Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 16
16 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FRÉTTASKÝRING
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
SIGUR Baracks Obama í forvali
demókrata í Iowa-ríki í fyrrakvöld er
mikið áfall fyrir Hillary Clinton og
eykur líkurnar á því að Obama verði
fyrsti blökkumaðurinn til að gegna
embætti forseta Bandaríkjanna.
Þetta er þó aðeins fyrsta lotan í bar-
áttu þeirra og forkosningarnar í New
Hampshire á þriðjudaginn kemur
gætu ráðið úrslitum um hvort demó-
kratar tefla fram blökkumanni eða
konu í forsetakosningunum í Banda-
ríkjunum í nóvember.
Obama fékk 37,8% atkvæðanna í
Iowa, John Edwards, varaforsetaefni
demókrata í síðustu kosningum, fékk
29,7% og Hillary Clinton varð í þriðja
sæti, með 29,5% fylgi.
Mike Huckabee, fyrrverandi bapt-
istaprestur, sigraði hins vegar í for-
vali repúblikana í Iowa með 34,3%
fylgi. Helsti keppinautur hans í rík-
inu, Mitt Romney, fyrrverandi rík-
isstjóri Massachusetts, fékk aðeins
25,3%. Líklegt er að ósigur Romney í
baráttunni við Mike Huckabee verði
vatn á myllu öldungadeildarþing-
mannsins John McCain eða Ru-
dolphs Giulianis, fyrrverandi borg-
arstjóra New York.
Edwards að heltast úr lestinni
Stjórnmálaskýrendur segja að
Hillary Clinton þurfi nú að snúa vörn
í sókn á næstu dögum fyrir forkosn-
ingarnar í New Hampshire sem gæti
reynst stærsti pólitíski prófsteinn
hennar til þessa. „New Hampshire er
síðasta tækifæri frambjóðanda sem
tapar í Iowa,“ hafði fréttastofan AP
eftir Andrew Smith, sem stjórnar
skoðanakönnunum á vegum New
Hampshire-háskóla. „Tapi frambjóð-
endur í Iowa og líka í New Hamp-
shire eru þeir búnir að vera og geta
farið heim.“
Stjórnmálaskýrendur bentu einnig
á að ekki hafði verið búist við því að
Hillary Clinton fengi mikið fylgi í
Iowa. Nýleg skoðanakönnun bendir
til þess að Clinton sé með 34% fylgi
meðal líklegra kjósenda demókrata í
New Hampshire en Obama 27% og
Edwards aðeins 18%. Edwards hafði
kappkostað að tryggja sér mikið fylgi
í Iowa og svo virðist sem hann hafi
helst úr lestinni því ólíklegt er talið
að hann geti farið með sigur af hólmi
í einhverju öðru ríki.
Tveir frambjóðendur í forkosn-
ingum demókrata – öldungadeildar-
þingmennirnir Joseph Biden og
Christopher Dodd – ákváðu að draga
sig í hlé eftir forvalið í Iowa.
Öruggur sigur Obama er merki-
legur í ljósi þess að aðeins 2,5% íbúa
Iowa eru blökkumenn. Talið er að
hann hafi notið góðs af mikilli kjör-
sókn, en hún var nær helmingi meiri
en í síðasta forvali.
Um 20% þeirra sem greiddu at-
kvæði í forvali demókrata í Iowa eru
óháðir og rúm 40% þeirra studdu
Obama en aðeins 17% Clinton. Um
57% þátttakendanna sögðu að þetta
væri í fyrsta skipti sem þeir tækju
þátt í forvali demókrata og tveir
þriðju þeirra kusu Obama, ef marka
má skoðanakönnun bandarískra fjöl-
miðla fyrir utan kjörstaðina.
Í kosningabaráttunni hefur Hillary
Clinton einkum gagnrýnt Obama fyr-
ir skort á pólitískri reynslu en skoð-
anakönnunin bendir til þess að aðeins
fimmtungur kjósendanna í forvali
demókrata hafi talið reynslu skipta
mestu máli. Um 52% þátttakendanna
töldu mikilvægast að velja forseta-
efni sem væri best til þess fallið að
koma á nauðsynlegum breytingum,
þar af studdi rúmur helmingurinn
Obama en hin atkvæðin skiptust á
milli Clinton og Edwards.
