Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 11
FRÉTTIR
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
JÓN Viðar Jónsson, leik-
listargagnrýnandi DV, er
ekki lengur á boðsgesta-
lista á frumsýningar í
Borgarleikhúsinu. Það er
þó ekki svo að honum
hafi verið bannaður að-
gangur að leikhúsinu,
eins fram kom í sjón-
varpsfréttum RÚV í gær; hann
þarf einfaldlega að borga miðann
sinn sjálfur, að sögn Guðjóns Ped-
ersens leikhússtjóra.
Líð ekki dónaskap við gesti
„Þetta snýst um það að Jón Við-
ar hefur notað sín skrif sem leik-
húsgagnrýnandi til að tala illa um
hluti sem mér finnst ekki koma
málinu við og eru beinlínis rangir.
Mér fannst komið nóg þegar hann
fór að tala illa um gesti Borg-
arleikhússins – áhorfendur okkar.
Þetta snýst ekki um skoðanir
Jóns á leiksýningum. En þegar
Jón Viðar segir að svo mikil ná-
lykt sé í Borgarleikhúsinu að
áhorfendur flýi, á sama tíma og
fyrri hluti leikárs nú er með 20
þúsund fleiri gesti en sama tíma-
bil í fyrra, sem þó var metár – þá
og það er ég ekki að gera.
Þetta snýst einfaldlega ekki
um gagnrýni leiksýninga,
heldur um viðmót eins
gagnrýnanda við gesti
Borgarleikhússins.“
Jón vísar á DV
Jón Viðar Jónsson gagn-
rýnandi kvaðst ekkert hafa
um málið að segja og vísaði
ósk Morgunblaðsins um við-
tal á ritstjóra DV.
Ekki deilt
um hæfni Jóns
Reynir Traustason ritstjóri
kveðst mjög undrandi á aðgerð
Borgarleikhússins og líta hana al-
varlegum augum. „Það felst í því
ákveðin mismunun að bjóða einum
fjölmiðli en öðrum ekki og sú mis-
munun er byggð á mjög vafasöm-
um forsendum. Það fer eftir krítí-
kernum hvernig hann setur sitt
mál fram; Jón Viðar hefur vissu-
lega menntun og reynslu til að
fjalla um leiksýningar, um það
verður ekki deilt. Í því ljósi er að-
gerðin mjög slæm.“
Spurður um hverju gagnrýni
ætti að þjóna; leikverkinu, að-
standendum sýningar, leikhús-
fræðum, lesendum blaðsins eða
öðru, segir Reynir gagnrýnina
hljóta að miðast við að upplýsa
lesendur blaðsins. „Hann er að
segja lesendum okkar hvernig
verkið kemur honum fyrir sjónir.
Gagnrýnandinn er ekki að skrifa á
forsendum leikhússins. Hann hlýt-
ur að skrifa um það sem leik-
húsgestir þurfa að vita. Þetta eru
leiðbeinandi skrif, en auðvitað
öðrum þræði fyrir þá sem standa
að sýningunni. Hann krítiserar
kannski leiktjöld, tónlist eða slíkt
og þá læra menn vonandi af því.
Þetta er eins og hver önnur gagn-
rýni; sá sem gagnrýnir bækur
gerir það ekki fyrir höfundana
heldur fyrir lesendur. En gagn-
rýnendur eiga að vera mannbæt-
andi. Leikari sem fer illa út úr
krítík á að geta lært af því og orð-
ið vonandi betri leikari á eftir.“
Spurður um þá fullyrðingu Guð-
jóns Pedersens að málið snúist
ekki um gagnrýni á leiksýningar
heldur um orð hans í garð leik-
húsgesta, segir Reynir hana fyr-
irslátt.
„Þetta er þvættingur. Jón Viðar
dregur upp myndræna lýsingu á
því að almenningur snúi baki við
leikhúsinu því sýningarnar séu
svo lélegar. Ég held að þetta sé
algjör fyrirsláttur, vegna þess að
leikhússtjórinn er bara ævareiður
út af krítíkinni.“
Vill sjá tölur um
áhorfendafjölda Ladda
Reynir kveðst myndu vilja sjá
tölurnar þegar undir hann er bor-
in sú fullyrðing að gestum í Borg-
arleikhúsið hafi fjölgað umtalsvert
á þeim tíma sem Jón Viðar ræðir.
„Ég get ekki metið þetta. Ég
myndi til dæmis vilja sjá tölur um
það hvað Laddi kom með marga
áhorfendur inn í Borgarleikhúsið.
Hvað trekktu þeir leikhópar sem
komu utan frá? Hvað löðuðu þeir
að marga gesti miðað við það sem
Borgarleikhúsið er sjálft með. Ég
veit að veruleikinn er sá að Laddi
hefur verið að fylla húsið og fleiri
sýningar að ganga sem eru ekki
bundnar Borgarleikhúsinu. Það er
mat Jóns Viðars að Borgarleik-
húsið hafi ekki staðið sig nógu vel,
og þá trúi ég honum. Hann er
krítíker sem ég treysti til að fjalla
um þetta af einhverju viti, en að
öðru leyti get ég ekki metið gesta-
tölur. Borgarleikhúsið er ekki
bara starfsliðið sem þar vinnur,
því þar koma aðrir hópar að. Ég
ber fullt traust til Jóns Viðars
sem gagnrýnanda og aðgerðir
Guðjóns breyta engu þar um.“
„Gagnrýnendur eiga
að vera mannbætandi“
Borgarleikhússtjóri segir sinn gjörning ekki snúast um
gagnrýni leiksýninga heldur um viðmót gagnrýnanda við
gesti Ritstjóri DV segir leikhúsið mismuna fjölmiðlum
Jón Viðar
Jónsson
Guðjón
Pedersen
Reynir
Traustason
Borgarleikhúsið „Þetta snýst einfaldlega ekki um gagnrýni leik-
sýninga, heldur um viðmót eins gagnrýnanda við gesti Borgarleik-
hússins,“ segir Guðjón.
er hann að segja að áhorfendur
séu fífl, þeir finni ekki nályktina.
Svona dónaskap við mína gesti líð
ég ekki.“
Leikhússtjóra er í sjálfsvald
sett hverjir eru á boðsgestalistum
leikhússins. En spurning er hvers
vegna Jón Viðar, einn gagnrýn-
enda er tekinn af listanum. Hefði
sá gjörningur ekki þurft að ganga
yfir alla gagnrýnendur?
„Listinn yfir þá sem boðið er á
frumsýningar er breytilegur, og
við tökum hann í gegn árlega.
Vissir embættismenn borgarinnar
fá sinn fasta miða, og oft hafa
gagnrýnendur fengið miða á
frumsýningar. Ef Jón vill gagn-
rýna sýningar okkar áfram getur
hann keypt sinn miða sjálfur. Ef
ég tæki alla gagnrýnendur af list-
anum væri ég að setja út á þá alla,