Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 41

Morgunblaðið - 05.01.2008, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 2008 41 AÐVENTKIRKJAN Í Reykjavík | Þrett- ándinn. Messa og sunnudagaskóli í Sala- skóla kl. 11. Kór Lindakirkju leiðir safn- aðarsönginn undir stjórn Keith Reed, prestur Guðmundur Karl Brynjarsson. ÁRBÆJARKIRKJA | Guðþjónusta kl. 11. Þorvaldur Halldórsson tónlistamaður sér um tónlistina, sr. Sigrún Óskarsdóttir þjón- ar fyrir altari og predikar. ÁSKIRKJA | Messa kl. 14. Kór Áskirkju syngur, organisti Magnús Ragnarsson. Kaffisopi eftir messu. Sunnudagaskólinn byrjar 13. janúar. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Sigurjón Árni Eyjólfsson, for- söngvari er Jóhann Smári Sævarsson, org- anisti Bjartur Logi Guðnason. Sunnudaga- skóli á sama tíma í umsjá Nínu Bjarkar, Lindu Rósar og Jóhanns Axels. Kaffisopi eftir messu. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl. 11. Samvera fyrir fjölskylduna með söng og fræðslu. Foreldrar hvattir til þátttöku. Ung- mennahljómsveit spilar undir stjórn Re- nötu Ivan. Guðsþjónusta kl. 14. Kór Bú- staðakirkju syngur undir stjórn Renötu Ivan, prestur Pálmi Matthíasson. Molasopi eftir messu. DIGRANESKIRKJA | Tónlistarmessa í umsjá organista kirkjunnar, Kjartans Sig- urjónssonar og sóknarnefndarmanna. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu. Veitingar að messu lokinni. Uppl. á digra- neskirkja.is. DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Hjálmar Jónsson predikar, Dómkórinn syngur, org- anisti er Marteinn Friðriksson. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Engin sunnu- dagaskóli eða messa verður 6. janúar þar sem það er frídagur starfsfólks. Sunnu- dagaskólinn hefst að nýju 13. janúar. FRÍKIRKJAN Kefas | Almenn samkoma kl. 14 þar sem Sigrún Einarsdóttir predikar. Á samkomunni verður lofgjörð, barnastarf og fyrirbænir. Að henni lokinni verður kaffi og samvera. GAULVERJABÆJARKIRKJA | Hátíðarguðs- þjónusta kl. 14. GRAFARHOLTSSÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Ingunnarskóla, Þorgeir, Sigurbjörg og Anna Elísa sjá um stundina. Messa í Þórð- arsveig 3 kl. 11. Prestur séra Sigríður Guð- marsdóttir, organisti Hrönn Helgadóttir, kirkjukór Grafarholtssóknar syngur. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Séra Lena Rós Matthíasdóttir predikar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogskirkju syngur, organisti Aðalheiður Þorsteins- dóttir. Sunnudagaskóli kl. 11. Prestur séra Vigfús Þór Árnason. Umsjón hafa Hjörtur og Rúna, undirleikari Stefán Birkisson. Sunnudagaskóli kl. 11 í Borgarholtsskóla. Prestur séra Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón hafa Gunnar og Dagný. Undirleikari Guð- laugur Viktorsson. GRUND dvalar- og hjúkrunarh.| Guðsþjón- usta fellur niður 6. janúar. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Prestur Þórhallur Heimisson, ræðu- efni þrettándinn. Kantor Guðmundur Sig- urðsson, Barbörukórinn leiðir söng. HALLGRÍMSKIRKJA | Jólin sungin út með messu kl. 11. Sr. María Ágústsdóttir hér- aðsprestur predikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Bernharði Guðmundssyni og messuþjónum. Organisti Björn Steinar Sól- bergsson. Félagar úr Mótettukór leiða söng. Söfnun dagsins fer til kristniboðs- ins. Sögustund fyrir börnin. HÁTEIGSKIRKJA | Biskup Íslands, Karl Sigurbjörnsson, heimsækir söfnuðinn og predikar í barnaguðsþjónustu og messu kl. 11. Barnakórar kirkjunnar koma fram, Berglind Björgúlfsdóttir stjórnar. Æsku- lýðsfulltrúar, organisti og prestar þjóna. Veitingar eftir messu og jólin dönsuð út. HJALLAKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, félagar