Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 28

Morgunblaðið - 05.01.2008, Page 28
Þröngt Á göngum þarf að geyma tæki og sjúkrarúm þar sem ge FRÉTTASKÝRING Eftir Sunnu Ósk Logadóttur sunna@mbl.is Þegar talað er um nýtt há-tæknisjúkrahús vill oftgleymast í umræðunni aðtæknin er þar ekki aðal- atriðið, heldur bætt aðstaða sem nýjum spítala mun fylgja. Gjör- gæsludeild Landspítala við Hring- braut, sem er til húsa í gamla Land- spítalanum, er gott dæmi um þau þrengsli sem starfsfólk, sjúklingar og aðstandendur þeirra þurfa að búa við víða á Landspítalanum í dag. Á deildinni eru legupláss fyrir níu sjúklinga sem oft eru fullnýtt og gott betur en það. Þá þarf að flytja sjúklinga á gjörgæsluna í Fossvogi með tilheyrandi áhættu eða leggja þá, sem það þola, á ganga deild- arinnar. Lítil sem engin geymslu- aðstaða er á deildinni fyrir tæki og lyfjaherbergið er rétt um tveir fer- metrar. Þar þarf starfsfólk að at- hafna sig við að taka til lyf. Aðeins eitt einbýli er á deildinni, annars liggja sjúklingar á fjölbýlum, fjórir saman. Næði er því lítið og erfitt að virða friðhelgi sjúklinga og að- standenda. Hjúkrunarþyngd þess sjúklingahóps sem liggur á gjör- gæslu er einnig að þyngjast með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar. Sjúklingarnir eru veikari og þurfa þar af leiðandi meiri hjúkrun og oft lengri legutíma en áður. Sem dæmi má nefna að 10% aukning var í hjartaskurðlækningum á síðasta ári en sá sjúklingahópur þarf mikla aðhlynningu á gjörgæslu. Aðstaða fyrir aðstandendur á deildinni var bætt á síðasta ári en er þó aðeins rétt viðunandi. „Það sér hver maður að þessi að- staða gengur ekki upp,“ sagði Guð- laugur Þór Þórðarson heilbrigð- isráðherra, sem heimsótti gjörgæsludeildina í gær. Þrátt fyrir þessi þrengsli, sem mörgum þykir vart bjóðandi, nær starfsfólkið að sinna sínu starfi með prýði. En álagið er mikið. Nú eru ómönnuð um sex stöðugildi hjúkr- unarfræðinga og því er unnin mikil yfirvinna. Gjörgæsluhjúkrun er sérhæfð og aðstöðuleysið fælir hjúkrunarfræðinga frá. Aðstaðan batnar næsta haust En nú horfir til betri vegar. Í bili að minnsta kosti. Byggt verður við deildina, leguplássum fjölgað um tvö, geymsluaðstaða bætt og lyfja- herbergið stækkað. Vonast er til að hægt verði að byrja að byggja í byrjun næsta sumars og að hús- næðið verði tekið í notkun með haustinu. „Ástæðan fyrir því að við þurfum á viðbyggingu að halda er m.a. sú að sjúklingarnir sem liggja á gjör- gæslu er veikari en áður og þarfn- ast meira rýmis í kringum sig og alltaf fjölgar tækjunum sem við þurfum geymslu fyrir,“ segir Alma Möller, yfirlæknir gjörgæsludeild- ar, sem kynnti heilbrigðisráðherra aðstöðuna á deildinni í gær. Þessi þróun er rétt að byrja en hefur skollið á með töluvert meiri þunga en starfsfólk spítalans átti von á. „Viðbyggingin mun aðeins leysa brýnasta vandann í nokkur ár,“ segir Alma. Heilbrigðisráðherra fagnaði frumkvæði starfsfólks gjörgæslu- deildar og sagði viðbygginguna vel útfærða. Hann sagði að aðstaða spítalans yrði að vera í stöðugri endurskoðun þótt nýr spítali væri „handan við hornið“. Minnti hann á að í