frekar sól og sumaryl á
Miami. „Unnusta mín, Helga Krist-
ín Auðunsdóttir, er lögfræðingur
hjá Stoðum og hún sótti um styrk
til framhaldsnáms í lögfræði við
háskólann í Miami. Hún fékk hann
og ég fylgdi bara á eftir,“ útskýrir
Einar sem sjálfur bíður eftir svari
frá stjórnmálafræðideild háskólans.
„Ég hef engar áhyggjur, ég held að
ég ætti alveg að komast inn.“
Einar og Helga eiga eina tveggja
ára dóttur og eru nú að leita að leik-
skólaplássi fyrir hana. „Maður áttar
sig kannski á því hvað við erum
heppin hér á Íslandi með leikskól-
ana okkar. Til að fá inni á sam-
bærilegum leikskóla þarna úti þarf
maður að borga ansi myndarlega
fjárhæð.“
Og Einar lumar á nokkuð merki-
legum grip sem hann tekur að sjálf-
sögðu með sér til Ameríku. Um er
að ræða kristalsörn sem afi Ein-
ars, Guðmundur Benediktsson,
fyrrverandi ráðuneytisstjóri í for-
sætisráðuneytinu, fékk að gjöf frá
sjálfum Ronald Reagan þegar leið-
togafundurinn var haldinn í Höfða
1986. „Þegar afi dó fengum við
barnabörnin gripi frá ömmu úr
safni þeirra og þessi forláta örn fór
heim til mín.“
Með örninn hans Reagans til Miami
„Púði úr sófasetti tapaðist á leið-
inni til Hveragerðis frá Garðabæ,
þetta er ljósbrún leðurpulla.“ Svo
hljómar ein af auglýsingum inni
á vefsíðunni www.tapadfundid.
net. sem Sævar Davíðsson vef-
síðuhönnuður stendur fyrir. Fyr-
irmyndin eru erlendir vefir sem
kallast lostandfound og ganga út
á það að þeir sem tapa eða finna
hluti geti auglýst tapið eða fund-
inn ókeypis á Netinu.
„Ég setti þennan vef í upphafi
upp sem æfingu fyrir mig en
svo hef ég verið að auglýsa hann
aðeins og vonast til að hann festi
sig í sessi hjá fólki. Mér finnst
eiginlega ótrúlegt hvað fólk hefur
kveikt á honum.“
Margvíslegustu auglýsing-
ar má finna á vefnum. Fyrir um
viku fannst kanína ráfandi við
Hlemm. Hún virðist vera heimilis-
kanína þar sem hún er mjög gæf
og í góðum holdum.
Önnur kanína, Kata kanína,
týndist svo í byrjun febrúar. Hún
er að vísu tuskudýr en eigandinn
saknar hennar sárt. Einhver fann
gleraugu í Heiðmörk og Amalía
auglýsir eftir bakpokanum sínum
og heitir fundarlaunum, en hún
tapaði honum við Select í Efra-
Breiðholti.
Sævar segir að algengast sé að
fólk auglýsi eftir týndum gemsum
og veskjum. „Einnig er oft aug-
lýst eftir kisum og fuglum. Þetta
er algerlega gróðalaust batterí og
ég vonast bara til að þetta nýtist
sem flestum.“ - jma
Kanína fannst á Hlemmi
GEMSAR OG VESKI ALGENGAST
Sævar Davíðsson segir ýmislegt
dúkka upp í auglýsingum á tapad-
fundid.net. Þó séu verðmæti eins
og veski og gemsar það algengasta.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Á LEIÐ TIL MIAMI Fréttamaðurinn Einar Þorsteinsson ætlar að segja skilið við Ísland í
bili og sækja nám í stjórnmálafræði við háskólann í Miami ásamt konu sinni.
Jóna Svava Sigurðardóttir
Hjúskaparstaða: Gift.
Heimilisfang: Öldutún 10, Hafn-
arfirði.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Atvinna: Heimavinnandi.
Börn: Þrjú.
Jóna Svava stofnaði prjónaklúbbinn
Prjónajónu á Facebook. Félagar eru
orðnir yfir 2000 talsins.
Eins og greint hefur verið frá í
Fréttablaðinu þá nýtir Stefán Karl
Stefánsson, leikarinn góðkunni,
stund milli stríða og tekur upp
plötu sem ráðgert er að komi
út á næstunni á vegum
Senu. Stefán er þekktur
fyrir að vilja vanda vel
til verksins og hefur því
fengið nágranna sinn
í Ameríku, Veigar
Margeirsson,
til að taka upp
plötuna. Veigar er
vel þekktur úti í
hinum stóra heimi kvikmyndanna
en þekktastur er hann sennilega á
Íslandi fyrir tónlistina við kvikmynd-
ina Köld slóð.
Logi Geirsson handboltahetja
ætlar að fljúga heim frá
Þýskalandi sérstaklega til
að vera við stórdansleik
sem Einar Bárðarson efnir
til í Offiseraklúbbnum
á sunnudagskvöld.
Logi mun eiga kær-
ustu sem búsett
er í Keflavík og
hún vill helst ekki
missa af Sálinni og
Stefáni Hilmarssyni
þegar það er í boði.
Einar er mjög stoltur
af hvernig til hefur
tekist með klúbbinn
og býður nú upp á
sætaferðir á dansleikinn en ár og
öld mun vera síðan slíkt var í boði
á ball.
Dóttir hjónanna Bubba Morthens
og Hrafnhildar Hafsteinsdóttur var
skírð á skírdag. Séra Pálmi Matt-
híasson skírði stúlkuna sem fékk
nafnið Dögun París.
- fgg, jbg, hdm
FRÉTTIR AF FÓLKI
Langholtsvegi 42
Opið 11 - 19 alla páskana
l i
i - ll
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Andri Óttarsson
2 Dakota Fanning
3 Sigurður Gísli Pálmason