Morgunblaðið - 05.01.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 43
árnað heilla
ritstjorn@mbl.is
Félagsstarf
Bólstaðarhlíð 43 | Námskeið félagsstarfsins
hefjast aftur 7. jan. Ný námskeið í glerlist
verða fyrir og eftir hádegið á miðvikud.
Skráning í s. 535 2760. Jóga-leikfimitímar
verða tvisvar í viku á mánud. og fimmtud. kl.
9-9.45.
Félagsheimilið Gjábakki | Krummakaffi kl. 9.
Hana-nú ganga kl. 10.
Félagsstarf Gerðubergs | Alla virka daga kl.
9-16.30 er fjölbreytt dagskrá, m.a. opnar
vinnustofur, með og án leiðsagnar, opinn
spilasalur, kórstarf o.m.fl. Á mánud. og miðvi-
kud. er sund og leikfimiæfingar í Breiðholts-
laug. Á þriðjud. og föstud. kl. 10.30 er létt
ganga um nágrennið. Á föstudögum kl. 10 er
prjónakaffi.
Kaffibarþjónafélagið | Aðalfundur Kaffibar-
þjónafélags Íslands verður 9. jan. kl. 20, á
kaffihúsi Tes og kaffis í Grandagarði 1, Salt-
félaginu. Kosning nýrrar stjórnar o.fl. aðal-
fundarstörf.
Lífeyrisþegadeild Landssambands lögreglu-
manna | Fyrsti fundur ársins verður 6. janúar
kl. 10 á Grettisgötu 89.
Kirkjustarf
Digraneskirkja | Jólaball sunnudagaskólans
og 6-9 ára starfsins kl. 11. Byrjað í kirkjunni.
Dansað í kringum jólatréð niðri í kapellu. Börn
úr 6-9 ára starfinu sýna helgileik.
60ára afmæli. Í dag, 5.janúar, verður dr.
Bjarni Reynarsson, skipulags-
fræðingur og framkvæmda-
stjóri Land-ráðs sf., sextugur.
Kona hans er Jóhanna Ein-
arsdóttir, prófessor við KHÍ.
dagbók
Í dag er laugardagur 5. janúar, 5. dagur ársins 2008
Orð dagsins: Og ég veit að boðorð hans er eilíft líf. Það sem ég tala, það tala ég því eins og faðirinn hefur sagt mér. (Jh. 12, 50.)
Unifem efnir til umræðufundarí dag, laugardag, og er fund-urinn fyrstur í röð UNI-FEM-umræðufunda á
árinu.
Markmið fundanna er að varpa ljósi á
stöðu kvenna í þróunarríkjum og á
stríðshrjáðum svæðum, og einnig að
kynna starf UNIFEM.
Á fundinum í dag munu tvær íslensk-
ar starfskonur UNIFEM segja frá
störfum sínum: Hildur Fjóla Antons-
dóttir mann- og kynjafræðingur, sem
starfar á svæðisskrifstofu UNIFEM á
Barbados og Guðrún Sif Friðriksdóttir
mannfræðingur, sem starfar á vegum
UNIFEM í Líberíu.
„Tölur gefa til kynna að ein af hverj-
um þrem konum í heiminum sé beitt of-
beldi einhvern tímann á lífsleiðinni og
oftar en ekki fara þessir glæpir fram án
þess að gerendum sé refsað og án stuðn-
ings við konur og börn sem lifa af ofbeld-
ið,“ segir Hildur. „Einnig nær kynbund-
ið ofbeldi nýjum hæðum á ófriðartímum
eins og greint hefur verið frá nú í Kenía
þar sem til dæmis vígahópar karla hóp-
nauðga konum í vaxandi mæli. Kyn-
bundið ofbeldi er birtingarmynd ójafn-
réttis kynjanna sem rænir konur frelsi
og takmarkar gerendahæfni þeirra.
Ójafnrétti og ofbeldi stendur einnig í
vegi fyrir þróun samfélaga þar sem
kraftar kvenna eru ekki nýttir.“
Með ötulu starfi víða um heim vinnur
UNIFEM gegn margvíslegum birting-
armyndum kynbundins ofbeldis: „Í sam-
starfi við yfirvöld og frjáls félagasamtök
á hverjum stað hefur töluverðum ár-
angri verið náð,“ segir Hildur. „UNI-
FEM hefur m.a. átt þátt í því að nú hafa
89 ríki lagaramma sem tekur á heimilis-
ofbeldi, en enn glímum við víða við það
verkefni að lagaramminn sé nýttur sem
skyldi,“ segir Hildur. „Meðal helstu
markmiða UNIFEM um þessar mundir
er að aukið verði við fjármagn Sjóðs
Sameinuðu þjóðanna um afnám ofbeldis
gegn konum. Sjóðurinn hefur nú verið
starfræktur í 10 ár, og á þeim tíma
styrkt 250 verkefni í nálægt 120 ríkj-
um.“
Fundurinn í dag er haldinn í Miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi 42, og
hefst kl. 13. Aðgangur er öllum heimill
og ókeypis.