ár væri áætlað að setja 800 milljónir kr. skv. fjárlögum í und- irbúning nýs sjúkrahúss. En viðbyggingin bjargar ekki „Það sér hver m aðstaða gengur e  Heilbrigðisráðherra heimsótti gjörgæsludeild Landsp leysa brýnasta vandann til skamms tíma  Mikil þreng Í heimsókn Guðlaugur Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra ræði Búrið stærð Allir frá! Gangar eru þröngir í gamla Landspítalanum. Framtíðin Viðbygging við gjörgæsludeild verður ofan á segulómtæki og þarf því að grípa til ráðstafanna. 28 LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 MORGUNBLAÐIÐ Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. BRETAR BREGÐAST VIÐ Það er athyglisvert að sjá hversusnögglega Bretar bregðast viðþeim vandamálum sem hafa komið upp og þeir telja sig sjá að komi upp í nálægri framtíð vegna fjármála- kreppunnar, sem upp er komin á Vest- urlöndum. Í jólahefti brezka tímaritsins Econ- omist er því haldið fram, að það geti gerzt að kreppan á fjármálamörkuð- um, sem nú er skollin á, geti breiðst út og orðið að bankakreppu. Í viðtali við brezka fjármáladag- blaðið The Financial Times, sem birt- ist á forsíðu þess í gær, segir Alistair Darling, fjármálaráðherra Breta, að hann muni beita sér fyrir róttækum breytingum á þeim aðgerðum, sem hægt sé að grípa til vegna banka, sem lendi í erfiðleikum. Ljóst er af viðtal- inu, að ráðherrann tekur mið af vanda- málum brezka húsnæðislánabankans Northern Rock, sem Englandsbanki kom til hjálpar á tólftu stundu. Alistair Darling segir í viðtalinu við Financial Times, að hann vilji tryggja að brezk löggjöf standi undir þeim við- fangsefnum, sem upp kunna að koma á þessu sviði í náinni framtíð. Þetta heitir fyrirhyggja. Umræður af þessu tagi fara ekki fram hér og kannski er það vegna þess, að staða fjármálafyrirtækja okk- ar er almennt talin sterk og traust og að þess vegna sé engin nauðsyn á sam- bærilegum umræðum og jafnvel að- gerðum og nú er rætt um að grípa til í Bretlandi. Í þessu sambandi er þó sanngjarnt að benda á, að Björgvin Sigurðsson viðskiptaráðherra hefur tekið eina ákvörðun sem haft getur mikla þýð- ingu í þessu sambandi, en hún er sú að skipa Jón Sigurðsson, fyrrverandi ráðherra, seðlabankastjóra og for- stjóra Norræna fjárfestingarbankans formann stjórnar Fjármálaeftirlits- ins. Þetta er skynsamleg ráðstöfun. Jón Sigurðsson hefur yfirburðaþekkingu á fjármálamörkuðum og bankakerfi og hefur m.a. skrifað athyglisverða grein um hvernig eftirliti með fjármála- stofnunum og fjármálamörkuðum skuli háttað við nýjar aðstæður, m.a. þegar sami banki er með starfsemi í mörgum löndum. Það skiptir miklu máli fyrir íslenzka bankakerfið, að Fjármálaeftirlitið sé öflugt og njóti trausts, t.d. matsfyr- irtækja í öðrum löndum. Það getur einfaldlega tryggt íslenzkum fjár- málafyrirtækjum betri kjör á alþjóð- legum fjármálamörkuðum. Skipan Jóns Sigurðssonar eykur tiltrú til íslenzka Fjármálaeftirlitsins, þótt sú skoðun Morgunblaðsins sé eft- ir sem áður óbreytt, að æskilegt sé að sameina Fjármálaeftirlitið Seðla- banka Íslands á nýjan leik. Engin ástæða er til að ætla annað en fjármálakerfi okkar standi