Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 34

Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 34
34 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR „Amma Sigga“ nafn og ávarp sem er jafn persónulegt og tilfinn- ingaríkt og ástarjátning. „Þú ert svo falleg“ þannig kvaddi amma mig. Kannski hefur hún heilsað mér með sömu orðum, þegar hún hélt mér ný- fæddri í fanginu. Það hefur aldrei teygst jafn mikið á naflastrengnum milli okkar og síðustu 3 árin, en þá fluttum við öll úr Eyjum, þau afi norður til mömmu og ég og dreng- irnir mínir í höfuðborgina. Ég hef haft langan undirbúning fyrir þenn- an dag kveðjustundar, en samt er ég ekki tilbúin. Ég bjó fyrstu 5 ár æv- innar hjá ömmu og afa. Þar mynd- uðust órjúfanleg tengsl og nánd. Ég bjó oft eftir það hjá þeim, nú síðast fyrir 4 árum með drengina mína. Í Anna Sigríður Þorsteinsdóttir ✝ Anna SigríðurÞorsteinsdóttir fæddist á Akureyri 4. júlí 1927. Hún lést á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri 29. desember síðast- liðinn og fór útför hennar fer fram frá Hvítasunnukirkj- unni á Akureyri 4. janúar. rauninni slitnaði nafla- strengurinn aldrei á milli okkar ömmu. Oft tókumst við á, hún stóð mér svo nálægt tilfinningalega, hún var oft í hlutverki þess sem þurfti að aga mig. En þær voru líka margar og fleiri góðu stundirnar, við mat- seld, sultugerð, bakst- ur, sláturgerð, amma að svindla í rommý, að leggja kapal, í búða- rápi, á Hernum, rútu- ferðir norður, ferðin til Kansas, horf- andi saman á Leiðarljós, saman í sundlauginni eða að fá okkur blund. Ég úthellti oft hjarta mínu og von- brigðum yfir gömlu konuna sem stóð alltaf með mér og lét allt í mínu lífi sig varða. Ég átti alltaf verjanda, huggara og hvatningarmann í ömmu. Mér var í mun að gera þau afa stolt af mér, og það voru þau allt- af, alveg sama hversu oft mér mis- tókst. Margir myndu segja að amma hefði spillt mér, og það er rétt að mörgu leyti, mig skorti aldrei neitt hjá þeim, ekki heldur ástúð, um- hyggju og skilning. Ég átti ávallt örugga höfn og skjól á heimili þeirra, og ástin var skilyrðislaus sem þau afi umvöfðu mig og síðar drengina mína með. Síðasta kvöldstundin sem ég átti ein með ömmu var bæði yndisleg og erfið. Ég var komin norður gagn- gert til að kveðja hana. Mig langaði mest af öllu að lina kvalir hennar, vanmátturinn sem ég fann var mér þungbær. Mig langaði líka að skríða upp í til hennar eins og svo oft áður, hjúfra mig upp að henni, gráta, hætta að vera fullorðin smástund. En amma þurfti hvíld frá kvölum, hvíld frá áhyggjum, ég hélt í hönd hennar og sagði henni frá lífinu í borginni og persónulegum sigrum. Minningarnar eru margar eftir 40 ára samleið. Sú áleitnasta er hend- urnar hennar, snerting þeirra. Hendur sem læknuðu allt og gáfu ró. Snerting sem var þrungin af ástúð og umhyggju. Snerting sem er greypt í hjarta mitt og vitund um alla framtíð. Hjarta mitt er brostið um stund, en missirinn er ekki eilífur, ég hitti ömmu á himninum. Ég óska þess að ég fái erft hendurnar hennar og hjartalag. Að ég fái snert líf barnabarna minna þegar þau koma, á sama hátt og amma snerti mitt, að heimili mitt megi verða þeim örugg höfn og skjól, eins og heimili þeirra afa var mér. Elsku afi minn, ég bið Guð að umvefja þig og hugga. Ást ykkar ömmu til hvors annars var mitt öryggi og leiðarljós. Ást ykkar til mín var mér hlífiskjöldur, ómet- anlegur styrkur á brothættum stundum og ómældur fjársjóður minninga. Ég átti fallegustu ömmu í heimi, hún var alltaf lekker, með himinblá augu og hjarta úr gulli. Ég þakka Guði fyrir ömmu Siggu sem ég elskaði meira en þessi fátæklegu orð fá lýst. Íris Guðmundsdóttir Amma Sigga var alveg meiri hátt- ar, það var mikill kraftur í henni. Þegar ég var barn voru hún og afi Gísli búsett að Laufskógum 25 í Hveragerði. Það var alltaf svo gam- an að koma til