úr kór kirkj- unnar syngja og leiða safnaðarsöng, org- anisti Jón Ólafur Sigurðsson. Fyrsti sunnu- dagaskólinn á nýju ári verður 13. janúar. Bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18. Uppl. á hjallakirkja.is. HJÁLPRÆÐISHERINN, Akureyri | Sam- koma kl. 17. Rannvá Olsen talar. HJÁLPRÆÐISHERINN, Reykjavík: | Sam- koma kl. 20. Umsjón hefur Miriam Ósk- arsdóttir. Heimilasamband fyrir konur mánudag kl. 15. Samkoma fimmtudag kl. 20, í umsjá Björns Tómasar Kjaran. Opið hús kl. 16-17.30 daglega nema mánu- daga. Fatabúðin í Garðastræti 6 og nytja- markaður á Eyjarslóð 7, opinn virka daga kl. 13-18. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN | Barnastarf kl. 11. Börn sýna jólaleikrit. Fræðsla fyrir fullorðna, Friðrik Schram talar um hugsjón kirkjunnar. Samkoma kl. 20 með lofgjörð og fyrirbænum. Andrew Pearks predikar og biður fyrir sjúkum. kristur.is. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og á laugardag kl. 18. Kapúsínaklaustrið á Kollaleiru, Reyðarf. | Messa kl. 11. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30, virka daga kl. 18.30. Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30, virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30, messa á ensku virka daga kl. 18. Mánu- daga, miðvikudaga og föstudaga er messa á latínu kl. 8.10. Laugardaga er barna- messa kl. 14 að trúfræðslu lokinni. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa 2. og 3. sunnudag í mán- uði kl. 16. Suðureyri | Messa 1. og 4. sunnudag í mánuði kl. 16. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11, laugardaga er messa á ensku kl. 18.30, virka daga kl. 18.30. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16, miðvikudaga kl. 20. KÓPAVOGSKIRKJA | Engin guðsþjónusta vegna fríhelgi starfsfólks. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á 3. hæð kl. 10.30. Sr. Vigfús Bjarni Albertsson, org- anisti Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Börn sem fullorðnir eiga fyrst sam- an stund í kirkjunni þar sem jólin eru kvödd á þrettánda degi jóla. Síðan fara börnin í safnaðarheimilið með Rut og Steinunni. Prestur sr. Jón Helgi Þórarinsson. Organisti Jón Stefánsson. Kaffisopi. LAUGARNESKIRKJA | Hefðbundið messu- fall er fyrsta sunnudag í ári. Safn- aðarstarfið hefst á miðvikudagsmorgn- inum með foreldramorgni kl. 10. Allir aðrir starfsliðir hefjast í framhaldinu. Uppl. á laugarneskirkja.is. LINDASÓKN í Kópavogi | Messa og sunnu- dagaskóli í Salaskóla kl. 11. Kór Linda- kirkju leiðir safnaðarsönginn undir stjórn Keith Reed, prestur Guðmundur Karl Brynj- arsson. NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safn- aðarsöng, organisti Sigrún Steingríms- dóttir. Sr. Sigurður Árni Þórðarson predikar og þjónar fyrir altari. Börnin byrja í mess- unni en fara síðan í safnaðarheimilið. Kaffi, súpa og brauð á Torginu eftir messu. SALT, kristið samfélag | Háaleitisbraut 58- 60, 3 hæð. Hátíðarsamkoma kl. 17. Horft yfir árið í lífi Salts í máli og myndum. Ræðumaður sr. Kjartan Jónsson. Lofgjörð og fyrirbæn. Barnastarf. Munið eftir flug- eldunum. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11, á þrett- ándanum. Barnasamkoma í safn- aðarheimilinu kl. 11.15. Léttur hádeg- isverður að lokinni athöfninni. Sr. Gunnar Björnsson. SELJAKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Bolli Pétur Bollason predikar, kirkjukórinn leiðir safnaðarsönginn, organisti Jón Bjarnason. Guðsþjónustunni verður út- varpað á RÚV. Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Bolli Pétur Bollason predikar. Kirkjukór leiðir sönginn, organisti Jón Bjarnason. