Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 31
„nú er Nunna (Steinunn) komin suð- ur í háskólann, eigum við ekki bara að vera vinkonur í vetur?“ „Jú,“ sagði ég, „mér líst vel á það.“ Þetta var fjarska líkt Sillu, hún gekk hreint til verks og uppskar eftir því. Þetta var ágætis vetur hjá okkur. Það var skemmtilegt að skjótast smástund á kvöldin til hennar, því það var svo notalegt andrúmsloftið á Hamars- tígnum. Hún kom með mér á skóla- böllin, sem voru ómissandi, og svo áttum við fullt af spennandi leynd- armálum, sem fylgdu þessum aldri. Sumarið áður hafði Silla verið í kaupavinnu í Vík í Skagafirði og hafði frá ýmsu að segja þaðan og vorið 1950 fór hún þangað líka, nú bundin traustum böndum Skagfirðingnum Snorra Sigurðssyni frá Sauðárkróki, sem tekið hafði stúdentspróf í MA þá um vorið. Snorri, sem gekk undir nafninu Snorri sýslumanns á Krókn- um, hélt að sjálfsögðu einnig heim í Skagafjörðinn og réð sig á síldarbát. Ungu kaupakonunni í Vík varð tíðlit- ið út á Skagafjörðinn þetta sumar og hugsaði til Snorra síns, sem kannski var á einhverjum bát í sjónmáli. Snorri sigldi síðar til Noregs, þar sem hann nam skógfræði og lauk kandídatsprófi í Landbúnaðarhá- skólanum í Ási árið 1956. Hann hóf þá störf hjá Skógræktarfélagi Ís- lands og var framkvæmdastjóri 1968-1987, en er nú heiðursfélagi þess. Silla dvaldi hjá honum í Noregi eftir föngum, stundaði þar vinnu og lærði ágæta norsku. Sigurlaug og Snorri eignuðust sex góð og myndarleg börn, en urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa tvær dæt- ur sínar í blóma lífsins. Hún helgaði eiginmanni, börnum og heimili krafta sína að mestu, en stundum vann hún utan heimilis, þá einkum umönnun- arstörf. Silla hafði áhuga á skógrækt og tók þátt í skógræktarþingunum með manni sínum af lífi og sál. Hún kynntist því mörgu mætu skógrækt- arfólki hérlendis og erlendis. Þegar á ævina leið átti Silla við heilsuleysi að stríða, þar skiptust á skin og skúrir, en sólskinsstundirnar lærði hún að meta. Eftir að ég giftist til Skaga- fjarðar kom Silla oft í heimsókn, enda unni hún Skagafirði umfram aðra staði og þau hjón áttu hér skyldfólk og vini, þau voru bæði tengd þessu héraði sterkum, órjúfandi böndum. Kæri Snorri. Við Halldór sendum þér og fjölskyldu þinni innilegar samúðarkveðjur. Blaka. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 31 ✝ Hörður Snorra-son fæddist í Bolungarvík 14. janúar 1934. Hann lést á Fjórðungs- sjúkrahúsinu á Ísa- firði laugardaginn 29. desember síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Snorri Hildimar Jónsson, f. 1911, d. 1990, og Þorbjörg Jónína Magnúsdóttir, f. 1913, d. 1970. Systkini Harðar eru Rannveig, f. 1937, Jóna Guð- mundína, f. 1941, Fríða Dagmar, f. 1944, d. 2005, Magnús Þór- arinn, f. 1946, Jónína Maggý, f. 1949, og Lára Kristín, f. 1952, d. 1957. Hinn 19. nóvember 1955 kvæntist Hörður Margréti Krist- ínu Jónasdóttur, f. 18. apríl 1936. Foreldrar Margrétar Kristínar voru Jónas Kristinn Guðjónsson, f. 1906, d. 1981, og Jónína Al- bertsdóttir, f. 1904, d. 1988. Hörður og Margrét Kristín eign- uðust sjö börn. Þau eru: 1) Snorri Hildimar, f. 1953, maki Þorgerð- ur Jóhanna Einarsdóttir, f. 1957, börn þeirra eru: a) Hörður, f. 1975, maki Ewa Szuba, f. 1976, Guðfinnsson, f. 1955, börn þeirra eru: a) Róbert, f. 1975, maki Rox- ana M. Valladolia P., f. 1977, son- ur þeirra er Róbert Antonio V., f. 2005, og b) Margrét Kristín, f. 1979. 