á traustum grunni og sé vel undir það búið að taka á sig áföll á þessu ári. En sú fyrirhyggja, sem Bretar sýna, getur verið til eftirbreytni. „VESTURHEIMSK“ VIÐMIÐ? Núverandi vesturheimskt neyslu-stig gengur svo í skrokk á óend- urnýjanlegum auðlindum jarðar á borð við vatn og loft, að ekki sé minnst á olíu og ræktanlegt yfirborð jarðar – svo úrgangsyfirfljótandi að menn þora ekki að hugsa þá hugsun til enda ef ósköpin ætti að margfalda með fimm eða jafnvel tuttugu á heimsskala. Af hverju fimm? Af því að það er sú margföldun sem gera þyrfti ráð fyrir ef mannkyn allt ætti að búa við svipað neyslustig og vestrænt meðalríki. Tuttugu ef það væri banda- ríska neyslumódelið sem yfirfæra ætti á allan heiminn.“ Þannig farast Pétri Gunnarssyni rithöfundi orð í pistli í Morgunblaðinu í gær. Pistill- inn hefst á ýkjukenndri lýsingu á ímynduðu þjóðfélagi þar sem „íbú- arnir streymdu út í bíla sína í morg- unsárið til þess að halda síðan út í hið víðáttumikla umferðarnet – þar sem þeir létu fyrirberast í átta stundir. Þetta væri þeirra vinnudagur, þeirra vinna. Það væri þetta sem héldi sam- félaginu gangandi, væri hagvaxtar- aukandi og atvinnuskapandi“. Það ýt- ir óþægilega við lesendum þessarar ýkjusögu Péturs hversu nærri sanni hún er – hversu auðvelt er að heim- færa hana upp á það líf sem við lifum nú þegar. Eins og Pétur bendir á eru áramót tímamót er hvetja fólk til umhugsun- ar; til þess að líta yfir farinn veg og horfa jafnframt til framtíðar. Stað- reyndin er sú að þegar vandi heims- byggðarinnar er settur í það sam- hengi sem Pétur afhjúpar hlýtur öllum að hrjósa hugur við framtíðinni. Þær kröfur sem við teljum til lífsgæða annars vegar og framtíðarástand um- hverfismála hins vegar virðist ekki hægt að samræma. Við hljótum að þurfa að breyta hugsunarhætti okkar og viðmiðum til að dæmið gangi upp. Ef til vill er sú staðreynd að gríð- arleg hækkun olíuverðs undanfarið virðist ekki hafa teljandi áhrif á neysluvenjur Íslendinga sönnun þess hversu auðvelt fólk á með að leiða vanda heimsbyggðarinnar hjá sér. Því þrátt fyrir að bensínkostnaður hljóti að vera orðinn umtalsverður fyrir flest heimili – ekki síst þau sem reka jeppa og hugsanlega annan bíl eins og margar fjölskyldur á Íslandi – virðist það ekki breyta hegðunar- mynstrinu. Bensínhákar seljast sem aldrei fyrr og almenningssamgöngur þykja vondur kostur. Út frá umhverf- issjónarmiðum má alveg velta því fyr- ir sér hvort ástæða sé til að láta undan þrýstingi um að létta álögur á elds- neyti á sama tíma og fólk sér ekki ástæðu til að spara það við sig. Nægjusemi telst ekki lengur til dyggða þar sem menn óttast að hún minnki hagvöxt. Er ekki sá tími kom- inn að almenningur þurfi að taka til sinna ráða og endurhugsa verðmæta- mat sitt? Horfast í augu við það að til að tryggja framtíð afkomenda okkar – svo ekki sé minnst á framtíð þess stóra meirihluta jarðarbúa sem svelt- ur eða er bláfátækur – þurfum við að breyta háttum okkar og gildismati? Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á slóðinni http://morgunbladid.blog.is/

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.