Heimasíða UNIFEM á Íslandi er á
slóðinni www.unifem.is. Má þar finna
nánari upplýsingar um starf UNIFEM,
og fleiri viðburði í vetur.
Mannúðarstarf | Fundur um konur í þróunarríkjum og á stríðssvæðum
Án varnar og stuðnings
Hildur Fjóla
Antonsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1975. Hún lauk
stúdentsprófi frá
Kvennaskólanum
1995, BA-gráðu í
mannfræði frá HÍ
2003 og M.Sc. í þró-
unarfræðum frá
LSE 2005. Hún starfaði áður hjá Rann-
sóknastofu í Vinnuvernd og RIKK við
HÍ, en er nú starfsmaður Svæð-
isskrifstofu UNIFEM í Karíbahafinu.
Tónlist
Hjallakirkja | Nýárstónleikar
Kvennakórs Kópavogs og Karla-
kórs Kópavogs verða á morgun,
sunnudag, kl. 15. Á dagskrá eru
bæði íslensk og erlend lög.
Stjórnendur eru Natalía Chow
Hewlett (kvennakór) og Julian
Hewlett (karlakór). Miðaverð er
1.500 kr. en 1.000 kr. fyrir eldri
borgara, frítt fyrir 12 ára og yngri.
Myndlist
Energia | Smáralind. Sölusýning
listamannsins Mýrmanns sem
býr og starfar í Hveragerði stend-
ur yfir. Þar getur að líta fimm ný
málverk. Þetta er níunda sýning
hans og mun hún standa út jan-
úar. www myrmann.com.
Gerðuberg | Þetta vilja börnin
sjá! Myndskreytingar í íslenskum
barnabókum 2007. Málverkasýn-
ing Togga. Þorgrímur Krist-
mundsson alþýðulistamaður sýn-
ir landslagsmálverk unnin í
vatnslit og olíu. Sýningin stendur
til 13. janúar. Nánar á www.gerdu-
berg.is.
Fyrirlestrar og fundir
Hótel Borg | Power Talk-deildin
Fífa úr Kópavogi er með fyrsta
fund í Silfursal kl. 12. Á dagskrá er
m.a. kynning deildarfélaga á
nokkrum bókum. Allir áhuga-
samir velkomnir meðan húsrúm
leyfir. Uppl. í síma 698 0144 eða
á itcfifa@isl.is.
Kringlukráin | París, félag þeirra
sem eru einir, heldur janúarfund
kl. 11.30. Kynnt verður Fær-
eyjaferð félagsins í sumar. Nýir
félagar velkomnir.
Börn
Gerðuberg | Allt í plati er sýning
úr söguheimi Sigrúnar Eldjárn.
Gestum er boðið í heimsókn á
heimili Málfríðar þar sem þeir
hitta m.a. Kugg og Mosa. Opin
listsmiðja. Sýningin stendur til 13.
janúar. Nánar á www.gerduberg-
.is.
ÞAÐ glóir fallega í Gullna musterinu í borginni Amritsar á Norður-Indlandi. Glysgjarnir
taka líklega andköf er þeir koma í þetta fagra musteri sem var byggt til að minnast fæð-
ingar trúarleiðtogans Gobind Singh.
Frá Indlandi
Gullið musteri
AÐALFUNDUR Félags um lýð-
heilsu mælir gegn því að frum-
varp um breytingar á ýmsum
lagaákvæðum sem varða sölu
áfengis og tóbaks verði sam-
þykkt á Alþingi. Fundurinn
leggur áherslu á eftirfarandi:
1. Fjölgun útsölustaða
Ofangreint frumvarp þetta
miðar að því að heimila sölu
áfengis sem í er minna en 22% af
vínanda að rúmmáli í smásölu
með tilgreindum takmörkunum.
Í þeim styrkleikaflokki af vín-
anda sem vísað er til í þessu
frumvarpi er allur bjór, léttvín
og gosblandaðir drykkir úr
sterku áfengi og telur sú neysla
81% af árlegri neyslu áfengis í
alkóhóllítrum talið. Verði þetta
frumvarp að lögum má færa rök
fyrir því að útsölustöðum áfengis
í landinu fjölgi verulega og að
neysla áfengis aukist í kjölfarið.
2. Heilbrigðismat
Félag um lýðheilsu hefur áður
ályktað um að á Íslandi þurfi að
innleiða svokallað heilbrigðismat
(á ensku health impact assess-
ment) fyrir framkvæmdir, laga-
setningar og aðrar stjórnvalds-
ákvarðanir af vissri stærðar-
gráðu, sbr. umhverfismat.