þeirra, sérstaklega á sumrin þegar sundlaugin í ævintýra- lega stóra og gróðursæla garðinum var full af heitu vatni. Amma Sigga var alltaf svo falleg, með silfurgrátt hár og bros í augunum. Mér fannst hún agalega smart, hún átti svo mik- ið af flottum skóm og handtöskum, og snyrtiborðið í svefnherberginu hennar var eins og hjá prinsessum, svo ekki sé nú minnst á skartgripina. Amma Sigga var mjög dugleg. Hún átti alltaf fulla frystikistu af kökum sem hún hafði bakað og svo sendi hún líka kökur til okkar til Eyja. Ég man oft eftir því að hún hafi hringt í mömmu tiltölulega snemma dags og þá var hún búin að áorka eins og tveimur dagsverkum síðan hún fór á fætur í bítið. Eins man ég eftir því að amma og mamma ætluðu einu sinni að taka saman slát- ur. Við bjuggum í Vestmannaeyjum og amma og afi í Hveragerði svo mamma lagði land undir fót og fór með Herjólfi til Þorlákshafnar. Þeg- ar hún loks kom til Hveragerðis þá var amma búin að laga allt slátrið sem þær ætluðu að taka saman. Þannig var krafturinn í henni. Amma og afi voru höfðingjar heim að sækja og á sumrin var stanslaus gestagangur í Laufskógunum, einu sinni tóku þau meira að segja á móti heilli rútu af óvæntum gestum. Allir voru ávallt velkomnir til þeirra. Amma Sigga var mjög listræn og það er alveg ótrúlega margt sem ég á eftir hana, handmálaðir dúkar og ýmislegt úr perlum, en efst á listan- um trónar handmálað postulín sem hún föndraði við í kringum 1980. Munirnir sem hún framleiddi þá eru einstaklega fallegir og í miklu uppá- haldi hjá mér. Eins er ofarlega í minningunni frá barnæskunni tímabilið þegar amma Sigga vann í Kjörís-verksmiðjunni í Hveragerði. Hvílík og önnur eins gósentíð í lífi barns var það! Frysti- kistan hjá ömmu var alltaf full af ís, sem og frystikistan okkar. Það var alveg dýrðlegt! Svona man ég eftir ömmu Siggu, fjörugri, kraftmikilli, skapandi, fal- legri og gefandi. Hún var yndisleg amma og mér finnst ég hafa misst mjög mikið þegar hún dó. En ég veit að nú er hún laus við sjúkdóma og kvalir, nú er hún komin heim í dýrðina hjá Jesú. Dag einn mun ég hitta hana þar, en þangað til á ég hlýjar minningar um frábæra ömmu. Hjartans þakkir fyrir sam- veruna, amma mín. Drottinn blessi minningu þína. Hrund. Mig langar til þess að minnast í fáeinum orðum elsku- legrar ömmu minnar sem lést hinn 26. desember síðastliðinn. Það koma upp margar góðar og skemmtilegar minningar þegar ég hugsa um hana ömmu. Á mínum yngri árum fórum við fjölskyldan oft norður á sumrin og dvöldum þar í nokkrar vikur í senn. Þar var ým- islegt brallað eða brasað eins og hún amma hefði orðað það. Amma átti risastóra lóð sem okkur systrunum fannst æðislegt að fá að leika okkur á. Hún var með þrjú gróðurhús þar sem hún ræktaði blóm og svo rækt- aði hún gulrætur sem voru þær bestu í heimi. Það var alltaf gaman hjá ömmu. Amma sá um pósthúsið á staðnum eftir að afi dó og við lékum okkur í búðaleik með reiknivélina hennar, breyttum gardínunum hjá henni eftir okkar höfði en aldrei kvartaði hún undan okkur atorku- sömu stelpunum. Í Sæborg var olíu- kynding eins og títt var í þá daga. Eitt sinn er við systurnar vorum úti að leika datt okkur í hug að nota stóra olíutankinn sem var við húsið hennar ömmu fyrir bíl. Á honum sátum við til skiptis og þóttumst keyra en eftir smástund vantaði bensín á bílinn. Þá brugðum við á það ráð að taka vatnsslöngu úr garðinum og létum vatn renna ofan í olíutankinn. Við þetta fór allt á flot og þurfti amma að fá mann til að koma og gera við. Amma hafði nú ekki mörg orð um þetta, hún skammaði okkur ekki enda held ég að þetta uppátæki hafi henni þótt mjög fyndið því hún var enn að hlæja að þessu atviki. Þegar ég komst á unglingsaldur- inn flutti amma í Hlíðarhvamminn í Kópavogi og þá hittum við hana oft- ar. Stundum tók ég rútu í bæinn og þá var alltaf velkomið að gista hjá ömmu, hvort