Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 25
Eldhúsið Einfaldar línur og góð geymslurými gefa eldhúsinu nútímalegt yfirbragð sem er í góðu samræmi við
heimilið í heild sinni og hentar vel þörfum allrar fjölskyldunnar.
Viskuorð Textinn á rúðunni er úr fyrsta kortinu sem Svandís sendi Hann-
esi. Texann má lesa úti líka því spegilmynd hans er á rúðunni við hliðina á.
Heimasæturnar Helena Rakel, 11 ára, og Sólveig Svala, átta ára, láta fara
vel um sig í herbergi Sólveigar ásamt tíkinni Gyðju.
Það er okkar reynsla að
maður þurfi að búa svolít-
ið í húsinu áður en maður
ákveður endanlega hvern-
ig maður vill hafa hlutina.
þurfi að búa svolítið í húsinu áður en
maður ákveður endanlega hvernig
maður vill hafa hlutina,“ segir Svan-
dís og Hannes bætir við að þau hafi
alltaf hugsað hlutina vel í tíma. Það
sé raunar nauðsynlegt þegar byggð
séu einingahús – úthugsa þurfi rými,
ljósastæði og rafmagn áður en ein-
ingarnar eru steyptar.
Húsið var steypt af Loftorku sem
þau hrósa í hástert fyrir að hafa
staðið við allar áætlanir. Sjálf unnu
þau þá verkþætti sem þau gátu, en
Hannes er byggingatæknifræðingur
og húsasmíðameistari að mennt.
Þannig sáu þau t.d. um ísetningu
glugga og fengu vini og ættingja í lið
með sér að leggja hita í gólf í sann-
kallaðri akkorðsvinnu. „Við höfðum
sjö tíma til stefnu á milli þess sem
gólfin voru lögð og þar til steypt var
yfir þau þannig að okkur veitti ekki
af allri þeirri hjálp sem við gátum
fengið,“ segir Svandís.
Allar innréttingar í húsið eru sér-
smíðaðar hjá Trésmiðju Þráins
Gíslasonar á Akranesi. Í þeim til-
fellum sem þau fundu ekki það sem
leitað var að létu þau smíða fyrir sig
eftir forskrift. „Systurdóttir mín
Svala Ástríðardóttir smíðaði til
dæmis hurðahöldurnar fyrir okkur,“
segir Hannes, „og tengdasonurinn
Guðmundur Sveinsson á heiðurinn
að svalahandriðinu.“
Hann bætir við að þau hafi haft
sérlega gaman af að hanna og gera
hlutina sjálf. „Því þó að það taki
vissulega aðeins lengri tíma þá verð-
ur það líka persónulegra og gefur
okkur líka góðan tíma til að skipta
um skoðun og hanna hlutina upp á
nýtt.“
annaei@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 25
Flugstöð Leifs Ei-
ríkssonar getur ekki
verið þekkt fyrir þetta.
Og jafnvel þótt um
bráðabirgðaaðstöðu
kunni að vera að ræða
þarf að sjá til þess að
þrifnaður á henni sé í
viðunandi horfi.
Það er hins vegar
fleira sem hrjáir Vík-
verja þessa dagana en
óviðunandi snyrtiað-
staða við komu á Kefla-
víkurflugvelli.
Í þeim umræðum
sem fram hafa farið um
verð og verðkannanir í
stórmörkuðum hefur
hvað eftir annað verið haft á orði að
hilluverð sé ekki alltaf sama verð og
í ljós komi þegar komið er að því að
greiða vöruna við kassa. Og jafn-
framt að neytandinn eigi kröfu á því
að hilluverð ráði, eins og eðlilegt er.
Fyrir skömmu kom Víkverji í eina
af verzlunum Nóatúns og hugðist
kaupa þar Malt í glerflöskum, sem
sagt var á hillu að kostaði 99 krónur.
Þegar komið var að kassa kom í ljós
að flaskan kostaði 129 krónur. Þegar
athugasemd var gerð við þennan
verðmun fór afgreiðslumaður bak-
sviðs og kom til baka með límmiða,
sem á stóð að Malt í gleri kostaði 129
krónur. Sá límmiði var hvergi á hillu.
Daginn eftir kostaði glerflaska af
Malti skv. hilluverði 99 krónur og
engin breyting hafði verið gerð á því.
Nokkrum dögum seinna var verðið
komið upp í 129 krónur.
Nú er auðvelt að skilja að mistök
geti orðið við verðmerkingar. En
það skiptir máli hvernig brugðizt er
við þegar athygli er vakin á mistök-
unum. Í þessu tilviki varð það ekki
til að auka á trúverðugleika.
Fyrir nokkrum dög-um kom nokkuð
stór hópur fólks inn í
flugstöð Leifs Eiríks-
sonar á Keflavík-
urflugvelli eftir flug frá
Evrópu, sem ekki er í
frásögur færandi.
Það sem hins vegar
er frásagnarvert er að
hluti þessa hóps leitaði
inn á snyrtingu, sem
staðsett er í námunda
við þann stað sem far-
angur farþega kemur á
þar til gerðum beltum.
Sjálfsagt er hér um
bráðabirgðaaðstöðu að
ræða vegna þeirra
framkvæmda sem standa yfir á flug-
stöðinni. En þetta kvöld kom í ljós
að þessi aðstaða er alltof lítil, biðröð
myndaðist, ýmsar nauðsynjar vant-
aði og öll aðstaða nánast sóðaleg.
víkverji skrifar | vikverji@mbl.is
Slökkvilið
Höfuðborgarsvæðisins
Útikerti eru oft staðsett
þannig að hætta er á
að yngsta kynslóðin
rekist í þau og að
yfirhafnir fullorðinna,
sérstaklega kápur og
frakkar fullorðinna
sláist í loga þeirra
Munið að
slökkva á
kertunum
i