5) Elín Sigurborg, f. 1966, maki Atli Jespersen, f. 1966. Börn Elínar og Ingimars Guð- mundssonar eru Logi, f. 1990, og Inga Líf, f. 1997. 6) Jónas, f. 1971. Börn Jónasar og Bennie May Wright eru Daniel Snær, f. 1996, og Naomie Lind, f. 1998. 7) Vignir, f. 1973, maki Milena Cut- ino Cutino, f. 1987, dóttir þeirra er Carmen Kristín, f. 2006. Hörður fæddist í Bolungarvík og bjó þar alla sína tíð. Hann hóf sjómennsku 14 ára gamall þegar hann réð sig á hálfan hlut á móti Bjarna frænda sínum. Hörður starfaði við sjómennsku til ársins 1970 þegar hann hóf störf í Ís- húsfélagi Bolungarvíkur þar sem hann starfaði til ársins 1977. Þá hóf Hörður störf við Sundlaug Bolungarvíkur og starfaði þar allt þar til hann lét af störfum vegna aldurs 2003. Hörður var lengi virkur þátttakandi í Verka- lýðsfélagi Bolungarvíkur. Var hann meðal annars gjaldkeri fé- lagsins til fjölda ára og seinna varaformaður þess í 10 ár. Hann starfaði einnig að bæjarmálum og sat um tíma í bæjarstjórn. Útför Harðar fer fram frá Hólskirkju í Bolungarvík í dag og hefst athöfnin klukkan 14. dætur þeirra eru Jó- hanna og Kristín, f. 2007, b) Einar Jón, f. 1980, og c) Vera Dögg, f. 1985. 2) Guðjón Kristinn, f. 1954, maki Ólöf S. Bergmannsdóttir, f. 1957. Börn þeirra eru: a) Sigríður Guð- rún, f. 1982, í sam- búð með Úlfari Má Sófussyni, f. 1982, b) Heiða Björk, f. 1986, og c) Bergmann Sig- urður, f. 1989. Dótt- ir Guðjóns og Helgu Sigurð- ardóttur er Katrín Margrét, f. 1974, maki Baldur Ingi Ólafsson, f. 1977, synir þeirra eru Pétur Starkaður, f. 2005, og Númi Hrafn, f. 2006. Dóttir Katrínar og Georgs Þórs Steindórssonar er Tinna, f. 1993. 3) Jón Ísak, f. 1958, maki Sólveig Br. Skúladótt- ir, f. 1958, börn þeirra eru: a) Stefán Örn, f. 1979, maki Sigrún Waltersdóttir, f. 1980, börn þeirra eru Aðalsteinn, f. 2001, og Sólveig Birna, f. 2005, og b) Ólöf María, f. 1983. Synir Ólafar Mar- íu og Guðbjarts Atla Bjarnasonar eru Ísak Ingi, f. 2001, og Baldur Þór, f. 2004. 4) Þorbjörg Jónína, f. 1960, maki Hjörleifur Larsen Það var fyrir um tuttugu og sjö árum sem ég kynnist Herði Snorra- syni þegar ég kom fyrst á Hlíðar- strætið í fylgd næst elsta sonar hans. Hörður sýndi mér hlýju og það átti ekki eftir að breytast í gegn- um árum þó hann hefði ekki mörg orð um hlutina enda var það ekki hans stíll að fjölyrða um hlutina. Og í rauninni kom það mér á óvart þeg- ar ég fór að rifja upp í huganum kynni mín af honum hvað ég vissi lít- ið um hann. Hörður var nefnilega ekki mikið fyrir það að tala um sjálf- an sig og sín verk. Hann vildi frekar láta verkin tala og vinna þau fljótt og vel. Hörður var vandaður maður. Hann var ákveðinn og fastur fyrir og snyrtimenni fram í