sem ég var ein eða ein- hver vinkona með mér. En einhvers staðar segir að þar sem hjartarúm Ágústa Jónsdóttir ✝ Ágústa Jóns-dóttir fæddist á Syðri Reistará í Arnarneshreppi 7. janúar 1919. Hún lést 26. desember síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Langholtskirkju 3. janúar. Jarðsett verður í Stærri Ársskógs- kirkjugarði í dag klukkan 14. er, þar sé líka hús- rúm. Það var alltaf gott að koma til ömmu og hún var alltaf svo ánægð að sjá mann og elskuleg. Hún hafði gaman af að heyra sögur af langömmu- börnunum og þreytt- ist hún ekki á að segja manni sögur af hinum langömmubörnunum líka. Hún bauð litlu krökkunum upp á súkkulaðirúsínur sem var mjög vinsælt enda er hún kölluð súkkulaðirúsínulangamman á mínu heimili. Þegar amma varð áttræð bauð hún öllum sínum afkomendum og mökum út að borða. Þrátt fyrir nægjusemina gagnvart sjálfri sér var ekki að spyrja að rausnarskapn- um þegar kom að velgjörðum við aðra. Ættingjunum fannst auðvitað gaman að hittast og úr varð að við gerðum það að árlegum sið að hitt- ast öll á afmælinu hennar 7. janúar. Amma var víðlesin kona sem lét sér fátt óviðkomandi. Hún átti auð- velt með að læra tungumál og las bækur og tímarit á þýsku og norð- urlandamálum. Hún var mikið nátt- úrubarn, hvort heldur sem var nátt- úran sjálf með litadýrð og stórfengleik eða allt það sem lífs- anda dró. Ég er þakklát fyrir þann tíma sem ég fékk með ömmu minni og kveð ég hana með söknuði. En ég trúi því að nú sé hún á góðum stað með afa þar sem henni líður vel. Guð blessi minningu hennar. Vaktu, minn Jesús, vaktu í mér, vaka láttu mig eins í þér. Sálin vaki þá sofnar líf, sé hún ætíð í þinni hlíf. (Hallgrímur Pétursson.) Guðrún Katrín Jóhannesdóttir. Elsku amma. Mér fannst það skrítið þegar pabbi kom inn í herbergi og tjáði mér að þú værir farin. Ég er varla búinn að átta mig á því. En eitt veit ég, að þú ert fegin enda held ég að þér hafi ekkert fundist gaman að vera ekki á fullri ferð. Mér fannst alltaf gaman að koma í heimsókn til þín í Hlíðarhvamminn enda var stutt í fótboltavöllinn og í skemmtilegt umhverfi. Í hvert skipti þegar við komum þá fór ég beint í neðstu skúffuna í eldhúsinu og fékk mér Ritz-kex sem þú varst búin að versla inn áður en ég kom í heimsókn. Alltaf varstu með tilbúna teikniblokk og penna fyrir barna- börnin þegar þau komu í heimsókn en aðallega notaði Hilmar þetta, enda teiknaði hann uppáhaldslista- verkið þitt, það var myndir af ein- hverjum fjölskyldumeðlimum og þar á meðal af þér, og myndin af þér var legsteinn og að þessu hlóst þú mikið og sagðir mér alltaf þegar ég kom í heimsókn til þín í haust. Ég ætlaði að gera svo margt með þér eftir áramót, ég ætlaði meðal annars að fara með þig í Hlíðar- hvamm til Ásdísar systur og elda uppskrift eftir þig sem var lambas- íða röspuð með hveiti, kartöflur og brún sósa með lauk í. Einnig varstu búin að segja mér að þér þætti svo gaman að fara svona bæjarrúnt. Al- veg vildi ég að ég gæti gert þetta fyrir þig núna, en það verður að bíða betri tíma. Hinsvegar átti ég góðan klukkutíma með þér tæpri viku áður en þú fórst og þar sýndir þú húm- oristahliðina þína þar sem þú þóttist vera alveg svakalega kölkuð við eina starfskonuna á elliheimilinu og þá fékk ég að hlæja. Hér er svo Ömmubæn sem á vel við þig og ég gæti trúað að þú gætir sagt við okkur ættingja þína þessa daga eftir að þú fórst: Marga góða sögu amma sagði mér, sögu’ um það sem hún og aðrir lifðu hér. Alltaf var hún amma mín svo ósköp væn og í bréfi sendi þessa bæn: Vonir þínar rætist kæri vinur minn vertu alltaf sanni góði drengurinn. Þó í lífisins straumi bjáti eitthvað á, ákveðinn og sterkur sértu þá. Allar góðar vættir lýsi veginn þinn, verndi og blessi elskulega drenginn minn. Gefi lán og yndi hvert ógengið spor, gæfusömum vini hug og þor. (Jenni Jóns) Bless amma, þú varst fyrirtak- samma sem ég mun sakna mikið. Ágúst Valves Jóhannesson. Elsku rúsínu-langamma. Takk fyrir allar súkku- laðirúsínurnar sem þú gafst mér. Ég veit að þú ert á góð- um stað en ég vil frekar að þú sért hjá mér. Þú varst og ert ein af mínum bestu lang- ömmum. Mér þykir vænt um þig. Kveðja Anna Kolbrún. HINSTA KVEÐJA ✝ Sigríður Björns-dóttir frá Kleppustöðum fæddist á Græna- nesi í Strandasýslu 9. nóvember 1918. Hún lést á sjúkra- húsinu á Hólmavík 26. desember síðast- liðinn. Foreldrar hennar voru Björn Sigurðs- son frá Grænanesi í Strandasýslu, f. 21.6. 