Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 33

Morgunblaðið - 05.01.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 33 Til elsku ömmu minnar. Ég veit hún mun vaka yfir mér hvert sem ég fer hvað sem ég geri, og þótt ég sigli á lífsins sker. Hún gaf mér svo miklu meira en ég vissi að ég þyrfti á að halda. Finn, þegar ég sef, að hún tekur um hönd mína kalda, hvort sem ég vaki eða sef, þá finn ég fyrir henni, taka þessi litlu skref. Alltaf man ég á jólunum, svo sæt og fín, en engin voru jólin án þín, amma mín. Alltaf er ég fer að heiman og sé sólina setjast við sæ, þá hugsa ég síðast, þegar ég var henni hjá, var þetta okkar síðasta bæ. Ef það er einhver sem fær svörtustu sólina til að rísa á ný, þá ert það þú svo falleg og hlý þótt árin færðust yfir, þú elt- ist aldrei neitt, fyrir mér ertu alltaf amma, ég elska þig og því fær ekk- ert breytt. Man þegar þú kenndir mér að brjóta saman þvott, eldaðir buffið og eggin sem mér fannst allt- af svo gott. Á ættarmóti fyrir löngu er þú steigst á sviðið og tókst léttan dans, ég man að ég fann hvað hjarta mitt brann, því ekkert hefur glatt mig eins mikið og að sjá þig dusta af dansskónum rykið, ég man að mér vöknaði um augun og gat þá gleymt öllum mínum fortíðardraugum er ég sá hana svona sæta og fína, svo ánægða að það minnti mig á sólina skína. Guð geymi þig, elsku amma mín. Arnar Freyr. Elsku amma mín, það er með miklum söknuði og sting í hjarta sem ég kveð þig. Sú mikla sorg sem hefur fylgt því að kveðja þig segir mér hvað samband okkar hefur verið náið og elskulegt. Minningarnar um samverustundir okkar hlaðast upp. Minningarnar úr Strandgötunni eru margar og nota- legar. Ég fann alltaf fyrir svo mikilli hlýju frá þér og fannst því yndislegt að vera hjá þér og afa í Strandgöt- unni, að fá að sofa á dýnu á gólfinu hjá ykkur fannst mér alltaf það besta. Þið voruð alltaf svo góð við mig og þú hafðir alltaf tíma til að ræða við mig. Svo fékk ég að fara í búrið inn af eldhúsinu og fá þar ým- islegt góðgæti. Ég átti erfitt með að muna á þeim árum að þú værir úr Áslaug Jónsdóttir ✝ Áslaug Jóns-dóttir fæddist í Prestshúsinu í Flat- ey á Breiðafirði 6. október 1926. Hún lést á heimili sínu á Akureyri 20. desem- ber síðastliðinn og var útför hennar gerð frá Akureyrar- kirkju 4. janúar. Flatey og spurði þig stundum hvort þú værir ekki frá Fær- eyjum, það fannst þér og afa mjög fyndið. Mér fannst líka gam- an, og nú minnisstætt, þegar ég gekk á móti þér út í Hagkaup, þar sem þú vannst, og svo gengum við til baka og töluðum saman og ég hjálpaði þér að bera pokana. Stund- um fór ég með ykkur í sumarbústað á Illuga- staði eða í Munaðarnes og sennilega er það ástæðan fyrir því að mér líð- ur svo vel þegar ég fer í sumarbú- staði í dag, ég á svo skemmtilegar og afslappaðar minningar tengdar þessum ferðum með þér. Tíðar sum- arbústaðaferðir okkar undanfarin ár og Mallorca-ferð fyrir nokkrum árum voru einstakar samverustund- ir. Þar vorum við yfirleitt saman, auk þín, ég, Sara, Andri, Arna, Ás- laug Ýr og Inga mamma og svo fengum við oft fjölda gesta. Þarna var sem sagt bara saman komið mjög skemmtilegt fólk sem fannst gott að njóta lífsins saman eins og í Brekkuskógi sl. sumar, þar sem sól skein á okkur alla daga og við grill- uðum