Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 20

Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 20
20 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI GUNNAR Jóhannsson lögreglu- fulltrúi segir mikið af fíkniefnum í umferð á Akureyri um þessar mund- ir; ástandið sé hvorki skárra en áður né áberandi verra. Eiturlyfjamál koma reglulega upp í bænum og segir Gunnar það hafa aukist mjög mikið að menn séu gripnir við akstur undir áhrifum fíkniefna. Hluti af þeirri skýringu sé örugglega, að komin eru mun betri tæki til þess að ganga úr skugga um slíkt en áður. Í vikunni stöðvaði lög- reglan ræktun á kannabisefnum í heimahúsi. Grunur vaknaði um að ræktun færi fram í íbúð í bænum og við leit fundust fimm kannabis- plöntur og fimm hitalampar auk ann- ars búnaðar sem notaður var. Á sama stað fannst þýfi úr inn- broti í veitingahúsið Strikið á Akur- eyri. Tveir menn á þrítugsaldri voru handteknir í íbúðinni og viður- kenndu að hafa staðið fyrir ræktun plantnanna og annar þeirra viður- kenndi að hafa brotist inn á Strikið. Lögregla gómaði „kannabisbændur“ SÖLU mjólkur í tveggja lítra fernum var hætt um ára- mót. Síðustu ár hefur einungis verið pakkað í slíkar umbúðir á Akureyri en Sigurður R. Friðjónsson mjólk- urbússtjóri MS í bænum segir mjög hafa dregið úr sölu tveggja lítra ferna. Hann kveðst ekki hafa orðið var við mikla óánægju vegna þessa. Stóru fernurnar hafi mest verið keyptar í skóla, leikskóla, mötuneyti og skip, en viðkomandi kaupi í síauknum mæli 10 lítra kassa. Sig- urður er vinstra megin á myndinn og við hlið hans Jón Ingi Guðmundsson verkstjóri. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson 2 lítra fernur heyra sögunni til SLIPPURINN Akureyri ehf. átti lægsta tilboð í lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni, en þau voru opnuð í gær og langlíklegast er að samið verði um verkið við Slippinn fljótlega eftir helgi. Um var að ræða óformlegt lokað útboð eða verðkönn- un og var tilboð Slippsins nærri tvö- falt lægra en það hæsta. Fjórar stöðvar hér á landi, sem geta tekið ferjuna í slipp, áttu kost á að gera tilboð og barst tilboð frá þeim öllum. Slippurinn bauð tæpar 13 milljónir króna í verkið en hæsta tilboð átti Stálsmiðjan í Reykjavík, það hljóðaði upp á tæpar 27. Nokkrir verkþættir Í tilkynningu frá Vegagerðinni kemur fram að gengið verður til við- ræðna við Slippinn Akureyri um framkvæmd verksins en í því felast nokkrir verkþættir svo sem að smíða dyr á stjórnborðssíðu sem verður að- alinngangur í ferjuna sem gerir hreyfihömluðu auðveldara um vik. Sams konar dyr verða settar á bak- borðshliðina og þær dyr verða neyð- arútgangur. Þá verður skipt út um 22 fermetrum af stáli á byrðingi skipsins sem auðveldar og bætir klössun skipsins. Komið verður fyrir kælingu í efri flutningalestinni vegna fiskflutninga, og salernum verður breytt þannig að þau nýtist hreyfi- hömluðum á betri hátt en ella, auk nokkurra fleiri smærri verka. Anton Benjamínsson, fram- kvæmdastjóri Slippsins Akureyri, segir að í tilboði fyrirtækisins hafi verið nokkrir fyrirvarar og skil- greiningar, auk þess sem talsverð vinna sé eftir við skipið, sem ekki væri gert ráð fyrir í þessu útboði. Anton sagðist telja