„Hillary Clinton urðu á mikil mis-
tök: hún taldi að reynsla myndi ráða
úrslitum í forkosningum demókrata,“
hafði The Washington Post eftir full-
trúadeildarþingmanninum Artur
Davis, stuðningsmanni Obama. „En
demókrata þyrstir í breytingar. Þá
þyrstir í áræði og allt talið um
reynslu tengir frambjóðendur við
óbreytt ástand.“
Sigur fyrir McCain
Öruggur sigur Mike Huckabee,
fyrrverandi ríkisstjóra Arkansas, í
forvali repúblikana í Iowa er mikið
áfall fyrir Mitt Romney. „Segja má
að Huckabee hafi ekki aðeins sigrað
heldur í raun gert út af við draum
Mitt Romney um Hvíta húsið,“ hafði
fréttastofan AFP eftir stjórnmála-
skýrandanum Costas Panagopoulos.
Romney hafði reitt sig á sigur í
Iowa og New Hampshire í von um að
ná fylgi í öðrum ríkjum af Rudolph
Giuliani sem ákvað að hafa sig lítið í
frammi í Iowa og New Hampshire en
leggja þeim mun meiri áherslu á for-
kosningarnar í Flórída síðar í mán-
uðinum og í 22 ríkjum þriðjudaginn
5. febrúar. Ósigur Romneys eykur
líkurnar á því að hann tapi einnig fyr-
ir John McCain í New Hampshire og
heltist úr lestinni.
Um 60% þátttakendanna í forvali
repúblikana í Iowa eru frelsaðir eða
evangelískir mótmælendur og 45%
þeirra kusu Huckabee, ef marka má
kannanir sem gerðar voru fyrir utan
kjörstaði. Huckabee fékk rúmlega
helmingi meira fylgi í þessum kjós-
endahópi en Romney.
Þessi kjósendahópur er miklu
minni hlutfallslega í New Hampshire
þar sem um 20% kjósenda repúblik-
ana skilgreina sig sem frelsaða eða
evangelíska. Huckabee er með minna
fylgi þar og búist er við að hann leggi
meiri áherslu á sigur í forkosning-
unum í Suður-Karólínu 19. janúar.
Skoðanakannanir benda til þess að
baráttan meðal repúblikana í New
Hampshire standi milli McCain (sem
er með 31,3% fylgi) og Romney (með
29%). Giuliani og Huckabee eru með
um það bil 10% fylgi hvor í ríkinu, ef
marka má kannanirnar.
Los Angeles Times hefur eftir
stjórnmálaskýrendum að úrslitin í
Iowa séu sigur fyrir McCain en þó
geti mikið fylgi Obama meðal óháðra
kjósenda sett strik í reikninginn því
McCain reiði sig á stuðning sama
kjósendahóps. Óháðu kjósendurnir í
New Hampshire verða að velja á milli
forkosninga demókrata og repúblik-
ana.
Líklegt er einnig að Giuliani sé
ánægður með úrslitin í Iowa og von-
ist til þess að keppinautar hans skipt-
ist á um að sigra í fyrstu ríkjunum
fjórum áður en hann fari sjálfur með
sigur af hólmi í Flórída og í síðan fjöl-
mennum ríkjum þriðjudaginn 5. febr-
úar.
Úrslitin í Iowa áfall fyrir
Hillary Clinton og Mitt Romney
AP
Næsti forseti? Barack Obama fagnar sigri sínum í Iowa með eiginkonu sinni, Michelle, og tveimur dætrum
þeirra. Obama vonast til þess að verða fyrsti blökkumaðurinn til að verða kjörinn forseti Bandaríkjanna.
Sigurvegari Mike Huckabee heilsar stuðningsmönnum sínum í Des Moines
eftir sigur hans í forvali repúblikana í Iowa í fyrrakvöld.
Obama og Hucka-
bee unnu fyrstu
lotuna og tvísýn
barátta framundan
í New Hampshire
» Líklegt er að ósigur
Mitt Romney í bar-
áttunni við Mike Hucka-
bee verði vatn á myllu
öldungadeildarþing-
mannsins John McCain
eða Rudolphs Giulianis,
fyrrverandi borgar-
stjóra New York.