fingurgóma. Heimili hans og tengdamömmu hef- ur alltaf einkennst af snyrtimennsku jafnt úti sem inni og sama hefur átt við um vinnustaði hans. Þess ber Sundlaug Bolungarvíkur augljóst vitni, en þar starfaði hann lengi. Hörður vann lengi að verkalýðs- málum og hafði á þjóðmálum sterk- ar skoðanir. Oft voru fjörugar sam- ræður um þjóðmál í eldhúsinu á Hlíðarstrætinu þegar fjölskyldan kom saman. Fjölskyldan orðin stór, alls þrjátíu og þrír afkomendur og húsfreyjan ekki skoðunarlaus held- ur. Að leiðarlokum langar mig að þakka þér hvað þú hefur verið okk- ur Kidda og börnunum í gegnum ár- in. Blessuð sé minning þín. Ólöf Bergmannsdóttir. Það er skrítin tilfinning að setjast niður og fara að skrifa um hann afa minn. Mér finnst þetta svo ótrúlegt, að hann skuli vera farinn burt úr þessum heimi. Ég bjóst ekki við að árinu 2007 myndi ljúka svona. En enginn veit hvenær kallið kemur, svo mikið er víst, og var þinn tími kominn elsku afi. Afi var góður maður, duglegur og iðjusamur. Margar minningar skjót- ast upp í kollinn þegar maður hugs- ar um hann. Að koma í eftirsund á laugardögum var best í heimi. Að fá að fara frjálsum höndum um sund- laugina með frændum sínum og frænkum. Leika sér og hafa gaman. Fara svo sæll og glaður heim í heimalagaða pizzu. Eða þegar mað- ur mætti í skólaleikfimina eða í sund, hitti maður oft á afa. Oft á tíð- um laumaði hann að manni umslagi fullu af frímerkjum sem hann hafði klippt út fyrir sonardóttur sína sem vildi koma sér upp safni eins og eldri bróðir sinn. Með nýjustu minning- unum er þegar amma og afi komu til Hödda bróður að skoða nýjustu fjöl- skyldumeðlimina. Ég geng inn og afi tekur andköf. Er þetta ekki dóttir hans Snorra spyr hann. Jú jú, afi þetta er ég, Vera Dögg. Þá segir hann, Maggý hún er alveg eins og Elín. Sérðu það! Endurtók þetta nokkrum sinnum. Hann var svo innilega ánægður með það. Þar átt- um við ágætis spjall saman um gamlar minningar hans. Það gladdi mig svo. Já, afi var góður maður. Hann var ekki allra, bar ekki tilfinningar sínar á torg. En þrátt fyrir það vissi mað- ur að honum þótti ósköp vænt um mann. Það eru nefnilega litlu hlut- irnir sem skipta mestu máli. Ég sakna þín nú þegar elsku afi. Og með söknuði, ást og hlýju mun ég kveðja þig í hinsta sinn. En ég veit að þú ert kominn á betri stað í faðmi þeirra sem farnir eru og þú unnir. Þar muntu vaka yfir okkur öllum og þá sérstaklega ömmu. Hvenær sem kallið kemur, kaupir sig enginn frí. Þar læt ég nótt, sem nemur, neitt skal ei kvíða því. (Hallgrímur Pétursson.) Þín sonardóttir, Vera Dögg. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Þegar kemur að því að kveðja eru oft svo ótal margar gamlar minn- ingar sem koma upp í hugann. Þeg- ar við vorum yngri leið varla sá laug- ardagur að við kæmum ekki í sundlaugina til afa, enda héldum við að hann ætti hana sjálfur. Afi var alltaf ákaflega mikið snyrtimenni og munum við varla eftir því að hafa séð hann öðruvísi en vatnsgreiddan. Snyrtimennska hans kom einnig vel fram á mörgum öðrum stöðum hvort sem það var inni eða úti. Elsku afi, við þökkum þér fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman. Við systurnar munum alltaf minnast síðustu orðanna sem þú sagðir við okkur núna á öðrum degi jóla þegar þú sast á milli okkar í stofusófanum, „Ykkur hlýtur að þykja vænt um hann afa ykkar...