tilboð Slippsins mjög raunhæft „en mér finnst tilboð annarra bjóðenda hins vegar vera gríðarlega há,“ sagði Anton við Morgunblaðið í gær, og leyndi því ekki að hann geri sér miklar vonir um að verkið yrði unnið á Akureyri. Gert er ráð fyrir að vinna við skip- ið geti hafist á Akureyri 15. janúar og áætlaður verktími er þrjár vikur. Að sögn Antons hefur verið nóg að gera í Slippnum undanfarið og bjart sé framundan. Fari lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni fram hjá fyr- irtækinu verði nóg að gera næstu tvo mánuði. Reikna má með að ferjan verði loksins tilbúin til siglinga til og frá Grímsey fljótlega, en verkið hefur tafist mjög mikið, sem kunnugt er. Rifja má upp að ferjunni var valið nafnið Sæfari, en síðasta ferja bar sama nafn. Grímseyingar völdu nafnið með skemmtilegum hætti; hreppstjórinn og sveitarstjórnar- maður gengu um með kosningakassa milli húsa og mjótt var á munum milli nafnanna tveggja sem kosið var um. Drangur fékk 16 atkvæði en Sæ- fari 19. Skip sem gekk til Grímseyjar til margra ára hét einmitt Drangur. Líklega samið við Slippinn Tilboð opnuð í gær í lokaendurbætur á Grímseyjarferjunni Sæfara SLIPPURINN Akureyri ehf. bauð tæpar 13 milljónir króna í verkið, 12.966.300. Skipasmíðastöð Njarð- víkur bauð 22.404.000, Vélsmiðja Orms og Víglundar í Hafnarfirði bauð 22.881.610 og Stálsmiðjan í Reykjavík átti hæsta tilboðið: 26.995.100 kr. Morgunblaðið/ÞÖK Hæsta tilboðið tvöfalt hærra en það lægsta TÓNLISTARFÉLAG Akureyrar og Karólína Restaurant standa fyrir árlegum Vínardansleik í Ketilhús- inu í dag, laugardaginn 5. janúar. Fram kemur að venju salon- hljómsveit Tónlistarfélagsins undir stjórn Jakobs Kolosowskis. Sveitina skipar atvinnutónlistarfólk frá Ak- ureyri og nágrenni. Jafnframt kem- ur fram á hátíðinni ungt tónlist- arfólk sem stundað hefur nám við Tónlistarskólann á Akureyri. Einar Geirsson, matreiðslumeistari á Karólínu Restaurant, sér um veislu- föngin sem fyrr. Borðhald hefst klukkan 20 en húsið opnar kl. 18. Árlegur Vín- ardansleikur LANDIÐ mundsson, formaður klúbbsins, seg- ir að hafi þótt nokkuð langur tími á sínum tíma. Í honum voru þó upp- sagnarákvæði sem núverandi land- eigandi, byggingarfélagið Ferjuholt, hefur nýtt sér. Uppsagnarfrestur er tvö ár og missir klúbburinn því land- ið að óbreyttu eftir tæp tvö ár. Land- eigandinn tók þó fram í uppsagnar- bréfi að hugsanlegt væri að fram- lengja samninginn, en þá aðeins til árs í senn. Hann fyrirhugar að byggja þarna sex þúsund manna íbúðarhverfi. Landið liggur að mestu leyti í Flóahreppi og er skipulagt sem íbúð- ar- og golfvallarsvæði. Lítill hluti er í Sveitarfélaginu Árborg, einnig í einkaeigu, og hefur sá hluti sömu- leiðis verið skipulagður sem íbúðar- byggð. Hugmyndir um ströndina Ragnheiður Hergeirsdóttir, bæj- arstjóri Sveitarfélagsins Árborgar, segir að erindi golfklúbbsins verði kynnt á fundi bæjarráðs í næstu viku. „Við höfum góðan golfvöll og viljum helst eignast átján holu völl innan sveitarfélagsins,“ segir bæjar- stjóri og vonast til að hentugt svæði finnist til þess. Bárður segir að ýmsum hugmynd- Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Selfoss | Landeigendur hafa sagt upp leigusamningi við Golfklúbb