Framlagt frumvarp er mál af
slíkum toga. Mörg rök hníga að
því að aukið aðgengi að áfengi
hér á landi muni leiða til auk-
innar neyslu þess og þá einkum
meðal unglinga enda er sá hópur
líklegastur til að auka neyslu
sína með auknu aðgengi. Brýnt
er því að leggja mat á umfang og
afleiðingar slíkra áhrifa áður en
teknar eru ákvarðanir og byggja
þær á áreiðanlegum rannsóknar-
gögnum og spám.
3. Sértækar athugasemdir:
Í 2. grein er kveðið á um að
óheimilt verði samkvæmt frum-
varpi þessu að selja áfengi undir
kostnaðarverði. Slíkt eftirlit
verður mjög erfitt í framkvæmd
og kostnaðarsamt.
Í 10. grein eru tíunduð skilyrði
fyrir veitingu smásöluleyfis. Þar
er kveðið á um að starfsmenn
sem afgreiða áfengi megi ekki
vera yngri en 20 ára. Þó það
megi rökstyðja að slíkt sé fram-
kvæmanlegt, þá er framkvæmd
t.d. á sölu tóbaks ekki að fullu í
samræmi við lög samkvæmt
könnunum og alltaf nokkurt
hlutfall söluturna þar sem ung-
lingar yngri en 18 ára fá keypt
tóbak. Þá er í frumvarpinu ekki
tekið sérstaklega fram að þeir
sem raði í hillur og þrífi upp þeg-
ar óhöpp verða þurfi að vera
fullra 20 ára.
Aðalfundur Félags um lýð-
heilsu vill undirstrika það álit sitt
að breytingar á lögum um sölu
áfengis og tóbaks í þá veru að
fjölga útsölustöðum áfengis
gangi með beinum hætti gegn
markmiðum Heilbrigðisáætlun-
ar til ársins 2010 sem Alþingi
hefur samþykkt og muni fela í
sér aukna sölu og neyslu áfengis
meðal þjóðarinnar og þá einkum
meðal unglinga.
Aðalfundur Félags um lýð-
heilsu telur mjög brýnt að frum-
varpi sem fjallar um sölu áfengis
og tóbaks fylgi heilbrigðismat
þar sem teknar eru saman upp-
lýsingar um þróun áfengisneyslu
í landinu, afleiðingar hennar og
að lagt verði mat á áhrif af þeim
breytingum sem frumvarpið
leggur til.
Frumvarp um breytingar á ýmsum laga-
ákvæðum sem varða sölu áfengis og tóbaks
Félag um lýð-
heilsu mælir gegn
frumvarpinu
KR-flugeldar verða með sína
árlegu risaflugeldasýningu á
morgun, laugardaginn 5. des-
ember, kl. 18.
Sýningin hefur verið árviss
atburður í lífi Reykvíkinga og
nágranna frá árinu 1982 eða í
aldarfjórðung. Eins og und-
anfarin ár verður skotið frá
Faxaskjóli.
Flugelda-
sýning KR
♦♦♦
Góð þátttaka í jólamóti
Bridsfélags Akureyrar
Árlegt Glitnismót Bridsfélags
Akureyrar var að vanda spilað
milli hátíða og fór fram á Hótel
KEA laugardaginn 29. desember
2007. Alls mættu 32 pör og var
spilað af miklu fjöri enda vegleg
flugeldaverðlaun í boði. Pétur
Guðjónsson og Jónas Róberts-
son eru í miklu stuði um þessar
mundir og sigruðu örugglega
með +172 stig. Í öðru sæti urðu
Sigurbjörn Haraldsson og Guð-
mundur Halldórsson með +129
og þriðja sæti hrepptu Stefán
Sveinbjörnsson og Hákon Sig-
mundsson með +123 stig.
Næstu pör voru:
Grétar og Örlygur Örlygssynir +102
Ævar Ármannss. og Árni Bjarnas. +66
Þórarinn B. Jónss. og Páll Pálss. +66
Efstu þrjú pörin hlutu flug-
elda og skotkökur ásamt tveimur
pörum sem voru dregin út og
neðsta parinu sem fékk þannig
nokkra sárabót fyrir stríðsgæfu-
skortinn.
Stjórn BA þakkar Glitni veitt-
an stuðning vegna mótsins og
öllum þátttakendum fyrir
skemmtunina.
Starfsemi BA hefst með eins
kvölds nýárstvímenningi þriðju-
daginn 8. janúar og eru allir
bridsarar boðnir velkomnir til
leiks. Spilamennska hefst kl.
19:30 og spilað verður sem fyrr í
Lionssalnum Ánni, Skipagötu
14, 4. hæð.
Brids á Akureyri. Verðlaunahafar í mótslok f.v.: Sigurbjörn Har-
aldsson, Guðmundur Halldórsson, Jónas Róbertsson, Pétur Guð-
jónsson, Hákon Sigmundsson, Stefán Sigmundsson og Gylfi Páls-
son.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson | norir@mbl.is