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Kammerkór kirkjunnar leiðir tónlist- arflutning undir stjórn Friðriks Vignis Stef- ánssonar organista. Sunnudagaskólinn byrjar aftur 13. janúar. Prestur er Sigurður Grétar Helgason. VÍDALÍNSKIRKJA | Jólin sungin út í sunnu- dagaskóla kl. 11. Ármann Gunnarsson æskulýðsleiðtogi stjórnar stundinni. Brúðuleikhús Helgu Steffensen kemur í heimsókn með tvær sýningar. Sr. Friðrik J. Hjartar skírir barn. Jóhann Baldvinsson organisti sér um tónlistina. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Fjöl- skylduhátíð kl. 11. Sunnudagaskólinn og fjölskylduguðsþjónustan saman í fjöl- skylduhátíð. Stúlknakórinn syngur undir stjórn Áslaugar Bergsteinsdóttur. Orð dagsins: Vitringarnir. (Matt. 2) Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Víðimýrarkirkja. MESSUR Á MORGUN KANNSKI var það einhver fyr- irboði en þegar bandaríska meist- aramótið hófst í Marshall-skák- klúbbnum í New York í árslok 1957 voru rétt um 100 ár liðin frá því að Paul Morphy tefldi á fyrsta skák- þingi Bandaríkjanna og vann alla andstæðinga sína. Hinum 14 ára gamla Bobby Fischer mun hafa ver- ið spáð allgóðu gengi á þessu móti fyrir 50 árum, ekki síst vegna þess að nokkrum mánuðum áður hafði hann orðið efstur á opna bandaríska meistaramótinu með 10 vinninga af 12 mögulegum. En þar sem Samuel Reshevsky var mættur til leiks ásamt nær öllum bestu skákmönn- um Bandaríkjanna gat enginn séð fyrir rás atburða; Fischer náði for- ystunni strax í upphafi og hélt henni til loka. Þegar allt var komið í kring var niðurstaðan þessi: 1. Bobby Fischer, 10 ½ v. (af 13) 2. Reshevsky, 9 ½ v. 3. Sherwin, 9 v. 4. Lombardy, 7 ½ v. 5. Berliner, 7 v. 6.-8. Mednis, Denker og Feurstein, 6 ½ v. 9. Seidman, 6 v. 10.-11. Bisguier og Bernstein, 5 ½ v. 12.-13. Turner og DeCamillo, 4 ½ v. 14. Kramer, 3 v. Bobby sagði síðar í viðtali að á þessu mánuðum hefði hann einfald- lega orðið góður. Aðra lýsingu er að finna í viðtali sem undirritaður rakst á við Bill Hook, sterkan skákmann sem tefldi oft við Fischer í hrikaleg- um klúbbi á 42. stræti í námunda við Times Square sem kallaður var „The Flea House“. Þangað vöndu komur sínar allar heimsins „á vegum úti“- týpur, fjölbragðaglímukappar, pók- erspilarar, snókermeistarar, fjár- hættuspilarar og á stundum Bobby Fischer. „Eftir að hafa teflt margoft við Bobby með þokkalegum árangri gerðist eitthvað: Ég steinhætti allt í einu að marka á hann.“ Á meistaramótinu vann Fischer Arthur Bisguier í fyrsta sinn. Á næstu árum vann hann þennan geð- þekka New York-búa 12 sinnum til viðbótar. Skákin þeirra úr mótinu fylgir hér á eftir. Þarna koma fyrir tilþrif á skákborðinu sem sumum fannst einkenna taflmennsku Fisc- hers í flóknum stöðum, gott taktískt jafnvægi og lagni við að sjá fyrir góð svör við öflugum leikjum (dæmi 34. Hb1). Bandaríska meistaramótið 1957/ 1958: Bobby Fischer – Arthur Bisguier Frönsk vörn 1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4 4. e5 b6 5. a3 Bxc3+ 6. bxc3 Dd7 7. Dg4 f5 8. Dg3 Ba6 9. Bxa6 Rxa6 10. Re2 0–0–0 11. a4 Kb7 12. 0–0 Df7 13. c4 Re7 14. Bg5 dxc4 15. Dc3 Rd5 16. Dxc4 Ha8 17. Bd2 f4 18. Ha3 g5 19. a5 c6 20. axb6 cxb6 21. Db3 Rac7 22. c4 Hxa3 23. Dxa3 Ha8 24. Db3 Re7 25. Rc3 Df5 26. Db4 Rc8 27. Ra4 f3 28. Rc5+ Kb8 29. Rd7+ Kb7 30. Db3 Dg4 31. Rc5+ Kb8 32. g3 Dxd4 33. Be3 Da1 34. Hb1 Ha3 35. Rd7+ Kb7 36. Dd1 Da2 37. Rxb6 Rxb6 38. Hxb6+ Kc8 39. Dxf3 Dxc4 40. Df8+ Kd7 41. Dxa3 – og svartur gafst upp. Sigur Bobby Fischer vakti athygli um allan heim og ekki síst í Banda- ríkjunum. Hann kom fram í frægum þætti I’ve got a secret, Ég á mér leyndarmál - sem kemur við sögu í kvikmyndinni Catch me if you can. Betur falið leyndarmál þess