Sel- foss. Að óbreyttu fer Svarfhólsvöllur undir íbúðarbyggð. Stjórn Golf- klúbbsins hefur sett bæjarstjóra inn í málið og verður það rætt á fundi bæjarráðs í vikunni. Áhugi er hjá báðum aðilum að finna nýtt golfvall- arstæði innan sveitarfélagsins og þá fyrir átján holu völl. Hafa meðal ann- ars komið upp hugmyndir um að gera hann við ströndina milli Eyrar- bakka og Stokkseyrar. Golfklúbbur Selfoss hefur gert þrjá velli í liðlega 35 ára sögu sinni. Sá fyrsti var við Engjaveg í þéttbýl- inu á Selfossi. Þá var gerður völlur í Alviðru í Grímsnesi en eftir að klúbbnum var vísað þaðan var hann landlaus um tíma en fékk síðan land í Laugardælum með samningum við Kaupfélag Árnesinga og hefur unnið að uppbyggingu níu holu golfvallar þar, Svarfhólsvallar, síðustu tuttugu árin. Golfvöllurinn er á fallegum og góðum stað, á bakka Ölfusár rétt austan við Selfoss. Samningurinn við KÁ var gerður fyrir 22 árum og gilti til þrjátíu ára sem Bárður Guð- um hafi verið varpað fram um nýtt golfvallarsvæði. Meðal annars hefur þeim kosti verið velt upp að byggja völl á ströndinni á milli Eyrarbakka og Stokkseyrar. Ragnheiður segir að það gæti verið áhugaverður kostur. Hluti landsins er í eigu sveitarfé- lagsins og unnið að því að stækka það með makaskiptum við ríkið. Hluti svæðisins er í einkaeigu. Bárður segir að búið sé að leggja mikla fjármuni í Svarfhólsvöll, bæði í beinhörðum peningum og ómældri sjálfboðaliðsvinnu. Áætlar hann að þeir geti samsvarað 50 milljónum kr. Ekki komi til greina annað en að byggja átján holu völl, verði ráðist í nýbyggingu, og megi áætla að það kosti tvöfalt meira en núverandi völl- ur. Svarfhólsvöllur verður tekinn undir íbúðarbyggð Golf Leitað er að nýju svæði fyrir golfvöll Selfyssinga. Eftir Karl Ásgeir Sigurgeirsson Hvammstangi | Átta aðilar hlutu styrki úr menningarsjóði Spari- sjóðs Húnaþings og Stranda en alls veitti Sparisjóðurinn átján aðilum styrk á árinu, alls 23 milljónir króna. Í hópi styrkþega eru meðal annars kirkjur héraðsins, Heil- brigðisstofnunin, félagasamtök og einstaklingar. Sparisjóður Húnaþings og Stranda, SpHún, hefur um árabil veitt fjárstyrki úr menningarsjóði sínum til líknar- og menningarmála á starfssvæðinu. Nýlega var boðið til kaffisamsætis á Sveitasetrinu á Gauksmýri þar sem kynntir voru styrkir sem úthlutað var á árinu 2007. Í máli Páls Sigurðssonar spari- sjóðsstjóra við athöfnina kom fram að stærsti styrkur ársins hefði verið veittur Björgunarsveitinni. Hún fékk 2,7 milljónir króna til kaupa á öflugum klippum til notkunar við umferðarslys, en þau færast mjög í aukana. Menningarsjóður efldur Páll sagði frá breytingum á hög- um SpHún nú um áramótin, þar sem sjóðurinn sameinaðist nú Sparisjóðnum í Keflavík. Við und- irbúning sameiningarinnar hefði verið ákveðið að efla Menning- arsjóð SpHún og vonaðist Páll til að stutt yrði með öflugum hætti við bakið á menningar- og líkn- armálum í héraðinu. Sagði Páll að SpHún styrkti einnig ýmsa aðila með framlögum frá rekstri sjóðsins og vænti þess að svo yrði áfram. Styrktu kaup á björgunarbúnaði Morgunblaðið/Karl Á. Sigurgeirsson Björgun Nýjar klippur Björg- unarsveitarinnar voru kynntar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.