“ því það voru sko orð að sönnu. Sigríður Guðrún, Heiða og Bergmann. Hörður Snorrason Guðný Einarsdótt- ir, amma mín og nafna, lést á jóladag. Þegar ég hugsa til Guðnýjar ömmu minnar koma fyrst og fremst upp í hugann orðin fjöl- skyldukona, ræktarsemi og alúð. Guðný var kona af gamla skólanum, fulltrúi gilda sem ég vona að séu þó enn við lýði. Hún setti fjölskyldu sína í fyrsta sæti, velferð fólksins hennar var hennar markmið og keppikefli. Hún hélt vel utan um hópinn sinn og leið aldrei betur en með sína í kringum sig. Guðný amma var róleg og yfirveg- uð kona, en á erfiðum stundum sýndi hún ótrúlegan dugnað og styrk. Að- eins sextíu og tveggja ára að aldri varð hún ekkja, sem hlýtur að hafa verið henni mikið áfall, þar sem þau Halldór afi voru einstaklega sam- hent hjón. Hún bar harm sinn í hljóði, það var ekki hennar stíll að vera með tilfinningasemi eða bar- lóm, en hélt minningu afa lifandi á sinn hátt. Hún hélt t.d. alltaf upp á afmælið hans og brúðkaupsafmæli þeirra. Þá var allri fjölskyldunni boðið í mat, rétt eins og hann væri Guðný Einarsdóttir ✝ Guðný Einars-dóttir fæddist í Hafnarfirði 18. jan- úar 1919. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi á jóladag, 25. desember síðast- liðinn, og var útför hennar gerð frá Frí- kirkjunni í Reykja- vík 4. janúar. enn á meðal okkar. Guðný amma var myndarleg húsmóðir og hafði greinilega tekið vel eftir í Hús- mæðraskólanum. Hún var góður kokkur og var langt fram á ní- ræðisaldur að prófa nýjar og spennandi uppskriftir. Hún kunni vel til verka og þótti sjálfsagt mál að sulta, taka slátur, baka flatkökur og búa til kæfu svo fátt eitt sé nefnt. Þetta var hluti af því að sjá vel um sína og iðulega vorum við send heim með eitthvað matarkyns. Hún var einnig mikil hannyrðakona, vandvirk og smekkleg við allt sem hún gerði. Hún lauk því sem hún byrjaði á, gafst aldrei upp og það eru ekki nema 10 ár síðan saumaði Ridd- arateppi, þrátt fyrir versnadi sjón. Guðný amma tók um margra ára skeið þátt í hannyrðahóp hjá kvennadeild Rauða krossins, þar sem hún naut þess að skapa, vera í góðum félagsskap og láta gott af sér leiða. Sem barn var ég mikið í Grana- skjólinu hjá afa og ömmu. Yfir þess- um stundum er bjarmi sælla minn- inga, þangað var alltaf gott að koma og mér tekið opnum örmum. Þar var enginn asi og stress, alltaf tími til að sitja og spjalla. Þar vorum ýmsir fjársjóðir, stórar dósir fullar af töl- um og blúndum, að ógleymdri „sjoppunni“ undir stiganum. Þar lumaði afi iðulega á Spur-cola og Smakk-súkkulaði, hvílík veisla. En stærstu fjársjóðirnir voru auðvitað afi og amma með alla sína ást og um- hyggju. Börnin mín, Sólrún Ásta og Dag- ur, voru svo lánsöm að kynnast lang- ömmu sinni og Guðný amma naut þess að fylgjast með þeim vaxa og dafna. Dauðinn er torskilinn