þáttar var að bandaríska alríkislögreglan, FBI, sendi fulltrúa sinn á vettvang til að njósna um hinn unga snilling. Á árunum 1957 til 1967 tefldi Fisc- her alls átta sinnum á bandaríska meistaramótinu og vann mótið alltaf einn. Ef frá er skilinn sigurinn um áramótinu 1963/64 þegar hann vann allar ellefu skákir sínar var sigurinn á fyrsta mótinu sennilega sá tilþrifa- mesti. Hann var búinn að finna sinn stíl og var upp frá því sífellt að smá- bæta sig í öllum þáttum skákarinn- ar. Leið hans var stöðugt upp á við á næstu misserum og árum en þá var hann samferða Mikhail Tal frá móti til móts: Portoroz 1958 - Curacao 1962. En það er önnur saga. Skákþing Reykjavíkur hefst á sunnudaginn Skeljungsmótið – Skákþing Reykjavíkur 2008 mun hefjast sunnudaginn 6. janúar 2008. Teflt verður, að venju, á sunnudögum kl. 14.00 og á miðvikudögum og föstu- dögum kl. 19.30. Teflt verður í einum flokki, opnum öllum skákmönnum. Tímamörk eru hefðbundin, eða 90 mínútur á skák, en að auki bætast við 30 sekúndur á leik. Dagskrá mótsins: 1. umferð verður sunnudaginn 6. janúar kl. 14-18; 2. umferð miðviku- daginn 9. janúar kl. 19-23; 3. umferð föstudaginn 11. janúar kl. 19-23; 4. umferð sunnudaginn 13. janúar kl. 14-18; 5. umferð miðvikudaginn 16. janúar kl. 19-23; 6. umferð föstudag- inn 18. janúar kl. 19-23; 7. umferð sunnudaginn 20. janúar kl. 14-18; 8. umferð miðvikudaginn 23. janúar kl. 19-23; og 9. umferð föstudaginn 25. janúar kl. 19-23. Sigur sem bylti skákheiminum Helgi Ólafsson SKÁK New York Bandaríska meistaramótið 1957/1958 helol@simnet.is Yngsti meistarinn Bobby Fischer að tafli um svipað leyti og hann vann bandaríska meistaramótið KIRKJUSTARF Jólaball í Digraneskirkju Jólaball sunnudagaskólans og 6-9 ára starfs Digraneskirkju, sem vera átti að 30. desember sl. en var frestað vegna veðurs, verður hald- ið í dag, laugardag, og hefst kl. 11 með helgistund í kirkjunni þar sem börn úr 6-9 ára starfi sýna helgi- leik og Englar í ullarsokkum syngja. Að helgistund lokinni verð- ur farið á neðri hæð kirkjunnar þar sem dansað verður í kringum jólatré. Hugsanlega láta jólasvein- ar sjá sig. Þrettándinn í Hafnarfjarðarkirkju Næsta sunnudag ber upp á síðasta dag jóla, þrettándann. Af því tilefni verður guðsþjónusta dagsins helg- uð þrettándanum og sögu hans. Rætt verður um hina fornu kristnu merkingu dagsins og Epifanihátíð- arinnar sem fjallaði um það hvern- ig Guð birtist í heiminum í Jesú Kristi. Tengsl þrettánda dags jóla við konungana þrjá frá Aust- urlöndum verða einnig rakin o.fl. Prestur er sr. Þórhallur Heimisson en kantor Guðmundur Sigurðsson. Barbörukórinn leiðir söng. Þrettándahátíð í Vídalínskirkju Jólin verða sungin út í sunnudaga- skólanum kl. 11. Ármann æskulýðs- leiðtogi stjórnar söngnum við und- irleik Jóhanns Baldvinssonar organista. Leikbrúðuland Helgu Steffensen kemur í heimsókn og verður með tvær brúðusýningar. Börnin fá tækifæri til að taka þátt í og syngja við skírn, því barn verður borið til skírnar. Sr. Friðrik J. Hjartar skírir. Töfraraunsæi í Neskirkju Messa kl. 11. Í prédikun á þrett- ándanum verður rætt um töfra- raunsæi og hlutverk helgisagna. Prestur er dr. Sigurður Árni Þórð- arson og organisti er Sigrún Stein- grímsdóttir, sem stýrir kór Nes- kirkju. Messuhópur þjónar og matarhópur sér um hádegisveit- ingar. Börnin byrja sitt starf í kirkj- unni með fullorðna fólkinu en fara síðan til eigin helgihalds í safn- aðarheimilinu. Stjórnendur eru Sigurvin Jónsson og Björg Jóns- dóttir. Á eftir er súpa, kaffi og spjall á Torginu. Flestir starfs- þættir kirkjustarfsins eru hafnir. Digraneskirkja.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.