stórsteikur hvert kvöld. Mér fannst alltaf yndislegt að fara með þér í sumarbústaðaferðir, því þú hafðir svo góð áhrif á mig og svo varstu svo skemmtileg og hafðir góðan húmor. Þess vegna hef ég kviðið talsvert þessari kveðjustund og því að hafa þig ekki með í slíkum ferðum í framtíðinni. Ég veit þó að þú munt áfram vera með okkur og vaka yfir okkur, og ég mun setja eitthvað í glasið handa þér annað slagið. Það voru bæði mér og þér mikil gleðitíðindi að yngsta barn mitt og Söru fengi nafn þitt, Áslaug, þegar þú varðst áttræð 6. október 2006 og hún þá 4 daga gömul. Ég man hvað þú varst stolt og ánægð þegar við sögðum þér frá þessu, tár komu úr augum okkar beggja. Auðvitað hefði ég kosið að þú fengir meiri tíma með henni og Andra og Örnu en þú fékkst þó rúmt ár með Áslaugu nöfnu þinni sem þú elskaðir að hafa í kringum þig og varst svo stolt af. Það hefur veitt mér styrk að hafa verið hjá þér og haldið í hönd þína síðustu dagana og fengið að kveðja þig og segja það sem ég þurfti að segja. Elsku amma, ég á svo fallega mynd af þér, mynd sem er eins og ég vil minnast þín, brosandi og ham- ingjusamrar í sól og blíðu. Þetta er falleg mynd við aðstæður þar sem við nutum okkar og vorum innan um þá sem okkur þykir vænst um. Ég elska þig, elsku amma mín, ég veit þú vakir yfir okkur og passar okkur. Þinn Sævar. Elsku amma, ég man á afmælinu þínu þegar þú varst áttræð og hress og allt var gott. Svo þegar ég fór og heimsótti þig á spítalann, þá varð ég pínu hrædd um það að þú værir að fara frá okkur. Ég kom og heimsótti þig og var með kökk í hálsinum all- an tímann. Svo fékkstu að fara heim og ég hélt að allt yrði betra. Svo veiktist þú meira og þá varð ég hrædd. En það var gott að þú fékkst að fara. Þú ert besta langamma í heimi. Lítill fugl sem flýgur til himins minnir okkur á eilífðina. Lækurinn sem líður niður hlíðina minnir okkur á sannleikann. Blómin springa út fyrir þig. Þytur trjánna segir þér frá leyndardómi lífsins. Að lifa er að finna til. Að gráta yfir vegvilltum fugli eða visnuðu laufi. Að gleðjast yfir útsprungnu blómi, eða lífgandi dögg. Að lifa er að finna til. (Halla Jónsdóttir) Hvíldu í friði Kamilla Dóra Jónsdóttir. Elsku stóra systir, þegar ég hugsa til þín minnist ég uppvaxtarára okk- ar. Þú varst næstelsta systkinið í okkar systkinahóp og það voru níu ár á milli okkar. Þú varst alltaf sú sterka, duglega og káta eldri syst- ir sem auðvelt var að leita til. Við ólumst upp í fögru umhverfi Heiðardalsins þar sem við áttum góða æsku, þó ekki væru mikil efni og við lærðum fljótt að bjarga okk- ur sjálf. Til marks um sjálfstæði þitt og sterkan persónuleika, víl- aðir þú ekki fyrir þér að stökkva á bak hvaða ótemju sem var í hesta- stóði og geysast um heiðarnar ber- bakt. Það er með sárum söknuði sem ég kveð þig en ég hugga mig við, að þjáningum þínum er lokið. Að lokum vil ég votta öllum afkom- endum þínum innilega samúð mína. Þín systir Hjördís. Við andlát þitt, Jóna stóra systir mín, hrannast upp ljúfar minning- ar og góðar upp í huga mér. Þú varst mikil baráttukona og þurftir oft að vera það. Þú stóðst allar raunir sem þú þurftir að glíma við. Við bjuggum í sama húsi er ég byrjaði búskap og var það góður skóli. Síðan fórstu, já fluttir til Am- eríku með þína fjölskyldu . Við átt- um saman mikil bréfaskipti og þá gátum við fylgst náið með högum fjölskyldna okkar. Þú varst þarna í 26 ár og komst síðan aftur heim og þá urðu heim- sóknir okkar margar og alltaf var tekið vel á móti öllum. Ekki urðuð þið hjónin lengi ein, því að þið tókuð að ykkur þrjú börn sem þið óluð upp með mikl- um sóma. Þér urðu erfið sjö síð- ustu árin, búin að gangast undir stórar skurðaðgerðir. En styrkur þinn var alltaf svo mikill og aldrei var neitt að þér. Það hefur alltaf verið svo kært með okkur systkinum og náin sam- skipti og aldrei borið skugga á og við vildum alltaf vita um systkini okkar og þá meina ég alltaf. Síðast þegar við systur hittumst heima hjá Báru skömmu áður en hún fór til Ameríku um miðjan desember, þá varstu svo hress að þú treystir þér að koma með okk- ur þó um bratta stiga væri að Jónína Kristín Vilhjálmsdóttir ✝ Jónína KristínVilhjálmsdóttir fæddist á Stóru- Heiði í Mýrdal 29. mars 1929. Hún lést á Landsspít- alanum í Fossvogi að kvöldi jóladags, 25. desember síð- astliðins, og var út- för hennar gerð frá Árbæjarkirkju 3. janúar. klífa. Þarna áttum við yndislega stund. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (V.Briem.) Ég votta börnum þínum og fjölskyld- um þeirra mína inni- legustu samúð. Þín systir Alda. Jóna, mig langar að rita örfá orð til að þakka þér þá vinsemd sem þú ávallt sýndir mér frá upphafi fyrsta dags er ég kynntist þér. Þegar ég átti í erfiðleikum sýndir þú mér aldrei annað en stuðning og hlýju. Ég hef alltaf dáðst að dugnaði þínum og ósérhlífni. Ég fann hvað þér þótti innilega vænt um börnin þín og gerðir allt til að þeim gæti liðið sem best og þá er ekki hægt annað en að dást að þeirri dirfsku og dugnaði sem þú og Sveinn sýnduð þegar þið á gamals aldri tókuð að ykkur þrjú barnabörnin ykkar og óluð þau upp meðan ykk- ur entist aldur til þó oft væri við vindmyllur að etja, þar sem kerfið var annarsvegar. Ég minnist þeirra daga sem við heimsóttum ykkur hjónin til Kaliforníu og dvöldum í 45 daga hjá ykkur þar sem þið báruð okkur Öldu og börnin okkar 5 á höndum ykkar. Ég man tvær vetrarferðir sem við fórum með ykkur til Akureyrar í fljúgandi hálku með Gunnu frænku þína með okkur, til að fara í Sjallann og heimsækja skyldfólk og vini. Þá var lítið um malbik til Akureyrar. Það var alltaf óskaplega nota- legt að koma í heimsókn til ykkar þar sem manni var alltaf fagnað með kossi. Myndarskapur þinn og dugnaður leyndi sér ekki og maður fann að það mundi enginn fara svangur af þínu heimili. Aldrei kvartaðir þú þegar þú varst veik og þjáð og maður hálfskammaðist sín að vera að kvarta yfir ein- hverjum skitusting. Þegar þú komst upp á Akranes í heimsókn til okkar nokkrum dögum áður en þú lagðist þína hinstu legu, þá varstu svo hress og maður var far- inn að halda að þú værir að sigrast á þessum sjúkdómi sem plagaði þig svo mikið. En það var of gott til að vera satt. Ég á eftir að sakna þess að geta ekki lengur heimsótt ykkur og gist hjá ykkur sem við gerðum endrum og eins, við Alda. Ég er sann- færður um að þú ferð stystu leið til himna og átt eftir að taka til þín. Þú varst ekki sátt við að þurfa að hætta að vinna en þú færð örugglega þá vinnu sem þú óskar þér að vinna. Hvíl þú í friði, guð blessi þig. Baldur Guðmundsson. Ég