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
STJÓRNVÖLD á Srí Lanka hafa tilkynnt
norskum stjórnvöldum formlega um þá
ákvörðun sína að segja upp vopnahléssamn-
ingnum frá 2002 við uppreisnarhreyfingu Tam-
íltígranna sem hafa í meira en tvo áratugi bar-
ist fyrir sjálfstæði þjóðarbrots Tamíla á
norðaustanverðri eynni. Allt að 70.000 manns
hafa fallið í átökunum sem hafa færst í aukana
síðustu vikur og mánuði. En stjórnarliðar segj-
ast nú hafa yfirhöndina og hyggjast ganga milli
bols og höfuðs á hreyfingunni. Utanríkisráð-
herrar Norðurlandanna harma í sameiginlegri
tilkynningu í gær uppsögn samningsins.
Mannréttindasamtökin Human Rights
Watch í New York ítrekuðu í gær tillögur sínar
um að komið yrði á fót nefnd á vegum Samein-
uðu þjóðanna er fylgdist með mannréttinda-
málum á Srí Lanka en þeirri hugmynd hafa
stjórnvöld í Colombo ávallt hafnað.
Norðmenn og Íslendingar hafa lagt fram
liðsafla í vopnahléseftirlitið, SLMM, á Srí
Lanka en hin norrænu ríkin styrkja sveitina
með fé. Japanar, sem hafa verið stórtækastir í
efnahagsaðstoð við Srí Lanka, lýstu einnig
miklum áhyggjum sínum vegna ákvörðunar
stjórnarinnar og hið sama gerðu Bandaríkja-
menn. Utanríkisráðherrar Norðurlandanna
gagnrýndu í gær ákvörðun Srí Lanka-stjórnar
og sögðu einu leiðina til friðar vera pólitíska
lausn sem tæki tillit til allra þjóðarbrota.
„Vopnahléssamningurinn var gerður milli
stjórnvalda á Srí Lanka og baráttusamtaka
Tamíltígra í febrúar 2002 og hefur verið í gildi í
hartnær sex ár,“ segir í yfirlýsingu norrænu
ráðherranna. „Samningurinn var grundvöllur
friðarferlisins og alþjóðlegrar viðleitni til þess
að aðstoða Srí Lanka við að binda enda á ára-
löng átök í landinu. Að beiðni deiluaðila komu
norrænu ríkin á fót borgaralegri eftirlitssveit í
því skyni að fylgjast með því að vopnahléið
væri haldið, bæði með tilliti til þess að hern-
aðarátökum væri hætt og að eðlilegt ástand
kæmist á að nýju.
Allt að 10.000 mannslífum verið þyrmt
Vopnahléssamningurinn hafði margvísleg
jákvæð áhrif í för með sér. Fyrstu þrjú árin
fækkaði fórnarlömbum átakanna stórlega
þannig að allt að tíu þúsund mannslífum kann
að hafa verið þyrmt. Samningurinn jók ferða-
frelsi allra íbúa Srí Lanka og skapaði efna-
hagsleg tækifæri. Þá fór ástand mannréttinda-
mála batnandi og vernd borgara efldist. Engu
að síður hafa brot á samningnum undanfarin
tvö ár verið fjölmörg og orðið sífellt alvarlegri.
Norrænu ríkin hafa af því áhyggjur að of-
beldi og mannlegar þjáningar muni nú aukast
að mun. Heimkvaðning eftirlitssveitarinnar á
Srí Lanka mun þýða endalok þýðingarmikillar
starfsemi sem veitti borgurunum vernd og
stuðlaði að því að koma sjónarmiðum fórnar-
lamba átakanna og fjölskyldna þeirra á fram-
færi.
Norrænu ríkin telja að eina leiðin til var-
anlegs friðar sé að finna pólitíska lausn sem
taki tillit til ágreiningsefna allra þjóðarbrota í
landinu. Uppsögn vopnahléssamningsins mun
aðeins tálma för manna aftur að samninga-
borðinu. Norrænu ríkin eru hvort tveggja í
senn þakklát fyrir og stolt af viðleitni og fram-
lagi alþjóðlegra og innlendra eftirlitsmanna og
starfsliðs eftirlitssveitarinnar á Srí Lanka við
mjög krefjandi aðstæður.“
Harma uppsögn vopnahléssamnings
Utanríkisráðherrar Norðurlandanna segja í sameiginlegri yfirlýsingu að pólitísk lausn þar sem
tekið sé tillit til sjónarmiða allra þjóðarbrota á Srí Lanka sé eina leiðin til varanlegs friðar