1894, d. 5.9. 1980, og Elín Sig- urðardóttir frá Geirmund- arstöðum í Selárdal í Stranda- sýslu, f. 26. 2. 1898 d. 24.8. 1974. Systkini Sigríðar voru Ingólfur, f. 14.8. 1920, d. 31.5. 1965, Sig- urmundur, f. 17.1. 1923, d. 2.5. 1973, Þórdís, f. 18.11. 1925, Sigrún Guð- björg, f. 22.10. 1927, Sigurlaug, f. 6.4. 1929, Sigurður Kristján, f. 15.4. 1930, Guðmundur, f. 18.7. 1931, Ólöf Sesselja, f. 12.1. 1933, Arndís, f. 8.9. 1934, Þuríður, f. 9.10. 1938, og Skúli, f. 4.7. 1940. Sigríður verður jarðsungin frá Hólmavíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarðsett verður að Stað í Stein- grímsfirði. Mig langar til að minnast systur minnar, Sigríðar Björnsdóttur, í fáum orðum og þakka henni fyrir samfylgdina. Við vorum 12 systk- inin á Kleppustöðum og var Sigga elst af okkur. Hún var okkur mikil fyrirmynd með dugnaði sínum og hjálpsemi. Þegar ég var tólf ára gömul veiktist ég af ígerð svo að fara þurfti með mig til læknis dúðaða í teppi á hestum til Hólmavíkur. Það kom í hlut Siggu að fylgja mér og fyrir það er ég henni ævinlega þakklát. Á heimili okkar var mikið sungið og snemma kom í ljós að Sigga hafði afskaplega fallega söngrödd og hvatti pabbi hana til að læra að syngja, en hún ákvað að það væri meiri þörf fyrir hana við bústörfin og að aðstoða við uppeldið á systk- inum sínum. Má segja að hún hafi alla tíð látið þarfir annarra ganga fyrir sínum þörfum og var hún afar dugleg og ósérhlífin allt sitt líf. Það má segja að allt hafi leikið í höndunum á Siggu og þegar hún var 28 ára tók hún sig til og fór suð- ur til að læra að sauma og sníða. Hún lauk við það nám og þótti hún mjög góð saumakona. Hún saumaði bæði jakkaföt og dragtir af mikilli list og nokkra saumaði hún íslensku búningana. Hún starfaði ekki lengi við saumaskap en hafði saumaskap- inn meira sér til ánægju og ynd- isauka. Sigga söng með kórum nær allt sitt líf og þegar hún var orðin 81 árs gömul gaf hún út geisladisk með ís- lenskum sönglögum og þykir það alveg einstakt að svo gömul kona syngi inn á geisladisk. Hún naut þess heiðurs að syngja fyrir forseta Íslands þegar hann kom til Hólma- víkur, þá orðin háöldruð. Hún Sigga lét sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Hún hvatti mjög til og tók þátt í að kosta endurbygg- ingu á Staðarkirkju, en þaðan var hún fermd og hafði ætíð miklar taugar til þeirrar kirkju. Hún var mjög stolt af foreldrum okkar og uppruna og lét hún byggja sum- arhús á bökkum Staðarár, þar sem Kleppustaðir stóðu, og þar sem áin er óbrúuð lét hún byggja göngubrú yfir Staðarána. Ég kveð elsku systur mína með kærri þökk fyrir samfylgdina og með stolti yfir að hafa átt hana fyrir systur. S. Guðbjörg Björnsdóttir frá Kleppustöðum og fjölskylda. Elsku Sigga frænka, við bræð- urnir munum ætíð minnast þín og ánægjulegra samverustunda við kofabyggingar, virkjunarfram- kvæmdir og grasaferðir fram í Staðardal með söng í hjarta. Ó, leyf mér þig að leiða til landsins fjalla heiða með sælusumrin löng. Þar angar blómabreiða við blíðan fuglasöng. Þar aðeins yndi fann ég, þar aðeins við mig kann ég, þar batt mig tryggðaband, því þar er allt sem ann ég. Það er mitt draumaland. (Guðmundur Magnússon.) Jón Rúnar og Björn Helgi Arasynir. Sigríður Björnsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.