þekkti Árna ekki mikið og var í litlu sem engu sam- bandi við hann síð- ustu 25 árin, en þegar ég var ungur drengur á Akranesi þekkti ég hann nóg til þess að geta sagt að hann var góður maður, ljúf- menni sem lífið hefði hugsanlega getað leikið betur. Þó svo að við höfum ekki þekkst vel hefur mér alltaf þótt dálítið vænt um þennan mann, Árna Ís- firðing eins og hann var kallaður á Skaganum í gamladaga. Ástæðan er einföld, hann var góður við lítinn strák sem hafði áhuga á músík, gaf Árni Guðmundsson ✝ Árni Guðmunds-son fæddist á Ísafirði 6. mars 1954. Hann lést á Sjúkrahúsinu á Ísa- firði 19. desember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Ísafjarðarkirkju 28. desember. sér tíma til að spjalla við mig, gaf mér pen- ing fyrir frostpinna og bauð mér í heim- sókn og spilaði fyrir mig Rolling Stones, nokkuð sem ég bý að ennþá. Ég hitti Árna fyrst í plötubúð á Akranesi að sumri til árið 1980. Ég var 11 ára. Ég var að skoða plötur eins og svo oft og þarna var þessi gaur, þessi ,,kall“, að gera hið sama. Við fórum að spjalla saman og hann segir mér þá að hann sé í vonlausu partíi með félögum sínum af sjónum, það vanti almennilega músík og hann viti ekkert hvað hann eigi að kaupa. Ég bendi hon- um á plötuna sem mig langaði mest að kaupa og hefði keypt ef ég hefði átt pening, nýju AC/DC plötuna Back In Black. Árni fór að mínum ráðleggingum og keypti hana og eina plötu til viðbótar sem ég man ekki hver var, bauð mér svo að fylgja sér og taka tómu kókflösk- urnar sem höfðu hrannast upp í gleðskapnum og fara með þær í sjoppuna og kaupa mér eitthvað. Ég hitt Árna svo af og til meðan hann bjó á Akranesi og alltaf tók hann mér jafn vel, spjallaði um músík og sagði gjarnan: Komdu – ég verð að lána þér plötu sem ég var að kaupa! Ég áttaði mig auðvitað vel á því að hann var ekki alltaf edrú og það var einhverskonar ógæfuský hang- andi yfir honum. En hann var alltaf góður, kom fram við mig sem jafn- ingja fannst mér, en passaði sig vel á að halda frá mér allri ógæfunni. Ég hef lagt það í vana minn að spyrja alla Ísfirðinga sem ég hitti um Árna og hef aldrei heyrt annað en góða hluti um hann, sem hefur reyndar ekki komið mér á óvart. Við hittumst síðast á Rolling Sto- nes kvöldi í félagsheimilinu í Hnífs- dal árið 1999 sem mér þótti af- skaplega viðeigandi og skemmti- legt. Takk fyrir músíkina, Árni minn, og vonandi er nóg af henni þar sem þú ert núna. Ólafur Páll Gunnarsson. ✝ Elskulegur sonur okkar og bróðir, JAKOB HRAFN HÖSKULDSSON, Bröndukvísl 14, Reykjavík, lést af slysförum þriðjudaginn 1. janúar. Höskuldur Höskuldsson, Aðalheiður Ríkarðsdóttir, Rakel Sara Höskuldsdóttir, Lea Ösp Höskuldsdóttir. ✝ Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ERLENDA ODDBJÖRG ÞÓRUNN ERLENDSDÓTTIR, Bólstaðarhlíð 45, Reykjavík, lést á Landspítalanum í Fossvogi 19. desember. Jarðarförin fór fram í kyrrþey 28. desember í Háteigskirkju. Eysteinn Guðmundsson, Erlendur Þór Eysteinsson, Elsa Guðmundsdóttir, Ívar Eysteinsson, Guðný Jónsdóttir, Árni Þór Erlendsson, Hildur Elísabet Ingadóttir, Harpa Ýr Erlendsdóttir, Halldór Víglundsson, Trausti Óskarsson, Ásta Bragadóttir, Ísak Ívarsson, Eysteinn Ívarsson, Sóldís Lilja Árnadóttir og Una Traustadóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.