fyrir börn á þessum aldri, en Sólrún Ásta gengur upp á hvern dag stolt með húfuna sem Guðný amma prjónaði. Það er líklega hennar leið til að heiðra minningu ömmu. Elsku amma mín, nú er komið að leiðarlokum. Síðustu mánuðirnir voru þér erfiðir og þó að söknuður- inn sé mikill hugga ég mig við að nú hafir þú fengið hvíld. Þakka þér fyr- ir allt sem þú hefur gefið mér og fjöl- skyldunni. Minningin um þig mun lifa í hjörtum okkar um ókomin ár og minna okkur á að fjölskyldan er það dýrmætasta sem við eigum – það sem gefur lífinu gildi. Guð blessi þig, amma mín. Þín, Guðný Katrín. Amma dó á fallegum hvítum degi, á jóladag. Ég var ekki tilbúin að missa hana, en er maður nokkurn tíma tilbúinn að missa þá sem eru manni kærir? Amma var góð kona, sterk, hlý, umhyggjusöm og traust. Amma brosti breitt þegar mér gekk vel og gladdist með mér. Það var yndislegt að sjá hana brosa og hún var falleg að utan og innan. Ég var mikið með henni og þekkti hana vel, þó við ættum ekki mörg ár saman. Hún var dul á sína eigin líðan en lét okkur vita hversu mikils virði við værum henni. Amma átti sína erfiðu kafla í lífinu eins og aðrir en stóð sig eins og hetja og hélt áfram af bjartsýni. Hún gerði það sem hún ætlaði sér. Það var svo gaman að heyra sög- urnar hennar úr Hafnarfirðinum þegar hún var lítil. Okkur fannst sérstaklega gaman að heyra sögurn- ar um prakkarann Stjána, litla bróð- ur hennar. Vildum við hlusta aftur og aftur á þessar sögur. Amma var mikil handavinnukona og síðustu mánuðina prjónaði hún margt fal- legt handa okkur. Margir voru undr- andi á hvað þetta var vel gert, miðað við hvað hún var orðin veik þá. Amma saknaði Halldórs afa mjög mikið og ég get glaðst yfir því að núna eru þau aftur saman. Ég kveð ömmu með orðunum sem hún kvaddi mig alltaf með „Guð veri með þér“. Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson.) Halldóra Snorradóttir. Úr ljóði Jakobínu Sigurðardóttur „Til móður minnar“. Hvað get ég, móðir, sagt um öll þau ár, sem okkur gafstu, sælu þína og tár? Ég veit þú hefur vakað, þráð og beðið. Og einhvernveginn er það svo um mig, að allt hið bezta finnst mér sagt um þig, sem aðrir hafa um aðrar mæður kveðið. Samt vel ég mér að þegja um lífsstarf þitt. En þakkir fyrir veganestið mitt ég vildi þér í litlu ljóði inna. Og þó að börn þín verði vaxnir menn, þau vildu fegin mega njóta enn um langan aldur móðurmunda þinna. Aðstandendur Guðnýjar þakka þeim sem léttu henni lífið í veikind- um hennar sl. þrjú ár. Sérstakar þakkir eru færðar dagvistun aldr- aðra, Þorraseli og deild 5B Land- spítala, Fossvogi. Þín Ingibjörg. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. Grátnir til grafar göngum vér nú héðan, fylgjum þér, vinur. Far vel á braut. Guð oss það gefi, glaðir vér megum þér síðar fylgja’ í friðarskaut. (Valdimar Briem) Með þessum orðum Valdimars Briem kveð ég vinkonu mína Guð- nýju Einarsdóttur hinstu kveðju og bið góðan Guð að blessa minningu hennar og styrkja aðstandendur hennar á sorgarstundu. Bergþóra Jóhannsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.